Morgunblaðið - 17.11.1979, Page 23

Morgunblaðið - 17.11.1979, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979 23 Geir Hallgrímsson talar á fundi í kaffistofu Kjötiön- aöarstövar KEA á Akureyri í gær. skulum um leið horfa björtum augum fram á veginn, og ef okkur tekst að sigrast á verðbólgunni eigum við að vera djörf og hefja stórframkvæmdir að nýju í okkar landi.“ — En hvað ætlar Sjálfstæðis- flokkurinn að gera í skattamálun- um, spurði ungur maður í hópnum. — Við horfum upp á forstjóra og aðra lifa kóngalífi, en sjáum svo í skattskránum að þessir menn greiða ekkert hærri gjöld en við hinir. Þannig verða þeir ríku ríkari og þeir fátæku fátækari. „Ég held að í aframhaldandi verðbólgu muni þeir lægstlaunuðu béra æ minna úr býtum, hinir finna einhverja leið til að bjarga sér,“ sagði Geir. Sagði hann stefnu Sjálfstæðisflokksins að almennar launatekjur yrðu tekjuskattlausar, og kvaðst hann telja að ekki dygðu lægri skattleysismörk en sex millj- ón króna tekjur fyrir barnlaus hjón á þessu ári sem er að líða. Varðandi hátekjufólkið sagði Geir: „Það verður enginn maður ánægð- ur, sem ekki heldur eftir helmingn- um af síðustu krónunni sem hann Geir Hallgrímsson heimsækir vinnustaði á Akureyri: „Eru sjálfstæðismenn eitthvað betri en aðrir?“ Akureyrl 16. nóvember 1979. Frá Freysteini Jóhannssyni, blaóamanni MorKunhlaösins. „LOFORÐ okkar sjálfstæðismanna í þessum kosningum eru ekki mikil eða glæsileg við segjum að það verði að færa vissar fórnir, en markmiðið er mikið, og það eru stór orð,“ sagði Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins er hann heimsótti Kjötiðnaðarstöð KEA í morgun, og Alda Kristjáns- dóttir ráðskona varpaði fram þeirri spurningu hvort sjálfstæð- ismenn væru nokkuð betri en aðrir. „Eru það ekki of stór orð?“ spurði Alda aftur. „Ekki ef við stöndum saman," svaraði Geir. — En nú standið þið sjálfstæðismenn ekki sameinaðir, ekki í þessu kjördæmi, sagði þá ungur maður í hópnum. „Málefnaágreiningur er ekki fyrir hendi," svaraði Geir. „í þessu kjördæmi er um persónu- legan ágreining að ræða. Fyrrver- andi þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins sætti sig ekki við ákvörðun kjördæmaráðsins. Hvorki flokk né þjóðfélög getum við byggt upp nema menn virði reglur og lög, hvort heldur er flokks eða þjóðfé- lags. Menn verða að setja málefnin ofar mönnum og virða hugsjónir meira en eigin metnað.“ — En takið þið Sólnes ekki strax að ykkur ef hann kemst á þing? var þá spurt. — „Það fer eftir ákvörðun þingflokks," svaraði Geir. „en auðvitað eru það fram- bjóðendur Sjálfstæðisflokksins sem bera fram merki hans og s halda því á loft í þessu kjördæmi | sem öðrum.“ Þá var Geir spurður um afstöðu Sjálfstæðisflokksins til Kröflu. „Við teljum rétt, og greidd- um atkvæði með því,“ sagði Geir, „að boraðar yrðu tvær holur við Kröflu í sumar. Orkan við Kröflu er okkur nauðsynleg, þar sem vinstri stjórnin sendi okkur inn í tíma rafmagnsskömmtunar." Síðan ræddi Geir stóriðjumálin og benti á andstöðu Alþýðubanda- lagsins gegn þeim. Minnti Geir { því sambandi á, að alþýðubanda- lagsmenn hefðu mikið talað um mengun á sínum tíma og haldið þvi fram, að öll jörð yrði sviðin og svört umhverfis Álverið í Straumsvík. Reynslan hefði hins vegar orðið allt önnur eins og mönnum væri kunnugt. Einnig hefðu þeir haldið því fram, að Álverið leiddi til láglauna, en Geir kvaðst hins vegar ekki vita annað en Álverið væri í hópi þeirra — spurði Alda Kristjánsdóttir á fundi Geirs með starfsfólki Kjöt- iðnaðarstöðvar KEA fyrirtækja sem greiddu hvað hæst laun hér á landi. Þá sagði Geir ennfremur, að alþýðubandalagsm- enn hefðu rætt um hættuna á erlendri yfirdrottnun, „hvar er hún, ég bara spyr,“ sagði Geir. Síðan benti Geir á, að með aukinni stóriðju myndu vaxa möguleikar á fjölbreytni í atvinnu- lífi. „Slíkur kotbúskapur, sem Al- þýðubandalagið boðar, er aftur- hald,“ sagði Geir. „Hvar er það þjóðfélag sem Alþýðubandalagið vill berjast fyrir? Er það austan- tjalds? — Svo mikið er víst að þar er ekki fyrirheitið land hins vinn- andi fólks. — Hvenær ætlar Sjálfstæðis- flokkurinn að koma verðbólgunni niður í 30% var spurt? — „Okkur sjálfstæðismönnum nægir ekki að koma verðbólgunni niður í 30%,“ sagði Geir. „Fráfarandi ríkisstjórn talaði um að koma verðbólgunni niður í 30% á þessu ári, en nú eru nýjustu fréttir þær, að hún sé komin yfir 80%. Þetta eru ástæður þess að við segjum að nú verði að brjóta blað og sigrast á verðbólg- unni.