Morgunblaðið - 17.11.1979, Síða 34

Morgunblaðið - 17.11.1979, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1979 t Elskuiegi eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaölr og afi, STEFÁN VILHJÁLMSSON, Meltröö 10, Kópavogi lézt aö heimili st'nu 15. nóvember. Sigrún Siguróardóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Hjartkær sonur okkar og bróðir ÓLAFUR ALFREÐSSON andaöist á gjörgæsludeild Borgarspítalans 15. nóvember s.l. Unnur Ólafsdóttir, Alfreó Eymundsson, Axel Alfreösson, Hermann Alfreösson, bórunn Alfreösdóttir. t Sonur okkar og bróöir GUNNAR HJÖRTUR lést 2. nóvember, jaröarförin hefur farið fram. Þökkum auösýnda samúö. Indriöi Jónsson, Bryndís Jónsdóttir og systkini. t Dóttir mfn, móöir okkar, tengdamóöir og amma SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR Sólvallagötu 70, Reykjavík veröur jarösungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 19. nóvember kl. 15. Hólmfríóur Guömundsdóttir Jóhannes K. Guömundsson Guölaug Guólaugsdóttir Hólmfrföur Guömundsdóttir Árni H. Árnason Hlín W. Pálsdóttir Ingigeröur R. Árnadóttir Árni Sigurósson Magnea R. Árnadóttir Pótur Þorgrímsson. og barnabörn t Eiglnmaöur minn og faöir okkar HARALD WENDEL húsgagnasmíöameistarí verður jarösunginn frá Kristskirkju, Landakoti, mánudaginn 19. nóvember kl. 10.30. Þeim, sem vildu minnast hlns látna, er bent á Slysavarnafélag íslands Luise Wendel Adólf Wendel Ragna Wendel Svanhild Wendel Kristján Wendel t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför GUÐNÝJAR S. BJÖRNSDÓTTUR, Þórsgötu 19. Stefanía G. Guömundsdóttir Kristján Bjarnason. t Okkar innilegustu þakkir færum vlö öllum er veittu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför okkar kæru móður, tengdamóöur og ömmu ÞÓRUNNAR ÖNNU SIGFÚSDÓTTUR, frá Vopnafiröi, sem andaöist aö Kristneshæli 28.10. Ennfremur færum viö sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarliös Krlstneshælis þar sem hún dvaldi hin síöustu ár. Guö blessi ykkur öll. Þorgeröur S. Jónsdóttir, Elnar H. Jónsson, Guórún Pátursdóttir. Gísli Jónsson, Oddvör H. Jónsson og barnabörn. LOKAÐ vegna jaröarfarar mánudagin 19. nóvember. A. Wendel h.f. HPH dieseivélaviögerdir Draupnir. María Magnúsdóttir Akranesi — Kveöja Nú legg ég augun aftur ó Guð j>inn náðarkraftur min veri vðrn I nótt. Æ virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. hýðlng úr þýzku, Sveinbj. Egilsson. Mig langar hér til þess að minnast nokkrum orðum tengda- móður minnar, Maríu Magnús- dóttur, en hún lézt á gjörgæzlu- deild Landspítalans hinn 8. þ.m. eftir stranga sjúkdómslegu. María, sem við kölluðum ætíð Maju, var fædd á Siglufirði 22. maí 1920 og var því á sextugasta ári, er hún lézt. Þau systkini urðu 9 talsins, þar af komust 6 til fullorðinsára. Maja er sú fyrsta úr þeim hópi, sem fellur frá. Eins og nærri má geta, hlýtur oft að hafa verið þröngt í búi hjá foreldrum Maju, þeim sæmdarhjónunum Sumarrós M. Erlendsdóttur og Magnúsi Jónssyni. Munu börnin því hafa farið að létta undir með heimilinu strax og þau gátu. Víst er um það, að Maja var hamhleypa til allrar vinnu, sem hún gekk að. Meðan hún var í föðurhúsum á Siglufirði gekk hún að síldarsölt- un og munu þær ekki hafa verið margar síldarstúlkurnar, sem höfðu