Morgunblaðið - 20.09.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1979
7
Suðurland
rinuniudígur 1 >. •cplrmbrr »979
ir
' AUKIN SKÁTTHEINITA
-rrssrja'srí: ...
mSH. » M> * gildnnrti (jarlognm hÍ‘ - «*.
Alþýöublaö
um Alþýöu-
bandalag
í leiðara Alþýðublaðs-
ina sl. þriðjudag segir
m.a.:
„Og hvað um varö-
veizlu kaupmáttarins?
Hvernig skyldi hin rót-
taska heildarstefna Al-
þýðubandalagsins duga
til að tryggja Itfskjörin?
Það eru almenn sannindi
að stjórnlaus óðaverð-
bólga leikur enga þjóð-
félagsþegna eins grátt og
einmitt þi, sem Alþýðu-
bandalagið þykist vera
sórstakur mélsvari fyrir:
láglaunafólkið, unga fólk-
ið sem er að byrja bú-
skap, bótaþega almanna-
trygginga o.s.frv. Viö höf-
um fyrir því áratuga
reynslu, að stökkbreyt-
ingar f krónutölu kaups
fara sjólfkrafa og jafn-
harðan út í verðlagið aft-
ur, þannig að kaupmátt-
urinn stendur í stað, eða
rýrnar jafnvel, eins og
gerist þessa dagana. Og
horfurnar framundan um
árangur hinnar róttæku
heildarstefnu Alþýðu-
bandalagsins eru vægast
sagt allt annað en
björgulegar.
Upp í stjórnarráði sitja
ráðherrar Alþýðubanda-
lagsins, fulltrúar hinnar
róttæku heildarstefnu, og
eiga að taka þátt í því
þessa dagana aö setja
saman fjárlagafrumvarp
og lánsfjáráætlun ríkisins
fyrir næsta ár. Burt frá
allri pólitískri óskhyggju
veröa þeir nú að horfast í
augu við eftirfarandi
staðreyndir m.a.:1) Verð-
bólgan er komin yfir
fimmtíu prósent og er á
uppleið, 2) Nýsamþykkt
bráðabirgöalög ríkis-
stjórnarinnar um nýja
tekjuöflun fyrir ríkissjóð
mun leiða til aukinnar
verðbólgu um 1,4% 1.
desember n.k. og annað
eins á næsta ári, 3) Al-
þýðubandalagsráðherr-
arnir stóðu að því, ásamt
framsókn, aö hækka
grundvallarverð búvöru
um 19,7%... 4) Miðað
við óbreytt verðbólgustig
er tekjuáætlun fjárlaga-
frumvarpsins, sem þeir
sitja yfir, gjörsamlega
óraunhæf til að mæta
útgjöldum ríkissjóðs.
Þetta bil verður ekki
brúað nema gera annað
af tvennu: skera niður
ríkisútgjöld eða að öðr-
um kosti stórauka
skattaafögur...“
Já, Ijótt er aö heyra, ef
satt er. En spurningin er
þessi: er Alþýðuflokkur-
inn ekki ábyrgðaraðili að
stjórnarstefnunni og af-
leiðingum hennar?
Skatta— og
vöruverös-
hækkanir
Blaðið Suðurland segir
svo um ársferil vinstri
stjórnarinnar: „Ýtt var úr
vör með gengisfellingu
og síðan stöðugu geng-
issigi. Strax var hafist
handa um að falsa vísi-
töluna, t.d. með niöur-
greiðslu á kjöti, sem þá
var ekki til. Skorið á
samningsbundnar vísi-
tötugreiðslur, m.a. gegn
einhverjum „félagsmála-
pakka“, sem í stuttu máli
má lýsa sem umbúðum
án innihalds. Þá hefur
verið laumast til aö láta
niðurgreiöslur, sem
stjórnin jók í upphafi fer-
ils síns, lækka, og boðuð
enn meiri lækkun í fjár-
lögum, sem stjórnin hef-
ur þó ekki treyst sér til að
láta koma til fram-
kvæmda. Lagðir voru á
AFTURVIBKIR skattar í
fyrsta sinn í sögunni og
látnar greipar sópa um fé
landsmanna í formi nýrra
skatta á fyrirtæki og ein-
staklinga, þannig að
skoðun almennings er
sú, að ekki verði lengra
gengið í þeim efnum....
En eftir langan
meðgöngutíma hafa enn
fæðst bráðabirgðalög um
nýja skatta.... en það fé
ést upp í þeirri
verðbólguhækkun, sem
af þessu (skattheimt-
unni) leiðir.“
Síðan fjallar Suðurland
um Ólafslög, „samkvæmt
hinni þekktu já-já og
nei-nei stefnu", sem víkja
áttu efnahagsvandanum
á braut, en niðurstaðan
hafi orðið verðbólgu-
vandi, sem ekkert for-
dæmi sé fyrir áður.
„Dæmalaus er fram-
kvæmd þessarar ríkis-
stjórnar," segir Suður-
land, „er hún lætur olíu-
hækkanir erlendis magn-
ast upp innanlands með
því að SKATTLEGGJA
HÆKKANIRNAR og bera
síðan fyrir sig sjálfvirkni
laga. Þar hefði mátt
stemma á að ósi með
bráðabirgðalögum...“
Loks víkur Suðurland
að verðþáttum ríkis-
stjórnarinnar i almennu
vöruverði, vörugjaldi og
söluskatti, sem og verö-
hækkunum á hvers konar
opinberri þjónustu, sem
„valdi því að kaupmáttur
lægri launa hafi stöðugt
rýrnað.... Ráðherrarnir
hafa hins vegar munað
eftir aö hækka sitt kaup
og annarra hálauna-
hópa.“
Eftir eins árs vinstri
stjórn sýna verkin
merkin.
XUNBI
Innritun er
Innritunarsímar
84750, kl. 10—7
53158 kl. 13—18
66469 kl. 13—18
Kenndir verða:
Barnadansar
Táningadansar
Samkvæmisdansar
Djassdansar
Stepp
Tjútt, rock og
gömlu dansarnir
Ath.
Sértímar
í discodönsum
fyrir herra
20 ára og eldri.
Sertimar
fyrir
dömur
20 ára
og eldri
í Beat og
Disco-
dönsum
Kennslustaðir:
Reykjavík,
Hafnarfiröi,
Mosfellssveit
Akranesi.
Komið og prófið nýjustu disco-djass dansana
Leikfimi
mánudaginn 24.
september í Austur-
bæjarskóla.
Kennari veröur
Rósa Þórarinsdóttir.
Innritun í símum
14087 og 29056.
Í.K.
Til sölu
G.M.C. Rally Wagon árg/ 77 meö framdrifi. Sæti fyrir
13 (pluss klædd) Lapplander dekk, góöur bíll í
skólakeyrslu og allstaöar þar sem snjóþungt er.
Bílasala Eggerts, Borgartúni 24.
Sími 28255.____________________
Furusófasett Furusófaborö
Furuhillur
Sendum um land alit
Opið til kl. 8 og til hádegis laugardaga.
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1 A, simi86112.