Morgunblaðið - 04.08.1979, Síða 48
fSími á afgreiðslu:
83033
JtUrounblabib
á ritstjórn og skrifstofu:
10100
JH*r0uni>Iabib
LAUGARDAGUR 4. ÁGÚST 1979
Ljósm. Emilía.
MESTA ferðahelgi ársins stendur nú yfir og mikil umferð hefur samkvæmt hefðbundnum hætti verið út
frá Reykjavík og öðrum bæjum landsins ígær og ímorgun. Á Bifreiðastöð íslands fengust þær upplýsingar
í gærkvöldi, að mestur straumur ferðamanna virtist stefna í Þórsmörk, Galtalæk, Laugarvatn og til
Vestmannaeyja.
Að sögn Iögreglunnar hefur umferðin ekki verið meiri en um undanfarnar verslunarmannahelgar, en
mikil þó. Þjóðhátfðin f Vestmannaeyjum var sett f gærkvöldi og voru þá þúsundir manna í Herjólfsdal, en
þetta er í hundraðasta skipti sem þjóðhátfð er haldin þar. Gott veður var f Eyjum og sömu sögu er að segja
af öðrum samkomustöðum. öll skilyrði ættu þvf að vera fyrir góðri ferðahelgi þetta árið.
Loðnuveiðarnar við Jan Mayen:
Hafa Norðmenn gef-
ið einhver fyrirheit?
/ / f
Mismunandi ummæli formanns LIU og sjávarútvegsraðherra
Sjávarútvegsráðherra
hefur tjáð Landssambandi
íslenzkra útvegsmanna að
því megi treysta, að Norð-
menn hafi stjórn á sínum
veiðum og veiði ekki meira
en 90 þúsund lestir af
loðnu á Jan Mayen-svæð-
inu.
Þetta sagði Kristján
Ragnarsson formaður LÍÚ
í samtali við Morgunblað-
ið í gær.
Kjartan Jóhannsson sjávarút-
vegsráðherra hafði samband við
Morgunblaðið í gærkvöldi og mót-
mælti þessum ummælum for-
manns LÍÚ, sem einnig munu
hafa komið fram í sjónvarpsfrétt-
um í gærkvöldi, og sagðist ekki
hafa neina fullvissu fyrir því að
Norðmenn fari ekki fram úr þessu
marki og hann hafi aldrei látið
það í ljós. Hann hafi einungis sagt
að hann tryði því ekki að Norð-
menn færu fram úr 90 þúsund
Milt og gott
VEÐURHORFUR fyrir verslunar-
mannahelgina eru nokkuð góðar
samkvæmt þeim upplýsingum sem
fengust á Veðurstofunni í gær.
Hægviðri verður og skýjað um land
alit, eða ekki ósvipað veður og
lesta markinu og hann teldi
ástæðu til þess að þeir gætu haft
þess háttar stjórn á veiðunum.
Morgunblaðið reyndi árangurs-
laust að hafa samband við Krist-
ján Ragnarsson í gærkvöldi vegna
þessarra ummæla sjávarútvegs-
ráðherra.
Kristján Ragnarsson formaður
LÍÚ sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að vegna ráðlegginga
fiskifræðinga um að draga þyrfti
245 hvalir
hafa veiðzt
BÚIÐ er að veiða 245 hvali á
hvalvertfðinni í sumar.
Veiðin skiptist þannig að 229
Iangreyðar hafa veiðzt, 9 búr-
hvalir og 7 sandreyðar. Á ver-
tíðinni í fyrra sem byrjaði
aðeins fyrr höfðu veiðzt á sama
tíma 260 hvaiir og skiptist
veiðin þannig að 199 langreyðar
höfðu veiðzt og 61 búrhveli.
um land allt
verið hefur undanfarna daga.
Búast má þó við því að hitna muni
yfir daginn inni á hálendinu og því
útlit fyrir fjallaskúrir þar. Hitastig-
ið á landinu verður á bilinu frá 7 og
upp í 15 stig.
úr loðnuveiðunum hefði LÍÚ fall-
ist á, að veiðarnar byrjuðu ekki
fyrr en 35 dögum síðar í ár en í
fyrra eða 20. ágúst. í júlí og ágúst
á síðasta ári voru veiddar 140
þúsund lestir, en loðnan var
afurðaminnst á þessu tímabili,
sagði Kristján Ragnarsson. Því
var taiið eðlilegt að takmarka
veiðarnar á þessum tíma, en við
hefðum ekki fallist á þessa tak-
mörkun til þess að aðrar þjóðir
gætu nýtt sér það, sem við tak-
mörkum eða jafnvel gengið mun
lengra.
— Varðandi veiðar Norðmanna
við Jan Mayen hefur sjávarút-
vegsráðherra tjáð okkur að við
getum treyst því, að Norðmenn
muni hafa stjórn á sínum veiðum
og ekki veiða meira en 90 þúsund
lestir eins og rætt var um í
ráðherraviðræðunum í Reykjavík.
