Morgunblaðið - 17.11.1979, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979
vlw
MOR<£dfv-vN^
KAFr/NO M
0
-fc-a,
> / - 'i \ \ /•=—//'
Hugsaðu þér ef því væri nu
þannig farið með kvenfólkið að
það yrði eins og portvínið betra
með árunum?
t0!5
Pabbi - Pabbi - Pabbi.
Hugvekja fyrir
stjórnmálamenn
Nýlega barst mér í hendur
nýjasta Kirkjuritið. Þar er örstutt
grein með ofanskráðri fyrirsögn
eftir Sævar Berg Guðbergsson
félagsráðgjafa. Ég varð undrandi
hvað hann gat komið miklu og
hugvekjandi frá sér í svona stuttri
grein. Mér kom í hug að þessa
grein þyrftu allir fyrirliðar stjórn-
málaflokkanna að lesa þar eð þá
skortir tíma til lesturs alls þess er
fylla mun blöðin nú fyrir kosn-
ingar.
Ungur stjórnmálamaður sagði
nýlega: „Hvers virði er stjórn-
málaflokkur sem ekki þorir?"
Ég get ekki stillt mig um að láta
endi greinarinnar fylgja hér með.
„.. .því að allir eru þeir skapaðir
í Guðs mynd en ekki til að neyta
og njóta á kostnað eins náunga
síns og til framdráttar fyrir ann-
an.
Ef ekki er tekist á við vanda í
mannlegu samfélagi út frá þessum
grundvallaratriðum mannlegs lífs
tortímir maðurinn sjálfum sér.
Því hann getur þá ekki virt sjálfan
sig og aðra út frá því hver hann er
heldur hvað hann gerir og hver sé
staða hans í þjóðfélaginu. Maður-
inn er þá orðinn ein af náttúru-
auðlindum sem aðeins hafa til-
gang eftir gildi sínu fyrir framlag
sitt til aukningar þjóðartekna. Þá
gleymir maðurinn skapara sínum
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Cavendish-keppnin, sem haldin
er árlega i samnefndum spila-
klúbb í New York þykir hverju
sinni ein sterkasta keppni, sem
haldin er. Enda safnast stór-
stjörnur bridsins þar saman og
reyna að ná hinum háu peninga-
verðlaunum, sem i boði eru.
Spilið að neðan var eitt mesta
sveifluspilið í keppni þessa árs.
Suður gaf allir utan.
COSPER
Norður
S. S. KD1086
H. DG74
T. D
L. D93
Vestur
S. G9542
H. K
T. G53
L. G764
Austur
S. Á73
H. 3
T. Á10976
L. ÁK102
COSPER. 8/74
Suður
S. -
H. Á1098652
T. K842
L. 85
Suður Vestur Norður Austur
pasH pawi 1 npaðt 2 tiglar
2 hiArtn 3 tiglar 4 hjörtu 5 lanf
panh
2 hjörtu
6 hjörtu
ailir paHH
5 lauf
dobl
Þessar urðu sagnirnar þegar
tveir Kanadamenn voru með spil
n—s gegn þekktum bardaga-
mönnum frá New York. Þegar
suður stökk í sex hjörtu duttu
honum í hug vissir vinningsmögu-
leikar þrátt fyrir hraustlega sögð
5 lauf austurs. Hann bjóst ekki við
tígli í norður og ekki var útilokað,
að andstæðingarnir myndu fórna.
En þegar austur doblaði var sú
von úti.
En vestur þekkti líka spilið.
Hann bjóst ekki við, að dobl
austurs væri til að auka sektina.
Nei, nei, doblið hlaut að vera
Lightner, sérstök beiðni um óeðli-
legt útspil. Og fullur sjálfstrausts
spilaði vestur út spaðafjarka.
Um fáa möguleika var að ræða.
Austur hlaut að eiga spaðaásinn
svo að suður bað um tíuna frá
blindum og trompaði ásinn.
Trompásinn hirti kónginn og lauf-
in tvö fóru í spaðahjónin. Suður
gaf aðeins einn slag. Tígulásinn,
og fékk 1210 fyrir . En á vestur
ekki samúð okkar þrátt fyrir
óheppilegt útspil?
Lausnargjald í Persíu
116
James. — Ef þú vilt ekki hafa
dauða hennar á samvizkunni
skaltu nú senda honum skeyti
hið snarasta og scgðu honum að
stíga samstundis upp i næstu
flugvél og koma hingað. Ég
hitti Ilomsi í fyrramálið og
hugsanlegt cr að mér takist að
tefja eiiítið tímann eða þar til
Logan kemur.
