Morgunblaðið - 07.10.1979, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 1979
19
Vammlausum hal og vltaiausum fleina
vant er ei, boglist þarf hann ei aA reyna.
Banvænum þarf hann örvum eiturskeyta
aldrei að belta
Gr.Th.
Hann talaði sjaldan og talaði
stutt. En ræða hans var skýr og
orð hans vógu þungt. Hugrekki
hans var fágætt oft og tíðum, en
framsýnin nú löngu viðurkennd.
Hann var líka voldugur maður á
Akureyri og ekki aðeins þau 28 ár
sem hann sat þó samfleytt í
bæjarstjórn. Hann átti mikinn
þátt í að skapa þann sið friðar og
samstarfs sem einkennt hefur
bæjarmál á Akureyri allt til þessa
dags, og með starfi sínu öllu hefur
hann lagt drjúgan skerf til hinnar
sleitulausu uppbyggingar á Akur-
Sovésk flotkví
slitnaði upp
Fri Jan Erik Laure,
fréttaritara Mbl. i Noregi.
SOVÉSK flotkví, sem tveir hol-
lenskir dráttarbátar voru með í
togi, slitnaði upp og rak á land í
Varangursfirði í N-Noregi. Verið
var að flytja flotkvína frá Gauta-
borg, þar sem hún var smíðuð til
Murmansk. Dráttartaugar slitn-
uðu þegar hvessti og sjólag versn-
aði. Um borð í flotkvínni voru 14
manns og var þeim bjargað um
borð í norska þyrlu. Flotkvíin
steytti á skerjum og í dag átti að
reyna að ná henni á flot á nýjan
leik. Flotkvíin var tryggð fyrir
tæpa 20 milljarða íslenzkra króna.
Víð
'íða um land eru vel búin hótel
Þú getur farið í helgarferð með flugfélaginu
í hópi, með fjolskyldunni, eða bara þið tvö.
Hringdu og spurðu um verð á helgarferð.
FLUGLEIDIR
Jakob Frímannsson
heiðursborgari Akur-
eyrar áttræður í dag
Eini núlifandi heiðursborgari
Akureyrar, Jakob Frímannsson,
fyrrverandi kaupfélagsstjóri, er
áttræður í dag. Engan, sem ekki
til þekkti, mundi þó gruna að svo
væri. Svo vel ber hann ellina,
einkum andlega enda hefur hann
fyrir örskömmu verið kjörinn til
mikils trúnaðarstarfs. Hann er
stjórnarformaður eins stærsta
atvinnufyrirtækis á íslandi, Út-
gerðarfélags Akureyringa h/f.
Hefur ekki þótt ástæða til þess að
skipta þar um formennsku, meðan
hans nýtur við. Það er glöggt
dæmi þess, hversu vel honum hafa
enst fjölþættar gáfur. Og Útgerð-
arfélagi Akureyringa er þannig
stjórnað og þar starfa slíkir menn
að fyrir skemmstu fékk það sér-
staka viðurkenningu fyrir af-
bragðs góða vöru.
Óþarfi er að rekja þjóðkunnan
ævi- og starfsferil Jakobs Frí-
mannssonar. Heimsstyrjöld og
dýrtíð bægði honum á sínum tíma
frá langskólanámi, en eftir að
hafa lokið prófi frá Verslunarskól-
anum átján ára gamall gekk hann
í þjónustu samvinnuhreyfingar-
innar og vann í hennar þágu
langan og merkilegan starfsdag.
Dugnaður, hyggindi, sköpunar-
gleði, einurð og prúðmennska, allt
þetta gerði Jakob að einstökum
leiðtoga og forystumanni og svo
vinsælum húsbónda í einhverju
stærsta fyrirtæki landsins, að
dæmi munu fá annars eins. Eng-
inn, sem starfaði undir stjórn
hans í fyrirtækjum samvinnu-
manna, ber honum öðruvísi en vel
söguna.
Hvað eftir annað var til hans
leitað að taka að sér forystuhlut-
verk á víðara vettvangi, en öllum
boðum um þingmennsku og þvílík
störf hafnaði hann umsvifalaust
og helgaði sig starfinu á heima-
slóðum. Það innti hann svo af
höndum að sjálfgefið þótti að
kjósa hann heiðursborgara Akur-
eyrar fyrir fimm árum, og var þá
langt um liðið, að mönnum hefði
hugkvæmst að sýna nokkrum
manni slíkan sóma.
í bæjarmálum á Akureyri við-
urkenndu allir greind hans og
forsjá, og hann lét ekki skrift-
lærða skólapilta segja sér fyrir
verkum. Hann var svo mikill af
sjálfum sér, að aldrei þurfti hann
að beita illindum.
eyri og þeirrar festu og jafnsældar
sem markar þar mannlíf og bæj-
arbrag.
Jakob Frímannsson er einstæð-
ur maður að kynnast persónulega,
svo að næstum öll lýsingarorð
blikna, þegar til á að taka. Fjöl-
hæfnin er svo mikil, persónuleik-
inn svo stórbrotinn, hjartað svo
hlýtt. Hann er jafn vel gefinn til
munns og handa, smiður af guðs
náð, tungumála- og reikningsmað-
ur bráðsjnall. Hið mikla skap
hans er temprað við óvenjulegan
mannskilning, æðruleysi, umburð-
ariyndi og góðvild. Ekkert féll
honum jafnilla og þá sjaldan hann
þurfti að víkja manni úr starfi.
Hann er yfirlætislaus höfðingi,
fremstur meðal jafningja, og helst
gætu þeir orðið skotspænir fyndni
hans, sem hreyktu sér af litlu. Þá
gæti skopskyn hans nálgast
hæðni. Hann er manna glaðastur
og bestur heim að sækja, híbýla-
prúður og umhyggjusamur svo að
af ber.
Hjálpsemi hans og rausn er
annáluð. Ég staðreyni sífellt fleiri
og fleiri dæmi um siíkt og úr
hinum ólíkustu áttum. Mér er það
mikil gæfa að hafa fengið að binda
við hann tengdir og vináttu. Ég
geri mér smám saman æ betur
grein fyrir því, hvílíkur yfirburða-
maður hann er og hefur verið á
ótrúlega mörgum sviðum.
Jakob og Borghildur kusu að
dveljast að heiman á áttræðisaf-
mæli hans. Hann hefur aldrei
kært sig um að mikið væri með sig
látið, þykir eins og sagt var
„einfalda lífið hentast". Þau eru
nú um sinn á Hótel Impala í
Silkiborg í Danmörku. Þangað
munu hugir manna leita í dag, því
að svo mun fleirum farið en mér
og mínum, sem finnst að fáum
eigum við meiri þakkarskuld að
gjalda en heiðurshjónunum Borg-
hildi Jónsdóttur og Jakob Frí-
mannssyni.
Gísli Jónsson
Húseignin Vesturgata 40
er til sölu
Kjallari, sem tengist götuhæö (lagerpláss). Verslunar-
og skrifstofuhæö (götuhæö).
íbúöarhæöin (2. hæö og rishæö).
Grunnflötur hússins er 108 fm.
Eignin selst í einu lagi eöa hlutum og afhendist
fokheld eöa u. trév. og máln.
Upplýsingar veita:
Eignamiðlunin Vonarstræti 12,
sími 27711. Sigurður Ólafsson hrl.
og Húsafell, Langholtsvegi 115,
sími 81066 Bergur Guönason hrl.
Flug og gisting
Ein heild á lækkuðu veiði.