Morgunblaðið - 04.08.1979, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1979
23
Ákærður fyrir banatil-
ræði við Charan Singh
Nýju Dehlí — 3. ágúst - AP
HINN NÝI íorsætisráðherra
Indlands, Charan Singh, bar í
dag vitni fyrir dómstólum
vegna ákæru á hendur 25 ára
gömlum stúdent, Jai Narain.
Narain er ákærður fyrir að
hafa reynt að myrða forsætis-
ráðherrann í desember síðast-
liðnum. Charan Singh er fyrsti
forsætisráðherra Indlands, sem
Nixon illa séð-
ur nágranni
New York — 3. ágúst — Reuter
RICHARD Nixon fyrrum
Bandaríkjaforseti hefur
neyðzt til að hætta við að
kaupa lúxusíbúð á efstu hæð á
góðum stað í miðborg New
York vegna mótmæla þeirra
sem fyrir búa í húsinu.
Leigjendur og eigendur ann-
arra íbúða í húsi þessu kvört-
uðu yfir því opinberlega, að
Nixon hygðist flytja í húsið þar
sem nærvera hans mundi
raska mjög húsfriði vegna alls
þess fólks sem óhjákvæmilega
væri í för með forsetanum. Var
þar átt við blaðamenn, öryggis-
verði og alls kyns forvitið fólk,
sem fýsti að koma auga á
Nixon.
Nixon og Pat kona hans hafa
sagzt vilja flytjast til New
York frá Kaliforníu til að geta
hitt dætur sínar og fjölskyldur
þeirra oftar. Nixon bjó í New
York í nokkur ár áður en hann
var kosinn forseti 1968 og
stundaði þá lögfræðistörf í
borginni.
ber vitni fyrir dómstóium í
sakamáli. Narain hefur neitað
ákærum um að hafa reynt að
myrða Singh.
Charan Singh sagði í vitna-
leiðslum, að Narain hefði veist
að sér með hníf og hrópað: „Ég
vil tortíma hinni nýju stjörnu
Janata-bandalagsins." Narain
yfirbuguðu lífverðir Singhs en
sáralitlu munaði að hnífurinn
snerti brjóst Singhs. Atvik þetta
átti sér stað í garði Singh og
mun Narain hafa komist inn í
garðinn á þeim forsendum að
hann ætlaði að færa Singh gjöf.
Narain heldur því staðfastlega
fram, að hann hafi ætlað að
færa Charan Singh gjöf. Verði
Narain dæmdur sekur þá á hann
yfir höfði sér ævilangt fangelsi,
en hann er meðlimur í Janata—
bandalaginu og mun árásin hafa
verið gerð daginn eftir að um
300 þúsund stuðningsmenn
höfðu fagnað Singh á 76. afmæl-
isdegi hans og var þá uppi
hávær orðrómur um að Singh
hygðist yfirgefa Janata-banda-
lagið. Singh gekk síðan úr
Janata-bandalaginu 16. júlí og
tók við forsætisráðherraemb-
ætti af Morai Desai.
Þetta gerðist
1976 — Áttatíu og einn er
tekinn af lífi í Súdan, grunaður
um að hafa ætlað að bylta
v ríkisstjórn landsins.
1974 — Ríkisstjórn Portúgals
kveðst reiðubúin að viðurkenna
portúgölsku Guineu sem sjálf-
stætt ríki.
1973 — Juan Peron og Isabel
kona hans eru útnefndir fram-
bjóðendur til embætta forseta og
varaforseta í kosningum í Arg-
entínu þann 23. september.
1971 — Apollo 15. leggur af stað
til jarðar eftir sex daga rann-
sóknaferð á tunglinu.
1944 — Nazistar handsama
Önnu Frank og fjölskyldu henn-
ar á felustað þeirra í Amster-
dam.
1940 — ítalskar. hersveitir
sækja fram frá Abyssiníu inn í
Brezka Sómalíuland.
1922 — Átök brjótast út í
mörgum ítölskum borgum milli
fasista og sósíalista.
1919 — Rúmenskar hersveitir
komast inn í Búdapest.
1916 — Danir selja Jómfrúar-
eyjar Bandaríkjamönnum fyrir
25 milljónir dollara.
1914 — Bretar lýsa yfir stríði á
ERLENT
4. ágúst
hendur Þýzkalandi, Bandaríkin
lýsa yfir hlutleysi sínu.
1730 — Friðrik krónprins
Prússlands reynir að flýja til
Englands en faðir hans lætur
handtaka hann.
