Morgunblaðið - 16.12.1979, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979
83
konur sem fara út fyrir hefðbund-
inn verkahring kvenna sem með-
hjálp karla“. Um höfundana sem
fjallað er um held ég að frekar eigi
við að þeir séu börn síns tíma,
mótaðir af misjafnlega þröngu
umhverfi sínu, ekki síst konum
sem sættu sig við hefðbundna
stöðu sína í tilverunni. Þessar
konur höfðu ekki kynnst neinni
kvennasögu sem bragð var að.
Þær ólu syni sína upp samkvæmt
gömlum hugmyndum um forræði
þetta gamla þjóðar-
lag, það skal alltaf lifa“
Kvæðamannafél. Iðunn gefur úr 100 kvæðalög
Gerð er grein fyrir vali skáld-
sagnanna með þessum orðum:
„Þótt sögutími og sögusvið sé hið
sama í þessum verkum, eða því
sem næst, er þó fleira sem skilur
þau að, t.a.m. uppruni höfunda,
lífsviðhorf þeirra, gerð sagnanna
og frásagnarháttur. Markmiðið
með að velja ólíka höfunda var að
fá breidd í kvenlýsingar".
Valið er eins og kemur á daginn
hagkvæmt fyrir þá könnun sem er
gerð. Þó verður að segja það eins
og er að fæstar þessara sagna eru
veigamikil skáldverk. Dægurvísa
Jakobínu Sigurðardóttur er að
vísu góð skáldsaga, en Halldóri
hefur oft tekist betur en í Atóm-
stöðinni. Dísa Mjöll er athyglis-
verð kvenlýsing, en herslumuninn
vantar. Sóleyjarsaga Elíasar Mar
er gallað skáldverk. Sjötíu og níu
af stöðinni eftir Indriða G. Þor-
steinsson er dæmigert byrjanda-
verk. Jökull Jakobsson var fyrst
og fremst leikritahöfundur eins og
Dyr standa opnar sýnir glögglega.
En hvað verður um breiddina?
„Af sögum Elíasar Mar, Indriða
G. Þorsteinssonar og Jökuls Jak-
obssonar má ráða að þeir hafa
enga hugmynd um kúgun kvenna,"
segir Gerður í Niðurstöðum. Hún
bætir við: „Á sama hátt og Elías
Mar telur Indriði G. Þorsteinsson
konur óbreytanlegar (ómeðvitað
viðhorf). Hjá þessum tveimur rit-
höfundum kemur glögglega fram
kvenfyrirlitning, jafnvel kvenhat-
ur, sem ekki ber á hjá öðrum
höfundum sem hér eiga í hlut.
Andúðar gætir hins vegar hjá
öllum rithöfundunum á þeim kon-
um sem ekki hafa gifst, þ.e.
piparmeyjunni. Karlrithöfundarn-
ir gera gys að stjórnsömum kon-
um og andlegri viðleitni þeirra."
Fyrir niðurstöðum sínum færir
Gerður Steinþórsdóttir rök þótt
deila megi um hversu gild þau séu.
Þess ber til dæmis að gæta að
sveitamaður að uppruna eins og
Indriði G. Þorsteinsson, svo að
stuðst sé við orðalag Gerðar, er
ekki líklegur til að hafa mikinn
skilning á vakningu kvenna, enda
hún ekki að marki komin til sögu
þegar Gógó tælir Ragnar leigu-
bílstjóra. Annað gildir um þétt-
býlisrithöfundinn Elías Mar sem
er sósíalisti, „en sá sósíalismi nær
ekki til kvenna," eins og Gerður
segir. Eini karlhöfundurinn sem
veit af kynferðismisrétti, er Hall-
dór Laxness.
Ég veit ekki hvort það er rétt að
karlmenn „spyrni við fótum,
sjálfrátt og ósjálfrátt, sé forræði
þeirra ógnað" og aðferðin sé sú að
„skopast að og lítillækka þær
KVÆÐAMANNAFÉLAGIÐ Ið-
unn átti fimmtiu ára afmæli 15.
sept. sl. Af því tilefni tók félagið
saman efni á hljómplötu, sem
gefin var út með tilstyrk mennta-
málaráðuneytisins. Á plötunni eru
100 kvæðalög og eru kvæðamenn-
irnir niu, sjö karlar og tvær
konur.
£
Á bakhlið plötuumslags gerir for-
seti íslands, hr. Kristján Eldjárn,
nokkra grein fyrir rímum og
rímnakveðskap að fornu og nýju og
segir þar m.a.. „Að yrkja og kveða
rímur var á fyrri öldum ákaflega
veigamikill þáttur í íslenskri al-
þýðumenningu, runninn af rótum
þess arfs, sem landnámsmenn
komu með til landsins fyrir ellefu
öldum.
