Morgunblaðið - 16.12.1979, Qupperneq 14
78
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979
1811 - 1879 - 1979
Jón Sigurðsson
Og
1179 — 1241 — 1979
Snorri Sturluson
Sögufélag kynnir
Tvær nýjar bækur um
tvö stórmenni íslandssögunnar
r
\
Einar Laxness:
Jón
Sigurðsson
forseti
Höfundur tekur mið af nýjum rannsókn-
um og breyttum viðhorfum og býr í
hendur okkar bók sem lengi hefur skort.
Þetta er yfirlitsrit með yfir 200 myndum.
Féla«sverð kr. 13.800
Búðarvcrð kr. 15.975
Halldór Laxness, Gunnar Karlsson,
Helgi Þorláksson, Óskar Halldórsson,
Ólafur Halldórsson, Bjarni Guönason:
Snorri
Atta alda minning
Hér er svarað mörgum áleitnum spurningum
um Snorra og verk hans. í bókinni er fjöldi
mynda, m.a. 18 myndir af Snorra eins og ýmsir
innlendir og erlendir listamenn hugsa sér hann
en síðasta grein bókarinnar nefnist: Hvernig
var Snorri í sjón?
Félagsvcrð kr. 10.900
Búðarverð kr. 12.688
V__________________________________________
^ Sögufelag Garðastræti 13b og i Bernhöftstorfu
Ný plötupressa er
komin til landsins
Verður sett upp strax eftir áramót
BRÁÐUM nálgast sá tími þegar íslenskar hljómplötur
verða framlciddar hérlendis. Til landsins eru komin
pressutæki og tilheyrandi útbúnaður og bíða þess að
verða sett upp, líklega í byrjun árs 1980.
ALFA heitir hlutafélagið sem heíur verið stofnað til
þess að reka starfsemina sem verður í leiguhúsnæði á
Reykjavíkursvæðinu.
Meðal hluthafa eru útgáfufyr-
irtækin Fálkinn hf ok Hljóm-
plötuútgáfan hf auk einstakl-
inga, en meðal þeirra eru
Björgvin Halldórsson tónlistar-
maður og Guðmundur Óskarsson
verkfræðingur, sem hefur að
mestu séð um gang mála fram að
þessu.
Guðmundur tjáði Slagbrandi
nú í vikunni, að hér væri um að
ræða tvær plötupressur af
bandarískri gerð sem heitir
Finebilt og er það merki meðal
annars notað hjá CBS, Decca og
Capitol. Er hér um að ræða
hálf-sjálfvirkar pressur þ.e.
þeim þarf að stjórna að hluta.
Auk pressanna er forhitari,
sem hitar upp plastefni og
skammtar það í pressurnar. Auk
þess er gufuketill af Oarker-
gerð, sem knýr vélarnar, auk
skurðarvélar sem sker af plötun-
um plast sem runnið hefur út úr
mótunum við pressunina og
hreinsar líka miðjuna og stillir
hana.
Aætlað verð þessara tækja og
annar stofnkostnaður eru komin
í 80 milljónir króna, en Alfa
hefur fengið tilskilin iðnaðarlán
til að fjármagna fyrirtækið að
hluta.
Gert er ráð fyrir, að um
100.000 eintök af 125.000 (u.þ.b.)
plötum, sem gefnar eru út hér-
lendis á ári hverju verði unnin
fyrst um sinn.
Gert er ráð fyrir þremur
föstum starfsmönnum í upphafi,
en uppsetning og þjálfun kemur
erlendis frá. Þar að auki er gert
ráð fyrir að bæta þurfi við fleira
starfsfólki á mesta annatíma.
Þess má geta, að verið er að
kaupa kassettuupptökuvél að
auki og mun hún bæði sjá um
framleiðslu innlends efnis og á
óuppteknum kassettum.
Kassettuvélin er af gerðinni
ASONA, og mun líklega verða
fyrr í fullri framleiðslu en plötu-
pressurnar.
Þegar þessar vélar eru upp-
settar og komnar í gang eru fáir
liðir eftir sem þarf að láta vinna
erlendis.
Fyrst ber þó að nefna móð-
urskurðinn, þ.e. rafgreiningu
hljóða af segulspólum stúd-
íóanna yfir á frumplötur og mót,
en þessi mót eru síðan notuð í
pressuna. Hér er um að ræða
mjög dýr tæki miðað við þann
kostnað sem það hefur í för með
sér að láta vinna þetta úti
þannig að horfið var frá því að
festa kaup á slíkum tækjum.
Einnig verður sá háttur hafður á
að plastefnið, sem notað er, er
keypt blandað í sekkjum í stað
þess að blanda það hér.
Er hér um að ræða skref í
rétta átt og eykur þetta mjög
hagræðingu bg minnkar um-
stang útgefenda.
Það kom einnig fram, að þetta
ætti að reynast ódýrara en að
kaupa þjónustuna erlendis frá
og ekki síðra í gæðum.
Þess má líka geta, að plötu-
fjöldinn, sem þarf að pressa,
verður mun sveigjanlegri fyrir
okkar litla en góða tónlistar-
markað.
IIIA
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU