Morgunblaðið - 12.10.1979, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1979
31
Ætla að vinna
Evrópukeppnina
Bjarni Bessason annar tveggja nýliða í landsliðshópnum að þessu
sinni. Bjarni er vaxandi leikmaður og hefur sýnt góða leiki með liði
sínu ÍR i haust.
Tekst að
sigra Tékka?
Fyrstu handknattleikslandsleikir vetrarins verða í
næstu viku, en þá kemur landslið Tékkóslóvakíu í
heimsókn. Fyrsti leikurinn er á mánudagskvöld kl.
20.30 í Laugardalshöllinni. Aftur verður leikið á
þriðjudagskvöld og síðan leikur unglingalandslið 21 árs
og yngri við Tékkana í íþróttahúsinu á Selfossi
næstkomandi miðvikudag kl. 20.30.
KÖRFUBOLTALIÐ KR ætlar að
tefla fram tveimur bandarískum
leikmönnum er liðið mætir
frönsku meisturunum í Evrópu-
bikarkeppninni í Laugardalshöll
30. október næstkomandi. Bæði
Dakarsta Spói Webster og nýi
leikmaðurinn Marwin Jackson
verða í liði KR gegn Caen, en svo
heitir lið frönsku meistaranna.
Þeir félagarnir Webster og
Jackson lýstu því yfir á blaða-
mannafundi í gær, að ekki væri
nokkur vafi á því að KR myndi
ekki aðeins slá út lið Caen,
heldur gera enn betur og vinna
sjálfan Evrópubikarinn. Þeir
voru ekki að grínast.
„No way we gonna lose,“ sögðu
þeir og Spóinn stefnir ákveðið að
því að stöðva 20 skot í leiknum
auk þess sem hann ætlar að hirða
öll fráköstin. Hann er fyrst og
fremst varnarmaður og sem slíkur
er hann í fremstu röð. Jackson er
að sögn afburðaframherji, ekki
síður en varnarmaður. Jón Sig-
urðsson, óumdeilanlega besti inn-
lendi körfumaðurinn, sagði á
fundinum í gær, að Jackson væri
besti erlendi leikmaðurinn sem
hingað hefði komið. Áður hefði
jafnan verið talað um Jimmy
Rogers sem besta Bandaríkja-
manninn, en Jackson væri mun
betri alhliðaleikmaður og „hlaðinn
sprengikrafti" í snerpu.
Einar Bollason taldi að aldrei
hefði íslenskt lið verið jafn sterkt
á pappírnum gegn erlendu liði og
úrslit leiksins væru mikilvæg fyrir
íslenskan körfuknattleik. Róður-
inn verður þó erfiður, því að
Frakkar eiga eitt besta landslið
Evrópu.
Það er skrýtin tilviljun, en
Jackson hefur leikið í sama liði og
Jimmy Rogers eigi alls fyrir löngu
og eru þeir ágætir mátar: „He’s a
nice dude,“ sagði Jackson.
Nokkuð umtal hefur að undan-
förnu orðið um leikmannaskipti
KR-inga í körfuboltanum. Sem
kunnugt er, kom hingað til lands
fyrir rúmri viku Marwin Jackson
og mun hann leika með úrvals-
deildarliði KR á komandi keppn-
istímabili.
Dakarsta Webster lék hins veg-
ar með KR allt Reykjavíkurmótið
og framan af var talið að hann
myndi leika með KR í vetur. í ljós
kom, að Webster var ekki sú
tegund af leikmanni sem KR
skorti mest. Webster er hörku-
varnarmaður, það verður ekki af
honum skafið. En í sókninni
reyndist hann ekki eins liðtækur.
Því var sóttur nýr maður.
Kðrfuknaltlelkur
í fljótu bragði virðist framkoma
KR gagnvart Spóanum ekki vera
til fyrirmyndar. Hann hafði engan
samning undirritað og var að sjá
sem KR hefði varpað honum út á
gaddinn. Webster sjálfur stöðvar
sjálfur allar slíkar hugleiðingar
um málið. Hann segir: „Eg er fyrst
og fremst varnarmaður og sem
slíkur kann ég mitt fag. Eg hef
aldrei verið mikilvægur sóknar-
maður með þeim liðum sem ég hef
leikið með, því var mikil pressa á
Alls hafa verið leiknir 228
landsleikir í handknattleik frá
upphafi gegn 30 löndum. 106
landsleikir hér heima en 122
erlendis. Sigur hefur unnist í 82
leikjum, 23 hafa endað með jafn-
tefli og 123 tapast. Markatalan er
okkur hagstæð því að við höfum
skorað 4330 mörk en fengið á
okkur 4241 mark.
