Morgunblaðið - 06.07.1979, Side 23

Morgunblaðið - 06.07.1979, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ1979 23 góðu gamni til að bregða svolitlum ævintýraljóma á hverfið. Guðmundur lét fara vel um sig og sagði: „Þetta er góður bíll...“ „Ertu toppánægður með hann?“ „Þetta er bezti og þægiLegasti bíll, sem ég hef eignazt." Satt var það. Hann var eins og hugur manns, viðbragðsfljótur eins og fjörhestur, hljóðvana og ísmeygilegur eins og Cobraslanga og með karakter. Guðmundur bað nú um að ekið væri að benzínstöðinni gegnt Æsufelli til að láta búnka hann, setja á hann benzín. Hann bað um fyrir talsverða upphæð. „Þetta ætti að nægja, þangað til ég byija að keyra aftur um það leyti sem fólkið kemur úr Hollywood í nótt. Eg verð að vinna inn fyrir benzíni og ferðinni norður." Svo var ekið lengra og hann sýndi leiðina að nýbyggðu stórhýsi. „Hér býr hún dóttir mín. Ég er að hugsa um að líta inn til hennar.“ Það var engin lyfta í húsinu og þurfti að ganga upp bratta stiga hátt upp. Hann setti það ekki fyrir sig og gekk hiklaust og hringdi. Enginn heima. Snúið til baka, setzt inn í sjevvann á ný. Guðmundur kveikti sér í Camel- sígarettu og sagði: „Mér hefur alltaf fundizt gott að geta átt stundir fyrir sjálfan mig án þess að þurfa að vera háður því að keyra sjálfur." Svo bað hann um að setja aftur í gang. Hann réð ferðinni. Þetta var kyrrlætisleg ferð um Breiðholtið og notið útsýnis og spjallað. Eftir drykklanga stund var rennt upp að Grensásvegi 60, parkerað nákvæmt og gengið frá bílnum eins og bát, sem var lagt við festar í höfn og haldið inn í blokkina og upp í íbúð hans. Þá segir hann: „Ég er að fara norður til sonar míns,“ Nokkru seinna barst fréttin um, hvernig andlát hans bar að hönd- um. Hans er saknað sem góðs drengs og félaga. Far vel, Guðmundur, og hvíl í friði. stgr. Frönsk skúta með íslenzku nafni... Fyrir stuttu var þessi glæsi- Iega skúta bundin við festar í höfninni á Álasundi. Það er kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess, að skútan. sem er frönsk. ber hið rammíslenska nafn Brennivín. Á skútunni eru fjórir Frakkar og einn íri, en ástæðan fyrir hinu íslenska nafni er sú, að eiginkona skipstjórans, Pierre Nissel, er íslensk og heitir Anna Theódörs- dóttir. Anna er þó ekki með í ferðinni að þess sinni, þar sem hún á lítið barn, sem ekki er hægt að skilja við í svo langan tíma. Skútan mun vera á siglingu í allt suinar og lagði hún af stað í ferðina þann 12. júní s.l. Farið var frá Le Havre í Frakklandi og ferðinni heitið til Noregs, þar sem myndin er tekin. Síðan er ferðinni heitið til Svalbarða, Jan Mayen, Grænlands og til Islands er skút- an væntanleg í byrjun september. ounum í dag Nýja hús9a9”®v®ópavog* aö Smiöj«we9' 10:*OP -“ GREIÐSLUR FRÁ TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS BEIÐNI Dag, 21. júní 1979 Til Tryggingastofnunar ríkisins um að leggja greiðslur inn á viðskiptareikning. NAFN NAFNNÚMER FÆÐINGARNÚMER Jón Jónsson 1234-5678 03.03.-123 HEIMILI SVEITARFÉLAQ Laugavegi 234 105 REYKJAVÍK Hér með fer ég þess á leit við Tryggingastofnun ríkisins, að hún leggi greiðslur til mín, jafnóðum og þær koma til útborgunar, inn á neðangreindan viðskiptareikning hjá: INNLÁNSSTOFNUN BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS VIÐSKIPTAREIKNINGUR Ávísanareikningur BANKl HB REIKN. NR. ÚTIBÚ/ Austurbæjarútibú við Hlemm Sparísjóðsreikningur 0303 12345 REIKNINGSEIGANDI/MERKI Jón Jónsson Gíró/hlauparelkn. Staðfest: BUNAÐARBANKi ÍSLANDS BANKASTIMPILL Að gefnu tilefni skal vakin athygli þeirra aðila í REYKJAVÍK, sem eiga rétt á greiðsl- um frá TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS á, að hægt er aö fá greióslur þessar lagðar inn á reikning í hvaða innlánsstofnun sem er. Eyðublað sem hér er sýnt fæst hjá viðkom- andi banka eöa Tryggingastofnun. Rétt er að benda rétthöfum lífeyris og bóta á, aó það flýtir fyrir greiðslum og sparar fyrirhöfn að láta innlánsstofnun annast þessa milligöngu. BUNAÐARBANKI ÍSLANDS UNDIRSKRIFT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.