Morgunblaðið - 12.10.1979, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1979
29
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
að knésetja verðbólguna. Það
tekst þeim auðvitað ekki, en þá
eru alltaf hæg heimatökin að
kenna hver öðrum um, þar sem
þetta eru samsteypustjórnir. En
hvers vegna er svo „auðvitað" að
verðbólgustöðvunin mistakist?
Það finnst mér fyrst og fremst
vera vegna þess hvað hið gífurlega
sterka afl, verkafallsrétturinn,
hefur verið misnotað og ofnotað
hér síðastliðin 30—40 ár. Sú
flokksforysta sem er svo hrein-
lynd að halda fram þessum sann-
ieika umbúðalítið, er forysta
Sjálfstæðisflokksins. Þess vegna
hafa þeir verið furðu meinhægir í
sinni stjórnarandstöðu.
En annað mál er svo það, hvort
þessir menn geta innst inni gengið
svo gunnreifir til kosninga, sem
þeir láta í veðri vaka.
Bikar valdanna yrði þeim
beiskju blandinn, jafnvel þótt
Sjálfstæðisflokkurinn fengi hrein-
an meirihluta á alþingi. Þjóðvilj-
inn færi von bráðar að þyrla upp
moldviðri um vesalings „launþeg-
ana“, eins og einhvern afmarkað-
an smáhóp, sem allir hinir keppt-
ust við að þjarma að. Er raunveru-
lega ekki svo komið, að bezta
aðhaldið gagnvart vitleysunni og
mesta straffið á Alþýðubandalag-
ið, væri, að greiða því atkvæði við
næstu alþingiskosningar? Ég held
það.
M.J.
Ilafnarfirði.
• Samkeppni um
minningaskrif
aldraðra og
ný útgáfa
biblíunnar
Lesandi hafði samband við
Velvakanda og bar fram þá
spurningu hvort ekki hefði verið
farið fram á það við aldraða fyrir
nokkrum árum að þeir skrifuðu
endurminningar sínar og hvernig
því verki miðaði.
Velvakandi hafði samband við
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á samsovézka úrtökumótinu í ár
kom þessi staða upp í skák stór-
meistaranna Palatniks, sem hafði
hvítt og átti leik, og Gufelds.
Árna Björnsson hjá Þjóðhátta-
deild Þjóðminjasafnsins. Haustið
1976 sendu Sagnfræðideild
Háskólans, Stofnun Árna
Magnússonar, Þjóðminjasafnið og
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið út beiðnir til allra sem
voru orðnir 67 ára og eldri þess
efnis að þeir skrifuðu endurminn-
ingar sínar. Var þar sérstaklega
minnst á minningar frá bernsku-
árum, skólagöngu og uppfræðslu,
unglings- og æskuárum, heimilis-
störfum árið um kring og ýmislegt
frá yngri árum svo sem trúarlíf,
afkomu og fjárhag, lífsatriði og
nýjungar. Fyrirtæki þetta bar
heitið „Samkeppni um minninga-
skrif aldraðra". Frestur til að
skila svörum var til 1. nóvember
1977 en var síðan framlengdur til
vorsins 1978. 150 einstaklingar
sendu inn svör og komu flest
þeirra úr Þingeyjarsýslu, frá
Breiðafirði og Vestfjarðakjálkan-
um.
Árni kvað þær ritsmíðar sem
borist hefðu vera mjög mislangar
en allt í allt væru þær 5—6000
meðalstórar vélritaðar síður sem
munu vera efni í um 10—20 bæk-
ur. Nefnd sem skipuð er þremur
mönnum, frá Sagnfræðideild
Háskólans, Stofnun Árna
Magnússonar og Þjóðminjasafn-
inu, mun meta ritgerðirnar og er
þegar búið að gróflesa þær. Kvað
Árni margt af því sem borist
hefur vera mjög merkilegt og mun
nú senn líða að því að hægt verði
að veita viðurkenningar fyrir
bestu minningarnar.