Vegna þess að líklegt er talið, að
aðrar þjóðir hefji veiðar á íslenzka
loðnustofninum og áður en til þess
kemur, tel ég að nú þegar eigi að
lýsa yfir að öðrum en íslendingum
og Norðmönnum sé óheimil veiði
úr þessum fiskstofni þótt utan 200
mílna sé vegna nauðsynlegra
verndunaraðgerða enda hafa aðrir
ekki nýtt sér þennan stofn fram að
þessu. Þetta á að vera unnt að
gera á grundvelli þess uppkasts að
hafréttarsáttmála, sem nú liggur
fyrir, sagði Kristján Ragnarsson
að lokum.
Sjá viðtöl við loðnuskiþstjóra á
blaðsíðu 25 og grein Eyjólfs Kon-
ráðs Jónssonar í miðopnu.
Veðrið um verslunarmannahelgina:
Rannsóknarlögreglan:
Kannar mál tog-
araskipstjóranna
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
hefur nú til meðferðar mál nokk-
urra þeirra togaraskipstjóra sem
Framleiðslueftirlit sjávarafurða
hefur kært fyrir brot á fyrstu
grein reglugerðar 220/1979, sam-
anber 48. grein reglugerðar
55/1970 um eftirlit og mat á
ferskum fiski.
I reglugerðinni er tekið fram að
óheimilt sé að geyma lausan fisk á
, millidekki.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Morgunblaðið fékk hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins eru kærur
þær sem rannsóknarlögreglan
hefur nú til meðferðar um átta
talsins, en hinir kærðu munu ekki
vera jafnmargir. Kærurnar eru á
hendur skipstjórum á Reykjavík-
ursvæðinu.
Sjá nánar „Aflahrotan að
undanförnu" bls. 8.
Fimm ára gamall
drengur drukkn-
aði á Akurevri
Akureyri, 3. ágúst 1979.
ÞAÐ slys varð í gærkvöldi,
að 5 ára gamall drengur
féll í kvína við Torfunes-
bryggjur og drukknaði.
Hann hét Stefán Júlíus
Sveinsson og átti heima í
Eiðsvallagötu 20.
Hann hafði skroppið að heim-
an um kl. 19 í fylgd með öðrum
dreng á líku reki sem á heima í
nágrenninu. Þegar þeir komu
ekki heim von bráðar var farið að
undrast um þá og kl. 20.15 var
óskað aðstoðar lögreglunnar við
að svipast um eftir þeim. Eftir
nokkra stund fannst hinn dreng-
urinn og sagði hann þá að Stefán
litli hefði dottið í sjóinn. Hann
gat líka vísað á staðinn sem var í
norð-vesturhorni skipakvíarinn-
ar.
Froskmaður var fenginn í
skyndi til að kafa og fann hann
lík Stefáns eftir skamma stund,
eða um kl. 21.40.
—Sv.P.
Stefán Júlíus Sveinsson.
Fjaran er öll
iðandi af
rækjuseiðum
MORGUNBLAÐIÐ kemur út á
morgun, sunnudag en næsta tölu-
blað þar á eftir kemur út mið-
vikudaginn 8. ágúst. Augiýsing-
ar, sem birtast eiga í blaðinu á
miðvikudaginn verða að hafa
borizt auglýsingadeild blaðsins
fyrir kl. 12 á hádegi þriðjudaginn
7. ágúst. Auglýsingadeildin er
lokuð í dag.
Kópaskeri 3. ágúst 1979
HÉR ERU allar fjörur fullar af
lifandi rækjuseiðum og sjórinn virð-
ist verða iðandi af þessu við fjöru-
borðið. Menn eru að velta því fyrir sér
hvað það er sem veldur þessu og
halda helst að það standi eitthvað í
sambandi við kuldana hér í vor.
Gaman væri þó að heyra álit fiski-
fræðinganna á þessu fyrirbæri. Krían
er alveg brjáluð í þetta lostæti. Ég er
búinn að vera hérna við fjöruna í 22
ár og hef aldrei séð neitt þessu líkt.
—Ragnar
Jan Mayen:
Landhelgisnefnd til
fundar á þriðjudag
LANDHELGISNEFNDIN kemur saman á þriðjudag til þess að ræða Jan
Mayenmálið. Á fundinum verður fjallað um tillögur þær, sem Matthías
Bjarnason, alþm., lagði fram á fundi nefndarinnar fyrir nokkru. Geir
Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafði í gær samband við
Benedikt Gröndal, utanríkisráðherra, og óskaði eftir fundi í landhelgis-
nefndinni til þess að ræða viðhorfin við Jan Mayen. Geir Hailgrímsson
skýrði Morgunblaðinu svo frá ( gær, að utanríkisráðherra hefði tjáð
honum, að hann hefði slíkan fund í huga, en ekki væri hægt að ná honum
saman fyrr en á þriðjudag.
Þá verður væntanlega rætt um
tillögur Matthíasar Bjarnasonar frá
23. júlí sl., sagði Geir Hallgrímsson,
og vonandi verður lögð áherzla á
það eftir þann fund að taka strax
upp viðræður við Norðmenn og að
tekin verði afstaða til viðbragða
okkar við veiðum annarra þjóða á
svæðinu umhverfis Jan Mayen en,
við íslendingar höfum ekki ein-
göngu hagsmuna að gæta gagnvart
þeim heldur og sjálfstæðra réttinda
strandríkja varðandi fiskveiðar ut-
an 200 mílna, þegar um flökkufisk
er að ræða eða fiskstofna, sem
fiskveiðar innan 200 mílna byggjast
á.