Morgunblaðið - 06.07.1979, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1979
29
veru þekkja þær börn sín ekkert.
Þau hafa alist upp í návist móður-
innar en þó svo að náið samband
milli þeirra hefur aldrei þróast.
Mamma er sjaldan heima til að
hlusta á hrakfallasögur og hug-
hreysta litla sál. Það verður ein-
hver annar að gera, ef slíkt er þá
ekki bara byrgt inni og ummynd-
ast síðar í biturleika.
Það væri því verðugt verkefni á
barnaári að stuðla að því að
mæður geti notið þeirra forrétt-
inda að vera með börnum sínum
og ala þau upp. Sjálf naut ég þess
að hafa móður heima allan dag-
inn, er ég var að alast upp og veit
því að það er nauðsynlegt hverju
barni að annaðhvort foreldrið sé
alltaf til staðar.
Móðir
• Læknisaðstoð
Leigjandi í húsi öryrkja-
bandalagsins kom að máli við
Velvakanda og vildi koma á fram-
færi fyrirspurn til heilbrigðisyfir-
valda. Langaði hann til að vita
hvort Landspítalinn, sem hefur
aðstöðu í sama húsi og íbúðir
Öryrkjabandalagsins eru, geti
ekki veitt íbúum hússins læknis-
aðstoð einu sinni til tvisvar í viku.
Kvað hann það bagalegt fyrir
íbúana að fara alla leið á göngu-
deildina, leiðin væri löng og til
þess að komast á áfangastað
þyrfti að nota tvo strætisvagna
eða leigubíla. Sagði hann að það
yrði til mikilla bóta að geta sótt
læknisþjónustu í sama húsi. Að
öðru leyti kvað hann aðbúnað í
húsum Öryrkjabandalagsins að
öllu leyti til fyrirmyndar.
Hæstaréttardömur í máli Ragnars Arnalds:
Dómur undirréttar staðfestur
ummælin dæmd dauð og ómerk
HÆSTIRÉTTUR hefur kveðið upp
dóm í máli því sem þeir, er stóðu
fyrir undirskriftarsöfnuninni
„Varið land“ höfðuðu gegn Ragn-
ari Arnalds, menntamálaráð-
herra, en tilefni málshöfðunarinn-
ar voru ummæli Ragnars í viðtali í
útvarpsþættinum Víðsjá í marz-
mánuði 1974. Staðfestur var dóm-
ur undirréttar sem kveðinn var
upp af Steingrími Gauta Kristj-
ánssyni héraðsdómara 21. október
1977. En þá voru ummæli Ragnars
Arnalds dæmd dauð og ómerk, en
kröfur stefnanda um refsingu,
miskabætur og fégjald til að kosta
birtingu dóms voru ekki teknar til
greina.
í dómsorði Hæstaréttar segir að
hinn áfrýjaði úrskurður eigi að
vera óraskaður og að málskostn-
aður fyrir Hæstarétti falli niður.
Varadómarar í Hæstarétti þeir
Halldór Þorbjörnsson, yfirsaka-
dómari, Guðmundur Ingvi Sig-
urðsson, hæstaréttarlögmáður,
Jón Finnsson hæstaréttarlögmað-
ur, Unnsteinn Beck borgarfógeti
og Þorsteinn Thorarensen borgar-
fógeti, kváðu upp þennan dóm.
• „Orð í tíma
töluð
Kona hringdi til Velvakanda
og vildi þakka fyrir pistil sem
birtist í Velvakanda 4. júlí s.l. og
fjallaði um hávaða bíla og drukk-
ins fólks um nætur.
„Þetta eru orð í tíma töluð. Og
það er ekki nóg með að fólk syngi
og öskri er það kemur út af
skemmtistöðunum heldur gerir
það þarfir sínar í skotunum í
miðbænum.
Og ef hringt er í lögregluna er
svarið að þetta sé allt saman í
lagi. Það er ekki furða þótt mið-
bærinn líti illa út.“
Einnig hringdi kona sem sagðist
búa í miðbænum og verða oft fyrir
ónæði af völdum hávaða frá
mótorhjólum. Sagðist hún hafa
nokkrum sinnum hringt í lögregl-
una og kvartað yfir því að hafa
ekki svefnfrið fyrir fólki sem
geysist um á mótorhjólum. „En
lögreglan segir að ekkert sé við því
að gera þótt fólk sé á mótorhjól-
um, það megi það. En dýrin mega
ekkert gera sem truflar svefnfrið
fólks, þá er þeim miskunnarlaust
lógað, þótt þau geti aldrei haft
eins hátt eða valdið eins miklum
spjöllum og mennirnir."
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pótursson
Á skákþingi Leningrad í ár kom
þessi staða upp í skák þeirra
Klamans og Judasins, sem hafði
svart og átti leik. í síðasta leik
drap hvítur peð á d5 algjörlega
grandalaus, enda er ekki auðvelt
að sjá hvers vegna hann hefði átt
að láta það ógert:
31... Hxd5! 32. Hxd5 - Rc3, 33.
Hd7 (Eftir 33. Bg2 — Bxd5 verður
hvítur skiptamun undir) Be4! og
hvítur gafst upp. 34. Dd2 er svarað
með Df3 og hvítur er óverjandi
mát.
• Ávaxtalaus jógúrt
Arndís Sigurðardóttir frá
Selfossi hringdi og vildi taka
undir orð konu sem kvartaði yfir
því að ekki væri til jógúrt án
ávaxta.
„Það væri við hæfi að fá því
svarað hvers vegna hrein jógúrt er
ekki á boðstólum og einnig því
hvers vegna ekki er hægt að fá
ávaxtajógúrt í eins lítra dósum.
Fyrir fjölskyldu hlýtur það að
verða mun ódýrara að kaupa eina
stóra dós af jógúrt í stað þess að
kaupa margar litlar."
HÖGNI HREKKVÍSI
„VEL&tlP/Ð
Laugavegt 20 Simi fra skiptibordi 28155
Austurstræti 22
2 hæö
simi 28155
TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
WKARNABÆR
í dag fá ailir
SKRÝPLAMIÐA
í verzlunum okkar.
& SlGeA V/öGA í \wtmi