Morgunblaðið - 20.05.1979, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1979
31
gjafavorur
studio-line
A. EINARSSON & FUNK
Laugavegi 85
ICELAND
Lamy penni
Stúdentagjöf
fyrir skóla lífsins
IAMY
meira úrval en þér haldiö
Almenna bókafélaginu:
Almenna bókafélagiö hefur sent
frá sér mikla búk um ísland — 74
litmyndir á 84 bls. og texti á 50
bls.
Myndirnar hefur tekið Kóreu-
maðurinn John Chang McCurdy,
formála fyrir bókinni ritar Halldór
Laxness og greinargerð um landið
og þjóðina ritar Magnús Magnús-
son í Edinborg.
John Chang McCurdy er ungur
maður, lærður í listasögu og list-
fræði í háskólum í Bandaríkjunum
og Svíþjóð. Hann hefur einbeitt sér
mjög að gerð listrænna ljósmynda
og er orðinn víðkunnur fyrir sínar
sérstæðu og fögru myndir. Hanh
starfar nú í Bandaríkjunum ein-
göngu að gerð slíkra mynda.
McCurdy hreifst mjög af íslandi
við fyrstu sýn og einsetti sér að
lýsa þessu einkennilega landi — að
honum framandi — í ljósmynda-
bók. Ferðaðist hann síðan víðsveg-
ar um landið til ljósmyndatöku —
og er bókin árangur af þeim ferða-
lögum.
Þessar ljósmyndir eru vissulega
frábrugðnar því sem við höfum
áður séð í myndabókum um ísland,
fyrirmyndirnar öðruvísi valdar og
séðar frá öðrum sjónarhornum en
við höfum átt að venjast. Og þetta
eru fjölbreytilegar myndir, meiri-
hlutinn af landslagi og náttúru-
fyrirbrigðum, en svo eru hér einnig
margar myndir af mannlífi og
dýralífi — bóndi að slá með orfi og
ljá í grænni túnbrekkunni, Ás-
mundi Sveinssyni bandandi hendi
við umheiminum, kríu fljúgandi
beint upp í loftið, hesti snapandi
eftir beit í rökkvaðri fjallaauðninni
— svo að eitthvað sé nefnt.
Formáli Halldórs Laxness fjallar
eingöngu um hina sérstæðu
myndagerðarlist McCurdys, en
Magnús Magnússon gerir í ítarleg-
um inngangi sínum grein fyrir
jarðfræðilegri sögu landsins og
Rosenthal vörur - gullfallegar — gulltryggðar
Ný landkynningarbók frá
sambúð lands og lífs þær 11 aldir
sem menn hafa átt hér heima.
Titill bókarinnar er ICELAND.
Hún er alls 140 bls. að stærð í stóru
broti (26x26). Bókin er prentuð af
Arnoldo Mondadori í Verona á
Ítalíu, en setningu textans annað-
ist Prentsmiðjan Oddi. Bókin er
komin í flestar eða allar bóka-
verzlanir.
Rosenthal býður yður ýmislegt fleira en
postulín og platta.
Komið í verzlun okkar og skoðið hinar
frábæru gjafavörur, — glervöru, postulín
og borðbúnað í ýmsum verðflokkum.
Rosenthal merkið tryggir frábæra hönnun
fyrir heimilið.
CHEEO-
HAFNARSTRÆTI 18
LAUGAVEGI 84
HALLARMÚLA 2