Morgunblaðið - 20.05.1979, Side 17

Morgunblaðið - 20.05.1979, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1979 17 búast, að ríkisstjórnin leysi vandamálin fyrir þá og fengin reynsla sýni, að af tvennu illu sé betra að takast á hendur langa baráttu, jafnvel þótt það kosti stöðvun atvinnufyrirtækja um skeið, heldur en að skrifa undir samninga, sem þeir hafi enga möguleika á að standa við. Takist vinnuveitendum að halda við þessa afstöðu og standa saman mun það leiða til þess að meira jafnræði verði milli aðila vinnu- markaðarins en verið hefur um langt árabil og það er áreiðanlega mjög mikilsvert fyrir baráttu þjóðarinnar allrar gegn verðbólg- unni. Stefnuleysi verkalýðssamtak- anna hefur einnig stuðlað að því að styrkja stöðu vinnuveitenda að þessu sinni. Augljóst er, að for- ysta Alþýðusambands íslands hef- ur enga hugmynd um hvaða af- stöðu hún á að taka. Verkalýðsfor- ingjar Alþýðubandalagsins eru greinileg ófærir um að marka heildarstefnu fyrir launþegasam- tökin í kjaramálum. Aberandi togstreita ríkir milli forystu Verkamannasambands íslands annars vegar og Alþýðusambands íslands hins vegar. Eftir að Björn Jónsson hvarf frá forystustarfi í Á ríkis- stjórnin ad grípa inn í? Viðhorfin í kjaramálum valda því, að ríkisstjórnin stendur nú á krossgötum. Vonir hennar um árangur í efnahagsmálum byggð- ust á því, að takast mundi með samstarfi við verkalýðsfélögin að koma í veg fyrir grunnkaups- hækkanir á þessu ári. Þær vonir hafa nú brugðizt. Ríkisstjórnin stendur uppi með gjaldþrota stefnu í efnahags- og kjaramálum. Viðbrögð Framsóknarflokksins eru þau að hvetja til þess að ríkisstjórnin grípi inn í með laga- setningu, lögfesti 3% grunnkaups- hækkun og banni verkföll til áramóta. Alþýðubandalagið er á mjög svipaðri skoðun að því undanskildu, að það er enn ekki tilbúið til þess að fallast á að banna verkföll með lögum. Þessi afstaða Framsóknarflokks og Alþýðubandalags er óraunsæ og sýnir bezt, að í báðum flokkunum ráða nú ferðinni menn, sem litla sem enga reynslu hafa af kjara- málum og sýnast ekkert hafa lært Þegar þetta er haft í huga er' alveg stórfurðulegt, að helztu forystumenn Framsóknarflokks- ins nú, þeir Steingrímur Hermannsson og Tómas Árnason skuli telja það vænlegast til árangurs að boða lagasetningu um lögfestingu á ákveðinni kaup- hækkun og bann við verkföllum. Enn undarlegra er, að Alþýðu- bandalagið skuli fylgja þeim félögum, Tómasi og Steingrími í þessari vitleysu og er ekki önnur skýring á því en sú, að Alþýðu- bandalagið sé búið að gefa upp vonir um að forystumönnum þess í verkalýðssamtökunum takist að marka ákveðna stefnu í kjaramál- um eða þá, að núverandi ráðherr- ar Alþýðubandalagsins séu svo bláeygir að halda, að það sé hægt að stjórna kjaramálum fólks með lögum. Þeir ættu að fara í smiðju til Eðvarðs Sigurðssonar og Einars Olgeirssonar og spyrja þá. Kannski þær gætu eitthvað lært af því. Jafnvel þótt ríkisstjórninni takizt að ná samstöðu um laga- setningu mun það engan vanda leysa og allsendis óvíst að lögum yrði hlýtt. Sex ráðherrar af níu geta sjálfum sér um kennt að svo er komið vegna þess, að ráðherrar bæði Alþýðubandalags og Alþýðu- grundvallarstefna Sjálfstæðis- flokksins, að frjálsir kjarasamn- ingar væru aðalreglan en afskipti ríkisvalds undantekning. Og þegar ferill Sjálfstæðisflokksins í ríkis- stjórnum er skoðaður kemur í ljós, að flokkurinn hefur afar sjaldan staðið fyrir afskiptum af gerðum