Morgunblaðið - 12.10.1979, Blaðsíða 32
Síminn á afgreiðslunm er
83033
2tWr0iin1»Ifll>ib
á ritstjórn og skrifstofu:
10100
JH«r0unbIflbib
Forseti íslands:
„Framkvæmi
fljótt það sem
gera þarf”
„ÞAÐ má segja að ég sé í eins
konar biðstööu," sagði forseti
Islands, herra Krislján Eldjárn, í
gær í samtali við Mbl. þegar
hann var inntur eftir því hvað
fyrir lægi hjá honum í sambandi
við- stöðu stjórnmálanna, „það
verður ríkisráðsfundur kl. 10 á
morgun (föstudag) og ef mál
ganga fram eins og sagt hefur
verið í sambandi við stjórnarslit
þá liggur það næst fyrir að
athuga afstöðu formanna stjórn-
málaflokkanna til hinna ýmsu
möguleika er til greina koma,
heyra álit þeirra og framkvæma
síðan eins fljótt og ég get það
sem gera þarf.“
Mbl. spurði forsetann hvort
breyting yrði á opinberri heim-
sókn hans til Belgíu vegna
breyttrar stöðu í íslenzkum
stjórnmálum. „Ég hef ekki gert
því skóna ennþá," sagði dr.
Kristján, „að hætta við þá ferð
og fer á þriðjudaginn. Við verð-
um í þrjá daga og getum því
komið heim þann 19. okt. Það er
erfitt að fresta slíkri ferð á
síðustu stundu."
Steingrímur um
stjórnarsamstarfið:
And-
rúms-
loftið
eitrað
STEINGRÍMUR Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins,
sagði í samtali við Morgunblaðið
i gær. að sundurlyndi innan
ríkisstjórnarinnar hefði eitrað
þar allt andrúmsloft. „Innan
ríkisstjórnarinnar hefur fyrst og
fremst ríkt ákveðin tortryggni,“
sagði Steingrímur, „nánast hatur
milli Alþýðubandalags og Al-
þýðuflokks, scm gert hefur
stjórnarsamstarfið óhæft. Það
sem hélt því saman var ákveðin
og ábyrg afstaða verkalýðshreyf-
ingarinnar og ég met mikils þá
afstöðu hennar og velvilja gagn-
vart ríkisstjórninni."
Steingrímur sagði, að sundur
lyndið innan ríkisstjórnarinnar
hefði kannski ekki háð einstökum
ráðherrum í störfum þeirra, en þó
kvaðst hann t.d. ckki hafa getað
fengið framleiðsluráðsfrumvarpið
samþykkt í ríkisstjórninni vegna
stöðugra aðfinnslna krata. „En
sundurlyndið hefur eitrað allt and-
rúmsloftið. Vona ég, að Framsókn-
arflokkurinn fái ekki þann stimpil,
að hann hafi tekið þátt í slíku.
Hann hefur reynt að starfa í
þessari ríkisstjórn af drengskap og
ég vona að hann fái þá einkunna-
gjöf.“
FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1979
Alþýðuflokkur tilbúinn að
mynda minnihlutastjóm
„VIÐ höfum lýst okkur reiðu-
búna til að sjá landinu fyrir
ríkisstjórn, ef Sjálfstæðisflokkur-
inn viíl veita okkur atbeina til
þess,“ sagði Sighvatur Björg-
vinsson formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins í samtali við Mbl. í
gærkvöldi. Geir Hallgrímsson
formaður Sjálfstæðisflökksins
sagði, er Mbl. spurði hann í
gærkvöldi um afstöðu Sjálfstæð-
isflokksins: „Ég vil taka það
skýrt fram, að við höfum ekki
gert Alþýðuflokknum eitt eða
neitt tilboð. En það er rétt að við
höfum fengið þessa málaieitan
frá honum. Hún er til athugunar
og verður tekin fyrir á þing-
flokksfundi klukkan 10 á morg-
un.“
Sjálfstæðisflokk-
urinn tekur af-
stöðu til hlutleys-
is árdegis í dag
Sighvatur Björgvinsson sagði, að
Alþýðuflokksmönnum væri ljóst,
að það væri ekki nóg að krefjast
þingrofs í ríkisstjórn, heldur yrðu
þeir einnig að vera reiðubúnir til að
gera það sem óhjákvæmilegt væri,
fyrst Framsóknarflokkur og Al-
þýðubandalag vildu ekki veita at-
beina sinn til þingrofs. „Þetta er
vissulega erfitt verk og ekki öf-
undsvert,“ sagði Sighvatur. „En við
höfum nægan kjark til að fylgja
okkar máli eftir á þennan hátt.“
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu voru þrjú stjórn-
armynstur til umræðu í þinginu í
fyrradag, minnihlutastjórn Sjálf-
stæðisflokks, minnihlutastjórn Al-
þýðuflokks og loks utanþings-
stjórn. Við umræður í þingflokki
Alþýðuflokksins komust menn að
þeirri niðurstöðu, að þeir treystu
sér ekki til þess að veita minni-
hlutastjórn Sjálfstæðisflokksins
hlutleysi, þar sem það gæti ekki
verið hlutverk flokksins að leiða
sjálfstæðismenn inn í öll ráðuneyti
rétt fyrir kosningar. Utanþings-
stjórn var talin útilokuð og hölluð-
ust menn loks að minnihlutastjórn
Alþýðuflokksins. Flokkurinn hefði
stigið það skref að sprengja sam-
starf Alþýðuflokks, Framsóknar-
flokks og Alþýðubandalags og væri
því siðferðilega bundinn af því að
sjá landinu fyrir starfhæfri ríkis-
stjórn fram að kosningum. Útilok-
að væri annað, þar sem flokkurinn
hefði stigið skrefið til hálfs, en að
hann gerði það til fulls. Alþýðu-
flokksmenn höfnuðu því í gær í
viðræðum við Sjálfstæðisflokkinn,
að þeir gætu veitt minnihluta-
stjórn hans hlutleysi.
