Morgunblaðið - 06.07.1979, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JIJLÍ1979
15
SkoOaóu
mrju
taaKuna
VömrfraDance Centre
Utanríkisráðherra Breta, Carrington lávarður í heimsókn í flóttamannahúðum í Hong Kong, en þar var
ráðherrann á dögunum að kynna sér ástandið af eigin sjón.
Sveitir Pol Pots
í sókn í Kambódíu
Ban^kok, 5. júlí. AP.
FRETTIR frá Thailandi
hafa fyrir satt að hersveit-
ir hliðhollar fyrrverandi
stjórnanda Kambodiu, Pol
Pot, hafi sótt nokkuð á að
undanförnu gegn Víet-
nömum í Kambodiu og
virðist í þann veginn að ná
á sitt vald einni héraðshöf-
uðborg. Sérfræðingar
segja að monsúnrigningar
sem hafa verið miklar á
þessum slóðum undanfarið
hafi orðið vatn á myllu Pol
Pots-sveitanna og hafi
gert víetnömsku sveitun-
um örðugt um vik að
komast leiðar sinnar í
þungum skriðdrekum og
öðrum fyrirferðamiklum
farartækjum. Hafi Víet-
namar sums staðar orðið
að hörfa svo mjög að þeir
hafi skilið eftir sig bryn-
vagna og skriðdreka þeg-
ar hermenn Pol Pots hafi
sótt fram.
Þá segja flóttamenn sem komn-
ir eru nýlega yfir landamærin, svo
og sérfróðir um málefni Kam-
bodiu að inn í þetta blandist og
vaxandi spenna milli víetnamskra
hermanna og hermanna hinna
nýju kambodisku valdhafa sem
eru undir stjórn Heng Samrin
forseta. Hefur verið staðfest að
svo langt hafi gengið að vopnuð
átök hafi brotizt út og töluverður
hópur hermanna Samrin hafi
gerzt liðhlaupar og farið yfir
raðir Pol Pots.
LAUGAVEGI27 / SÍMI1 44 15
Flóttamönnum verði
bægt frá með valdi
Kuala Lumpur. Jakarta. 5. júlí. AP. Reuter.
STERK öfl innan flokks
Hussein Onns forsætisráð-
herra Malaysíu kröfðust
þess í dag að stjórnvöld
búi svo í haginn að „hægt
verði að skjóta“ að víet-
nömskum flóttamönnum
sem sækja að ströndum
landsins, þar sem flótta-
mannastraumurinn sé
nokkurs konar innrás í
landið.
Einnig samþykktu öflin á sér-
Frakkar
spara orku
14. júlí
Paría 5. júlí. AP
GISCARD d'Estaing Frakk-
landsforseti hefur ákveðið að
draga mjög úr hefðbundnum
atriðum hersýninga, sem jafn-
an eru stór liður í hátíðahöld-
um á þjóðhátíðardegi Frakka
þann 14. júlf, til að spara
orku. Talsmaður forseta
sagði, að hér væri um að ræða
40 prósent sparnað og myndu
97 flugvélar og þyrlur fljúga
yfir í stað 161 sem áformað
var. Svipaður sparnaður verð-
ur hjá ökutækjum hvers kon-
ar.
stökum fundi að hvetja Bandarík-
in til að taka við öllum víet-
nömskum flóttamönnum sem eru í
Malaysíu. Haldið er áfram við að
ýta bátum flóttamanna á haf út
frá Malaysíu, og hefur Indónesíu-
stjórn áhyggjur af því að margir
þessara flóttamanna komi til
Indónesíu, en á skömmum tíma
hefur flóttamannafjöldinn þar
aukist úr 31.000 í 50.000.
Samtök ríkja í Suðaustur-Asíu
lýstu því yfir í dag að aðildarlönd-
in, Malaysía, Thailand, Filipseyj-
ar, Singapúr og Indónesía, myndu
íhuga óskir Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) um að löndin taki við fleiri
víetnömskum flóttamönnum.
Lýsti utanríkisráðherra Indónesíu
því þó yfir að eðlilegra væri að ríki
hins vestræna heims tækju við
flóttamönnum í stað þess að
krefjast að sambandslöndin tækju
við fleiri flóttamönnum, þar sem
tugir og hundruðir þúsunda væru
fyrir.
Cyrus Vance utanríkisráðherra
Bandaríkjanna hvatti ríki heims í
dag til þess að setja diplómatískan
þrýsting á Víetnama og krefjast
þess af þeim að binda endi á
flóttamannavandamálið.
Margrét Thatcher fékk köld
svör í Moskvu í fyrri viku er hún
fór þess á leit við rússneska
ráðamenn að þeir beittu áhrifum
sínum til að fá Víetnama til að
stöðva flótta fólks úr landinu.
Rússar sögðu Thatcher að flótta-
mennirnir væru eiturlyfjaneyt-
endur, sakamenn og undirróðurs-
menn, og að málið væri innanrík-
ismál Víetnama, að því er Mal-
colm Fraser forsætisráðherra
Ástralíu skýrði frá í dag.
Auglýst eftir vitn-
um að árekstrum
RANNSÓKNARDEILD lögregl-
unnar í Reykjavík auglýsir eftir
vitnum að eftirtöldum árekstrum
og eru þeir. sem einhverjar upp-
lýsingar geta gefið um þá, beðnir
um að hafa samband við rann-
sóknardeildina:
Miðvikudaginn 27. júní s.l. var
ekið á bifreiðina R-5688, sem er
Scout jeppabifreið, við hús nr. 13
við Bergstaðastræti. Skemmd á
framhöggvara hægra megin. Kom
á bifreiðina fyrir kl. 11.20 um
morguninn. Gráleit málning er á
skemmdinni.
Miðvikudaginn 27. júní var til-
kynnt að ekið hefði verið á bifreið-
ina R-62238 við hús nr. 2 við
Dalaland. Bifreiðin er af teg.
Mazda blá að lit. Hún var skilin
eftir kl. 19.00 þann 26.6. og komið
að henni kl. 08.30 þann 27.6 og var
hún þá skemmd. Skemmd er á
vinstra framaurbretti og vinstri
hurð.
Laugardaginn 30.6. var ekið á
bifreiðina R-50465, sem er Fiat,
græn að lit, við Þingholtsstræti 9.
Vinstri hurð og hlið skemmd.
Bifreiðin var á fyrrgreindum stað
frá kl. 01.00 til kl. 14.15 og kom
tjónið á hana á fyrrgreindu tíma-
bili.
Þriðjudaginn 3. júlí var ekið á
bifreiðina R-64509, sem er Mazda,
gul að lit, í porti J.Þ. & Norðmann
við Skúlagötu. Skemmd á vinstri
hurð. í skemmd er svart eftir
höggvara með gúmmí.
Tvær söl-
ur y tra
SIGUREY seldi 82 tonn af fersk-
um fiski í Hull á miðvikudag og
fékk 34.5 milljónir fyrir aflann.
Meðalverð 421 króna. Þá seldi
Sæunn Sæmundsdóttir 28,2 tonn í
Fleetwood á þriðjudag og fékk
11,1 milljón króna fyrir aflann.
meðalverð 392 krónur.