Leikið hefur verið 17 sinnum á
móti Tékkum. Tvívegis hefur sigur
unnist, fimm sinnum hafa leikirn-
ir endað með jafntefli, og tíu
sinnum hefur tap verið uppi á
teningnum. ísland hefur gert 269
mörk en fengið á sig 309 mörk.
Vonandi verður hægt að bæta
þessa markatölu í leikjunum á
mánudag og þriðjudag.
Siðast þegar löndin léku saman
varð jafntefli 12—12, eftir hörku-
spennandi og skemmtilegan leik.
Forsala aðgöngumiða verður á
mánudaginn við Útvegsbankann
og í Laugardalshöllinni frá kl.
18.30. Til gamans birtum við hér á
eftir lista yfir þá leikmenn sem
leikið hafa flesta landsleiki fyrir
ísland í A-landsliði karla, og
hversu mörg mörk þeir hafa
skorað. Leikjahæstur er Geir
Hallsteinsson en Ólafur Jónsson
fylgir fast á eftir og jafnar
leikjamet hans verði hann með í
báðum leikjunum eftir helgina.
Vinnur
Tony
tvöfalt?
STAVANGURS-Víkingarnir og
Lilleström skildu jöfn í fyrra-
kvöld, 1 — 1, í norsku deildar-
keppninni í knattspyrnu. Ein
umferð er eftir í Noregi og er allt
Eítirtaldir haía leikið í 1979. Nafn A-landsliði karla til 31. maí Félag Leikir Mörk a suoupunKii. Tony vinur vor Knapp og strákarnir hans hjá Víkingi, standa nú með pálmann i hönd-
1. Geir Ilallsteinsson F.H./FAG. 118 534 unum, en sigurinn er þó ekki
2. ólafur H. Jónss. Val/GWD. 116 290 endanlega í höfn. Víkingur hefur
3. Björgvin Björgvinsson Fram/Víkingur 106 194 nú 30 stig og 12 mörk i plús. Moss
4. Viðar Símonarson Haukar/F.H. 103 231 hefur á hinn bóginn 29 stig og 16
5. Ólafur Benediktsson Valur/Olympía 94 Mv. mörk í plús. Uppgjörið stendur
6. Sigurbergur 91gsteinsson Fram 85 66 milli Víkings og Moss, Start er i
7. Axel Axelsson Fram/GWD 78 353 þriðja sæti með 27 stig og 17
8. Hjalti Einarsson F.H. 76 Mv mörk í plús. Start á þvi ekki
9. Einar Magnússon Víking/HSV. 69 151 möguleika á titlinum, en gapti
10. Jón II. Karlsson Valur 67 191 stolið 2. sætinu ef Moss tapar
11. ólafur Einarsson FH/Donsd./Vík. 63 208 síðasta leik sínum og Start vinn-
12. Árni Indriðason Grótta/Víkingur 60 54 ur.
