Morgunblaðið - 12.10.1979, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1979
Lögræði og lögaldur
til áfengiskaupa
ÞAR eð þess misskilnings virðist
gæta hjá ýmsum að áfengis-
kaupaaldur og lögræðisaldur
hljóti að fara saman vekur
Áfengisvarnaráð athygli á eftir-
farandi:
í Noregi verða menn lögráða 18
ára en fá leyfi til kaupa á sterkum
drykkjum 21 árs. Ö1 og vín mega
þeir kaupa 18 ára.
í Svíþjóð verða menn lögráða 18
ára en fá leyfi til kaupa á sterkum
drykkjum 20 ára.
I Bandaríkjunum fá menn kosn-
ingarétt 18 ára. Lögaldur til
áfengiskaupa er mismunandi eftir
ríkjum. Af 51 ríki eru 32 með
hærri áfengisaldur en 18 ár, þar af
24 með 21 árs aldur. Lögaldur til
áfengiskaupa er t.d. ári hærri í
Washington en Reykjavík.
Áfcngisvarnaráft.
Mokkakápur
og jakkar
Herra og dömumokkajakkar
í ótal gerðum og litum.
Ath: ennþá óbreytt verö.
Austurstræti lCr^E^sími: 27211
Drottningin
dansar samba
ÞAÐ hefur verið barizt af
hörku í fyrstu umferðum milli-
svæðamótsins hér i Rio. Einn
keppenda hefur þó dregið sig i
hlé. í upphafi þriðju umferðar
tilkynnti Golombek, aðalskák-
stjóri mótsins, að Mecking frá
Brasilíu hefði hætt keppni að
læknisráði. Þetta voru mikil
vonbrigði fyrir heimamenn,
sem höfðu vænzt þess að Meck-
ing sigraði í þriðja skipti í röð á
millisvæðamóti.
Óvæntustu úrslitin eftir 4 um-
ferðir eru vafalaust þau að Torra
sigraði Portisch með svörtu í
fyrstu umferð. Portisch tók því
hraustlega á móti Húbner þegar
þeir mættust í annarri Umferð
og varð það snörp viðureign:
Hvítt: Hiibner, Vestur-Þýzka-
landi.
Svart: Portisch, Ungverjalandi.
Sikileyjarvörn.
1. e4 - c5, 2. Rf3 - dG, 3. d4
— cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3
— a6,,6. Bg5 — e6, 7. f4 — Db6,
8. Dd2 — Dxb2, Portisch hefur
góða lyst á „eitraða peðiriu"
9. Hbl — Da3, 10. f5 Húbner
er nýbyrjaður að fylgjast með
tízkunni í skákinni og 10. f5 er
einmitt tízkuleikurinn um þess-
ar mundir.
10... .Rc6, 11. fxe6 — fxe6,
12. Rxc6 — bxc6.13. e5 — dxe5,
14. Bxf6 - gxf6,15. Be2?!
Skák
Guðmundur
Sigurjónsson
stórmeistari
skrifar frá Rio
Hér er rétt að staldra við.
Skömmu fyrir mótið í Rió tefldi
Húbner æfingaeinvígi við Hort,
sem nú er búsettur í Vestur-
Þýzkalandi. Einvígið fór fram
með mikilli leynd í Vestur-
Berlín og sigraði Húbner með
3'/2 vinningi gegn 2'/2. Skákirnar
verða líklega birtar seinna. I
fimmtu skákinni í einvíginu kom
upp þessi staða og hafði Húbner
einnig hvítt. Hann lék þá eins og
hér 15. Be2 og sá Hort ekkert
athugavert við þann leik og eftir
15... .h5, 16. Re4 — Be7, kom
upp staða, sem er mjög umdeild
þessa dagana. Það undarlega er,
að langt er síðan byrjunarfræð-
ingar komust að raun um að 15.
Re4 ( - Be7, 16. Be2 - h5) er
nákvæmari og betri lelkur en 15.
Be2, en þeir félagar, Hort og
Húbner virðast alls ekki hafa
numið þessi sannindi. Betri
kennara í byrjunum en Portisch
er vart hægt að hugsa sér og
tekur hann nú Húbner í kennsl-
ustund þá, sem Hort-vanrækti að
veita honum.
15. — Dd6! Þessi leikur hrindir
sókn hvíts. Svartur hefur tvö peð
yfir — og nú eru góð ráð dýr. 16.
De3! Góður leikur. Það tók
Húbner hálftíma að jafna sig
eftir áfallið. Verra var 16. Bh5+
- Ke7.
