Morgunblaðið - 12.10.1979, Síða 2

Morgunblaðið - 12.10.1979, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1979 Mega flytja með sér fyrir 60 þúsund kr. — í stað 32 þúsunda áður — Engin breyting gerð á leyfilegu magni áfengis og tóbaks FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur Kefið út nýja reglugerð um tollfrjálsan farangur ferða- ok farmanna við komu frá útlöndum. Helztu nýmæli reglujíerðarinnar eru þau að því er ferðamenn varðar. að andvirði varnings, sem þeim verður heimilt að hafa meðferðis frá útlöndum án greiðslu aðflutningsgjalda, hækkar úr 32 þúsundum í 60 þúsund krónur miðað við smásöluverð á innkaupastað. Til einföldunar er sundurliðun á ýmsum vörutegundum með tilliti til hámarksandvirðis þeirra felld niður, en þó er gert ráð fyrir að innflutningur matvæla, þar með talið sælgæti, geti að hámarki numið 15 þúsund krónum af fyrrgreindri upphæð í stað 3200 króna áður. Með reglugerðinni verður numið úr gildi ákvæði þess efnis að tollgæslumaður skuli spyrja far- þega sérstaklega hvort hann hafi meðferðis tollskyldan varning eða varning sem innflutningur er bannaður á eða háður er innflutn- ingstakmörkunum. Hafi farþegi meðferðis slíkan varning, ber hon- um sjálfum ótilkvöddum að skýra tollgæslumanni frá varningnum og verðmæti hans. Að því er varðar innflutning farmanna og flugliða, sem hafa verið 20 daga eða skemur í ferð, hækkar hámarksandvirði toll- frjáls varnings úr 7.000 kr. í 15.000 kr. við hverja komu til landsins. Sé lengd ferðar á bilinu frá 21 til 40 dagar er farmönnum og fluglið- um heimilt að flytja með sér tollfrjálsan varning að andvirði 40.000 kr. í stað 21.000 kr. áður en fyrir 60.000 kr. í stað 32.000 kr. áður, sé ferð lengri en 40 dagar. Engar breytingar eru frá eldri reglugerð um það magn áfengis og tóbaks, sém far- eða ferðamenn mega taka með sér tii landsins. Reglugerðin tekur gildi 15. okt- óber n.k. Samræmdar reglur „MIÐSTJÓRN Sjálfstæðis- flokksins mun afgreiða sam- ræmdar prófkjörsreglur fyrir landið á fundi á laugardag, en ákvarðanir liggja ekki fyrir ennþá um prófkjör í kjördæm- unum,“ sagði Sigurður Haf- stein, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Mbl. Hann kvað þetta skýrast skjótt eftir að fyrir lægi hvenær kosningar yrðu, en kvað ákvarðanir um próf- kjör á valdi kjördæmisráða úti á landi og fulltrúaráðs í Reykjavík. Óráðið „Það var búið að ákveða skoðanakönnun hjá framsókn- armönnum á Vestfjörðum, en ég veit ekki hvað verður þar sem krafa um prófkjör á að vera komin ekki síðar en 8 mánuðum fyrir kjördag og prófkjöri lokið 5 mánuðum fyrir kjördag,“ sagði Þráinn Útlit fyrir prófkjör flestra flokkanna Valdimarsson, framkvæmda- stjóri Framsóknarflokksins, í samtali við Mbl. í gær. Kvaðst hann þó reikna með að til greina kæmi að breyta þessum reglum, en tími væri hins vegar lítill ef kosið ýrði fyrir jól. Væntanlega „Það er lítið mótað hjá Alþýðubandalaginu hvort prófkjör verða viðhöfð þegar til kosninga kemur, það er verið að boða kjördæmisráðin á fundi og þau ráða,“ sagði Ólafur Jónsson, framkvæmda- stjóri Alþýðubandalagsins, í samtali við Mbl. í gær, en hann kvaðst eiga . von á því að Alþýðubandalagið myndi efna til prófkjörs einhvers staðar. Prófkjör „Framkvæmdastjórn hefur yfirumsjón með prófkjörum en kjördæmisráðin sjá um fram- kvæmd málsins og samkvæmt okkar reglum eiga prófkjör að vera fyrir kosningar," sagði Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokksins, í samtali við Mbl., en hann kvað hafa þurft að breyta reglum þar sem stutt yrði til kosninga. Samtökin bíða Magnús Torfi Ólafsson var inntur eftir því hvort Samtök frjálslyndra og vinstri manna hygðu á prófkjör eða starf fyrir kosningar. „Á landsfundi s.l. vor,“ svaraði hann, „var ákveðið að láta skipulegt starf liggja niðri þar til drægi að kosningum og halda þá fram- haldsaðalfund og það skýrist væntanlega á næstunni." Úr þjóðhagsáætlun fyrir 1980: Verðbólgan 53-55% í árslok Kaupmáttur heldur áfram að minnka á næsta ári FORSÆTISRÁÐIIERRA lagði í gær fram á Alþingi skýrslu um þjóðhagsáætlun fyrir árið 1980, og segir í inngangi hennar, að með henni sé „lagður grundvöllur að stefnunni í efnahagsmálum á næsta ári“ og að henni ætlað að verða undirstaða umræðna og ákvarðana á se sviði efnahags- og fjármála á þessu þingi.