Morgunblaðið - 12.10.1979, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1979
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir
PÉTUR JÓNSSON
Geirahlíö,
Borgarfiröi
andaðist í Landsspítalanum miðvikudaginn 10. október.
Róaa Guömundsdóttir Vilborg Jóhannesdóttir
og börn. og syatkini hins látna.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
SÉRA ÞORSTEINN LÚTHER JÓNSSON,
fyrrum sóknarprestur,
Laufvangi 14, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 15.
október kl. 13.30.
Júlía Matthíasdóttir,
Hjördís Þorsteinsdóttir, Jóhannes Ögmundsson,
Höröur Smári Þorsteinsson, Guörún Tryggvadóttir
og barnabörn.
t
ÁGÚST ÚLFARSSON
verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardag-
Inn 13. október kl. 14.
Fyrir hönd ættingja Oddrún Pálsdóttir,
Þórunn Siguröardóttir,
Anna Jónsdóttir,
Þorsteinn Sigurösson.
t
Eiginmaður minn,
RAGNAR K. LÖVDAHL,
húsasmíöameistari,
Digranesvegí 108, Kópavogi,
veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju f dag, föstudaginn 12.
október kl. 3. e.h.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna,
Hulda Lövdahl.
+
Eiginmaöur minn, faöir okkar og tengdafaöir
JÓHANN HANNESSON
Stóru-Sandvík
verður jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 13. okt. kl.
2. Þeim sem vildu minnast hans, er bent á Frændasióð.
Málfríöur Benediktadóttir,
Benedíkt Jóhannsson, Lára H. Halldórsdóttir,
Hannes Jóhannsson,
Sigríöur Kr. Jóhannsdóttir, Samúel S. Hreggviösson,
Magnús Jóhannsson, Margrét Ófeigsdóttir.
+
Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
EINAR ÁSGRÍMSSON,
Grundargötu 9, Siglufiröi,
veröur jarösettur frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 13. október
kl. 2 e.h.
Dóróthea Jónsdóttir,
Ásgrímur Einarsson,
Jón Einarsson, Guörún Valberg,
Ásta Einarsdóttir, Pill Gunnólfsson,
Guðlaug Einarsdóttir,
Sólveig Einarsdóttir, Helgi Einarsson,
Brynjar Einarsson, Guörún Ólafsdóttir,
Stella Einarsdóttir, Páll Gunnlaugsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð viö andlát og jaröarför
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
RANNVEIGAR INGIBJARGAR THEJLL,
Hæöargaröi 14.
Magnús Thejll, Kristín Sigurbjörnsdóttir,
Camilla Lydia Thejll, Vernharöur Guömundsson,
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hlýhug viö andlát og
útför
SIGRID ELLU CROCKER
Sérstakar þakkir þeim sem heimsóttu hana og glöddu f veikindum
hennar Sigurbjörg S. Þorbergsdóttir,
Sigfried B. Sigurösson,
Mickael Crocker,
Ricky Crocker,
Kimberly Crocker,
Eggert Eggertsson,
Sverrir Þór Gunnarsson.
Kveðja:
Hanna Kristjánsdóttir
frá Ytra-Skógarnesi
Fædd 23. apríl 1922.
Dáin 5. október 1979.
Er mér barst fregnin um lát
móður minnar, setti mig hljóðan.
Það var óvænt fregn, þótt svo ég
vissi að hennar væri von. En nú
eru miklar þjáningar á enda og
hún hvílir í friði.
Nú er mamma dáin og við
systkinin upp komin. En það var
ekki erfiðleikalaust fyrir hana
eina að koma okkur á legg. Það
kostaði hana mikið erfiði og oft
var mamma þreytt. En í vinnu fór
hún alltaf og tók svo til við
heimilið, með sinni einskæru at-
orku, að hvaða húsmóðir sem er
hefði verið hreykin af. Þótt stund-
um hafi verið hart í ári, þurfti
maður ekki að kvarta og alltaf fór
ég vel búinn að heiman hvort sem
var í skólann eða til sjós. Mamma
sá alltaf um að í sjópokanum væri
nóg af hlýjum fötum og öðru sem
gott var að grípa til er maður var
langt að heiman. Hún hlúði svo vel
að manni að engin móðir gæti
hafa gert betur.
