Morgunblaðið - 17.11.1979, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 17.11.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979 21 Bragi Ásgeirsson ásamt börnum sínum Ásgeiri og Kolbrúnu við verk sem hann nefnir Bukofsky. Gamla vaskafatið sem fanginn situr inn í fann Bragi er hann fór í sumar í fjöruferð ásamt börnum sinum til Akraness. Ljósm. Mbl. ól.K.M. Bragi Ásgeirsson og Sigurður Örn Brynjólfsson opna í dag samsýningu á verkum sínum í Norræna húsinu „Líkt og fljótandi fjöl“ Listamennirnir Bragi Ásgeirsson og Sigurður Örn Brynólfsson opna í dag samsýningu á verkum sínum í Norræna húsinu og verður sýningin opin daglega frá kl. 14 — 22 til og með 25. nóvember. Á sýningunni eru rúmlega eitt hundrað verk, 70 eftir Sigurð og 35 eftir Braga. „Eiginlega er þetta ekki sam- sýning á venjulegum grundvelli, heldur tvær sjálfstæðar sýn- ingar. Þetta var ekki skipulagt af okkar hálfu og kom til fyrir einskæra tilviljun líkt og fljót- andi á fjöl,“ sagði Bragi Magn- ússon í spjalli við Mbl. í gær. „Okkur hefði naumast dottið það í hug, að við ættum nokkurn tíma á lífsleiðinni eftir að sýna saman, eða að slíkt kæmi á dagskrá. Það eru ýmsar fleiri tilviljanir sem koma fram svo að máski er þetta skikkan forlag- anna, — sú furðulegasta er sú, að Sigurður Örn Brynjólfsson er fæddur sama árið og ég hóf nám í Myndlista- og handíðaskóla íslands.árið 1947, og ég var fyrsti kennari Sigurðar er hann á sínum tíma gerðist nemandi við sama skóla. Er sú tillaga var samþykkt á fundi alþjóðlegu nefndarinnar í Quedlingburg haustið 1978 í sambandi við Biennalinn í Ro- stock 1979 að tileinka hann barnaári, datt mér í hug, að ég var þar fulltrúi íslands, að gera myndaröð er höfðaði til barna og um leiki barna, enda féll það mætavel inn í myndstíl minn. Ég tileinka þannig minn hluta sýn- ingarinnar börnum og barnaári og hef lagt áherzlu á að tína saman myndir sem ég hef gert um mannlífið, ástina og börnin, en það eru einkunnarorð sýn- ingar minnar. Langflestar myndanna gerði ég á þessu ári, nokkrar á síðasta ári, en svo eru nokkur verk er falla inn í einkunnarorð sýn- ingarinnar frá ýmsum tímum. Alls eru hér 23 málverk og upphleyptar myndir og 12 vatnslita- og krítarmyndir. Ég hef einkum fengist við upphleyptar myndir á síðustu misserum, en nú langar mig að breyta um og einbeita kröftum mínum að gerð stórra olíumál- verka og grafíkmyndum. Það er nú nokkuð um liðið frá þvi að ég fór að fara eigin slóðir og gera það sem mig hefur sjálfan lang- að til að gera í stað þess að látast stjórnast af tízku hvers tíma. í þessu sambandi hef ég lært af reynslunni. Segja má að myndir Sigurðar Arnar sýni mannlífið í hnot- skurn og séu í senn ádeila og skop, — kímna ádeilu mætti nefna það. Hér kemur sam- tíminn fram á alþjóðlegum sem þjóðlegum vettvangi. Kerfis- þrælar, möppudýr, bílaöld o.s.frv., en annars skýra myndir hans sig sjálfar," sagði Bragi um verk Sigurðar, sem var á leið heim frá Kaupmannahöfn þegar Mbl. leit við hjá Braga í Nor- ræna húsinu í gær. Bragi sagði að í október á næsta ári ætlaði hann að halda yfirlitsmynd á verkum sínum á Kjarvalsstöðum og hefur leigt allt húsið af þeim sökum. Hann sagði, að sýning sem sú sem opnuð er í dag væri alltof stutt og bæði listamanninum og al- menningi til ógagns. Húsið hefði þó ekki verið hægt að fá í lengri tíma að þessu sinni. „Sýningarn- ar þurfa að vera færri og standa lengur yfir, þannig að fólki verði boðið upp á vandaðri verk og því gefið meira ráðrúm til að skoða sýningarnar," sagði Bragi að lokum. Fólk ánægt með heim- sóknir frambjóðenda „ÞESSAR heimsóknir hafa tekist mjög vel, og fólk kann þvi greini- lega mjög vel að frambjóðendur skuli koma i heimahús til að spjalla við fólk og svara spurningum þess,“ sagði Jón Ormur Halldórs- son á skrifstofu Sjálfstæðisfiokks- ins i samtali við blaðamann Morg- unblaðsins i gær. En frambjóðend- ur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hafa að undanförnu bankað upp á hjá fólki viðs vegar um borgina til að kynna sig og stefnumál sin og svara spurningum er fólk óskar svara við. Sagði Jón, að frambjóðendur hefðu þegar heimsótt fjölda fólks með þessum hætti, og yrði reynt að heimsækja sem flesta á næstunni. Þá hafa frambjóðendur einnig heim- sótt marga vinnustaði og kynnt stefnumál sín, og verður því haldið áfram. Þá sagði Jón að geta mætti þess, að tveir af yngri frambjóðendum flokksins, þeir Ellert B. Schram og Friðrik Sophusson, myndu í kvöld fara á skemmtistaði höfuðborgar- innar og ræða þar við fólk. Verður Ellert gestur kvöldsins í Hollywood og Friðrik í Óðali. Munu þeir koma þangað eftir að hafa heimsótt fólk í Breiðholtshverfi, ræða við fólk, reyna sig við stjórnun diskótekanna og fleira. Saltaði í 2500 tunn- ur á Reyðarfirði Reyðarfirði, 15. nóvember. LOKIÐ er við að bræða hjá síldar- verksmiðjum ríkisins, en verk- smiðjan tók á móti 17.000 tonnum og lauk bræðslu á þriðjudaginn. Búið er að salta í 2500 tunnur af síld hjá GSR. Lítil von er til þess að hingað berist meiri síld á þessari vertíð. Báturinn Gunnar fór á neta- veiðar í gærkvöldi og ef vel gengur á að fara í sölutúr til Þýzkalands. A morgun verður byrjað að pakka sumarfiskinum, afskipun á honum verður um mánaðamótin. Á miðvikudaginn kom hingað fær- eyskt skip Star River með 10.000 tunnur frá Noregi til síldarútvegs- nefndar. Níundi bekkur grunnskóla fékk frí einn dag til að börnin gætu unnið við skipið. Leggja krakkarnir vinnulaun sín óskert í ferðasjóð sinn. Gréta. HLUTAVELTA í lönaðarmannahúsinu við Hallveigarstíg sunnudaginn 18. nóv. kl. 13.00. Margt eigulegra i luna. Engin núll. M.a. vinninga. T ilvuúr — Vikudvöl í Þórsmörk — Málverk — Appelsínukassi — Tveir 50 þús. kr. vinningar. Ármann frjálsíþróttadeild, sunddeild. i H f IJH«ZEi OG I___1=1 U»3RRDiRG KVNNIST RET TöLVUNUM! tíyninain uerdur haldin i uerslun vorri ad flrmula 11.. i da-3 föstuda-Ej o«j a mor-sjun.. lauíiardaa.. kl 13 -18. PÖRH SÍIVll 81500■ÁRIVlLILA'n

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.