Morgunblaðið - 12.10.1979, Side 14

Morgunblaðið - 12.10.1979, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1979 Flugstöðin verður 30% minni en ákveðið hafði verið: Kostnaður áætlaður um 16,5 milljarðar ÁKVEÐIÐ hefur verið að minnka fyrirhugaða flugstöðvarbyggingu á Keflavíkur- flugvelli um 30% frá því sem áður hafði verið ákveðið. Bandarísku fyrirtæki var í sumar falið að vinna forhönnun að verkinu og hefur það unnið með bygginganefnd flugstöðvarinnar undanfarna mánuði. Hönnun byggingarinnar er unnt að ljúka í árslok 1980 og gætu framkvæmdir þá hafist 1981 og verið lokið 1983. Kostnaður við bygginguna og annað viðkomandi henni er áætlaður 16.5 milljarðar króna og af þeirri upphæð munu Bandaríkin reiðubúin að greiða 6—7 milljarða króna. Að auki greiða Bandaríkjamenn flugbrautir og flughlað að fullu, en að sögn Helga Ágústssonar deildarstjóra varnarmáladeildar utanríkisráðuneytisins er þar um verulegar f járhæðir að ræða. Helgi Ágústsson sagði aðspurður um fjármögnun byggingarinnar, að verið væri að vinna að hagkvæmn- isútreikningum á rekstri flugvall- arins í Keflavík með það i huga að sjá að hve miklu leyti flugvöllurinn gæti fjármagnað þetta sjálfur. Sagði hann, að ástæða væri til að ætla að þær tekjur, sem af Kefla- víkurflugvelli kæmu, væru það miklar að með bjartsýni væri litið á þá fjármögnunarmöguleika. Það væri þó Alþingis og ríkisstjórnar- innar að taka ákvarðanir um slíkt í framhaldi af fyrrnefndum athug- unum. í skýrslu utanríkisráðherra, sem lögð var fram á Alþingi í gær, er greint frá forsögu þessa máls, allt frá því að núverandi flugstöðvar- hús var byggt á Keflavíkurflugvelli 1948. Gamla flugstöðin er fyrir löngu talin ófullnægjandi og jafn- vel hættuleg, t.d. má nefna að í ár hefur verið varið yfir 60 milljónum króna til aö klæða bygginguna að utan og bæta bílastæði. Segir í skýrslunni að næsta ár muni reyn- ast óhjákvæmilegt að verja mikl- um fjármunum til viðhalds flug- stöðinni. í samkomulagi viö Bandaríkja- menn 1974 var ákveðið að stefna að því að skilja að starfsemi Varnar- liðsins á Keflavíkurfiugvelli og almennt farþegaflug. Auk þess að þetta atriði samkomulagsins frá 1974 verður framkvæmt með bygg- ingu nýrrar flugstöðvarbyggingar eignast Islendingar flugstöð til framtíðar og auk þess sagði Helgi Ágústsson í gær, að margt annað jákvætt spilaði þarna inn í. Bandaríska fyrirtækið, sem tók að sér forhönnun byggingarinnar, lagði í maímánuði síðastliðnum fram þrjár mismunandi hugmynd- ir að flugstöð á Keflavíkurflugvelli. Bygginganefnd og fulltrúar Flug- leiða urðu sammála um aö mæla með einni tillagnanna. Hinir bandarísku aðilar hafa í samvinnu við bygginganefndina lokið sem næst 30% af hönnun stöðvarinnar. íslenzkir húsameistarar taka nú viö verkinu og fullhanna það ásamt hinum bandarísku, eins og segir í skýrslu utanríkisráðherra. ERTHJ VATNSBERI? Eða notarþú ferska vatnið í krananum heima? Hvers vegna þykkni? Floridana appelstnuþykknið losar þig við allan óþarfa vatnsburð og sparar þér geymslupláss. Þú blandar þvi fersku vatninu i þykknið þegar þér hentar. Útkoman úrl/4 lítra af þykkni verður 1 Ktri af ódýrari, hreinum og svalandi C-vítamínríkum appelsínusafa. Jafngildir heilum lítra af hreinum appelsínusafa. frá Florida Floridana appelsínuþykknið er G-vara sem tryggir fersk bragðgceði og varðveislu C-vítamínsins mánuðum saman. ENGUM SYKRI, LIT EÐA ROTVARNAR- EFNUMERBÆTTÍ FLORIDANA. MJÓLKURSAMSALAN í REYKJA VÍK Þú gerir létt og hagkvæm innkaup til langs tíma með FLORIDANA þykkni! í 1 Ovenju mörg mál á fyrsta degi ÓVENJU MÖRG mál voru lögð fram á fyrsta starfsdegi þings í gær og