Morgunblaðið - 04.08.1979, Qupperneq 1
48 SÍÐUR
177. tbl. 66. árg. LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Carter félli fyrir
Reagan og Baker
(Símamynd AP)
Fidel Castro þjóðarleiðtogi á Kúbu ásamt tveimur hermönnum sandinista í Nicaragua. en þeir komu til
Havana og færðu Castro riffil þann er hann heldur á.
Samveldisfundurinn í Lusaka:
Aukin bjartsýni á sam-
komulag um Rhódesíumálið
Washington. 3. ágúst. AP, Reuter.
NÝJUSTU skoðanakannanir í
Bandaríkjunum benda til þess,
að færu forsetakosningar fram í
landinu nú myndu repúblikan-
ftalía:
Cossiga
talinn eiga
möguleika
Róm. 3. ágúst. Reuter. AP.
FRANCESCO Cossiga. sem falin
hefur verið stjórnarmyndun á
Ítalíu, átti í dag viðræður við
aðra stjórnmálaleiðtoga, en vax-
andi óþreyju gætir nú f landinu
vegna þess hve stjórnarmyndun
hefur dregizt á langinn.
Talið er að Cossiga hafi allgóða
möguleika á að mynda ininni-
hlutastjórn kristilegra demokrata
með stuðningi nokkurra smá-
flokka, en afstaða Sósíalistaflokks
Bettinos Craxi, er þó talin mundu
ráða úrslitum. Fáist Craxi, sem
sjálfur reyndi að mynda stjórn í
tvær vikur, til þess að veita
Cossiga hlutleysi má telja víst að
þeim síðarnefnda takist að mynda
stjórn.
Cossiga er 51 árs Sardiníumað-
ur, sem varð þekktur utan Ítalíu í
fyrra er hann gegndi störfum
innanríkisráðherra, þegar Aldo
Moro var rænt. Hann sagði af sér
vegna gagnrýni á störf hans í því
máli og hlaut virðingu margra
fyrir.
arnir Ronald Reagan og Howard
Baker báðir bera sigurorð af
Carter forseta. Hins vegar mundi
Edward Kennedy öldungadeild-
arþingmaður sigra þá báða,
Reagan og Baker. Reagan, sem
|nú er 67 ára að aldri, var ríkis-
stjóri f Kaliforníu á árunum
1966 — 74, en Baker er öldunga-
deildarþingmaður frá
Tennessee-fylki og er leiðtogi
flokks sfns í öldungadeildinni.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unar ABC-fréttastofunnar og
Louis Harris-stofnunarinnar
fengi Reagan 51% atkvæða en
Carter 44% færu kosningar fram
nú, en Baker hins vegar 48% gegn
43% Carters ef þeir leiddu saman
hesta sína. Kennedy fengi hins
vegar 59% í kosningum gegn
Reagan, sem fengi 36%, en í
framboði gegn Baker fengi
Kennedy 60% atkvæða en Baker
34%.
Lusaka. 3. ágúst. AP. Reuter.
NOKKURRAR bjartsýni gætti á
samveldisráðstefnunni í Lusaka
í Zambíu f dag á að takast mætti
að samræma stefnu brezku
stjórnarinnar og stefnu flestra
Afríkurfkjanna á ráðstefnunni í
málefnum Zimbabwe-Rohdesfu.
Julius Nyerere, forseti
Tanzanfu, sem lengi hefur verið
einn herskáasti stuðningsmaður
skæruliðaforingjanna Joshua
Nkomos og Robert Mugabes
sagði f dag f ræðu, að nauðsyn-
legt væri að koma á vopnahléi og
hqlda ráðstefnu með þátttöku
allra þeirra, sem málið snertir.
Gnindvöllur væri fyrir sam-
komulagi um nýjar kosningar f
landinu undir alþjóðlegri yfir-
stjórn og um nýja lýðræðislega
stjórnarskrá.
Nyerere sagði, að hann gæti
fallist á að hvítir menn í Zim-
babwe-Rhodesíu fengju hlutfalls-
lega fleiri sæti í þinginu en
blökkumenn, en hann stakk jafn-
framt upp á því að samveldis-
löndin settu á stofn sameiginleg-
an sjóð til að styrkja þá hvítu
menn til brottfarar, sem flytjast
vilja burt.
skæruliða
Tel Aviv, 3. áKÚst. AP. Reuter.
ÍSRAELSKIR herflokkar gerðu
í nótt skyndiárás á tvennar
búðir Palestfnuskæruliða f Suð-
ur-Lfbanon. Að þýi er talsmað-
ur ísraelshers sagði f dag, voru
búðirnar eyðilagðar, fjöldi
skæruliða drepinn og nokkurt
magn vopna tekið herfangi.
Búðirnar, sem ráðist var á, eru
um 15 kílómetra innan landa-
mæra S-Líbanons, og segja
ísraelsmenn að þær hafi verið
notaðar sem bækistöðvar fyrir
hryðjuverkaárásir skæruliða inn
Nyerere varaði á hinn bóginn I
við því að Bretar léttu efnahags-
legum refsiaðgerðum einhliða af
Zimbabwe-Rhodesíu og sagði það |
aðeins mundu draga borgara-
stríðið í landinu á langinn og
blanda öðrum þjóðum í það.
