Morgunblaðið - 06.07.1979, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ1979
• Teitur ÞórAarson hefur bctur í skallaeinvigi við svissneskan varnarmann á Laugardalsvellinum á
döjíunum. Teitur átti þá stórleik ok var einnig í sviðsljósinu fyrir skömmu gegn sterkum tékkneskum
andstseðingum.
Ljósm. Emilía.
Góð heilsa
er gulli betri
Fyrir rétt tæpum mánuði lauk
landshlaupi FRÍ. Þetta framtak
Sambandsins var mjög athyglis-
vert og ekki síður hversu vel
tókst til. Áhugi almennings var
svo miklu meiri en við var búist
og fleiri tóku þátt f hlaupinu en
búist hafði verið við. Þátttakend-
ur urðu 4600 og vegalengdin sem
lögð var að baki var um 2500 km.
En það var ekki ætlunin að
fara að rifja upp hlaupið heldur
hversu lofsvert framtakið var.
Það sýnir okkur, að fleiri svipuð
verkefni bíða okkar. Fólk úti á
landsbyggðinni er ávallt reiðubú-
ið. Nýjungar er vel til þess
fallnar að rífa fólk upp úr hvers-
dagsleikanum og ekkert er holl-
ara en hreyfing og útivist. Von-
andi verður landshlaupið fyrsta
sporið f aukinni útivist og
trimmi. Hvernig hægt sé að halda
við og bæta heilsuna.
Það er hægt að „trimma" með
ýmsu móti en sennilega er skokkið
einfaldast. Hvað er skokk? Það er
rólegt hlaup sem kostar ekkert
annað en örlítið viljaþrek. Auk
þess sem flestir, sem það stunda,
verða jafnframt heilsubetri.
Kostir þess eru margir, það
styrkir hjarta og lungu, örvar
blóðrásina, styrkir vöðva og eykur
bjartsýni. Skokk hjálpar fólki að
léttast ef með þarf. Skokk eykur
þol og öryggi.
íleðin skín út úr andliti þessa unga drengs þar sem hann tekur við
ceflinu í landshlaupi FRÍ á Kjalarnesi. Veganestið sem hann fékk frá
eldri bróður sínum var: „Reyndu nú að hlaupa hratt áfrarn.1* Móðir
>eirra fylgist vel með öllu.
En er þetta ekki allt of tíma-
frekt kann einhver að spyrja. Nei,
síður en svo. Hver vika er 10.080
mínútur. Ef skokkað er 3 daga
vikunnar í 30 mínútur fara aðeins
90 mínútur á viku. Er ekki rétt að
verja þessum tíma í þágu betri
heilsu í stað þess að þurfa að eyða
enn meiri tíma í veikindi síðar á
ævinni?
Mannslíkaminn er byggður fyr-
ir hreyfingu, en ekki kyrrsetu.
Kyrrsetan er að verða eitt mesta
vandamál manna, því henni fylgja
ýmsir hrörnunarsjúkdómar, svo
sem í hjarta og lungum. Það er
samdóma álit allra sem viðhalda
líkamanum með léttu skokki,
sundi, leikfimiæfingum eða ann-
arri heilsusamlegri hreyfingu, að
almenn líðan sé mun betri. En rétt
er að hafa hugfast að fara sér
hægt í byrjun. Þá er rétt að benda
á að yfir vetrartímann er oft erfitt
að fá inni í hinum ýmsu íþrótta-
sölum, og því rétt að nota sumarið
og haustið til útiveru og hreyfing-
ar. Hið forna spakmæli, heilbrigð
sál í hraustum líkama, hefur
löngum sannað ágæti sitt. Og ætti
það að vera öllum keppikefli að
þetta færi vel saman.
Landshlaup FRÍ sýndi að heilar
fjölskyldur voru saman í hlaupinu
og því ekki að halda áfram? Ungir
sem gamlir.
Enginn lætur húsið sitt grotna
niður eða bílinn hristast í sundur,
húsmæður eyða löngum tíma í að
þurrka af húsgögnum og öðrum
dauðum hlutum, en hvað með þá
fasteign sem ekki er hægt að
endurnýja, mannslíkamann?
— þr.
Stórleikur Teits
gegn Tékkum
Frá því var skýrt í Mbl. fyrir
skömmu. að Öster, hið sænska lið
Teits Þórðarsonar, vann stórsig-
ur á Banik Ostrava frá Tékkó-
slóvakíu í TOTO-keppninni svo-
kölluðu. Öster skoraði fjögur
mörk gegn engu og réð gangi
leiksins frá upphafi til enda.
Teitur Þórðarson var heldur
betur í sviðsljósinu gegn hinu
sterka tékkneska liði, en hann
skoraði þrjú fyrstu mörkin, gerði
þrennu, sem er stórkostlegt gegn
svo sterkum mótherja. Teitur
hefur greinilega aldrei verið
betri en nú og það gátu íslenskir
áhorfendur best séð sjálfir í
landsleiknum gegn Sviss fyrr í
sumar.
Fyrsta mark Teits kom á 15.
mínútu leiksins, en þá skallaði
hann í netið eftir hornspyrnu
Mats Nordgren frá vinstri. Annað
markið á 28. mínútu var einnig
skallamark, en nú var það Karl
Gunnar Björklund sem átti fyrir-
gjöfina á Teit. Þriðja markið
skoraði Teitur síðan á 56. mínútu
með góðu skoti frá vítapunkti eftir
laglega fyrirgjöf frá Peter Sven-
son.
Teitur leyfði nú fleirum að
komast að við mark Banik og Tom
Evenson bætti fjórða markinu við
á 74. mínútu, potmark af metra
færi.
Göran Hagberg, einn af lands-
liðsmarkvörðum Svía, sem lék
m.a. gegn íslendingum á Laugar-
dalsvelli fyrir 3 árum, lék nú sinn
fyrsta leik í langan tíma, en hann
átti við slæm meiðsli að stríða.
Hann átti stórleik eins og margir
félaga hans, ekki síst Teitur.
i eitur tre rnál
agberg glánstej
öster-centem Teitur Thor-
darsson hade stor uppvisning
nSr öster i Tipscup-premiáren
utklassadc tjeckiska ligatv&an
Banik Ostrava med 4—0 (2—0).
Teitur svarade namligen för ett
ákta hat trick genom att göra
bflde 1 — 0,2—0och3—0.
Hópur Akureyringa sem tók þátt í landshlaupi FRÍ.
Ljósmynd SOR.
Síðasti hlaupari Akureyringa var Hermann Sigtryggsson og afhenti
hann Eyfirðingum boðhlaupskeflið við Lónsbrú.
Ljósm. Emilia.
Ljósm. SOR.