Morgunblaðið - 06.07.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 06.07.1979, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JIJLÍ1979 Guðmundur Hall- mundsson - íminningu Fæddur 17. aprfl 1918 Dáinn 26. júní 1979. Hann lézt einn á báti að veiðum á Miklavatni fyrir norðan. Hann hafði fyrir nokkru brugðið sér norður til þess að heimsækja, sér til afþreyingar eitt sinn sem oftar eldri son sinn, sem býr rausnarbúi á Gili í Skarðshreppi í Skagafirði. Þetta var síðasta ferðin hans. Hann dó á vissan hátt eins og hefur verið táknrænt fyrir vest- firzka upprunann; reyndar fórst hann ekki úti á rúmsjó einhvers staðar út af fjörðunum fyrir vestan eins og forfeður hans og frændur sumir úr Arnarfirði gjörðu fyrr á öldum og allt fram á okkar daga í baráttu við Ægi konung, en þó eitthvað í svipuðum stíl — Íslendingasögustíl. Hann var líka þannig skapi farinn hann Guðmundur sálugi Hallmundsson. I vetur, er leið, var hann næstum fallinn í valinn, murkaður niður af „manninum með ljáinn". Hann lifði af áfallið eins og návígi upp á líf og dauða og komst heim til sín aftur af sjúkrahúsinu og bar sig karlmannlega eins og hans var vandi og von og vísa og hóf starf sitt á ný, hvergi smeykur hjörs í þrá, við leigubílaksturinn — harkið. Hann lét sig hafa það eins og annað, enda þótt slíkt væri ekki að læknisfræðilegum lögum sem og annað sem hann gerði af hjartans lyst, keðjureykingar á Camelsígarettum og hressandi sig á forboðnum veigum, ef því var að skipta. Guðmundur var leigubílstjóri að atvinnu hér í Reykjavík — á Hreyfli — og hafði verið við það áratugum saman við misblíð kjör og hafði byrjað á því fyrir stríð. Hann ók öll stríðsárin á þeim gerningatímum og reyndi þá margt og misjafnt og mikið eins og fleiri sem stunduðu sömu iðju í þá daga, harkararnir svonefndu. í ofanálag og í millitíð stundaði hann sjómennsku af kappi eins og hann átti kyn til og ekki að undra, þar sem hann átti að telja til sæúlfa og sjóhunda af Stapadals- og Álftamýrarætt, enda maðurinn margsjóaður, hvar sem á hann var litið og hvernig sem á hann var litið. Borinn og barnfæddur í Reykjavík og ólst upp við mjög t Hjartkær sonur okkar, GUÐMUNDURJÓN ÞÓRÐARSON, Roykjaborg, Mostellssveit, lézt af slysförum 4. júlí. Fyrir hönd unnustu, systkina og annarra vandamanna. Freyja Norðdahl, Þóröur Guómundsson. t Elsku litli sonur okkar og bróöir HEIMIR SNÆR, Úthaga 11, Selfossi, lézt á Barnaspítala Hringsins, 4. júlí. Lílja Hannibalsdóttir, Halldór Hafsteínsson og systkini hins látna. t Móöir okkar RAGNHEIÐUR ÁGÚSTÍNA SIGURÐARDÓTTIR FRÁ Bjarneyjum í Breióafiröi andaöist á elliheimilinu Grund aöfararnótt mióvikudagsins 4. júlí. Börnin. t Móöir okkar, tengdamóöir og amma SIGRÍÐUR KATRÍN SIGURÐARDÓTTIR, Hásteinsvegi 45, Vestmannaeyjum veröur jarösungin frá Landakirkju Vestmannaeyjum laugardaginn 7. júlí kl. 4 síöd. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Útför BJARNVEIGAR GÍSLADÓTTUR, Noröurgötu 21, Sandgeröi, fer fram frá Útskálakirkju laugardaginn 7. júlí kl. 14.00. Systkinin t Þökkum innilega samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, HELGU SOFFÍU BJARNADÓTTUR, Suðurlandsbraut 63. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Sendum samúö og vinarhug til Elínar KJartansdóttur og Jóhanns Guömundssonar. kröpp kjör eins og tíðkaðist víða á þeim .árum, og hann hlaut hart uppeldi, sem hafði mótað hann. Sem barn og unglingur lá hann langtímum saman á sjúkrahúsi, haldinn berklum, sem hann sigraðist á að miklu eða öllu leyti með lífsorku sinni og skapi. Berklarnir léku hann grátt, svo að hann var aldrei alveg heill síðan af þeim sökum, skildu hann eftir með bæklaðan fót; hann stakk við, þá er hann gekk. Hann var hins vegar alltaf eins og stríðsmaður sem hafði hlotið slæmt skotsár í fótinn — þannig orkaði það, en ekki eins og hann væri fórnardýr tæringar. Það lá við, að menjar, sem hann bar, klæddu hann eins og ör, sem er heiðarlega fengið, enda lét Guðmundur