Kjöri forseta þingsins var
frestað í gær, en í afstöðu Alþýðu-
flokksins felst samvinna um kjör
forseta og yrði forseti Sameinaðs
þings þá sjálfstæðismaður.
Búkovský um herferð International Amnesty:
Fólk hundelt og fangels-
að fyrir Olympíuleikana
andófsmenn nú fangelsaðir hver
af öðrum, ekki sízt forystumenn
Tartara.
„Þetta er stórkostlegt framtak
hjá International Amnesty,"
sagði Búkovský að lokum, „og
mjög mikilvægt framlag til bar-
áttu okkar andófsmanna. Það
gleður mig, að mér hefur verið
sagt, að vel hafi verið skýrt frá
heimsókn minni til íslands og
fyrirlestur minn fallið í góðan
jarðveg. Það var ógleymanlegt
að fara til Þingvalla, þessa
táknræna staðar frelsis og lýð-
ræðis. Það voru fallegir litir á
Þingvöllum, þegar við vorum þar
og ég bið að heilsa öllum vinum
mínum á íslandi."
Hann kom aftur að Þingvöll-
um í lok samtalsins og sagði:
„Þingvellir búa yfir stórbrotinni
fegurð og ógleymanlegri tign.“
MORGUNBLAÐIÐ haíði í gær samband við rússneska andófs-
manninn Vladimir Búkovský, sem hér var um helgina og flutti
fyrirlestur um reynslu sína af Gúlaginu, og spurði hann, hvað
hann vildi segja um Opið bréf Amnesty International til
Brezhnevs, forseta Sovétríkjanna, og sérstaka herferð samtak-
anna til aðstoðar sovéskum andófsmönnum, en bréf þetta hefur
verið birt í blöðum um allan heim, m.a. hér í Morgunblaðinu í
gær.
Búkovský fagnaði mjög þess-
ari herferð alþjóðasamtakanna
og kvaðst telja, að þau hygðust
benda sérstaklega á ömurlegt
hlutskipti andófsmanna í
Sovétríkjunum í sambandi við
Ólympíuleikana, sem fram eiga
að fara í Moskvu á næsta ári.
Hann sagði, að rétt væri — eins
og hann hefði raunar drepið á í
fyrirlestri sínum í Reykjavík —
að sovézk stjórnvöld hefðu byrj-
að nýja herferð gegn andófs-
mönnum í Sovétríkjunum og
smali þeim nú saman og flytji
burt frá Moskvu, svo að gestir á
Ólympíuleikunum geti ekki haft
samband við þá — og þá ekki
sízt forystumönnum verka-
manna, en þeir hefðu nú myndað
sterka andó fshópa, sem væru
Sovétstjórninni kvað hættu-
legastir. „Allt þetta fólk er í
aukinni hættu vegna Ólympíu-
leikanna,“ sagði Búkovský. Þá
reyni sovézk stjórnvöld einnig að
koma í veg fyrir, að andófsmenn
ýmissa minnihlutahópa í Sovét-
ríkjunum geti farið til Moskvu
og náð þar sambandi við gesti á
Ólympíuleikunum. Eru þessir
Efnahagslög vinstri stjómarinnar:
Láglauna-
fólk fær 9%
en aðrir 11%
VIÐSKIPTAKJARARÝRNUNIN samkvæmt efnahagslögum fráíar-
andi vinstri stjórnar kom ekki til framkvæmda varðandi laun undir
210 þús. kr. miðað við marz s.l., en gerir það hins vegar að fullu
varðandi verðbætur 1. des. n.k. Frestunin á tveimur stigum gengur þá
til baka og samkvæmt lögum vinstri stjórnarinnar mun fólk sem er
lægra launað fá tæplega 9% hækkun, en hærri launaflokkar fá hins
vegar liðlcga 11% kauphækkun.
Þann 1. des. breytast lögin þann-
ig, að sama vísitala gildir á öll
laun.
Viðskiptakjararýrnunin kem-
ur að fullu til framkvæmda varð-
andi verðbætur 1. des. og frestun
vinstri stjórnarinnar á 2 stigum
gengur til baka þannig að hækkun
hjá þeim sem eru hærra launaðir
verður liðlega 11% (miðað er við
yfir 210 þús. kr. laun 1. marz s.l.),
en hækkunin hjá þeim sem voru
með undir 210 þús. kr. verður
aðeins tæplega 9%.