Er ég var á unga aldri, fór
mamma að vinna hjá B.Ú.R. og
vann þar í nokkur ár. Oft kom hún
þá þreytt heim og tók til við
heimilið. Við krakkarnir hjálpuð-
um oft til og fengum ávallt þakkir
fyrir, þakkir sem urðu að hvatn-
ingu til áframhalds. Er ég byrjaði
nám, hvatti hún mig og studdi á
alla vegu uns því var lokið.
Eitt af öðru fórum við krakk-
arnir að heiman, en síðustu ár
voru þau tvö, mamma og yngsti
bróðir minn. Þá fyrst fór hún að
geta hægt á og tekið sér frí. En
það var skammgóður vermir, því
seint á síðasta ári sögðu veikindi
til sín, sem nú hafa leitt hana til
dauða. — Mamma lagði margt
fyrir mig og kenndi mér margt,
sem ég fæ aldrei þakkað en mun
vera hinn rauði þráður í lífi mínu.
Ofanritað nær aðeins til hluta
af ævi móður minnar, enda er
þetta ekki ævisaga, heldur hinsta
kveðja og þakkir frá syni. Megi
hún hvíla í friði.
Far þú i friöi,
friöur Guös þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkat þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hana dýrðarhnoaa þú hljóta skalt
Sonur
Ragnar Kornelíus
Lövdal —Minning
Fæddur 25. mars 1910.
Dáinn 8. október 1979.
Ragnar Kornelíus Lövdal var
fæddur 25. mars 1910 og lést 8.
október s.l. Húsasmíðameistari
var hann að atvinnu og eftirlif-
andi eiginkona hans er Hulda
Benediktsdóttir Lövdal, fædd 7.
september 1916. Börn þeirra eru:
Edvard, fæddur 12. desember
1937; Una Olga, fædd 28. janúar
1940; Jóhanna, fædd 10. janúar
1947; Benedikt, fæddur 5. október
1953; Marten Ingi, fæddur 20.
ágúst 1958.
Afi minn var aðeins 7 ára
gamall þegar hann missti móður
sína, Jóhönnu Sigurðardóttur, ár-
ið 1917. Faðir hans, Edvard Löv-
dal, var frá Bödo í Norður-Noregi,
en móðir hans frá Reykjavík. Afi
bjó í Reykjavík þar til hann
fluttist í Kópavog 1953 og bjó til
dauðadags á Digranesvegi 108.
Hann byrjaði að læra húsasmíði
1929 og lauk námi 1937 sem
húsasmíðameistari. Hann starfaði
sem byggingameistari víðs vegar,
og einnig rak hann trésmíðaverk-
stæði samhliða húsasmíðinni.
Seinni árin starfaði hann við
ýmisleg störf sem til féllu.
Hann eignaðist 12 barnabörn á
lífsleiðinni og er það allt mann-
vænlegt fólk. Ég minnist afa míns
sem manns sem lét sér ekki allt
fyrir brjósti brenna, enda hafa
sjálfsagt verið margir erfiðleikar
á vegi hans, þegar hann starfaði
sem byggingarmeistari. Það var
ekki sú tækni við húsasmíðar þá
og nú er til staðar. Og samfara
tækjaleysi voru takmarkaðir pen-
ingar til húsagerðar á hans árum
sem byggingarmeistari, en allt
hafði þetta góðan endi.
Afi smíðaði margar stofukistur
í norskum stíl sem prýða margar
stofur. Ég sem þetta rita minnist
afa míns sem manns með mikið
jafnaðargeð og góðmennis. Hann
gaf sér tíma til að hjala við okkur
enda eru þær stundir ómældar
sem hann eyddi til þessara hluta.
Afi er nú horfinn sjónum okkar.
Ég þakka honum allar samveru-
stundirnar og ég skal reyna að
bera nafn hans með sóma. Góður
guð honum veginn greiði og gefi
honum góða heimferð. Hvíli hann
í guðs friði.
Ragnar Kornelíus Lövdal.
Edvard Lövdahl kom unglingur
frá Bodö í Noregi til hvalveiða á
Austfjörðum, sem þá voru með
miklu lífi. Edvard var maður vel
gefinn, glettinn og glaðvær og
virtist una hag sínum vel hér
langa ævi.
