Morgunblaðið - 06.07.1979, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1979
3
Krafla í gang
eftir aðra helgi
KRÖFLUVIRKJUN verður vænt-
anlega sett aí stað að nýju eftir
um 10 daga, en túrbina virkjun-
arinnar hefur nú verið sett sam-
an að nýju. Talsverðar skemmdir
hafa komið fram í „rótor“ hverf-
ilsins og sögur gengið um að
hann væri ónýtur. Gunnar Ingi
Ólafsvík:
Lélegur afli -
næg atvinna
Ólafsvfk. 5. júlf.
LÉLEGUR afli hefur verið hjá
Ólafsvíkurbátum undanfarnar
tvær vikur og gildir einu um hvaða
veiðarfæri er að ræða. Atvinna er
þó næg, enda flestir bátar við
róðra.
Togarinn Lárus Sveinsson land-
aði í gær um 110 tonnum, mest
þorski. Hefur gengið vel hjá honum
á árinu.
Lítið hefur sumarhlýja gert vart
við sig hér, þó komið sé fram yfir
lengsta sólargang. Uthagi er nýlega
orðinn algrænn. Búast margir við
að nú sé á ferðinni enn eitt
nepjusumarið.
Helgi.
staðartæknifræðingur við Kröflu
sagði í samtali við Morgunblaðið
í gær, að mikill munur væri á því,
sem væri skemmt og því sem væri
ónýtt. „Rótorinn" væri alls ekki
ónýtur, en hins vegar væri ljóst,
að hann þarfnaðist viðgerðar og
hefði verið rætt um að sú viðgerð
færi fram næsta sumar.
Hreinsun stendur nú yfir á holu
9 á Kröflusvæðinu, en hún hefur
verið einna bezta holan á svæðinu.
Hún var hreinsuð fyrir tveimur
árum, en datt niður í vetur og
sagði Gunnar Ingi að ljóst væri að
hreinsa þyrfti holurnar á tveggja
ára fresti. Er Kröfluvirkjun verð-
ur sett í gang á ný verður rafmagn
framleitt með gufu frá holum 6, 7,
9,11 og 12 eins og áður.
Gunnar sagði að helzt væri talið
að ryð innan úr pípum og lögnum
hefði skemmt „rótorinn", en sér-
fræðingar hafa að undanförnu
kannað tæki virkjunarinnar.
Ákveðinn gufuhraði þyrfti að vera
fyrir hendi til að hreinsa pípurnar
og tíðar stöðvanir ykju líkur á
ryðmyndun í lögnum. Lögnum
hefði nú verið breytt lítillega og
sérstakur agnasafnari settur upp
til að koma í veg fyrir að ryð og
vélar virkjunarinnar yrðu nú
reynslukeyrðar í eitt ár til viðbót-
ar.
Morðið á Flateyri:
Dæmdur í 7
árafangelsi
í SAKADÓMI Reykjavíkur var í
gær kveðinn upp dómur í máli,
sem ákæruvaldið höfðaði á hend-
ur Þórarni Einarssyni, Gyðufelli
12 í Reykjavík fyrir að hafa orðið
fyrrverandi unnustu sinni að
bana í verbúðinni Regnboganum
á Flateyri við Önundarf jörð hinn
5. september sl.
Ákærði var dæmdur í 7 ára
fangelsi og kemur refsingunni til
frádráttar gæzluvarðhald, sem
ákærði hefur sætt frá því að
atburðurinn átti sér stað.
Þá var ákærði dæmdur til að
greiða allan sakarkostnað, þar
með talin saksóknararlaun til
ríkissjóðs, krónur 300 þúsund, og
réttargæzlu- og málsvarnarlaun
til skipaðs verjanda síns Arn-
mundar Bachmann, héraðsdóms-
lögmanns, krónur 500 þúsund.
Dóminn kváðu upp sakadómar-
arnir Ármann Kristinsson, sem
var formaður dómsins, Jón A.
Ólafsson og Sverrir Einarsson.
Skylt er samkvæmt lögum að
áfrýja héraðsdómi til Hæstaréttar
ef refsing er dæmd lengri en 5 ára
fangelsi og mun mál þetta því
sjálfkrafa ganga til Hæstaréttar.
Á þessari mynd sést vel hve illa þorskurinn var útleikinn. Ljósm. Mbl. RAX.
Fengu drauganet í vörpuna:
„Eitt það ljótasta
sem ég hef séð”
segir Ástráður Ingvarsson veiðieftirlitsmaður
SKIPVEItJAR á Bessa ÍS 410
urðu vitni að heldur óskemmti-
legri sjón þegar þeir drógu inn
vörpuna. þar sem skipið var
10—50 sjómflur norður af Pat-
reksfirði annan júlí síðastliðinn.
Þorskur. ásamt tveimur grálúð-
um. var fastur í smá netsnifsi.
svokölluðu drauganeti. heldur
illa útleikinn en þó lifandi.
Ástráður Ingvarsson veiðieftir-
litsmaður, sem var með skipinu
þegar þetta gerðist sagði að slíkt
væri því miður alltof algeng sjón,
„en þetta er nú það ljótasta sem
ég hef séð,“ sagði Ástráður. „Aug-
sýnilega hefur þorskurinn ánetj-
ast löngu áður en grálúðurnar og
þegar þær hafa togað netið í allar
áttir hefur stórt sár myndast á
þorsknum þar sem hann er gild-
astur.“
Aðalsteinn Sigurðsson fiski-
fræðingur sagði, að greinilegt
væri, af stærð burstaormanna í
netinu, að þorskurinn hefði í
síðasta lagi festst í netinu síðasta
sumar og því dregið það á eftir sér
í eitt ár eða jafnvel lengur.
Auðvelt væri að ímynda sér, að
fyrst þrír fiskar gætu festst í svo
fáum möskvum, hve mikið gæti
veiðst í heilt drauganet. Hann
sagðist eitt sinn hafa orðið vitni
að því er skip fékk netahnút í
trollið sem í var mikið af rauð-
maga og fleiri fiskum. „Eg hef þó
aldrei séð neitt þessu líkt,“ sagði
Aðalsteinn.
Astráður Ingvarsson sagði, að
eina leiðin til að koma í veg fvrir
að þetta ætti sér stað væri að
banna netaveiðar. Slíkt kæmi
alténd ekki fyrir á trollveiðum
eða dragnót, netin væru orðin svo
smáriðin og allt miðaðist við að
þau sæjust ekki í sjónum.
Aðalsteinn
Sigurðsson og
Ástráður Ingv-
arsson. Á borð-
inu fyrir framan
þá er netrifrildið
sem aðeins voru
nokkrir möskv-
ar, en þó nógu
stórt til að þorsk-
ur og tvær grá-
lúður ánetjuðust.
Þorskurinn var
særður eftir net-
ið en var samt
lifandi þegar
hann veiddist.
Beint
leiguflug
Auövitaö
Benidomv
OKEYPIS FYRIR BÖRNINNAN10 ARA
Margra ára reynsla,
brautryöjendur
í Benidorm feröum.
Reyndir fararstjórar,
þjálfaö starfsfólk.
Næsta brottför 11. júlí.
Góöir greiðsluskilmálar.
Seljum farseöla um allan heim á lægsta veröt.
Ferðamiðstöðin hf.
AÐALSTRÆTI 9 — SIMI 28133