1578 — Sebastian Portúgals-
kóngur ræðst inn í Marokko og
fellur við Alcazar ásamt Sebast-
ian kóngi í Fez.
Afmæli. Shelly, brezkt skáld
(1792-1822), Elísabet drottn-
ingarmóðir í Bretlandi (1900 —)
Andlát. Hinrik I Frakkakonung-
ur 1060 — Burghley lávarður,
stjórnmálaleiðtogi, 1568 —
Thomson lávarður, blaðaútgef-
andi, 1976.
Innlent. D. Hannes Finnsson
biskup 1796 — Eldgos í Kverk-
fjöllum 1717 — Jökulhlaup
fylgja gosi I Öræfajökli (þrír
fórust, búfénaður drapst, lönd
eyddust) 1727 — Fyrsta erlenda
knattspyrnuheimsóknin (A.B. —
Valur/ Víkingur 7:0; K.R. 11:2)
— Viðeyjarsund Ástu Jóhann-
esdóttur 1929 — dr. Aljechin
teflir viö íslenzka skákmenn
1931 — f. Stefán Eiríksson 1862.
Orð dagsins. Friður kemur að
innan. Leitið hans ekki annars
ytaðar (Búdda).
Þrátt fyrír minnkandi fylgi Jimmy Carters, forseta Bandaríkjanna. þá var honum vel fagnað í Bardstown
í Kentucky á þriðjudag. Hér heíur forsetinn brugðið sér upp á topp bíls síns á leið til fundar í menntaskóla
bæjarins.
Flugst jórinn minnkaði afl
stað þess að auka það
/
í
þegar DC-10 þotan við Chicago ÍÍL^ÍJ^ú“£!i4af
hrapaði. American Airlines hafði
ekki tekið upp nýjar neyðarreglur
Chicajío, 3. ájfúst — Rcuter
FLUGSTJORA DC-10 þotunnar,
sem fórst við Chicago, gæti hafa
tekist að komast hjá versta
flugslysi í sögu Bandaríkjanna eí
American Airlines hefði verið
búið að taka upp nýjar leiðbein-
ingar í neyðartilvikum í flugtaki,
að því er fram kom í vitnaleiðsl-
um í Chicago. Þrjú bandarísk
flugfélög, United Airlines, Cont-
inental Airlines og Western Air-
lines, höfðu tekið upp hinar nýju
leiðbeiningar.
Yfirmaður æfingaflugs Americ-
an Airlines, Walter Estridge,
sagði að flugstjóri DC-10 þotunn-
ar hefði brugðist nákvæmlega eins
og fyrir var lagt í slíkum tilvikum.
„Hann gerði nákvæmlega það, sem
fyrir hann hafði verið lagt,“ sagði
hann. Walter Lux, flugstjóri DC-
10 þotunnar, sem fórst, minnkaði
afl til hreyfla og hefur greinilega
haldið að hreyfill á vinstri væng
Estridge sagði, að viðbrögðum í
slíkum neyðartilvikum hefði verið
breytt. í stað þess að minnka afl
til hreyfla þatætti að auka það.
Sérfræðingur bandarísku flug-
málastjórnarinnar sagði við
vitnaleiðslur, að flugstjórinn gæti
hafa náð valdi á þotunni hefði
hann verið búinn að kynna ser
hinar nýju leiðbeiningar og ekki
minnkað afl til hreyfilsins. Amer-
ican Airlines hafði ekki kynnt
þessar nýju reglur þegar flugslys-
ið átti sér stað en áðurnefnd
flugfélög höfðu þegar verið búin
að leggja hinar nýju leiðbeiningar
fyrir flugmenn sína.
Varaforseti þjóðþings
Víetnams flýði til Kína
Hong Konx — 3. áxúst — AP
VIKUBLAÐ í Hong Kong skýrði
frá því í dag, að varaforseti
þjóðþings Víetnams, Hoang van
Hoan, hefði flúið til Kína í
siðasta mánuði.
Hoan var einn af stofnendum
víetnamska kommúnistaflokks-
ins og flótti hans þykir benda til
deilna í Víetnam um stefnu
kommúnistaflokksins. Þá var
sagt, að tveir þjóðþingsmenn
væru í stofufangelsi.
Hoan var á leið til A-Þýzka-
lands og millilent var í Karachi í
Pakistan þar sem Hoan lét sig
hverfa. Greinarhöfundur, Nayan
Chanda, var nýlega í Peking og
hann sagði, að víetnamska utan-
ríkisráðuneytið hefði mótmælt
við pakistönsk stjórnvöld vegna
flótta Hoan.
