Morgunblaðið - 16.12.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.12.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979 87 Bamakennari og söng- kona wkkhljómsveitar Flestir vita að Ragnhildur Gisladóttir er ein af þremur songkonum rokkhljómsveitar- innar Brunaliðsins. Flestir vita einnig að Ragnhildur söng á sinum tíma með Lummunum. og fiestir þekkja hana i sjón af myndum af henni eða úr sjón- varpi. Færri vita hins vegar að Ragnhiidur er barnakennari að atvinnu og kennir i Vesturbæj- arskólanum i Reykjavik. .„Það má segja að ég skipti mér jafnt miili þessara starfa, að syngja með Brunaiiðinu og kenna í Vesturbæjarskólanum", sagði Ragnhildur er við hittum hana á föstudaginn. „Það fer ágætlega saman að kenna og syngja, enda er kennslan ekki það mikil, og hljómsveitin kem- ur aðeins fram um helgar. — Ég reikna með að syngja eitthvað með Brunaliðinu, ef það starfar áfram alla vega hefur annað ekki verið ákveðið, og svo er ég líka að fara að vinna að öðru, en það er „leyndó" enn sem komið er, og skýrist ekki fyrr en í janúar eða seinna, ef það verð- ur“, sagði Ragnhildur. Ragnhildur við kennsiu í Vesturbæjarskólanum, þar sem hún starfar sem tónlistarkennari, en hún útskrifaðist 1977 úr Tónlistarskóianum. Þá er hún einnig að læra pianóleik, svo hún hefur í nógu að snúast þessa stundina. fclk í fréttum Sgndi íslenskan klæðnað í Idaho *•■***•*, í Ricks College í Rexburg í Idaho í Bandarikjunum er nem- endum meðal annars kennt hvernig klæðnaður getur verið hluti ákveðinnar menningar og nemendur þar, sem bæði eru víðs vegar að úr Bandaríkjunum og frá öðrum löndum, hafa sýnt fatnað frá heimkynnum sínum. í kennslustundum er síðan far- ið yfir hvernig fötin eru gerð, hvaða efni eru í þeim, hvaða vísbendingu fatnaður getur gefið um kjör þess sem honum klæðist of svo framvegis. I bréfi sem Morgunblaðinu hefur borist frá skólanum segir að nemendur séu víðs vegar að, og eru til dæmis nefnd stúlka frá Hollandi, Navhoindiáni frá Arizona og ung íslensk stúlka, Helen Hreiðars- dóttir, til heimilis að írabakka 14 í Reykjavík. Helen Hreiðarsdóttir og einn kennara hennar, fröken Lamprect, sýna dæmigerð íslensk ullarföt. Helen sagði nemendum skólans frá íslandi um leið og útskýrði meðal annars á hverju þjóðin byggði af- komu sina. Árni Egilsson bassaleikari, sem nú hefur sent frá sér sina fyrstu hljómplötu, en hann hefur um árabil starfað i Bandarikjunum. Þriðja íslenska jassplaptan komin Komin er út hljómplatan „Basso Erectus“, sem er fyrsta sólóplata Árna Egilssonar bassaleikara, sem lengi hefur strafað sem „session- maður“ í Hollywood og víðar i Bandarikjunum. Illjómplata þessi er lilega þriðja islenska jassplatan, en áður hafa Jassvakning og Jakob Magnússon gefið út plötur með jasstónlist. Með Árna á þessari nýju plötu leika ýmsier þekktir bandarískir hljóðfæraleikarar, en einnig hafa aðstoðað hann þeir Jakob Magnússon og Sigurjón Sighvatsson, og eiginkona Árna, Dorette, sem er þýsk. Árni Egilsson er eins og flestir vita vel þekktur og virtur tónlistarmaður í Bandaríkjunum og hefur hann til dæmis gert talsvert af þyí að leika tónlist inn á kvikmyndir. Hann lék til dæmis bassatónlistina í öllum þáttunum um „Rætur", eða „Roots“ sem sýndir voru í sjónvarpi hér fyrir nokkru síðan. Það er Hljómplötuútgáfan h.f. sem gefur plötu Árna út, en hún er tekin upp í Hollywood í Kaliforníu. n »I I & M ' ffEnginn verður óbarinn biskup“ - segir Hrafn Gunnlaugsson um Akureyringa „Kvikmyndatakan gekk vonum framar, við vorum bæði heppin með veður og aðstæður,“ sagði Hrafn Gunnlaugsson í samtali við blaðið nú fyrir helgina, en hann er nýkominn frá Akureyri þar sem tekin var upp kvik- myndin VANDARHÖGG eftir Jökul Jakobsson. „Þetta var allt á áætlun hjá okkur", sagði Hrafn ennfremur, „myndatöku átti að ljúka 10. des. en henni lauk þann 9. eða degi fyrr, og öll áætlanagerð í sam- bandi við myndina hefur staðist hingað til. Nú, að svo miklu leyti sem við þurftum að starfa með Akureyringum reyndust þeir mjög vel, en enginn verður óbarinn biskup," sagði Hrafn að lokum. LjÓ8: Sigm. Örn Arthúrsson Hópurinn sem vann að Vandarhöggi fyrir utan Norðurpól- inn á Akureyri, en húsið fékkst lánað fyrir milligöngu Vals Arnþórssonar kaupfélagsstjóra, en KEA á húsið. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Hildur Birgisdóttir, Ragnheiður Harvey, Marinó Ólafsson, Þórarinn smiður, Hrafn Gunnlaugsson, Björg Jónsdóttir, Gunnlaugur Jónasson og Helgi Géstsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.