við henni í þeirri list. Segja má, að síldin hafi á ýmsan hátt komið inn í líf Maju, þar á meðal hafi hún kynnst eiginmanni sínum fyrir hennar tilstilli. Á þessum árum lönduðu bátar víða af landinu síld á Siglufirði. Á einum þeirra var ungur maður, Jón Pálsson frá Sólmundarhöfða á Akranesi, hinn ágætasti drengur og mikill grínisti. Þeirra kynni leiddu til þess, að Maja réði sig í vist hjá Júlíusi Þórðarsyni, út- gerðarmanni á Akranesi veturinn 1939 og aftur dvaldi Maja á Akranesi veturinn 1940 í vist hjá Sigurði Vigfússyni, viktarmanni, en j)á voru þau Jón heitbundin. Árið 1941 var mikið tímamótaár í lífi þeirra Jóns og Maju. Það ár byggðu þau sér einbýlishús að Laugarbraut 17 á Akranesi og var byggingartíminn ekki nema um 5 mánuðir. Hlýtur það að hafa verið mikið afreksverk, með þeirrar tíðar tækni og margir svitadropar hljóta að hafa fallið, áður en flutt var inn í húsið síðla þessa árs. Fyrsta dóttirin af þremur fæddist þetta ár og þau Maja og Jón gengu í hjónaband. Þá má og geta þessa árs að því leyti, að Jón fór ekki norður til síldveiða um sumarið, en þetta var eina sumarið til margra ára, sem slíkt skeði ekki. Þau Maja og Jón bjuggu alla tíð að Laugarbraut 17. Yfir sumar- tímann var Maja á Siglufirði og mun henni ekki hafa þótt sumarið vera komið, fyrr en hún komst norður til átthaganna. Miklir kærleikar voru með Maju og foreldrum hennar, meðan þau lifðu og mun koma hennar norður ætíð hafa verið þeim mikil gleði- stund. Þegar síldarsöltun var á Siglufirði á þessum tíma, saltaði Maja oft, enda var söltunin henn- ar líf og yndi. En það var fleira, sem lék í höndum Maju en síldarsöltun. Heimili þeirra Jóns var glæsilegt og þangað kom maður aldrei öðru vísi en allt væri spegilgljáandi og röð og regla á öllum hlutum. Síðustu 9 ár ævi sinnar vann Maja á saumastofu Akraprjóns h/f. Þar nýttist vel sá mikli handflýtir og velvirkni, sem Maja mun hafa tamið sér frá upphafi. Ekki fór Maja varhluta af heilsuleysi. Hennar þyngsta böl á því sviði var það, er hún fékk kransæðastíflu fyrir nokkrum ár- um og síðan leiddi sá sjúkdómur hana til bana svona langt fyrir aldur fram. Þrátt fyrir erfitt heilsufar var Maja alltaf reiðu- búin til þess að bæta við sig vinnu, þegar þess þurfti með og segja má, að henni félli aldrei verk úr hendi. Það var Maju mikill styrkur að hafa sér við hlið jafn góðan og traustan mann og Jón. Þegar hún lá sína síðustu legu, í fullar 3 vikur, er varla hægt að segja að Jón hafi vikið frá hennar sjúkra- beði allan þann tíma. Eins og áður getur, eignuðust þau Maja og Jón 3 dætur. Elzt er Guðný, gift þeim, er þessa grein ritar. Næst er Sumarrós, gift Svavari Ágústssyni skipstjóra. Yngst er Jóna Maja, gift Ágústi Sörlasyni húsasmíðameistara. Maja var glæsileg kona í sjón og raun. Það sópaði af henni, hvar sem hún fór og kringum hana var yfirleitt engin ládeyða. Hún var mjög hreinskilin við þá, er hún umgekkst, svo enginn þurfti að fara í grafgötur um hennar mein- ingar. Skipti þá engu máli, hvort hærri eða lægri áttu í hlut. Nú að leiðarlokum er mér sökn- uður og þakklæti efst í huga. Söknuður eiginmanns, dætra, tengdasona og barnabarnanna 7, ásamt öllum kunningjahópnum er mikill. Við söknum þess nú, að geta ekki lengur notið návistar Maju, hressilegra