Flugslysió á Hjaltlandseyjum:
Ekki fleiri fundizt á lífi
Ítalía:
Kynskiptingar
verda ad halda
fyrra kyni
Rúm — 3. áxúst — AP
HÆSTIRÉTTUR Ítalíu hefur úr-
skurðað, að fólk er breytir um
kynferði verði lagalega að halda
sínu fyrra kynferði — að fyrir
lögunum geti karlmaður er breytir
kyni sínu með aðgerðum og lyfjum
ekki talist kona. Mál þetta kom
upp þegar ónafngreindur leikari
breytti kynferði sínu og vildi hann
jafnframt verða skráður kona.
Sumburgh, 1. ágúst. Reuter.
„ÉG VAR aftarlega í vélinni.
Vatnið fossaði inn að framan og
fyrst reyndi ég að komast út að
aftan og sfðan framan til. Það
tókst ekki. Ég náði í björgunar-
vesti og ég varð að stökkva yfir
sætin og á nokkrum sekúndum
vorum við í vatni upp að hálsi.
Ég náði taki á einhverjum sem
var fyrir framan mig og hann
virtist hafa dregið mig út um
neyðardyr,“ sagði einn þeirra
sem komst lifs af úr flugslysinu
á Hjaltlandseyjum í flugtaki þar
í gær. Ljóst er að fyrstu tölur
reyndust réttar að sautján hefðu
farist, þar af voru ellefu fastir
inn í vélinni.
Sjónarvottur sagði að vélin
hefði skollið í sjóinn um það bil
fimmtíu metrum frá brautar-
enda. „Ég sá vélina hefja sig upp
og andartaki síðar var hún í
sjónum og aðeins stélið sjáanlegt
uppúr" sagði hann. Þeir sem
komust lífs af þrjátíu talsins
sögðu að þeim hefði tekizt að
komast út um neyðarútganga og
hefðu sumir synt til strandar og
aðrir verið teknir um borð í
smábáta eða þyrlur. Mönnum bar
saman um að engin æsingur hefði
gripið um sig og menn sýnt
stillingu er þeir voru að reyna að
komast út.
Slysið gerðist svo snögglega að
ýmsir starfsmenn og farþegar í
flugstöðinni urðu þrumu lostnir
þegar þeir sem af komust tóku að
streyma blautir og kaldir að
bryggjunni.
Um orsakir slyssins er ekki
ljóst en mjög vont veður var
þegar vélin hóf sig á loft.
Hárgreiðslu-
fólki settar
kynjaskorður
Teheran — 2. ágúat — AP
SAMBAND hárgreiðslumeistara í
Iran hefur lagt bann við því að
karlmenn snyrti hár kvenna, þar sem
það þykir ekki samræmast íslömsk-
um lögum. Rakarar mega héðan í frá
ekki ráða konur til þess að klippa hár
karla. Síðdegisblaðið Bamdad í
Teheran sagði frá þessu í dag og tók
fram að margir eigendur hárgreiðslu-
og rakarastofa hefðu mótmælt þessu
og njargir þeirra væru úr minnihluta-
hópum sem ekki aðhylltust múham-
eðstrú.
Veður
víöa um heim
Akureyri 10 skýjaó
Amsterdam 19 skýjaó
Apena 38 heióskirt
Barcelona 23 heióskirt
Berlín 23 skýjaó
BrUssel 19 skýjaó
Chicago 27 skýjaó
Frankfurt 22 rigning
Genf 25 mistur
Helsinki 18 heióskírt
Jerúaalem 31 heíðskírt
Jóhannesarb. 21 heióskírt
Kaupmannah. 21 skýjaó
Lissabon 25 skýjað
London 21 skýjað
Los Angeles 27 heióskirt
Madríd 32 heióskirt
Malaga 22 léttskýjaó
MaHorca 20 léttskýjaö
Miami 32 skýjaó
Moskva 24 heiöskirt
New York 32 skýjaó
Ósló 17 skýjað
París 23 heióskirt
Reykjavik 10 skýjaó
Rio Oe Janeiro 31 heiöskírt
Rómaborg 32 heióskirt
Stokkhóimur 21 skýjaó
Tel Aviv 30 heióskirt
Tókýó 31 skýjaó
Vancouver 22 heióskirt
Vínarborg 29 skýjað