Morgunblaðið - 04.08.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.08.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1979 5 Colin Porter við nokkur verka sinna á sýningu í Eden. „Ætlaði mér alltaf að verða listmálari” — Colin Porter með málverka- sýningu í Eden í Hveragerði COLIN Porter opnaði nýlega málverkasýningu í Eden í Hveragerði, þar sem hann sýnir 42 olíu- og akrflmyndir. Þetta er fyrsta málverkasýning Colin Porter, enda mun hann íslend- ingum eflaust betur kunnur sem klæðskeri og fatahönnuð- ur, en hann hefur verið búsett- ur á íslandi í um það bil 22 ár. í viðtali við blm. Mbl. fyrir stuttu sagðist Colin Porter alltaf hafa ætlað sér að verða lista- maður, enda hefði hann fengist við að mála frá því hann fyrst mundi eftir sér. „Örlögin réðu því þó að ég gerðist klæðskeri og lærði jafnframt fatahönnun og tísku- teiknun," sagði Colin Porter. „Ég mála því mest í frístund- um mínum og er ég í litlum áhugamannaklúbbi um listmál- un. Við hittumst alltaf einu sinni í viku og málum, en við höfum aðstöðu í húsi Æskulýðsráðs við Fríkirkjuvg. Auk þess mála ég líka stundum heima, en allar landslagsmyndir mála ég úti í náttúrunni, því ég er mjög hrif- inn af litunum í íslenska lands- laginu, þeir koma mér alltaf í vissa stemningu," sagði Colin Porter. Að sögn Colins Porter reynir hann alltaf að mála eitthvað sem fólk skilur, þannig að hægt sé að sjá af hverju myndin er. „Það er mjög misjafnt hvað ég er fljótur að mála,“ sagði Colin Porter brosandi, er við lögðum fyrir hann þá spurningu. „Stundum gengur mér vel og get þá málað mynd á nokkrum klukkustundum. Aftur á móti gengur mér líka stundum illa og eyði þá til dæmis miklum tíma í mynd, sem ég verð aldrei ánægð- ur með og hendi kannski að lokum." Colin Porter sagði að það væri mjög erfitt fyrir óþekkta lista- menn að fá staði fyrir sýningar sínar og vildi hann nota tæki- færið til að koma á framfæri þakklæti sínu til Braga í Eden, fyrir að hafa aðstoðað sig við að gera þessa sýningu að veruleika. Sýningu Colin Porter í Eden hefur verið mjög vel tekið og sagði hann að þrjátíu myndir hefðu selst fyrsta daginn, þar af 27 fyrsta klukkutímann. Sýning- unni lýkur 9. ágúst. Endnrgreiðslu tannlæknakostnaðar ófrískra kvenna hætt fyrir rúmu ári — segir Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri „ÞETTA var ekki gert fyrir forgöngu heilbrigðisráðuneytis- ins. Það var samþykkt lagabreyt- ing á Alþingi vorið 1978 á al- mannatryggingalögunum, þar sem fellt var niður að endur- greiða skyldi tannlæknakostnað ófrískra kvenna“, sagði Páll Sig- urðsson ráðuneytisstjóri heil- brigðisráðuneytisins, er Mbl. innti hann eftir því í gær, hvers vegna hætt hefði verið að endur- greiða tannlæknakostnað þennan.“ „Með þessari breytingu var einnig ákveðin rýmkun á endur- greiðslu tannlæknakostnaðar barna og unglinga. Hver ástæða lá að baki þessari breytingu er mér ekki kunnugt, en mig minnir, að tillaga þar að lútandi hafi komið frá sérstakri nefnd, sem falið var að endurskoða lög þessi." Margeir tapaði fyrir Nicolic í dag tapaði Margeir fyrir Nicolic frá Júgóslavíu. Hann féll f gildru í byrjuninni og eftir það átti hann sér ekki viðreisnar von. önnur markverð úrslit eru þau að Douven frá Hollandi vann Seiravan frá Bandaríkjunum. Staðan eftir 7 umferðir er bessi. Fyrstur er R. Douven Hollandi með 6 vinninga, annar Czernin Rússlandi, 514, í þriðja til sjöunda sæti eru Ravikumar, Seiravan, Handoko, Negulerku og Barbero, allir með 5 vinninga. Margeir Pétursson er með 4 vinninga. Páll kvaðst ekki hafa heyrt neitt um, að misnotkun þessara endur- greiðslna hefði átt sér stað, en telja að ástæðan hefði e.t.v. verið sú, að talið væri að nútímamatar- æði og eftirlit væri nægilegt til að fyrirbyggja óeðlilega miklar tann- skemmdir ófrískra kvenna. „Það