slíkt ekki aftra sér frá neinu settu marki. Hann var rúmlega sextugur, þegar hann lézt. Hann var þó enn ungur á vissan hátt, ungur í anda, þótt hann væri tekinn að lýjast nokkuð, m.a. af þessum sífellda akstri, sem hann gekk þó að af ákvörðun eins að fiskitúrum, eiginlega skaki, eins og mislangri útilegu, róðrum, sem urðu þó æ skemmri og skemmri í senn með árunum. Hann var hættur fyrir löngu næturharkinu, en fór hins vegar alltaf eldsnemma á fætur og bjóst til veiða eins og sá gamli í „The Old Man and the Sea“ eftir Hemingway fyrir og um og eftir óttu stundum, ef því var að skipta og síðan tekin striklota en ekki mikið lengur en fram að hádegi yfirleitt. Þá hélt hann heim til sín, einn og yfirgefinn, já einn og yfirgefinn — hann var búinn að missa konú sína, norsk-íslenzka, föngulega konu, sem var frænka hans í íslenzku ættina. Hún var ákveðin manneskja eins og hann. Guðmundur hafði unnað henni mikið og saknaði hennar og var aldrei samur eftir sem áður, er hann missti hana. Börn þeirra þrjú voru uppkomin, synir tveir, Jens Berg bóndi, sem áður er getið, Viggó bifreiðarstjóri og dóttirin Eybjörg Sólrún, og hann orðinn einn að mestu í íbúðinni að Grensásvegi 60, á einum allra bezta stað í húsinu, þar sem löngum sá vítt yfir láð og lög eða í öllu falli þar til farið var að byggja árans stórhýsin í grennd við blokkina númer sextíu efst uppi á Grensásnum. Guðmundur var náttúrlega ekki gallalaus maður fremur en við margir aðrir, en hann villti ekki á sér heimildir að öllu jöfnu, þótt hann kynni skil á ýmsu upp og ofan. Hann var ástríðumaður eins og þeir frændur hans vestfirzkir (og frænkur), og í hreinskilni mælt frekur á lífsins nautnir og sparaði sig hvergi, einkum á síöasta lífsáfanganum. Hann var eins og klipptur út úr sögum Hemmingways á stundum, óbrot- inn, frumstæður, upprunalegur persónuleiki, gefandi litlar eða engar skýringar, bardagamaður heiðarlegur með tilfinningar, sem hann virtist eiga nóg af en gat farið með eins og mannsmorð. Og svo að enn sé minnt á sögur Hemingways, þá kemur í hugann myndin af aðalpersónunni í To Have and Have not. (Einn gegn öllum, sem er til í íslenzkri þýð- ingu Karls ísfelds) náunginn með stríðlundina, þar sem hann stýrði smyglbátnum og tefldi í tvísýnu í kúlnaregni og undir ógn, vantandi annan handlegginn, sem hann lét ekki aftra sér, hvorki í lífi né ástum né hernaði og vegnaði honum stundum betur en öðrum á sinn hátt. Guðmundur hafði óstýriláta lund; hinsvegar stjórnaði hann skapi sínu eins og mestu ofsarnir gera, ef þeir hafa bæði vit og reynslu til að bera. Það var um helgi fyrir öfráum vikum, að sá, er þetta ritar, hafði litið við af gömlum vana í blokk- ina að Gensásvegi 60 til að heilsa upp á vini og kunningja á fyrrver- andi heimastöðvum. Guðmundur hafði ekið töluvert undanfarna daga og var að slappa af að enduðum vinnudegi; það talaðist svo til, að greinarhöf. tæki að sér að gerast einkabílstjóri atvinnu- bílstjórans þennan dag. Farkosturinn, Chevrolet Impala de luxe, flunkunýr, brúnn á lit, snyrtilegur, árgerð 79, nákvæmlega samkonar og Indira Gandhi á samkv. vitneskju í Time Magazine, sem hún þó notar ekki í pólitískum áróðursferðum um Indland (þá notast hún við jeppa) — þessi vagn Guðmundar, sjálf- skiptur, átta gata, powerstýri, poverbremsur, beið á hlaðinu við suðvesturhorn blokkarinnar. Guðmundur gefur stutt fyrirmæli. Það er startað, bakkað með varúð og ekið. „Ég hef setið með þér í þínum bíl til Þingvalla hér um sumarið forðum daga og ég veit hvernig bílstjóri þú ert,“ segir hann. Þetta var virðingarauki og jók á sjálfstraust að vera trúað fyrir atviúnutækinu hans svipað og stýra fleyi með kapteininn sér við hlið. Svo var haldið út af planinu og inn á Grensásveg og hann ekinn og svo sveigt inn á Bústaðaveg og haldið þaðan í austurátt upp í Breiðholt, Golanhæðir eins og þessi nýi borgarhluti er nefndur í Unnur VakHmarsdóttir frá Varmadal - Minning Fædd 24. ágúst 1912 Dáin 30. júní 