Tíminn - 23.06.1965, Page 13
MIÐVTKUDAGUR 23. jóní 1965
ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR
KR gegn Sjálands
Að lokinni fyrri umferð 1.
deildar keppninnar í knatt-
spyrnu hefur maður enga vís-
bendingu um það hvaða lið er
líklegast til sigurs — og í raun
inni heldur enga vísbendingu
um hvaða lið fær „reisupassa“
niður í 2. deild, því aðeins 4
stig skilja á milli efsta og
neðsta liðs. Tvísýnan í keppn-
inni er svo mikil, að fræðilega
séð getur neðsta liðið, sem er
Fram, unnið íslandsmeistara-,
tign á 13 stigum. Og það er
jafnframt möguleiki á því, að
efsta liðið, Valur, geti fallið
niður í 2. deild á t. d. 7 stigum.
í byrjun 1. deildar keppninn-
ar í ár var rætt um þann mögu
leika, að eitt hinna þriggja
Reykjavíkurfélaga í deildinni
gæti fallið niður — og upp úr,
2. deild kæmi utanbæjarfélag.
Þessi möguleiki er fyrir hendi
og það myndi þýða, að Reykja-
víkurfélögin í 1. deild yrðu að-
eins tvö, en utanbæjarfélögin
fjögur.t En.ef svo myndi fara,
hvaða þýðingu hefur það þá
fyrir 1. deildar keppnina fjár-
hagslega? Það er fyllsta ástæða
til að kryfja þessa spurningu
til mergjar, því að fjárhagurinn
skiptir alltaf miklu máli.
Á síðasta ári, þ. e. 1964, urðu
brúttótekjur af 1. deildar keppn
inni 830.720.00 kr. — eða tæp-
lega 1 millj. kr. — og hafa aldr
ei verið meiri af neinni keppni
hérlendis fyrr eða síðar. 1964
voru 4 Reykjavíkurfélög í deild
inni og 2 utanbæjarlið. Árið
þar á.undan, þ. e. 1963, urðu
tekjurnar rúmlega hálf millj.
kr. eða 522.660.00 kr., en þá
voru 3 Reykjavíkurfélög í deild
inni og 3 utanbæjarlið.
Hvernig stendur á þessari
tekjuaukningu? Voru áhorfend
ur svona fleiri að leikjunum
1964 eða hækkaði verð að-
göngumiða? Þessu er til að
svara, að ekki varð nein veru-
leg hækkun á verði aðgöngu-
miða, en það sem mestu máli
skipti, var það, að leikirnir í
Reykjavík voru auðvitað fleiri
1964, þegar 4 Reykjavíkurfélög
voru í deildinni, 'þannig urðu
tekjur af leikjum í Reykjavík
1964 kr. 562.695.00, en voru
árið á undan 292.820.00 kr.
Sem sé aðsókn að leikjum í
Reykjavík er meiri en á leikj-
um úti á landi með heiðarleg-
um undantekningum þó, sbr.
leik Keflavíkur og KR á Njarð-
víkurvellinum í fyrra. Þess
vegna hlýtur það að verða al-
varlegt — fjárhagslega séð
— ef Reykjavíkurfélögun-
um fækkar í 1. deild. Það er
ekki einungis, að færri áhorf-
endur sæki leiki úti á landi, en
það þýðir minnkandi tekjur,
heldur dregst líka frá innkomu
aukinn ferðakostnaður. Til gam
ans má geta í því sambandi,
að ferðakostnaður á síðasta ári
var einungis 39 þúsund, en árið
þar á undan var hann 134 þús.
og það stafar af því, að þá var
Akureyri í 1. deild.
Það er fróðlegt að velta þessu
fyrir sér og gaman verður að
vita, hvort næsta 'ársþing
Knattspyrnusambands íslands
tekur ákvörðun um það að
fjölga í 1. deild. Ákvörðun um
það myndi setja stórt strik í
reikninginn. — Og nú er bara
að bíða og sjá hvernig úrslit
ráðast í hinni geysispennandi
keppni, sem nú stendur yfir.
Fyrsti ieikur Þóróifs hér á þessu ári
Alf—Reykjavík. — I kvöld, miðvikudagskvöld, fer fram fyrsti leik
ur danska úrvalsliðsins frá Sjálandi, sem dvelur hér á vegum KR,
og mætir það þá gestgjöfum sínum, sem styrkt hafa lið sitt með
Þórólfi Beck. Verður þetta fyrsti leikur Þórólfs hér heima eftir að
hann gerðist leikmaður hjá Glasgow Rangers. Hefst leikurinn stund-
víslega kl. 20.30 á Laugardalsvellinum.
Mikil þátttaka í bikarkeppni KKI
Alls hafa 15 lið tilkynnt þátt-
töku sína í bikarkeppni K.K.Í., þar
af eru 12 lið utan Reykjavíkur.
Skipað hefur verið í riðla og fer
sú keppni fram í sumar. Loka-
keppnin sem I verða fjögur lið
mun fara fram í Reykjavík um
miðjan september.
I. riðill.
Umf. Snæfell, Umf. Skallagrímur.