Hver sá, sem ann íslenskum
erfðum og vill að um þær sé hirt og
að þær beri ávöxt með öldum og
óbornum í landi voru, hlýtur að
vera þakklátur þeim mönnum, sem
af ást og eldmóði hafa siðastliðin
fimmtíu ár hlúð að hinni fornu
íþrótt, sem svo margan dimman
dag hefur stytt og gert hærra til
lofts og víðara til veggja í svo
margri þröngri baðstofu í landi
voru á liðnum öldum."
Gerður Steinþórsdóttir:
KVENLÝSINGAR í SEX
REYKJAVÍKURSKÁLDSÖGUM
EFTIR SEINNI HEIMSSTYRJ-
ÖLD
Hið íslenska bókmenntafélag
1979.
BÓK Gerðar Steinþórsdóttur er
ávöxtur þess sem kallað hefur
verið kvennasaga eða kvenna-
rannsóknir: „Endanlegt markmið
könnunar af þessari gerð er póli-
Gerður Steinþórsdóttir
tískt, kvenfrelsið“. skrifar Gerður
í formála.
Hún lýsir í formálanum að
ætlun sín hafi verið að kynna sér
lítillega „aðferðir við bókmennta-
rannsóknir sem byggðust á hug-
myndafræði kvenfrelsishreyf-
ingarinnar", en sá lestur hafi
orðið mun víðtækari en upphaf-
lega var gert ráð fyrir: „Hug-
myndir mínar urðu gleggri og
rætur kúgunar kvenna birtust
mér í sögulegu og þjóðfélagslegu
samhengi. í stuttu máli var hulu
svipt af karlveldisþjóðfélaginu og
þeim öflum sem sjálfrátt og
ósjálfrátt halda því við“.
Gerður Steinþórsdóttir dregur
hvergi dul á tilgang sinn. Með það
sem að framan greinir að leiðar-
ljósi kannar hún eftirtaldar bæk-
ur: Atómstöðina (1948) eftir Hall-
dór Laxness, Dísu Mjöll (1953)
eftir Þórunni Elfu Magnúsdóttur,
Sóleyjarsögu (1954 og 1959) eftir
Elías Mar, Sjötíu og níu af stöð-
inni (1955) eftir Indriða G. Þor-
steinsson, Dyr standa opnar (1960)
eftir Jökul Jakobsson og Dæg-
urvísu (1965) eftir Jakobínu Sig-
urðardóttur.
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
og verkaskiptingu á heimilum.
Hefði Gerður Steinþórsdóttir aft-
ur á móti leitað til nýrri verka,
skáldsagna sem standa nær okkar
tíma, hefði niðurstaðan orðið önn-
ur. Þá hefði komið í ljós að margt
er nú orðið breytt og þá ekki síst
fyrir tilstilli félagslega sinnaðra
bókmenntafræðinga úr hópi
kvenna.
Gerður segir í bókarlok:
„Það er einkennileg tilhugsun
að þrátt fyrir ótal skilgreiningar á
„konunni" vitum við í raun ekki
hvað hún er.“
Hún lokar hringnum með Vir-
giniu Wolf'sem jafnframt á mottó
bókarinnar:
„... hvað er kona ... Ég held að
enginn geti vitað það fyrr en hún
hefur túlkað það sjálf í öllum
listgreinum og störfum sem
mannsandinn þekkir.“
Ekki síst með orð Virginiu
Bókmenntir
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
Woolf í huga ber að fagna hinum
mörgu játningabókum sem konur
senda frá sér. Þær hljóta að vera
viðleitni í þá átt að skýra leyndar-
dóminn fyrir okkur.
Það skal að lokum tekið fram að
Kvenlýsingar í sex Reykjavíkur-
skáldsögum er hin læsilegasta
bók, skipulega samin og með
mörgum ágætum tilvitnunum.
Þótt í henni sé þungur dómur um
karlveldið er hún heiðarleg úttekt
á margan hátt, samviskusamlega
unnin.
Hver er hræddur
við Virginiu Woolí?
Sumir versla dýrt —
aðrir versla hjá okkur
Okkar verð eru ekki tilboð
heldur árangur af
Jhagstæðum innkaupum
Fyrstu jólaeplin
eru komin
FAGURRAUÐ
DELICIOUS -
■ ■
Stór og
extrastór.
Rauð og glæsileg.
Ljúffeng og safarík.
Albestu fáanlegu eplin
Opið til hádegis
á laugardag
STARMYRI 2 AUSTURSTRÆTI 1 7