1979 Þegar fregnin um andlát Unnar barst okkur hjónum til eyrna kom hún okkur ekki á óvart, því að við vissum, að Unnur hafði um nokk- urra mánaða skeið háð vonlausa baráttu við ólæknandi sjúkdóm og að hún gerði sér að síðustu fulla grein fyrir hvert stefndi. Fyrstu kynni mín af henni voru úr Menntaskólanum í Reykjavík, þó að ég væri 2—3 árum á undan henni. Man ég alveg sérstaklega eftir því, hvað hún var þá þegar glæsileg kona og vakti vöxtur hennar athygli. Renndu áreiðan- lega ýmsir skólabræður hýru auga til hennar. En það átti ekki fyrir henni að liggja að giftast neinum þeirra. Draumaprinsinn varð eftirlif- andi eiginmaður hennar, Jón Jónsson frá Varmadal á Kjalar- nesi, ungur og glæsilegur maður, einn af Varmadalsbræðrum, svo- nefndum, sem getið höfðu sér gott orð sem afburðaglímumenn, og liðtækir í öðrum íþróttum, þar á meðal hestamennsku. Unnur var dóttir Valdimars Guðmundssonar, skipstjóra og Sigríðar Línberg Óladóttur. ólst hún upp ásamt uppeldissystkin- um, Hrefnu og Þorsteini, hjá föður sínum og konu hans, Elísabetu Þórðardóttur, uns hún giftist Jóni, 10. júní 1933. Hófu þau búskap í Engey strax eftir giftingu. Að Auðnum á Vatnsleysuströnd reistu þau nokkru seinna bú og bjuggu þar nokkur ár. Vorið 1939 fóru þau svo að búa í Varmadal á Kjalarnesi og bjuggu þar rausnarbúi allan sinn búskap síðan. Ráku þau búið með miklum dugnaði, enda var Jón enginn aukvisi til vinnu. Voru þau sam- hent og létu hendur standa fram úr ermum. Kom þó mest á óvart dugnaður Unnar, því að ekki var að sjá að þar færi óreynd skólastúlka. Kom og menntun hennar að góðum notum við stjórn búsins með manni sínum. Var Unnur og mjög greind kona, vel lesin og bætti við þekkingu sína með lestri góðra bóka. Hún varð og með tímanum vel ættfróð og var gaman að eiga við hana samræður, enda var hún stál- minnug og kunni frá mörgu að segja. Var hún og gædd góðum tónlistargáfum. Oft var gest- kvæmt á heimili Unnar og Jóns og vel tekið á móti gestum. Var þá oft tekið lagið, því að Jón hefir mjög góða söngrödd og spilaði þá Unnur undir af sinni alkunnu smekkvísi. Af þessu má sjá, að þáu hafa átt vel saman, enda var hjónaband þeirra eins gott og bezt verður á kosið. Átti Jón góðan hauk í horni þar sem Unnur var, enda tóku þau fullt tillit hvort til annars. Mætti slíkt verða fyrirmynd ungum hjónum. Unnur og Jón eignuðust fjögur mannvænleg börn, en þau eru þessi talin í aldursröð. 1. Hjördís Jónsdóttir, húsmóðir og barnakennari, gift Hreini Magnússyni, bónda, Leysingja- stöðum, A.-Húnavatnssýslu. Eiga þau 3 börn, Unni, leikfimiskenn- ara, Magnús og Jón Hlyn í for- eldrahúsum. 2. Valdimar Jónsson, tónlistar- kennari og útvarpsvirkjameistari, Reykholti í Mosfellssveit, kvæntur Þórdísi Kjartansdóttur og eiga þau þrjú börn, Unni, Kjartan og Kristínu, sem öll eru í foreldra- húsum. 3. Jón Sverrir Jónsson, verk- taki, Varmadal, kvæntur Hönnu Sigurjónsdóttur og eiga þau 4 börn, Jón, Andrés, Elísabetu og Björgvin, öll í foreldrahúsum. 4. Haraldur Jónsson, bóndi í Varmadal, kvæntur Sigríði Sigur- jónsdóttur og eiga þau 4 börn, Úlfhildi, Sigurjón, Halldór og Ágúst, sem öll eru í foreldrahús- um. Einnig ólu þau Unnur og Jón upp bróðurdóttur Jóns, Guðnýju Björgu Þorgeirsdóttur, frá Gufu- nesi, frá 6 vikna aldri. Þá skal þess getið að Unnur átti tvo hálfbræður, Kristján og Al- freð. Eins og sést á ofangreindu yfirliti, er niðja ættbogi þeirrar Unnar og Jóns orðinn stór, 4 börn og 14 barnabörn. Eru öll börn þeirra hin mann- vænlegustu og barnabörnin mynd- arleg og sverja sig í hinar góðu ættir. Mikill harmur er kveðinn að eftirlifandi eiginmanni Unnar, Jóni, svo og börnum þeirra og barnabörnum, sem voru svo hænd að ömmu sinni, sem ekki getur lengur strokið þeim um vanga eins og oft áður. Við hjónin biðjum góðan guð að styðja Jón, sem sjálfur gengur ekki fullkomlega heill til skógar, svo og börn hans og Unnar og barnabörn. Þormóður Ögmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.