“ Það er ekki oft sem bilar af stærri gráðunni sjást á götum borgarinnar i siiku ásigkomulagi eins og sést á myndinni en ökumaðurinn missti stjórn á steypubilnum og því fór sem fór. Ljósmynd Mbl.: Emilia. I skýrslunni kemur m.a. fram, að síðustu áætlanir bendi til, að framfærsluvísitalan hækki um 53—55% frá upphafi til loka árs borið saman við 38% 1978 og 35% 1977. Borið saman við vísitölu fram- færslukostnaðar er gert ráð fyrir, að kaupmáttur kauptaxta verði 1—2% minni í ár en í fyrra. Hann verður 2—3% minni á síðasta ársfjórðungi en að meðaltali á árinu og á næsta ári verður hann „ívið minni“ miðað við verðlagsspá áætlunarinnar og launaforsendur hennar. Ef miðað er við ráðstöfun- artekjur verður kaupmátturinn 2—3% minni en í ár og beinir skattar „ívið hærri sem hlutfall af tekjum en í ár“. í skýrslunni segir, að engar líkur séu á, að úr verðbólgu dragi á næsta ári „verði framvinda ríkisfjármála og pen- ingamála með líkum hætti á næsta ári og í ár og vísitölukerfi launa óbreytt". — Verðbólgan Engin loðnuveiði leyfð í febrúar? Á FUNDI sjávarútvegsráð- herra. Kjartans Jóhannssonar, með hagsmunaaðilum um loðnuveiðarnar í gær, urðu fundarmenn sammála um að ekki væri tímabært nú að ákveða hámarksafla á haust- og vetrarvertíð. Fram kom á fund- inum að nauðsynlegt gæti verið að stöðva loðnuveiðarnar í haust og þá í síðasta lagi um miðjan desember. Segir í frétt frá sjávarútvegsráðuneytinu. að sú stöðvun gæti verið til- kynnt með stuttum fyrirvara þegar íslenzki flotinn hefði veitt 350—400 þúsund lestir. Samkvæmt niðurstöðum fund- arins er lítið útlit fyrir að loðnuveiðar verði leyfðar að nokkru ráði í febrúarmánuði á næsta ári. Skynsamlegt er talið að geyma 150 þúsund lestir til hrognatöku seint næsta vetur og e.t.v. eitt- hvað umfram það vegna loðnu- frystingar. Á fundinum var lögð áherzla á það, að takmarkaðan loðnuafla yrði að nýta þegar hann væri afurðamestur. Áfla á Rœtt um hug- myndir til stjórnunar og takmörkunar á veiðunum hrognatökutímanum, sem vænt- anlega yrði eftir febrúarlok, taldi fundurinn að heppilégt væri að skipta á milli þeirra skipa, sem teljast „dæmigerð loðnuskip". Við slíka skiptingu yrði tekið tillit til burðargetu skipanna og aflabragða þeirra eftir stærð undanfarin ár. Verði talið fært að veiða meira en 150—200 þúsund tonn eftir ára- mót, þá verði það gert í janúar á meðan fituinnihald loðnunnar er enn þá sæmilega haft. „Loðnu til frystingar," segir í frétt ráðuneytisins, „verði aflað með því að heimila „dæmigerð- um loðnubátum" að landa með tiltölulega litlum förmum til vinnslu á þeim tíma, sem loðnan hentar til frystingar, sem vænt- anlega verður síðast í febrúar.“ Engar ákvarðanir hafa verið teknar um takmörkun á loðnu- veiðunum og ber því að líta á tilkynningu ráðuneytisins frá í gær sem hugmyndir um mögu- leika á stjórnun veiðanna. Eins og fram hefur komið í Morgun- blaðinu hafa 395 þúsund tonn verið veidd af loðnu síðan í sumar, íslendingar um 270 þús- und lestir og Norðmenn 125 þúsund. Fiskifræðingar hafa fyrr á árinu lagt til að veiðin færi ekki yfir 600 þúsund tonn á haustvertíð 1979 og vetrarvertíð 1980. Gögn sem leyfa að horfið verði frá því hámarki liggja enn ekki fyrir, en niðurstöður éíðasta rannsóknarleiðangurs liggja þó ekki fyrir í endanlegri mynd. Þess má geta að íslendingar veiddu á haustvertíðinni í fyrra, frá því um miðjan júlí fram í miðjan desember, tæplega 500 þúsund lestir. „yrði á flesta mælikvarða nálægt 45—50% og þaðan af