er sem sagt meira en ár síðan þessi lagabreyting var gerð og tók hún gildi um svipað leyti. Hvað veldur því, að mál þetta er svo mjög umrætt nú, er mér ókunnugt um“, sagði Páll að lok- um. Páll Flygenring um umsókn bandaríska rannsóknafyrirtækisins: Sóttu um einkaleyfi og var hafnað „BANDARÍSKA fyrirtækinu Jack Grynberg and Associates var neitað um einkaleyfi en ekki leyfi til olíuleitar við íslands- strendur," sagði Páll Flygenring ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðu- neytinu þegar Morgunblaðið bar undir hann ummæli forstjóra fyrirtækisins, Jack Grynbergs, í Morgunblaðinu í gær. í viðtali við Morgunblaðið í gær sagði Jack Grynberg, að fyrirtæki hans hefði verið reiðubúið að leggja verulega fjármuni í rannsóknir á hafsvæðinu við ísland en fengið neitun. Jack Grynberg sagði einnig að á stóru svæði við strendur landsins væri að finna setlög sem rétt væri að athuga gaumgæfilega með tilliti til olfu- og gasvinnslu. Páll Flygenring sagði, að í umsókn bandaríska fyrirtækisins um olíuleit hér við land hefði verið rætt um „consession" sem al- mennt væri notað í merkingunni einkaleyfi. „í svari okkar sögðum við að rétt væri að leita til iðnaðarráðuneytisins um leyfi eða „permit" til rannsókna á íslensku hafsvæði, en við myndum hins vegar ekki og hefðum ekki veitt „consession". „Sá er munurinn," sagði Páll Flygenring. „Það er því rangt hjá honum að ho.num hafi verið neitað um leyfi og að við höfum ekki veitt nein leyfi. Við höfum veitt leyfi en ekki einka- leyfi, við höfum ekki veitt „consession". Þannig hafði West- ern Geophysics leyfi en ekki einkaleyfi til rannsókna hér við land,“ sagði Páll Flygenring. Þess má geta að í ensk-íslenskri orðabók Sigurðar Arnar Bogason- ar er þýðing orðsins concession þessi: eftirgjöf, tilslökun; viður- kenning; úthlutun; veiting; con- cession to public opion; to hold a concession for; hafa leyfi (sérleyfi) fyrir landi eða réttindum. Þá er í orðabók Sigurðar sagt að concess- ionaire sé leyfishafi, sem stjórnin hefur veitt sérleyfi til verslunar eða einhverra framkvæmda. Þorskurinn smærri en á vetrarvertíðinni Akranesi. 2. ágúst. LÖNDUN hefur farið fram úr Akranestogurun- um bæði í gær og í dag. Haraldur Böðvarsson AK 12 var með 110 lestir, óskar Magnússon AK 177 með 180 lestir og Kross- víkin AK með 150 lestir. Afli þeirra var eingöngu þorskur og fer thann til vinnslu í frystihúsum bæjarins. Menn telja að þessi þorskur sé smærri en hann gerðist á vetrarvert- íðinni en þá var hann vax- andi. Kolmunnaveiðin gengur illa hjá Akranesskipunum Vikingi og Bjarna Ólafs- syni og verða þeir ef til vill að koma aflalausir heim. - Júlíus. Lagadeildin mælir með Bimi Þ. LAGADEILD Háskóla íslands samþykkti á fundi sínum fyrr í vikunni að mæla með því að Birni Þ. Guðmundssyni, settum prófess- or og áður borgardómara, yrði veitt prófessorsembætti við deild- ina með aðalkennslugreinum á sviði sifja-, erfða- og persónurétt- ar. Fimm kennarar við lagadeild- ina samþykktu að mæla með Birni en einn mælti með að dr. Páll Sigurðsson, dósent fengi embætt- ið. Auk Björns og Páls sótti um embættið Guðrún Erlendsdóttir lektor. INNLENT NM unglinga í bridge: Island lagði finnsku liðin og er í 3. sæti Frá Jakobi R. Moller í Gautabori;. ÁRANGUR íslenzka unglingalandsliðsins í bridge er eftir vonum. Þeir unnu í gær bæði finnsku liðin, eldra liðið 11—9 og yngra liðið 17-3. Staða efstu liða eftir 6 umferðir: Noregur 99, Svíþjóð 85, ísland 75, Danmörk 62, Svíþjóð (yngra liðið) 57 og Finnland 55. Islendingar eiga eftir að spila gegn Danmörku og Svíþjóð, yngri liðunum, og norska liðinu, sem talið er líklegt til sigurs. Mótinu lýkur á laugardag og verður sagt frá úrslitum mótsins eftir helgina. 29800 BÚÐIN Skipholti19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.