þeirra stærst frumvarp f jármálaráðherra að f járlögum næsta árs og skýrsla forsætisráðuneytis um þjóðhagsáætlun sama árs. Frá þessum málum er sagt í fréttum Mbl. í dag en í gær var greint frá þingrofstillögu Sjálfstæðisflokks- ins. Önnur mál, sem kynnt voru á fundi Sameinaðs þings í gær, voru þessi: Hækkun olíugjalds og verðuppbót á vannýttar fisktegundir Fram var lagt stjórnarfrumvarp til staðfestingar á bráða- birgðalögum um hækkun olíugjalds^til fiskiskipa og verðuppbót á vannýttar fisktegundir, sem gefin voru út í júnímánuði sl. Bráðabirgðalögin fólu í sér að fiskkaupandi greiði útgerðaraðila 7% olíugjald ofan á fiskverð, sem ekki kemur til hlutaskipta eða aflaverðlauna. Þá fólu bráðabirgðalögin í sér að heimild til að verja 500 m.kr. af tekjum Tryggingarsjóðs fiskiskipa og 700 m.kr. af tekjum Aflatryggingarsjóðs af útflutningsgjaldi til þess að bæta upp verð á vannýttum fisktegundum, karfa og ufsa, tímabilið 15.5. til 31.12 1979. Flugmálaáætlun Finnur Torfi Stefánsson (A) flytur frumvarp til laga um flugmálaáætlun. Samkvæmt frumvarpinu skal' ráðherra flugmála leggja fram tillögu til þingsályktunar um flugmálaáætlun, þar sem gerð er grein fyrir fjáröflun þeirri, sem fyrirhuguð er á áætlunartímabili og útgjöld sundurliðuð eftir helztu framkvæmda- flokkum: áætlunarflugvellir, aðrir flugvellir, leiðarflugþjónusta, flugstjórnarmiðstöð, önnur flugmálastarfsemi. Breyting á almennum hegningarlögum Tvö stjórnarfrumvörp til breytinga á aimennum hegningarlögum voru lögð fram. Fyrra frumvarpið er samið af hegningarlaganefnd, en formaður hennar er Ármann Snævarr, forseti Hæstaréttar. Frumvarpið skiptist í tvo meginþætti. Fjallar sá fyrri um fyrningu sakar og brottfall viðurlaga og ákvæði tengd þeim, en sá síðari um ákvæði laga er varða líkamsárásir og líkamsmeiðingar. Síðara frumvarpið er samið í dómsmálaráðuneytinu og fjallar um breytingu á 6. gr. almennra hegningarlaga (19/1940), sem talin er nauðsynleg til þess að unnt verði að fullgilda af íslands hálfu samning, sem gerður hefur verið á vegum Evrópuráðsins um varnir gegn hryðjuverkum. Húsnæðislán til elli- og örorkulífeyrisþega Jóhanna Sigurðardóttir (A) flytur frumvarp til breytinga á lögum um Húsnæðismálastofnun um lán á sérstökum kjörum til elli- og lífeyrisþega. Frumvarpið gerir ráð fyrir að lánin verði í sumum tilfellum vaxtalaus og einnig afborgunarlaus fyrstu 5 árin, auk gjaldfrestunar á helmingsgreiðslu verðtryggingar fyrir sama tímabil. Kaup og sala á fasteignum Jóhanna Sigurðardóttir (A) flytur tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á lögum um fasteignasölu, nr. 47/1938, og tengdum lögum og reglum, sem um fasteignaviðskipti gilda, og gera breytingar er tryggi betur en nú er réttarstöðu kaupanda og seljanda í fasteignaviðskiptum. Endurskoðun skal við það miðuð, að koma í veg fyrir óeðlilega verðlagsþróun á fasteignum. Könnun á tekjuskiptingu og launakjörum Þrír þingmenn Alþýðuflokks, Jóhanna Sigurðardóttir, Karl Steinar Guðnason og Björn Jónsson, flytja tillögu til þings- ályktunar um könnun á launakjörum og tekjuskiptingu í þjóðfélaginu, „sem mættu verða grunnar að sanngjarnari tekju- skiptingu og hagkvæmara launafyrirkomulagi". Lögð er áherzla á að tiltækar verði á einum stað allar upplýsingar um lífskjör og kjaramál er máli skipta. Endurgreiðsla lyf jagjalds Svava Jakobsdóttir (Abl) flytur frumvarp til breytinga á lögum um Almannatryggingar, þess efnis að þeir, sem tekjutryggingar njóta, fái % lyfjagjalds endurgreiddan hjá viðkomandi sjúkrasam- lagi, skv. nánari útfærslu í reglugerð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.