Morgunblaðið - 17.11.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 17.11.1979, Blaðsíða 5
MORGÚNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979 5 Akureyri: Ungt fólk heldur fund með Halldóri Blöndal UNGT fólk á Akureyri gengst fyrir fundi með Halldóri Blöndal n.k. mánudagskvöld klukkan 20,30 í Sjálfstæðishúsinu. Ávörp flytja Steindór Stein- dórsson, Guðmundur H. Frí- mannsson, Líney Árnadóttir og Sigurður J. Sigurðsson. Þá mun Halldór flytja stutt ávarp og svara fyrirspurnum. Fundarstjóri verður Björn J. Arnviðarson. Á fundinn koma Halli, Laddi og Jörundur og munu þeir skemmta viðstöddum með glensi og gamni. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Halldór Blöndal Ellert B. Schram með síma- viðtals tíma í dag ELLERT B. Schram fyrrverandi alþingismaður, sem nú skipar áttunda sæti framboðslista Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík, bar- áttusætið, er með símaviðtals- tíma í dag, laugardag, milli klukkan 10 og 12 árdegis. Síminn er 82900, og þangað geta þeir hringt, sem áhuga hafa á að ræða við Ellert um stefnu Sjálfstæðis- flokksins eða aðra þætti þjóð- mála. Ellert B. Schram. Er Ellert reiðubúinn að svara öllum þeim spurningum er fólk kann að vilja bera fram við hann, og eru kjósendur í Reykjavík hvattir til að nota þetta tækifæri til að ná tali af Ellert, sem nú skipar baráttusæti D-listans í Reykjavík sem fyrr segir. Kínaför Karlakórsins: Sungið tvívegis í fæðingarbæ Maos KARLAKÓR Reykjavíkur er nú á söngför um Kína. Einn af þeim kórfélögum hafði samband við blaðið frá Peking og var þá lokið fyrstu söngskemmtun kórsins, sem fram fór í Menningarhöllinni í Pek- ing. Það er geysistórt hús, Athugasemd frá Kvenfélag- inu Hringnum VIÐ HÖFUM orðið varar við að nokkur brögð eru að því þessa dagana, að farið er i hús og verslanir og boðin til sölu jólakort, sem sögð eru vera til styrktar Barnaspít- ala Hringsins. Af þessu tilefni viljum við taka fram, að á okkar vegum eru aðeins seldar tvær teg- undir jólakorta fyrir þessi jól og er hvert kort merkt. með merki félagsins. Mynd á öðru kortanna er af steindum glugga úr Bessastaðakirkju eftir Finn Jónsson og á hinu kortinu er mynd Baltasars við kvæði Jóhannesar úr Kötlum, Jólabarnið. Við viljum benda velunnur- um okkar á að gæta þess, að þau kort, sem boðin eru til sölu í okkar nafni, séu með merki félagsina á bakhlið. rúmar 3.500 áheyrendur, og var hvert sæti skipað. Viðstaddir voru m.a. varafor- sætisráðherra Kína, ennfremur menningarmálaráðherrann og margir fleiri framámenn. Auk þeirra var þar staddur Pétur Thorsteinsson ambassador íslands í Kína og kona hans. Kínverska sjónvarpið tók upp allan konsertinn og útvarpið sömuleiðis. í hléi gafst kórfélögum kostur á að ræða við varaforsætis- ráðherrann, en í lokin lét hann bera kórfélögum svo stórar blóma- körfur, að tvo menn þurfti til að bera hvora. Undirtektir áheyrenda voru geysilega góðar og voru sungin öll aukalögin, sem sungin voru á söngskemmtunum kórsins 1 Háskólabíói á dögunum. Sérstaka hrifningu vakti einsöng- ur Hjálmars Kjartanssonar í amerískum negrasálmi og óperu- söngvararnir Sieglinde Kahman og Sigurður Björnsson vöktu einn- ig mikla hrifningu. Kórfélagar skoðuðu „Hina for- boðnu borg“ í fyrradag og í gær var förinni heitið á Kínamúrinn, en að því búnu átti að vera annar konsert í Menningarhöllinni í Pek- ing. I dag (laugardag) verður farið til Zhangsa og verður sungið tvívegis í þessari fæðingarborg Maós. Síðan verður haldið áfram til Canton og tvívegis sungið þar. Sérstök dagskrá er fyrir konur kórfélaga; þær voru þessa stund- ina í Shanghai og ekki væntan- legar til fundar við eiginmenn sína fyrr en á sunnudag. „Þú hýri Hafnarfjörður“, kvikmynd sem Hafnarfjarðar- bær lét gera um hátiðarhöldin i Hafnarfirði í tilefni af 1100 ára afmæli íslandsbyggðar verður sýnd í Bæjarbíói í dag, laugar- daginn 17. nóvember, og laug- ardaginn 24. nóvember, kl. 13.30, 14.30 og 15.30 báða dag- ana. Aðgangur að þessum sýn- ingum er ókeypis og öllum heimill. „Þú hýri Hafnarfjörður“ Kvikmynd um þjóðhátíðarhöldin 1974 Kvik s.f. annaðist gerð mynd- arinnar.. Umsjón með kvik- myndatökunni hafði Páll Steingrímsson en hana önnuðust Ásgeir Long, Ernst Kettler og Páll Steingrímsson. Texta mynd- arinnar samdi Ásgeir Guð- mundsson og þulur er Sigurgeir Guðjónsson. Myndin er 16 mín. löng og tekin á 16 mm filmu. Á boðstólum verða fínar veitingar VALSMENN yngri og eldri — Fjölmennið UPPSKERU- HÁTÍÐ Knattspyrnudeildar Vals veröur haldin í Þórscafé á morgun sunnudag kl. 14.00. 1. Ræða Péturs Sveinbjarnarsonar formanns knatt- spyrnudeildar Vals. 2. Bingó 3. Verðlaunaafhending. 4. Halli, Laddi og Jörundur skemmta. 5. Fjöldasöngur meistaraflokks undir stjórn Halldórs Einarssonar 6. Ræöa Bergs Guönasonar formanns Vals. Knattspyrnudeild Vals. Strumpa Und Strumpanna, í gróðurhúsinu, Heimsækið sem allir un9ir sem GRÆNA TORGIO ^■^■1 um helgina. Þaö er alltaf eitthvaö um aö vera í gróöurhúsinu. aldnir hafa gaman af aö sjá. Jolamarkaður: Við höfum sett fram jólavörurnar. blómouol gróöurhúsinu v/ Sigtún S. 36770, 86340.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.