kjarasamningum. Hins vegar hefur Sjálfstæðisflokkurinn oft staðið að lausn kjaradeilna með því að beita sér fyrir margvísleg- um hliðarráðstöfunum til þess að stuðla að lausn þeirra, þegar það hefur átt við. Það eru raunar einu afskipti ríkisvalds af kjara'málum, sem eiga við þ.e. að ríkisstjórnir beiti sér fyrir ákveðnum aðgerð- um, sem geti stuðlað að lausn yfirstandandi deilu á jákvæðan hátt. Þær raddir heyrast líka, að reynslan af frjálsum kjarasamn- ingum sé ekki slík, að það sé vænlegt til árangurs. Það er út af fyrir sig rétt. En hinn kosturinn, afskipti ríkisvalds, er verri. Og við hljótum að vænta þess, að aðilar vinnumarkaðarins hafi eitthvað lært af fenginni reynslu 1974 og 1977. Sú sérstæða staða er því upp komin, að Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur eru sammála um, að frjálsir kjarasamningar skuli ráða ríkjum. Væntanlega verða menn að telja, að þetta sé einnig skoðun verkalýðshreyfingarinnar í heild og raunar grundvallar- stefna hennar og er því um að ræða samstöðu Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og verkalýðshreyf- ingar að þessu leyti. Á hinn bóginn er augljóst, að viðhorf vinnuveitenda og vinstri stjórnarinnar, sem slíkrar, eru mjög áþekk. Bæði vinnuveitendur og vinstri stjórn telja æskilegast, að engar grunnkaupshækkanir verði á þessu ári. Það mundi áreiðanlega verða vinnuveitendum þóknanlegt, ef vinstri stjórnin leysti vandann á vinnumarkaðn- um fyrir þá með lögum með því að lögfesta mjög litla grunnkaups- hækkun og jafnvel frestun allra verkfalla fram yfir áramót. Enda byggist allur málflutningur vinnuveitenda á því, að þeir séu með aðgerðum sínum að verja stefnu ríkisstjórnarinnar í kjara- málum. „Politics make strange bedfellows" var einhvern tíma sagt. Skatta- lækkun er kjarabót En er þá enginn grundvöllur til kjarabóta? Að mati Morgunblaðs- ins er engin von til þess, að atvinnuvegirnir geti staðið undir kjarabótum og er þá átt við kauphækkanir, sem ekki enda í nýrri verðbólguöldu. En það jafn- gildir ekki því, að kjarabætur fyrir launþega séu útilokaðar á þessu ári. Þvert á móti er til augljós leið til að ná þeim fram og ekki mun af veita, því að tæpast leikur nokkur vafi á því, að verð- bólgan kreppir mjög að afkomu manna um þessar mundir, ekki sízt vegna þess að samdráttur í vinnu veldur minni tekjum en áður, þegar yfirvinna t.d. var meiri en nú og eftirspurn eftir vinnuafli almennt mun meiri. Aðferðin til þess að tryggja launþegum kjarabætur án þess að íþyngja atvinnuvegunum og án þess að leiði til nýrrar verðbólgu- öldu er veruleg lækkun beinna skatta og óbeinna. Sú aðgerð mundi raunar i senn bæta kjör launafólks og draga úr verðbólgu. Vinstri stjórnin hefur hækkað skattaálögur á þjóðina gífurlega. Afsökun hennar er sú, að það hafi verið nauðsynlegt til þess að halda niðri verðbólgu. Nú stöndum við uppi með stóraukna skattheimtu og verðbólgu, sem verður meiri en á síðasta ári og jafnvel meiri en á síðasta 12 mánaða tímabili fyrr- verandi ríkisstjórnar! Afsökun vinstri stjórnarinnar fyrir skatt- píningunni er ekki lengur fyrir hendi. Einn flokkur, Sjálfstæðis- flokkurinn, hefur þegar lýst því yfir, að hann muni strax afnema alla vinstri stjórnar skatta þegar hann tekur þátt í ríkisstjórn á ný. Sú aðgerð ein út af fyrir sig mundi stórbæta kjör almennings í land- inu um leið og henni mundi að sjálfsögðu fylgja verulegur niður- skurður á ríkisútgjöldum og umsvifum hins