II. riðill.
Körfuknattleiksfélag ísafjarðar.
jlþróttaifélagið Stafnir, Súganda-
firði. íþróttafélagið Grettir, Flat-
eyri. Sigurvegararnir úr I. og II.
riðli keppa síðan um hvor fer í
úrslitakeppnina í Reykjavík.
III. riðill.
íþróttafélagið Þór. Knattspyrnu-
félag Akureyrar. Umf. Tindastóll.
IV. riðill.
íþróttabandalag Hafnarfjarðar.
Umf. Laugdæla. Umf. Selfoss.
Umf. Hrunamanna.
V. riðill.
íþróttafélag Reykjavíkur. Glímu
félagið Ármann. Knattspyrnufél.
Reykjavíkur. Sigurvegararnir úr
III., IV. og V. riðli fara í úrslita-
keppni í Reykjavík.
Fyrstu umferð keppninnar skal
vera lokið fyrir 1. ágúst. Annarri
umferð skal lokið fyrir 23. ágúst
og lokakeppnin (4 lið) mun síðan
fara fram um miðjan september.
(KKÍ).
Bjargar Sigurður Einarsson þarna á linu fyrir Fram? Eftir myndinni
a8 dæma, sem tekin var í fyrrakvöld í leik Fram og Keflavfkur, vlrSist
SigurSur vera að stöðva knöttinn — en knötturinn fór samt sem áður
inn fyrir marklínuna og þar með skoraði Keflavik sitt eina mark
(Tfmamynd Kári)
Larsen (AB). — Dómari verður
Steinn Guðmundsson.
Það er ástæða að hvetja fólk
til að sjá leikinn. KR-liðið hefur
sýnt ágæta leiki að undanförnu og
er í öðru sæti í 1. deildar keppn
ínni. Þórólfur Béck styrkir liðið
án efa og verður áreiðanlega gam
an að sjá hann leika.
Námskeið í
handknattleik
Glímufélagið Ármann held
ur námskeið í handknatt-
leik fyrir stúlkur á aldrinum
12—14 ára.
Kennt verður á félags-
svæði Ármanns við Sigtún,
þriðjudaga og fimmtudaga
kl. 7—8. Hvert námskéið
stendur yfir 1 mánuð og
kostar kr. 25.00, er greið-
ist við innritun. Stúlkurnar
eru beðnar að vera í síðbux-
um (gallabuxum) og með
strigaskó.
Allar stúlkur á þessum
aldri eru hvattar til að
kynnast þessari skemmtilegu
íþrótt og vera með frá byrj
un. (Frá Ármanni).
DANIR
FAGNA
Eins og nærri má geta, urðu
gífurleg fagnaðarlæti á Idrætts-
parken í Kaupmannahöfn s. I.
sunnudag eftir að Danir liöfðu
sigrað Svía í landsleiknum í knatt-
spyrnu, 3:1. Og á myndinni hé-r
að ofan, sem er frá Polfoto, sést
mannfjöldinn streyma inn á völl-
inn, en lögreglumenn fengu ekki
við neitt ráðið og gátu ekki stöðv-
að „innrásina“. Leikmaðurinn, sem
sést á myndinni lengst til hægri,
er K. Hansen frá Köge, en til stóð
að þessi leikmaður léki á Laugar-
.dalsvellinum í kvöld með Sjálands
úrvalinu gegn KR. En liann hefur
ekki fengið Ieyfi til íslandsfarar í
bili, því danska landsliðið á að
leika gegn Sovétríkjunum n. k.
sunnudag í Moskvu, en að öllum
líkindum kemur hann með danska
landsliðinu hingað í byrjun næsta
mánaðar. — Eins og fyrr hefur
verið getið, var þetta fyrsti sigur
Dana yfir Svíum í knattspyrnu
frá því 1951, en þess má geta, að
Danir hafa nokkrum sinnum náð
jafntefli gegn þessum „erfðafjend-
um“ sínum.
Lið KR verður skipað eftirtöld
um leikmönnum, talið frá mark
verði til vinstri útherja: Heimir
Guðjónsson, Kristínn Jónsson,
Bjarni Felixson, Sveinn Jónsson,
Þorgeir Guðmundsson Ellert
Schram, Gunnar Felixson, Guð-
mundur Haraldsson, Baldvin
Baldvinsson, Þórólfur Beck, Sigur
þór Jakobsson.
í liði SBU verða Þessir leik
menn: Mogens Johansen (Köge),
Leif Petersen (Næstved), Kresten
Bjerre (AB), Knud Petersen
(Köge), Niels Yde (AB), Sören
Hansen (Lyngby), Palle Reimer
(Roskilde), Jörgen Jörgensen
(Holbæk), Arne Dyremose (AB),
Ove Andersen (Köge) og Finn
Sveinameistaramót íslands í frjáls
íþróttum fer fram dagana 26. og
27. júní á Laugardalsvellinum og
hefst klukkan 14 bSða dagana.
Sveinar teljast þeir drengir, sem
eru 16 ára á keppnistímabilinu.
Keppt verður í þessum greinum:
Fyrri dagur:
! 80 m og 200&&1 hlaúp, stangar-
, stökk, hástökk og kúluvarp.
Síðari dagur:
80 m grindahlaup, kringlukast,
langstökk, 800 m hlaup og 4x100
m boðhlaup.
Þátttaka tilkynnist fyrir n. k.
föstudag í síma 14608.