Morgunblaðið - 04.08.1979, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1979
27
20 fötluð
börná
íþróttahátíó
i Danmörku
Um helgina fara tuttugu fs-
lensk fötluð börn til Kaupmanna-
hafnar til að taka þátt f fþrótta-
hátfð sem íþróttasamband fatl-
aðra f Danmörku og Kaupmanna-
hafnarborg standa fyrir, f tilefni
barnaárs. Uátttakendur eru 20
börn frá hverju Norðurlandanna,
alls 100 börn auk aðstoðarfólks
og þjálfara.
Þátttakendurnir frá íslandi
eru frá tfu sveitarfélögum, þau
eru úr hópi lamaðra, blindra.
sjónskertra og heyrnardaufra.
Tilgangur ferðarinnar er fyrst
og fremst til að vekja athygli á
því hvernig fötluð börn geta með
tilstyrk fþróttaiðkunar öðlast
meiri styrk, hæfni og sjálfs-
öryggi.
Á mótinu í Danmörku verður
keppt í sundi, frjálsum íþróttum,
boccia og hestamennsku. Einnig
verða kynntar fleiri greinar
íþrótta. Islensku þátttakendurnir
taka þátt í öllum greinum nema
hestamennskunni.
Keppnisstaðurinn í Danmörku
verður íþróttaleikvangurinn og
íþróttahúsið á Austurbrú í Kaup-
mannahöfn og sundhöllin í
Emdrup.
Það kom fram á blaðamanna-
fundinum sem var sá fyrsti er
íþróttasamband fatlaðra heldur,
að leitað var stuðnings hjá þeim
10 sveitarfélögum sem þátt-
takendur koma frá um fjárstuðn-
ing og brugðust þau öll bæði fljótt
og vel við og er íþróttasamband
fatlaðra þeim þakklátt fyrir veitt-
an stuðning. Þá veittu Flugleiðir
h.f. mikilvæga aðstoð með hag-
stæðum flugfargjöldum.
Öll börnin og aðstoðarfólk verða
í samskonar íþróttabúningum og
hefur það reynst unnt vegna góðs
samstarfs og aðstoðar Halldórs
Einarssonar framkvæmdarstjóra
sportvörugerðarinnar Hensson.
Það kom fram að ekki væri reikn-
að með verðlaunum á mótinu,
enda aukaatriði. Stærsti sigurinn
væri að geta tekið þátt í þessari
íþróttahátíð.
Þátttakendur í íþrótta-
móti fatlaðra barna í
Kaupmannahöfn 3.-5.
ágúst.
Börn:
Svava Jóhannesdóttir Reykjav.
Guðbjörg Daníelsdóttir Reykjav.
Sóley B. Axelsdóttir Reykjav.
Gunnar B. Stefánsson Reykjav.
íris Pétursdóttir Reykjav.
Sigvaidi Búi Þórarinsson Kópav.
Oddný K. Óttarsdóttir Kópav.
Brynhildur Fjölnisdóttir Kópav.
Vignir Pálsson Kópav.
Eyrún Ólafsdóttir Hafnarf.
Georg G. Einarsson Hvammshr.
Dalas.
Trausti Jóhannesson Keflav.
Guðmundur Þ. Ingibergsson
Keflav.
Ágústa Eir Gunnarsdóttir Self.
Magnús G. Guðmundsson
Akureyri
Sigurrós Karlsdóttir Akureyri
Sigríður Björnsdóttir Suðursveit
Guðmundur H. Guðmundsson
Bolungarv.
Eysteinn M. Guðmundsson
Bolungarv.
Sigrún Pétrusdóttir Seltjarnarn.
Fararstjóri:
Sigurður Magnússon, formaður
Í.S.F.
Aðstoðarfólk:
v/hreyfilamaðra:
Jónína Guðmundsdóttir
Guðrún Helgadóttir
Jóhanna Pálmadóttir
Þórdís Gunnarsdóttir
Helga Björg Sigurðardóttir
v/heyrnardaufra:
Svanhvít Magnúsdóttir
v/blindra/ sjónsk.:
Soffía Guðmundsdóttir.
• Marlo Montelatici, einn sterkast: kúluvarpari ítala.
Slagsmál í Perú
Þegar líða tók að lokum síðasta
keppnistímabilsins { knattspyrn-
unni í Perú, var víða farið að
hitna í kolunum, enda
Suður-Ameríkumenn frægir fyrir
að fara sínar eigin leiðir þegar
skapið hitnar.
í síðustu 8 leikjum mótsins voru
eigi færri en 11 leikmenn reknir af
velli og einum leikjanna varð að
aflýsa vegna þess, að þeir 8 leik-
menn annars liðsins, sem eftir
voru inni á vellinum, fengu sér
sæti á grasið og neituðu að halda
áfram! Svo langt gengu siags-
málin, að eftir einn leikinn réðist
forseti tapliðsins að þjálfara sín-
um og barði hann sundur og
saman!
Drengjalandsliö
í knattspyrnu
til Svíþjóóar
íslenska drengjalandsliðið í
knattspyrnu heldur utan um
næstu helgi til Svfþjóðar til þess
að taka þátt í Norðurlandamóti
drengja á aldrinum 14—16 ára.