13. Gunnsteinn Skúlason Valur 58 73 Víkingur leikur gegn Rosenborg
14. Gunnar Einarsson Haukar/Árh. KFUM 55 Mv. á heimavelli sínum í síðustu um-
15. Stefán Gunnarsson Valur 55 29 ferðinni, Moss mætir Bodö Glint,
16. Jón H. Magnússon Vikingur/Lugi 54 155 einnig áheimavelli. Stárt fær hins
17. Þorbjörn Guðmundsson Valur 52 104 vegar erfiðan útileik gegn Lille-
18. Sigurður Einarsson Fram 51 62 ström.
19. Bjarni Guðmundsson Valur 48 48 Baráttan á botninum er ekki
20. Viggó Sigurðsson Vikingur 48 98 síður hörkuspennandi. Brann hef-
21. Gunnlaugur Hjálmarsson Í.R./Fram 47 166 ur þegar glatað allri von, en þr*jú
22. Ingólfur Óskarsson Fram 45 118 lið falía og þrjú lið berjast af alefli
23. Auðunn Óskarsson F.II. 44 26 gegn því að hreppa hin fallsætin
24. Birgir Finnbogason F.H. 44 Mv. tvö. Þau eru Hamkam með 16 stig,
25. Páll Björgvinsson Vikingur 44 114 Mjöndalen og Skeid með 17 stig
26. Stefán Jónsson Haukar 44 36 hvort félag. Mjöndalen leikur gegn
27. Bjarni Jónsson Val/Þróttur 43 46 Bryne á heimavelli sínum í síðustu
28. Þorsteinn Björnsson Fram 40 1 Mv. umferðinni, Hamkam leikur úti
29. Ágúst Ögmundsson Valur 33 19 gegn Brann. Skeid fær erfiðan
30. Gisli Blöndal KR/KA/Valur 33 56 mótherja, nágrannaliðið Vaaler-
31. Þórarinn Ragnarsson F.H. 33 21 engen. Það er því víðar en á Fróni
32. Ágúst Svavarsson Í.R. 32 44 sem mótin eru ekki ráðin fyrr en í
33. Karl Jóhannsson K.R. 31 65 síðustu leikjum.
mér þegar hingað kom. Það var
strax ljóst þegar ég byrjaði að
leika með KR, að það var góður
sóknarmaður sem liðið þurfti, ekki
bara varnarrisi. Þess vegna skil ég
mæta vel stöðu KR-inga og ber
ekki illan hug til þeirra. Öðru nær'
þó ég hafi verið hér á landi í
aðeins stuttan tíma, er ég þegar
gegnsýrður KR-ingur og mun allt-
af verða.“
Svo sem fram kemur í annarri
frétt hér á síðunni, mun Webster
leika með KR í Evrópukeppninni
og segja KR-ingar að þá fyrst
muni hann njóta sín, með góða
sóknarmenn með sér. Webster
mun dvelja hér áfram um óákveð-
inn tíma og sjá um þjálfun yngri
flokkanna og kvennaliðsins.
KR-ingar láta feiknalega vel af
Webster sem unglingaþjálfara og
gáfu í skyn á fundinum í gær, að
til greina kæmi að ráða Webster
sem slíkan út veturinn, ef nægi-
legar tekjur kæmi inn á Evrópu-
leikjunum. Verði ekki úr því,
munu KR-ingar gefa honum öll
bestu meðmæli til vinnuöflunar,
ef hann kysi að dveljast áfram á
íslandi. „Hjá KR, er fólk á bak við
mann sem hægt er að treysta,"
sagði Webster, Vonandi bregst
enginn því trausti hans.
Tony Knapp náði góðum árangri
með íslenska Iandsliðið í knatt-
spyrnu á sínum tíma. Nú er hann
kominn með aðra höndina á
meistaratitilinn í Noregi og hugs-
anlega vinnur lið hans líka bik-
arkeppnina.
Stórir
sigrar
hjá ÍS
Þrír leikir fóru fram í
fyrrakvöld í Reykjavíkur-
mótinu í blaki. IS sigraði
Víking i meistaraflokki
kvenna 3—0. Enduðu hrin-
urnar 15—7, 15—3 og 15—
2. Lið Víkings hefur fengið
góðan liðstyrk frá í fyrra,
þar sem uppistaðan úr liði
Völsungs frá Húsavík sem
varð íslandsmeistari hefur
skipt um félag. En það dugði
greinilega ekki að þessu
sinni.
t meistaraflokki karla
sigruðu Þróttarar Fram ör-
ugglega 3—0. Hrinurnar
enduðu 15-2, 16-14, 15-
7. ÍS sigruðu svo Víking
3—1. Enduðu hrinurnar
15-11, 15-8, 9-15 og 3-
15. Næstu leikir í mótinu
fara fram næstkomandi
fimmtudag. þr.
Unglinga-
landsliðið
~\J * *
Finnlandi
Unglingalandsliö KSÍ
leikur síðari landsleik sinn á
móti Finnum á morgun
laugardag. Leikurinn fer
fram í Helsinki. Litlar vonir
eru bundnar við að liðið
komist í úrslitakeppnina
þar sem Finnar sigruðu í
fyrri leik liðanna hér heima
3-1._____________
Skólamót
Skólamót KSÍ í knatt-
spyrnu hefst 20. okt. Þátt-
tökutilkynningar þurfa að
berast skrifstofu KSÍ fyrir
17. okt. ásamt 20.000 þátt-
tökugjaldi.