“ — Spurt var hvort þetta væri ekki bara kreppustefna, sem hefði atvinnuleysi í för með sér. „Nei, við ætlum ekki að drepa meira úr útgjöldum en sem nemur þeim útgjöldum sem vinstri stjórn- in jók,“ svaraði Geir. „Þessir pen- ingar eiga að fara til ykkar og fyrirtækjanna, og það verður tvímælalaust meiri atvinna ef okk- ar stefna nær fram að ganga. Erlendar lántökur verða ekki auknar, og í því sambandi má segja, að hætta sé á vissum samdrætti, en sá stjórnmálamaður sem segir ykkur að hægt sé að sigrast á verðbólgunni án fórna er ekki þess verður að heita stjórn- málamaður. Hins vegar ætlum við ekki þeim lægstlaunuðu að standa undir fórnunum, við viljum verja kjör þeirra. Ég held að staðreyndin í þessu öllu saman sé sú, að við stöndum nú á alvarlegri tímamótum en við ef til vill gerum okkur fulla grein fyrir. Þess vegna þarf átak. En við vann sér inn, það má ekki frekar ganga svo langt gagnvart þeim en öðrum, að þeir sjái sér beinlínis hag í því að svíkja undan skatti. Við mann sem heldur eftir helm- ingi krónu sinnar er hægt að setja fram kröfur um aukið þol með fullri sanngirni." „Engin ríkisstjórn, né heldur nokkur miðstýring skapar verð- mæti í þessu landi, heldur er það dugnaður landsmanna sjálfra sem það gerir. Við sjálfstæðismenn viljum frelsi í samskiptum ein- staklinganna, og frelsi í samskipt- um ríkis og einstaklinga, en slíkt frelsi krefst aga. Sannleikurinn er sá, að við íslendingar höfum glatað þeirri þjóðararfleifð að eyða ekki meiru en við öflum. Við sjálfstæð- ismenn viljum hverfa aftur til þeirra fornu dyggða," sagði Geir að lokum. Auk þess sem Geir Hallgrímsson heimsótti Kjötiðnaðarstöðina, fór hann í heimsókn í K. Jónsson og Co, Slippstöðina og Kjörbúð Bjarna og Útgerðarfélag Akureyr- inga. í dag, laugardag, heldur Geir síðan til Húsavíkur eftir að hafa talað á almennum fundi á Akur- eyri. Geir Hallgrímason skoðar fiskvinnslu ( Útgerðarfólagi Akureyringa. Myndirnar tók tók Emilía Björnsdóttir og símsendi frá Akureyri í g»r. Símabilun í Breiðholti í GÆRKVÖLDI varð bilun í simakerfi Reykjavikur og urðu öll símanúmer í Breiðholti sam- bandslaus i einn og hálfan tíma. í öryggisskyni voru þrír lög- reglubílar sendir í Breiðholts- hverfi til að vera til taks ef eitthvað kæmi fyrir. Simastreng- ur slitnaði á Akureyri Akureyri. 16. nóvember. ALLT simasamband við byggð- ina ofan við Mýrarveg rofnaði um klukkan 13 i dag. Þúsund lina simastrengur slitnaði efst i Gilsbakkavegi. en um þessar mundir er unnið að því að skipta um jarðveg í götunni. Viðgerð á strengnum lýkur e.t.v. seint i kvöld eða í nótt ef verkið gengur vel. Lögreglubíll tók sér stöðu við Hrísalund í öryggisskyni strax eftir óhappið, en á svæðinu, sem varð símasambandslaust, eru fjöl- mennustu íbúðarhverfin á Akur- eyri. - Sv. P. Miðlun fiskafla: LÍÚ gætiann- ast upplýs- ingamiðlun MIÐLUN fiskafla var eitt þeirra mála. sem mjög var rætt á Fiskiþingi og var eftirfarandi ályktun gerð um það mál. .„Fiskiþing telur nauðsynlegt, að á einum stað sé hægt að að fá upplýsingar um löndunarmögu- leika hjá íslenzku fiskvinnslu- stöðvunum þegar þannig stendur á, að skip þurfi að landa hjá öðrum aðila, en skipin landa venjulega hjá. Þingið telur að LIÚ sé sá aðili, sem annast ætti slíka upplýsingamiðlun. Framkvæmd ætti að geta orðið á svipaðan hátt og hjá Loðnunefnd." Lesið úr mál- gögnum allra frambjóðenda ÁKVEÐIÐ hefur verið, að þær tvær vikur, sem eru til kosninga, verði lesið úr báðum forystu- greinum Dags á Akureyri á mánudagsmorgun þegar lesið er úr forystugreinum landsmála- blaða. Sömuleiðis hefur verið sam- þykkt í útvarpsráði að á mánudög- um verði einnig lesið úr forystu- greinum Neista, blaðs Fylkingar- innar. Þá segir í samþykkt út- varpsráðs, að sama gildi um mál- gögn L, S. Q og H-lista ef einhver eru. Sýning Þor- geirs i Háhól lýkur á morgun Akureyri, 16. nóvember. MÁLVERKASÝNINGU Þorgeirs Pálssonar, sem verið hefur i Gall- eri Háhól þessa viku, lýkur á sunnudagskvöld. Þorgeir er Akur- eyringum að góðu kunnur sem listmálari, hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt i samsýningum. Að þessu sinni sýnir hann yfir 50 málverk. Sýningin verður opin laugardag og sunnudag frá klukkan 15 til 22. - Sv. P.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.