opinbera. Það er undarlegt fyrirbrigði, að þegar vinstri flokkar hafa uppi tilburði til þess að skera niður ríkisútgjöld lendir sá niðurskurður að því er virðist fyrst og fremst á lífsnauð- synlegri félagslegri þjónustu eins og sú fáránlega afstaða að neita Kópavogshælinu um heimild til þess að ráða nægilega margt fólk í sumarvinnu til þess að hægt sé að sinna því fólki, sem þar dvelur. Þá munu einhverjir segja sem svo: gott og vel það er ágætt að lækka skatta en lækkun beinn<» skatta mun ekki koma láglaunafólki til góða, þar sem það borgar enga Seina skatta að ráði. Það er rétt. Enda er nú orðið tímabært að taka til hendi við óbeinu skattana einnig. Miklar umræður standa nú yfir um benzínverðið. Eins og að var vikið í Reykjavíkurbréfi fyrir viku er benzínið orðið svo óheyrilega dýrt, að fólk með venjulegar tekj- ur hefur tæpast lengur efni á því að eiga eigin bifreið og reka hana. Það fer að verða pólitískt baráttu- mál að fólk geti átt eigin bifreið og rekið hana eins og það hefur verið pólitískt baráttumál Sjálfstæðis- flokksins í áratugi, að fólk eigi eigið húsnæði. Olíuverðið í Rotter- dam æðir upp og er nú helmingi hærra á tunnu en frá Opec-ríkjun- um. Ríkisstjórnin hefði betur hlustað á ráð Geirs Hallgrímsson- ar í- vetur en hann stóð upp í þinginu og benti á þann möguleika að taka upp viðræður við Sovét- menn um að hafa eðlilegri viðmiðun um olíuverð heldur en Rotterdammarkaðinn, sem rætt hefur verið um í Efnahagsbanda- lagslöndum að setja undir sérsakt eftirlit. Benzínið er orðið of dýrt og af hverjum 256 krónum, sem lítrinn kostar, tekur ríkið 144 krónur. Það mundi verða umtals- verð kjarabót fyrir alla þjóðfélagsþegna, ef ríkið lækkaði verulega skattheimtuna af benzín- inu og þar með benzínverðið. Allir þurfa á rafmagni að halda, jafnt láglaunafólk, sem hálauna- menn. Svo einhverjar tölur séu nefndar af handahófi er skatt- heimtan af rafmagni orðið slík að af 70 þúsund króna rafmagns- reikningi eru tæpar 20 þúsund krónur skattheimta, söluskattur og verðjöfnunargjald. Stjórnmálamenn, hvar í flokki, sem þeir standa, hvort sem þeir eru í Sjálfstæðisflokki, Alþýðu- bandalagi, Alþýðuflokki eða Framsóknarflokki, verða að gera sér grein fyrir því, að almenn- ingur í iandinu unir ekki lengur þeirri miklu skattheimtu, sem þeir bera allir meiri eða minni ábyrgð á, þótt upp úr hafi soðið við skattpíningu vinstri stjórnarinn- ar. Mótmælaaðgerðir þær, sem FÍB stendur fyrir á þriðjudag eru aðeins dæmi um það, sem mun koma, ef stjórnmálamennirnir taka sjálfa sig ekki taki og hefja niðurskurð á því bákni, sem þeir hafa sjálfir komið upp í vinsam- legri samvinnu við embættis- mannavaldið og báðir hafa talið fólki trú um að væri í almanna- þágu en er þó ekki síður kerfis- bygging í kringum þá sjálfa. Þess vegna eiga verkalýður og vinnuveitendur nú að taka hönd- um saman og segja við ríkisstjórn- ina og opinþera kerfið: þið hafið í ykk tr höndum tækin til þess að bæta lífskjör almennings í þessu landi. Við höfum það ekki. Lækkið skattana, skerið niður útgjöldin og lífskjör fólksins batna án þess að nýjar drápsklyfjar verði lagðar á atvinnureksturinn og án þess að ný verðbólguholskefla dembist yfir. Launþegar munu ekki sækja bætt lífskjör að þessu sinni í hendur atvinnurekenda. En þeir geta sótt þau til ríkisstjórnarinn- ar. ^aklyfting haekkaði ráðherra- ailtað 160 þúsundkr. .141 7nn i_t. “ Einróma tilmæl ||l|||Sp||^ 141.7QQ krAn-r ' S* tii farnmiina: Aflýsið 3%gnmnka .