Mótið hefst 6. ágúst og lýkur 12.
ágúst. íslensku piltarnir eru í
riðli með Dönum og Svfum, og
leika gegn Svíum á þriðjudag en
Dönum á miðvikudag.
í hinum riðlinum leika Finnar,
Vestur-Þjóðverjar og Norðmenn.
En Þjóðverjar hafa komið mikið
inn í samstarf norðurlandanna á
síðustu árum. íslenska landsliðið
hefur verið valið og skipa það
eftirtaldir leikmenn.
12 Friðrik Friðriksson, Fram.
1 Guðmundur Erlingsson,
Þróttur.
5 Gísli Bjarnason, KR. — fyrir-
liði
4 Jóhannes Sævarsson, Víkingur.
2 Nikulás Jónsson, Þróttur.
11 Anton Jakobsson, Fylkir.
6 Birgir Guðjónsson, Valur.
7 Willum Þór Þórssón, KR.
8 Kári Þórleifsson, ÍBV.
13 Jón Bragi Arnarson, ÍBV.
14 Sæmundur Valdimarsson, ÍBK.
15 Óli Þór Magnússon, ÍBK.
3 Helgi Sigurbjörnsson, ÍBK
10 Hermann Björnsson, Fram.
16 Hannes Helgason, ÍA.
9 Ragnar Margeirsson, ÍBK.
Undirbúningur unglinganefnd-
ar KSÍ fyrir mótið er meiri nú en
áður og gera forráðamenn liðsins
sér vonir um að liðið nái betri
árangri nú en áður. Drengirnir
munu dvelja á Laugarvatni í þrjá
daga fyrir mótið og æfa síðan í
Reykjavík síðustu dagana fyrir
utanferðina.
Þjálfari liðsins Lárus Loftsson
sagði að drengjaliðið væri að
þessu sinni sterkt og þá sérstak-
lega sóknarlega séð. Þó væri
slæmt að Ásbjörn Ólafsson úr KA
gæti ekki farið út með liðinu
vegna meiðsla.
Það kom fram á blaðamanna-
fundi unglinganefndarinnar, að
forráðamenn hinna ýmsu félaga
eru duglegir við að koma efni-
legum leikmönnum á framfæri, en
þegar búið er að velja þá og á að
fara að nota þá, vilja skapast
vandræði. Þá kemur iðulega fyrir
að forráðamenn vilja ekki láta þá
af hendi í leiki og mót vegna þess
að þeir eiga að leika með
meistaraflokksliðum sínum eða
vera varamenn. Þr.
Sterkir ítalir mæta
á Reykjavíkurleikana
Hinir árlegu Reykjavíkurleik-
ar í frjálsum íþróttum fara fram
dagana 8. og 9. ágúst næstkom-
andi. Á undanförnum árum hafa
ýmsir af þekktustu íþróttamönn-
um heimsins tekið þátt í leikum
þessum, t.d. bandaríski kringlu-
kastarinn Mac Wilkins og norski
kringlukastarinn Knut
Hjeltenes. Þá kepptu á leikunum
í fyrra nokkri bandarískir
spretthlauparar, sem allir voru
og eru í fremstu röð.
En í sumar verða þessir kappar
ekki með og er það skarð fyrir
skildi. Ekki svo að skilja, að engir
erlendir íþróttamenn verði meðal
þátttakenda að sinni. ítalska kast-
landsliðið mætir til leiks og eru
það sterkir karlar. Þeir kasta
spjótinu yfir 80 metra, sleggjunni
yfir 75 metra og kringlan fýkur
yfir 65 metra.
Þrír Rússar verða meðal
Frjálsar Iþrúttlr
V--------------------------
keppenda, en ekki frægir. Kannski
ekki furða, þar sem þeir eru allir
fæddir 1961, kornungir og eiga
eftir að vinna sín stærstu afrek.
Eina stúlkan í hópnum, Elena
Kovaleva, kastaði kringlu 51,96
metra í fyrra.
Hinn gamli kunningi Hreins
Halldórssonar, Bretinn Geoff
Capes, keppir í kúluvarpi. Capes
hefur varpað kúlunni lengst 21,55
metra, en best í ár á hann rúmlega
20,40 metra. Hreinn hefur þeytt
kúlunni 20,56 metra í ár og býr sig
nú undir átökin í æfingabúðum á
Húsavík.
Allir bestu frjálsíþróttamenn
landsins verða meðal þátttakenda
og geta má þess að spretthlaupar-
arnir Vilmundur Vilhjáimsson,
Sigurður Sigurðsson og Oddur
Sigurðsson keppa nú í fyrsta
skiptið allir saman, hver við
annan. I spretthlaupunum verður
einnig einn erlendur keppandi,
frændi frá Danmörku. Ber sá
nafnið Frank Foli. Foli hefur náð
besta tímanum 10,8 í ár og kæmist.
því varla í 4x100 metra boðhlaups-
lið hér á Fróni. Best á Frank Foli
tímann 10,7 sekúndur.
Fyrri keppnisdaginn hefst
mótið klukkan 19.00 en síðar um
daginn klukkan 19.30.
- gg-