meiri ef viðskiptakjör breyttust mikið eða samið yrði um almennar grunn- kaupshækkanir." Skýrslan skiptist í þrjá hluta. í I. hlutanum er fjallað um fram- vindu efnahagsmála 1979 og horf- ur 1980. — „í II. og III. hluta þessarar skýrslu er gerð grein fyrir markmiðum og aðgerðum í efnahagsmálum á næsta ári,“ seg- ir þar. „Þar er meðal annars fjallað um markmið í peningamál- um og ríkisfjármálum eins og þau koma fram í fjárlagafrumvarpi og aðgerðir til þess að ná þeim markmiðum. Einnig er þar fjallað um þá stefnu í verðlags- og launamálum, a) að almennar grunnkaupshækkanir verði ekki á næsta ári enda ekkert svigrúm til þeirra, b) að hækkun launa verði sett ákveðið hámark við hvern útreikning verðbótavísitölu og c) að verðhækkanir vegna launa- hækkana umfram þessi mörk verði ekki leyfðar." Á grundvelli þessara forsendna er síðan sett fram sú spá, að verðbólgan verði áfram um 50% eða jafnvel hærri í febrúar n.k., en fari síðan lækk- andi, svo að árshækkanir bæði framfærslu- og byggingarvísitölu verði komnar niður undir 30% í árslok 1980. Meðalhækkun bygg- ingavísitölu milli ára yrði þá 37% en framfærsluvísitölunnar nálægt 40%. í Erfitt að vera með; j lausa samninga | segir Jón Kjartans- j son formadur J Verkalýðsfélags Vestmannaeyja ■ Af þvl aft vift erum h<r meö Írlkarekinn kapilaliim* mun þaft gere verk»]?Bsfel(*unum ? mjftg erflll (yrir >6 ver* meft | lausa samninRa um áramðt ef ■ engin ábyrg rlkisstjórn verftur IþA vlft völd, sagftl Jðn KJartansson formaftur Verka- • lyftsfélags Ve*lm»nn*eyJ» I I samUli vift Þjnftviljann I gvr m Vift erum fl«t bdin *ft ger* Íþaft upp vift okkur aft þ*ft er sama hvaft* rfkBstjórn er víft Z vftld Þ»r svlkja allar gerta I samnmga Geir Hallgrlmsson ■ sagfti er sðlstðftusamningarnir | vorugerftir aft þeir v*ru innan ■ þess ramma sem efnahagur ■ btftftarinnar þolir en hann var Jóa KjarUnsaon: Ndverandl stjftrnmaiamrnn bjarga þrssu atdrrt hrldur vrrfta aft koms til mlklu barkalrgri sftgrrftfr kjftrum undlr þessari stjdrnef makkaft heffti vrrift rétt - Hvaft er þd tU réfta’ ftg er kannski kominn a þa skoftun srm þjftftinðll hefur aft núverandi stjðrnmalamenn bjargi þessu aldrei heldur vrrtiaft koma til miklu harka „Tökum bara völdin ” í VIÐTALI í Þjóðviljanum í gær við Jón Kjartansson formann Verkalýðsfélags Vestmannaeyja fjaliar Jón m.a. um það, að undir vinstri stjórninni hafi verkalýðs- hreyfingin ekki náð þeim kjörum sem sólstöðusamn- ingarnir gerðu ráð fyrir. „Hins vegar hefði kannski verið hægt að ná betri kjörum undir þessari stjórn ef makk- að hefði verið rétt.“ Jón er síðan spurður að því hvað sé til ráða og svarar: „Ég hef náttúrulega þá lausn að við tökum bara völdin, en það verður að sjálfsögðu ekki gert meðan herinn er í landi.“ Aflaaukning er á öllum vígstöðvum BOTNFISKAFLI i septembermánuði í ár var heldur meiri en í sama mánuði í fyrra, en sú aukning var þó eingöngu hjá bátunum. Togararnir öfluðu hins vegar heldur minna og er ástæðan þorskveiðitakmarkanir hjá þeim i mánuðinum. Alls bárust á land 27626 lestir í mánuðinum. en botnfiskaflinn í sama mánuði í fyrra var 27507. Bátaaflinn nú var 8720 á móti 8411 í fyrra og togaraaflinn 18906 í ár á móti 19096 í fyrra. Alls var botnfiskaflinn um síðustu mánaðamót orðinn á árinu 477.237 lestir á móti 401.518 lest- um. Nemur aukningin því tæplega 76 þúsund lestum á árinu og er um aukningu í flestum eða öllum fisktegundum að ræða. Aukningin er alls staðar á landinu en botn- fiskafli Vestfjarðabáta er þó um 1 þúsund lestum minni í ár en í fyrra. Loðnuaflinn var um síðustu mánaðamót orðinn 705.825 lestir frá áramótum, en á sama tímabili í fyrra 676.033 lestir. í september var loðnuaflinn 149.151 lest, en í sama mánuði í fyrra 90.878 lestir. Heildaraflinn á árinu var um mánaðamótin orðinn 1.235.404 lestir á móti 1.155.379 lestum í fyrra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.