Morgunblaðið - 12.10.1979, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1979
5
Olíugeymar
Varnarliðsins
í Helguvík?
OLÍUGEYMAR Varnarliðsins
á Keflavíkurflugvelli hafa um
nokkurn tíma verið mönnum á
Suðurnesjum þyrnir í augum
og kvartað hefur verið yfir
mengunarhættu frá þeim.
Nefnd, sem utanríkisráðherra
skipaði nýlega, vinnur nú að
því að skoða þessi mál og þá
einkum með tilliti til nýrrar
staðsetningar á tönkunum,
löndunaraðstöðu, olíuþarfa
Keflavíkurflugvallar og þá
einnig um hversu stór verkefni
er að ræða, en geymarnir eru
nú 19 talsins. Augu manna
hafa einkum beinst að stað,
sem Helguvík heitir og er í
landi Keflavíkur utan við Leir-
una. Nefnd þessi mun síðar í
mánuðinum eiga viðræður við
Bandaríkjamenn um þessi mál,
en þarna er um mikið verkefni
að ræða.
Fjörugar um-
ræður um síld-
veiðarnar
I LOK september hélt stjórn
Fiskifélags íslands fund með
skipstjórum síldarnótaskipa.
Rúmlega 20 skipstjórar víðs veg-
ar að af landinu mættu á þennan
fund, auk þeirra mættu fulltrúar
Framleiðslueftirlits sjávaraf-
urða.
Umræðuefni fundarins var um
leiðir til að koma í veg fyrir
smásíldardráp, meðferð aflans um
borð og í landi, mat á síld,
hentugar aðferðir til sýnatöku
vegna smásíldar o.m.fl. síldveiðum
viðkomandi.
Fundarstjóri var Þorsteinn
Gíslason varafiskimálastjóri.
Framsögu hafði Hörður Þór-
hallsson skipstjóri frá Húsavík,
auk hans flutti Þorvaldur Árna-
son skipstjóri á Ásþór RE athygl-
isvert ávarp.
Góður rómur var gerður að
framsöguræðunum og spunnust
fjörugar umræður um þessi
vandamál. Margar tillögur voru
settar fram um vandamál
síldveiðiflotans og verða þær
ræddar frekar í stjórn Fiskifélags
íslands og síðar sendar skipstjór-
um, auk þess sem þær verða
kynntar í Ægi, tímariti Fiskifé-
lagsins.
(Fréttatilkynning Irá Fiskilélaginu).
Aðalfundur S.S.S.
AÐALFUNDUR Sambands sveit-
arfélaga á Suðurnesjum verður
haldinn í félagsheimilinu Stapa í
Njarðvík laugardaginn 13. október
kl. 10 árdegis.
Á dagskrá fundarins verður
m.a. að skýrsla stjórnar verður
lögð fram og rætt um fjármál og
fjárhagsáætlun S.S.S. og kjör-
dæmamál.
Vísnaképpni
um
dráttarvélar
FYRIRTÆKIÐ Vélaborg í
Reykjavík efnir um þessar mund-
ir til samkeppni um gerð visna til
að auglýsa Ursus dráttarvélar er
fyrirtækið flytur inn.
í bréfi fyrirtækisins til vísna-
vina er getið um þessa samkeppni
og beðið um smellnar vísur sem
megi gjarnan vera jákvæðar, en
góðar neikvæðar vísur séu einnig
vel þegnar. Segir að Ursus vélarn-
ar hafi jafnan fengið góðar mót-
tökur hjá bændum. Verðlaun í
vísnakeppni þessari eru jarðtæt-
ari að verðmæti 365 þúsund kr.,
áburðardreifari að verðmæti 185
þúsund og tæki til girðingar að
verðmæti 150 þúsunda króna.
Skilafrestur er til næstkomandi
áramóta og í dómnefnd sitja:
Sigurður Jónsson frá Haukagili,
Magnús Guðbrandsson og Baldur
Þorsteinsson.
I Greifahúsinu, Austurstræti 22
eru nú eftirtaldar verzlanir:
r" Austurstræti 22,
t 2. hæð. Sími 85055.
Sérverzlun fyrir konur sem vilja fylgjast með
Herrafataverzlun í sérflokki, sem býður m.a. upp á
klæðsker aþ j ónustu
Allt á börnin og unglingana Dömu-, herra- og barnaskór í
miklu úrvali
Innlendar og erlendar hljómplötur í þúsundavís
Einnig er í húsinu matsölustadur med
gómsœta rétti, staður sem sœlkerarnir
mæla með.
Austurstmti 22 lnn stneti sirni 11340
Austurstrætí 22
sími 85055
Austurstræti 22. Sími frá skiptiborði 85055
SKÓDEILD
UNGLINGADFILD
Austurslræii 22 Simi trá skif tibprði 85055
Austurstræti 22
Simi fra skiptö\“>'ði 850!
HLJÓMDEILD
Simi frá skiptiborði 85055 Austurstræti 22
r i
: l
1
JlfK (
1