16. - Dd4!, 17. Df3 - Bb4!,
18. Dxc6+ — Ke7, 19. Dxa8 —
Dxc3+, Húbner var hræddur við
19 - Bxc3, 20. Kfl - e4!
20. Kfl — Hd8 Aðalgallinn
við stöðu hvíts er að hrókurinn á
hl er algjörlega óvirkur. 21. De4!
Drottningin dansar um borðið.
Húbner nýtir drottningu sína til
hins ýtrasta enda getur hann
vart hreyft aðra menn áfalla-
laust. 21. — Hd4, 22. Dxh7+ —
Kd6, 23. g3 Svartur hótaði Hf4+,
og hvítur fær ekki varizt maíi.
23. - Bd7, 24. Dh8! Hótar Dxf6
og einnig að skáka kónginum frá
áttundu reitaröðinni. 24. — f5,
25. a3! — Bc5 Ekki 25. — Dxa3
vegna 26. Db8+ — Ke7 (Kd5, 27.
c4+) 27. Dxe5
26. Df8+ - Kc6, 27. Da8+ -
Kd6, 28. Df8+ - Kc6 Of áhætt-
usamt er 28. — Kd5, 29. da8+ og
keppendur sættust á jafntefli.
Nokkrir snjallir drottningar-
leikir björguðu Húbner frá falli í
þessari skák.
Guðmundur Sigurjónsson.
Köngulóarmaðurinn í Stjörnubíói
STJÖRNUBÍÓ hefur í dag sýningar
á bandarisku kvikmyndinni Köngu-
lóarmaðurinn. Mynd þessi er byggð
á teiknimyndasögum um köngu-
lóarmanninn. Leikstjóri er E.W.
Swachkhamer en með aðalhlut-
verkin fara Nicholas Hammond
sem leikur Peter Parker, David
White (Jameson), Michael Pataki
(Barbera), Hilly Hicks (Dave) og
Lisa Eiibacher (Judy).
Peter Parker er ungur námsmaður
sem starfar að ljósmyndun með
háskólanámi. Námsfélagi hans er
Dave sem starfar að rannsóknum
þar sem geislavirk efni eru notuð.
Óþekktur ógnvaldur veldur skelf-
ingu í New York er hann tilkynnir að
10 manns munu líflátnir ef ekki
verði greitt hátt lausnargjald. Sú
aðferð, sem ógnvaldur þessi notar til
að koma fram vilja sínum er óþekkt
og kemur lögreglunni í mikla klípu.
Peter nær myndum af manni sem
klífur veggi af ótrúlegri leikni og
sýnir þær ritstjóra dagblaðs en hann
telur myndirnar vera falsaðar. Peter
tekur síðan upp á því að koma á
vettvang hvað eftir annað er ógn-
valdur New York borgar er að
störfum og lögreglan fyllist gruns-
emdum. Störf lögreglunnar bera
hins vegar engan árangur þar til
skyndilega dregur til tíðinda sem
verða glæpamanninum að falli.
Ártún opnar í kvöld með vmveitingaleyfi
Veitingastaðurinn Ártún
við Vagnhöfða í Reykjavík
hefur nú fengið vínveit-
ingaleyfi og opnar hann sem
slíkur í fyrsta sinn í kvöld.
Sigursæll Magnússon veit-
ingamaður hefur rekið
þarna matsölu frá því fyrsta
vetrardag í fyrra og tjáði
hann Mbl. að hann hefði nú
fengið vínveitingaleyfi, en
ásamt Sigursæli rekur Stef-
án sonur hans húsið og er
hann yfirmatsveinn.
í kvöld skémmtir hljóm-
sveitin Brimkló gestum og
diskótekið Dísa verður einn-
ig á staðnum og kvaðst
Sigursæll vonast til að gestir
yrðu ánægðir með þá tónlist
en salurinn tekur um 300
manns auk salar á neðri hæð.
— Ég hefi nú rekið veitinga-
staði frá því árið 1946 og er
því enginn unglingur í fag-
inu, sagði Sigursæll og sagð-
ist hann aðspurður láta vel
af staðsetningunni: — Ég
hefi alla tíð verið austastur í
bænum með minn veitinga-
rekstur og má nefna Mat-
stofu Austurbæjar og Sæla-
kaffi í því sambandi. En
austar fer ég nú varla og læt
staðar numið með þessum
stað, sagði Sigursæll Magn-
ússon að lokum.
Sigursæll Magnússon veitingamaður.