Margaret Thatcher forsætis-
ráðherra Bretlands sagði að
stjórn sín mundi innan tíðar
leggja fram nýjar tillögur til
lausnar Zimbabwe-Rhod-
esíu-málinu, en hún lagði áherzlu
á að ekki væri hægt að líta fram
hjá þeirri staðreynd, að forseti
landsins væri nú Afríkumaður
sem og forsætisráðherrann og
meirihluti þingsins, þótt núver-
andi stjórnarskrá landsins væri
gölluð.
Utanríkisráðherra Nigeríu
sagði á hinn bóginn, að stjórn sín
myndi endurskoða afstöðu sína
til aðildar að brezka samveldinu
fengist ekki niðurstaða sem
í Líbanon
í ísrael. Engir ísraelskir her-
menn féllu í árásinni.
Búðirnar voru skammt frá
landamærasvæðum þeim, sem
eru á valdi gæzlusveita
Sameinuðu þjóðanna, mannaðar
hermönnum frá Noregi og
Nígeríu, en talið er að ísraels-
mennirnir hafi komist óséðir
yfir gæzlusvæðið. Sýrlenzkir
hermenn, sem eru á landamær-
um Sýrlands og Líbanons nokkra
kílómetra í burtu frá búðunum,
höfðu heldur ekki afskipti af
árásinni.
I stjórninni líkar, en Nígeríumenn
hafa tekið mjög harða afstöðu
gegn stjórn Muzorewa biskups í
I Zimbabwe-Rhodesíu.
A-Þýzka-
land mót-
mælir form-
lega við
Rúmeníu
Austur-Berlín, 3. ágúst. Reuter, AP.
AUSTUR-ÞÝZKA stjórnin heí-
ur formlega mótmælt við rúm-
ensk stjórnvöld ákvörðun
þeirra um að hætta að selja
öðrum erlendum ferðamönnum
í Rúmeníu benzín en þeim sem
greiða fyrir með vestrænum
gjaldeyri.
Er þetta í fyrsta sinn í háa
herrans tíð, sem ríkisstjórn í
Austur-Evrópu mótmælir opin-
berlega stjórnvaldsaðgerð í öðru
kommúnistaríki í álfunni. Önnur
ríki í Austur-Evrópu hafa einnig
tekið umrædda ákvörðun Rúm-
eníustjórnar mjög óstinnt upp,
enda eru mörg þúsund ferða-
menn frá þessum löndum á
ferðalögum í Rúmeníu á þessum
árstíma, langflestir án vestræns
gjaldeyris. Rúmeníustjórn tók
ákvörðun þessa til þess að
freista þess að draga úr benzín-
notkun í landinu, en framkvæmd
hennar hefur nú verið frestað til
10. ágúst. Er búizt við því að þeir
ferðamenn, sem urðu stranda-
glópar í þá tvo daga, sem benzín-
söluákvörðunin var í gildi, hafi
nú hraðar hendur og keyri heim
á leið.
látinn
Stokkhólmi, 3. ágúst. Frá
önnu Bjarnadóttur fréttaritara Mbl.
PRÓFESSOR Bertil Ohlin, nób-
elsverðlaunahafi í hagfræði og
fyrrum formaður Frjálslynda
flokksins í Svíþjóð, lézt i dag
(föstudag). Banamein hans var
blóðtappi. Hann var fæddur á
Skáni vorið 1899 og var því
áttræður er hann lézt.
Bertil Ohlin lauk prófi í hag-
fræði frá háskólanum í Lundi
aðeins 29 ára gamall og doktors-
prófi frá Stokkhólmsháskóla fimm
árum síðar en magistersprófi hafði
hann lokið við Harvardháskóla í
Bandaríkjunum 1923.
Hann starfaði bæði sem fræði-
maður og stjórnmálamaður.
Hann gegndi prófessorstöðum í
Bandaríkjunum, Danmörku og
Svíþjóð, lengst við viðskiptahá-
skólann í Stokkhólmi. Nobelsverð-
launin fékk hann árið 1977 fyrir að
leggja grundvöllin að nútíma
kenningum hagfræðinga um al-
þjóðaviðskipti. Hann var heiðurs-
félagi hagfræðifélaga úti um allan
heim.
Bertil Ohlin var formaður
Frjálslynda flokksins á árunum
1947—1970. Hann var fyrst kosinn
á þing 1939 og sat þar í 31 ár. Ohlin
var viðskiptaráðherra, 1944—1945
en annars alltaf í stjórnarandstöðu
og lengst af leiðtogi hennar. Að
honum látnum sagði Tage Erland-
er, fyrrum formaður jafnaðar-
mannaflokksins og forsætisráð-
herra 1946—1969, að þátttaka eins
fremsta hagfræðings Svía í
stjórnmálum hefði verið þjóð-
inni mjög mikils virði.
Ola Ullsten, forsætisráðherra og
núverandi formaður Frjálslynda-
flokksins, sagði að líklega hefði
enginn einn maður haft jafnmikil
og góð áhrif á stefnu frjálslyndra í
Svíþjóð og Bertil Ohlin.
Bertil Ohlin hafði gaman af að
segja Islendingum frá því að hann
kynntist eftirlifandi konu sinni á
alþingishátíðinni á íslandi 1930.
ísraelsmenn ráðast á