tilsvara hennar og umhyggju. Við þökkum þér samfylgdina, Maja mín og biðjum þér blessunar Guðs í nýjum heim- kynnum. Eg vil svo að lokum biðja góðan Guð að blessa ástvini Maju, í þeirra miklu sorg. Rúnar Pétursson. Kveðja frá systur. Mig langar með fáum orðum að minnast minnar ástkæru systur, Maríu Magnúsdóttur, Maju eins og hún var alltaf kölluð á Laugar- braut 17, Akranesi. Hún hafði verið heilsutæp árum saman. En það var sama hversu lasin hún var, aldrei undi hún sér hvíldar, alltaf tilbúin að hjálpa hverjum og einum, enda var sama að hvaða verki hún gekk, allt var svo fallegt og vel unnið. Hún var lögð inn á Landspítal- ann þ. 10. október til aðgerðar. Var hún svo hress, glöð og vongóð, að ég hef sjaldan séð hana eins bjartsýna eins og þessa daga fyrir aðgerðina. En nú tæpum mánuði síðar er hún dáin. Þó það sé það eina sem við vitum með vissu, að líf og dauði fylgjast að, erum við aldrei tilbúin að sætta okkur við það, að þeir sem okkur þykir vænt um séu teknir frá okkur. Alveg frá því ég var smátelpa, var Maja sú sem ég vildi líkjast í einu og öllu. Hún hafði alla þá kosti sem eina konu mátti prýða, faljeg, heiðarleg og góð. Ég kom á heimili hennar fjór- tán ára og var þar viðloðandi allt fram á þennan dag. Og reyndist Maja mér ekki aðeins sem systir og Jón maður hennar mér sem mágur, heldur reyndust þau mér sem foreldrar. Þó mér finnist nú, sem fótunum hafi verið kippt undan mér og öryggið sem ég hafði af návist hennar horfið. Hvað er það hjá þeirri stóru sorg og mikla skarði, sem þau hafa orðið fyrir, eiginmaðurinn og dæt- urnar þrjár. Eftirlifandi manni hennar, Jóni Pálssyni, sem vék ekki frá henni allan tímann er hún lá hér á sjúkrahúsi, votta ég samúð mína. Megi guð gefa honum, dætrun- um og fjölskyldum þeirra þrek og styrk. Far þú I frlði, friður Kuðs þÍK blessi hafðu þökk fyrir alit ok allt Guðlaug. Sigríður Erna Ást- þórsdóttir - Kveðja Góð og elskuleg og gædd þessari notalegu kímni, sem alla gleður en engan særir — þannig var Sirrí. Ekki hafði hún lengi unnið við símavörslu Alþingis þegar maður ósjálfrátt lagði leið sína inn í þrönga símakrókinn hennar og ef smáhlé varð á vinnunni átti maður víst þetta fallega bros og hjartans gleði sem geislaði frá henni. Styggðaryrði í annarra garð fyrirfannst ekki í hennar munni, en aðeins það góða í fari annarra varð henni að umræðu- efni. Og svo það sem skemmtilegt var. Hún var svo glöð á góðri stund, að maður hlaut að gleðjast með henni, en hún átti einnig ríka + Alúöarþakkir tll allra þeirra er sýndu okkur samúö og heiöruöu mlnningu elginkonu minnar, móöur, dóttur og systur ANDREU PÁLMADÓTTUR Lönguhlíö 3.b. Akureyri Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks fjóröungssjúkrahússins á Akureyri og Borgarspítalans í Reykjavík fyrlr góöa umönnun. Bjarní Jónason, Guörún Siguróladóttir, og systkini. Rósa Bjarnadóttir, Guörún Jóhannesdóttir, samúð með þeim sem minna máttu sín. Gjafmild og gestrisin var hún svo af bar og hin ríka þörf til að gleðja aðra var einstök. Og nú er hún horfin okkur, en minningin varir og þegar við hugsum til hennar er sem hlý hönd strjúki um vanga og það „verður aftur hlýtt og bjart um bæinn.“ Sigríður S. Bjarklind.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.