Þá var spurt að því hvernig liði
nýrri þýðingu Nýja testamentisins
og nýrri útgáfu Biblíunnar. Hjá
Hermanni Þorsteinssyni, for-
manni Hins íslenska Biblíufélags,
fengust þær upplýsingar að útgáfa
nýrrar Biblíu væri vel á veg komin
og stefnt að því að hún kæmi á
markað fyrir jólin á næsta ári,
1980. Hluti Nýja testamentis þess-
arar nýju útgáfu er endurþýddur
en hluti þess er endurskoðaður.
Þýðing Gamla testamentisins er
frá árinu 1912 með vissum breyt-
ingum og nútíma stafsetningu.
• Samtök líf-
eyrisþega rík-
isstarfsmanna
Ég fékk um daginn bréf frá
lífeyrisþegum ríkisstarfsmanna,
sem hafa stofnað deild innan
Starfsmannafélags ríkisstofnana.
Ég gladdist yfir því að hugsað
hafði verið til okkar, sem komin
erum á eftirlaun. Þegar ég skilaði
svörum mínum við spurningum,
sem þetta félag sendi, þá spurði ég
hvort ekki gengi vel að fá svarað
bréfinu. Satt að segja varð ég
undrandi, þegar mér var sagt að
það væru ekki komin svör nema
frá liðlega fjórðungi þeirra, sem
fengu bréf. Mér finnst svo mikils-
vert að við, sem erum á þessu
aldursskeiði, reynum að halda
saman og reynum að nota okkur
vilja þeirra, sem reyna að létta
okkur lífið, að ég bið Velvakanda
fyrir þá orðsendingu frá mér til
þeirra, sem hafa fengið bréf líf-
eyrisþegadeildar, að svara spurn-
ingunum strax. Ég vona að þið
bregðið skjótt við svo að starf
þessa fólks, sem vill gera eitthvað
fyrir okkur, geti borið sem bestan
ávöxt.
Við skulum reyna að gleðja
hvert annað, reyna að blanda
saman geði, kynnast og hjálpa
hvert öðru eftir því sem við getum.
Byrjum með því að svara góðu
fólki, sem vill vel.
Ein sem hefur eftirlaun.
HÖGNI HREKKVÍSI
„ JA, UÉPMA! JEr \?>e-rrA EtOtr AHA6
Atafísrjóci 'i L£iT ao Moöv oick.'."
Látiö okKur
vcria
vaðninn
Ryðvarnarskálinn
Sigtum5 — Simi 19400
Listmunauppboð
Guðmundur Axelsson
Klausturhólar
Laugavegi 71
Sími19250
Málverkauppboð veröur haldið sunnudag-
inn 14. október kl. 15 að Hótel Sögu
(Súlnasal).
Myndirnar veröa til sýnis aö Laugavegi 71,
laugardaginn 13. október kl. 9.00—18.00 og
aö Hótel Sögu sunnudaginn 14. október kl.
10.00—14.00.
Laugavegi 71.
Skóverslun S. Waage SF.
Domus Medica
og ath:
Barónstíg 18
Póstsendum samdægurs.
19. Bxg6! hxg6 20. Dh8+ Kf7 21.
Dxe5! (En ekki 21. Hh7+ Ke6)Hg8
22. Hh7+ Kf8 23. Df6+ Ke8 24.
Hxd7 Rxd7 25. De6+ og svartur
gafst upp. Þeir sem komust áfram
á mótinu voru þeir BRashkovsky
og Lerner sem urðu efstir og hlutu
9 vinningana af 13 mögulegum, A.
Ivanov, Psakhis, Lputjan,
Anikajev, Vitolins og K.
Grigorjan sem hlutu 8'/2 v. auk
óþekkts meistara, Sidef-Zade, en
hann varð efstur á stigum af þeim
sem hlutu 8 v. Fimm stór-
meistarar féllu úr keppninni, sem
er undankeppni fyrir Skákþing
Sovétríkjanna.
03^ S\G6A V/GGA £ \iLVtmi