— Allt í lagi. Hann heyrði að
Janet hikað og hann bölvaði
henni í hljóði — Ég skal senda
það.
— Hann hefur vaidið. er það
ekki, sagði James — Þú vissir
það líka. Þú vissir að þegar
hann undirritaði samninginn
við Japanina var hann staðráð-
inn i að sættast á þeirra býti.
Ilann er morðingi — and-
styggðar morðingi. Og þú skalt
sjá um að hann komi.
Hann skellti tólinu á.
Klukkan sjö fimmtán morg-
uninn eftir tók Said Homsi bíl
frá sýrlenzka sendiráðinu og lét
hann aka sér langleiðina til
heimilis Kellys. Það var mistur
og mjög heitt og útlit fyrir
storm.
Hann gekk hægt eftir gang-
stéttinni. Hann heyrði að bíll
kom akandi á eftir sér. Áður en
hann stöðvaði algerlcga voru
dyrnar opnaðar og þrír menn
stukku út. Homsi hafði ekki
einu sinni ráðrúm að snúa sér
við þegar þeir höfðu gripið í
hann. Hann var rotaður og
dreginn inn i bíiinn og siðan
óku þcir viðstöðulaust áfram. Á
minútunni klukkan hálf átta
kom James Kelly út úr húsi
sinu og ók af stað. Hann beið til
klukkan átta en ekkert bólaði á
Sýrlendinginum og í örvænt-
ingu sinni hélt hann þvi til
skrifstofu Impcrail-oiiufélags-
ins við Shah Reza-götu.
Ilann hringdi til sýrlenzka
sendiráðsins en i ljós kom að
Homsi hafði ekki komið. Hann
skildi eítir skilaboð um að hann
hefði stamstundis samband við
sig, en timinn leið og ckkert
gerðist og ekkert heyrðist frá
Homsi. Hann hringdi aftur til
sýrlenzka sendiráðsins. Skellt
var á eftir að hann hafði kynnt
sig án þess að nokkuð væri
sagt. En þegar liða tók fram á
daginn var sýnt að sendiráðið
hafi sjálft farið að spyrjast
fyrir. Lögregla Teheranborgar
gat enga hjálp veitt. Hún tók
niður lýsingu á verzlunarfull-
trúanum og sýrlenzkir öryggis-
verðir rannsökuðu híbýli hans
hátt og lágt. Ökumaðurinn sem
hafði keyrt hann til Shemiran
um morguninn var spurður i
þaula en hann vissi ckkcrt það
sem gat varpað ljósi á málið.
En þegar klukkan nálgaóist
átta næsta morgun hafði Saiid
Homsi hins vegar sagt Ardalan
hershöfðingja hitt og annað
sem gerði honum kleift að Ijúka
gerð púslumyndarinnar sinnar.
Hershöfðinginn fór hcim til að
snæða morgunverð, hann var
þreyttur vegn þess að þetta
hafði verið erfiður sólarhring-
ur. Hann hafði ekki leyft að
Kftir Evelyn Anthony
Jóhanna Kristjónsdóttir
sneri á íslenzku
fanganum væru gefnar neinar
hvildarstundir.
Læknir SAVAKs var á næstu
grösum og hann fylgdist með
hjartslætti og bíóðþrýstingi
Sýrlendingsins öðru hverju
mcðan á þessu stóð. Hershöfð-
inginn vildi ekki að hann dæi i
höndunum á þeim, að minnsta
kosti ekki meðan hann taldi að
ekki hefði öllum spurningunum
verið svarað. Homsi reyndist
hafa geysilegt mótstöðuafl.
Hann þoldi pyndingar af
þviliku þolgæði að Ardalan gat
ekki annað en dáðst að. Ardal-
an fylgdist með hvernig pynd-
ingarnar breyttu honum þenn-
an sólarhring, svo að þegar öllu
var lokið var ekkert orðið eítir
aí manneskju í honum og stund-
um voru öskur mannsins slík að
hann setti eyrnatappa i eyrun
til að draga úr þessum skerandi
hljóðum í hlustum sér. Þegar
hann kom heim til sin og
snæddi morgunverð var hann
að hugleiða að læknirinn hafði
sagt að Ilomsi myndi ekki lifa
af nema hlé yrði gert á um