Fyrri kona hans, Jóhanna Sig-
urðardóttir Grímssonar prentara,
ól honum fjögur börn, en Ragnar
varð sá eini sem komst til fullorð-
insára. Mjög ungur missti Ragnar
móður sína og fór því á mis við
umhyggju móðurkærleikans og
mun alla tíð hafa fundið mjög sárt
til þess.
Sjálfsreynd hefi ég af slíku, þótt
eldri væri ég orðinn, og vita þeir
gerst er reyna.
Seinni kona Edvards var Guð-
leif Jónsdóttir, og eignaðist Ragn-
ar þar hálfbróður: Inga Lövdahl.
Ungur hóf Ragnar nám í húsa-
smíði hjá Sveini Sveinssyni og
lauk námi frá Iðnskólanum í Rvík.
og sveinsprófi 1933.
Einhvern veginn fannst mér, að
vera Ragnars í byggingarfram-
kvæmdum Ljósafossstöðvarinnar
hafi kveikt í honum stórhug til
framkvæmda, því að fljótt gerðist
hann umsvifamikill bygginga-
meistari, byggði mörg hús í Norð-
urmýrinni t.d. við Vífilsgötu,
Karlagötu, Hrefnugötu og horn-
húsið stóra Njálsgötu 87, og bjó
þar þar til að hann byggði sitt
einbýlishús suður í Kópavogi sem
þá var að byrja að byggjast. Mér
hefur alla tíð fundist það hús, sem
nú er nr. 108 við Digranesveg,
stílfagurt, og eftir að Ragnar hóf
húsgagnasmíði, að snjall væri
hann á fagurt form.
Með eftirlifandi konu sinni,
Huldu Ingibjörgu Benediktsdótt-
ur, eignaðist hann fimm börn:
Edvard, Unu Olgu, Jóhönnu, Bene-
dikt Ragnar og Martin Inga og
barnabörnin orðin tólf á lífi.
Ragnar nam sinn barnalærdóm
í Landakotsskóla og mun þar vel
hafa vegnað, enda með mjög góða
námshæfileika, ekki síst í stærð-
fræði, sem hann hafði stundum að
leik, er hann fetaði í fótspor
föðurins. Unglingur varð hann
fyrir slysum, miklum höfuðhögg-
um og mun hafa goldið þess alla
tíð.
Ekki er ólíklegt, að það hafi
ráðið nokkru um, að hann hætti
húsabyggingum á blómaaldri og
fór að reka trésmíðastofu o.fl. og
síðar ýmsa sölumennsku, eftir því
sem heilsan leyfði.
Ekki voru nema fáar vikur frá
því, að hann lagðist inn á Borg-
arspítalann til rannsóknar, þar til
að ljóst þótti að hverju stefndi og
aðfaranótt 8. þ.m. endaði það
harða stríð.
Þó mun það hafa létt honum
mjög hans erfiðustu þrautastund-
ir, að kona hans var löngum
stundum við hvílu hans til
sífelldrar umönnunar og hans
hugfróar.
Hans hlýja handtak síðast er ég
kom til hans, er lítill máttur var
orðinn til máls, varð mér og er
minnisstæð lokagjöf.
Þótt allur hópur ungmennanna
syrgi sinn góða afa og öll önnur
skyldmenni og unnendur, var ekki
unnt að óska annars en lausnar
frá vonlausum þrautum.
Eins og ég votta öllum syrgjend-
um samhug minn, vona ég að þessi
náðarlausn mýki sárin.
Ragnar verður til grafar borinn
frá Fossvogskirkju föstudaginn
12. október kl. 3 e.h.
Ingþór Sigurbjörnsson.
+
Þökkum auösýnda samúö og vinarhug i oröi og verki viö andlát og
útför elskulegrar eiginkonu, móöur, tengdamóður, systur,
mágkonu.ömmu og langömmu,
ADALHEIDAR GUDMUNDSDÓTTUR,
Kaplaskjólsvegi 63.
Stefón Elísson,
Jón M. Stefónsson, Valgeröur Marsveinsdóttir,
Jón Sigurjónsson, Helga Kóradóttir,
Aöalheiöur S. Jónsdóttir, Einar Baldvinsson,
Stefanía G. Jónsdóttir,
Baldvin Einarsson.