Ólíkleg" Hugmyndi** ilngólfi kföllum gegp .40 VlSl töðvun! Ö Steingrímur Hermannr 19 & „Grur. ekki á ári” Ríkisstjómin getur ekki, áð hjá í fa «Jarde; m? ASÍ sökum veikinda hefur enginn sterkur verkalýðsieiðtogi komið fram á sjónarsviðiö til þess að marka ákveðna stefnu fyrir heild- arsamtök launþega. Þess vegna veit í rauninni enginn í dag hvað Alþýðusambandið vill. Enginn vafi er á því, að verka- lýðsforingjar Alþýðubandalagsins eru í mikilli klípu. Helzt vilja þeir nota launþegasamtökin til þess að styrkja stöðu Alþýðubandalagsins í ríkisstjórn. En þeim er orðið ljóst, að það, sem gerðist í BSRB getur gerzt í ASÍ og öðrum verka- lýðsfélögum og samtökum þeirra. Hinn almenni félagsmaður getur risið upp og veitt forystumönnum 'sínum áminningu ef ekki sagt þeim upp störfum, ef þeir gerast sekir um of áberandi misnotkun á launþegasamtökunum í þágu Al- þýðubandalagsins. Þess vegna hika þeir og vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga. Verka- lýðssamtökin í dag eru eins og stefnulaust rekald. Þau geta ekki gert það upp við sig, hvort þau eiga að hefja harða kjarabaráttu eða hjálpa ríkisstjórninni við að lafa. Stefnulaus verkalýðssamtök annars vegar og samhent, stefnu- föst samtök vinnuveitenda undir sterkri, nútímalegri forystu, hafa leitt til þess að staðan er önnur en áður í samskiptum launþega og vinnuveitenda. af því að vera áhorfendur að kjarabaráttu síðustu áratuga. Af kjarabaráttu síðustu áratuga má fyrst og fremst draga þann lærdóm, að ríkisstjórnir skyldu varast að grípa inn í þær með lagasetningu. Margendurtekin reynsla sýnir, að það leysir engan vanda að ríkisstjórnir blandi sér í kjaramál með þeim hætti. Við- brögð verkalýðssamtaka verða að jafnaði þau að hefjast handa með einum eða öðrum hætti til þess að heimta rétt sinn á ný og það, sem þau töldu af þeim tekið með „ólögum". Þetta var reynsla ríkis- stjórnar Geirs Hallgrímssonar, sem reyndi að leysa aðsteðjandi verðbólguvanda með því að breyta gerðum kjarasamningum með lög- um. Allir þekkja þá sögu pg skal hún ekki endurtekin hér. í þessu sambandi skiptir engu, þótt að- gerðir þeirrar ríkisstjórnar hafi í sjálfu sér verið skynsamlegar, heldur einungis hitt, að þar sem verkalýðsfélögin gátu með engu móti sætt sig við þær, gátu þær ekki borið tilætlaðan árangur. Forystumenn Viðreisnar- stjórnarinnar lærðu þessa lexíu snemma á Viðreisnartímabilinu og höguðu sér í samræmi við það. Enda var það ein meginástæðan fyrir velgengni þeirrar ríkis- stjórnar. flokks hvöttu til ólöglegra verk- falla á sl. ári og súpa nú seyðið af því. Verði þeim að góðu, þótt hitt sé að sjálfsögðu stórkostlegt alvörumál, að menn hljóti að efast um að lögum, sem löglega kjörin stjórnvöld setja, verði hlýtt. Samstaða vinnuveit- enda og vinstri stjórnar Alþýðuflokkurinn hefur nú tek- ið undir þá stefnu Sjálfstæðis- flokksins, að frjálsir kjarasamn- ingar hljóti að ráða ferðinni á vinnumarkaðnum. Þessa stefnu boðaði Sjálfstæðisflokkurinn á miðjum vetri og henni hefur smátt og smátt aukizt fylgi. Að vísu heyrast raddir sem segja sem svo, að það dugi lítið fyrir Sjálf- stæðisflokkinn að boða frjálsa kjarasamninga nú, þegar hann hafi í ríkisstjórn staðið að laga- setningu til þess að breyta gild- andi kjarasamningum. Sjálf- stæðisflokkurinn getur haldið fast við stefnu sína þrátt fyrir þessa gagnrýni. Það hefur alltaf verið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.