Morgunblaðið - 20.05.1979, Page 28

Morgunblaðið - 20.05.1979, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MAÍ1979 Barna- og íjiilskyldusíðan Þórir S. Guðbi'rfísson Htína G ísladótíir Framtíðin „Þá mun úlfurinn búa hjá lambinu og pardusdýrið liggja hjá kiðlingnum... og smásveinn mun gæta þeirra.“ (Jesaja, 11.6). Umhverfisvernd — lífríki náttúrunnar — mengun til lands og sjávar — orð, sem sífellt heyrast í fréttum. Hvernig fer „maðurinn" með það vald og vit, sem honum er gefið? Er spámaðurinn Jesaja að spá um framtíðina eða horfir hann til baka til upphafs sköpunarinnar? Eða sér hann hvorttveggja í himneskri sýn? I upphafi kaflans segir hann frá komu Jesú til jarðarinnar. Hann talar um „stofn Ísaí“ og „kvistinn, sem mun vaxa upp af rótum hans“. Hann sér Messías sem Von heimsins. Fjaðrapenni Margir hafa lesið og heyrt um fjaðrirnar, sem notaðar voru í gamla daga til þess að skrifa með. Þær reyndust á margan hátt vel, en dugðu sjálfsagt ekki eins lengi og pennaoddar nú á dögum. Þess vegna væri e.t.v. ekki úr vegi að sameina þetta tvennt. Ef þú finnur stóra fjöður, gætirðu athugað, hvort fylling, sem þú hefur keypt í bókabúð, passar í fjöðrina, þegar þú hefur klippt framan af oddi hennar (þ.e.a.s. fyllingu úr kúlupenna)! Maðurinn og; dýrin! Ungur maður var á ferð ríðandi ásamt félaga sínum. Hann kom auga á nokkra fuglsunga, sem lágu við_ vegarbrúnina. Þeir höfðu ber- sýnilega fallið úr hreiðrinu. Félag- inn lét sig þetta engu skipta, en ungi maðurinn fór af baki. — Ég verð að reyna að hjálpa þeim aftur upp í hreiðrið sitt, sagði hann. — Ert þú alveg genginn af göfl- unum, sagði félagi hans. Láttu ekki þessa ungaraefla tefja þig. Flýttu þér á bak svo að við getum haldið áfram. En ungi maðurinn fór ekki á bak. Félagi hans hélt leiðar sinnar en hann hélt áfram að leita að hreiðr- inu og haetti ekki fyrr en hann hafði bjargað ungunum. Þegar hann hitti félaga sinn aftur tók félagi hans að skopast að honum fyrir tiltaekið. Ungi maður- inn svaraði rólegur: — Ef ég hefði ekki hjálpað vesalings ungunum, hefði mér ekki komið dúr á auga í nótt. Nafn unga mannsins var Abraham Lincoln. Hann varð síðar einn ástsælasti forseti Bandaríkj- anna, elskaður og virtur fyrir starf sitt til hjálpar þeim, sem bágt áttu. Fjallgangan Teikning: Eygló R. Sigurðardóttir, 11 ára, Langholtsskóla. Fjallgöngur fara í vöxt hér á landi. Með þeim fáið þið hollar og góðar hreyfingar, aukið þrek og þor — og getið notið útivistar á unaðslegan hátt. Um að gera að nota vor og sumar til útiveru — bæði fullorðnir og börn, og helst saman! Talnakerfi okkar er komið frá Aröbum. Því er haldið fram, að þeir hafi orðið fyrir áhrifum frá Indverjum fyrir mörg þúsund árum. Áhugaverð kenning gengur út á það, að Arabarnir, sem voru mjög snjallir í rúmfræði, hafi sett tölurnar saman úr vinklum eða hornum. 1 hefur eitt horn, 2 hefur tvö horn o.s.frv. 0 hefur þá auðvitað ekkert horn! Líttu á teikninguna og athugaðu, hvort þetta er rétt. (beir hafa látið sér detta ýmislegt í hug!)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.