Morgunblaðið - 16.12.1979, Side 27

Morgunblaðið - 16.12.1979, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1979 91 ren enkelvdroin. dci er nia*£tiger«' end tusii'd virkelig:heder DanmarkK-prerniere den 19 dc Schlesingers, YANKS, meö Vanessu Redgrave og Will- iam Devane í aðalhlutverk- um. Margir vilja telja myndina besta verk leik- stjórans frá því hann gerði MIDNIGHT COWBOY. Kanar eru ekki á þeim buxunum að hætta að mjólka kúna meðan von er á einhverri nyt. Það sann- ast á hinum fjölmörgu framhaldsmyndaflokkum, líkt og myndirnar um 007, Bleika Pardusinn, Apaplán- etuna, og ekki hvað síst AIRPORT sanna. Og ein- mitt sú nýjasta í síðast- nefnda flokknum, AIR- PORT ’80 THE CONCORD, er aðdráttarafl kvikmynda- húsa þar í borg um þessar mundir. Af öðrum myndum má nefna nýja, rómaða mynd með Lee Remick, THE EUROPEANS, A LITTLE ROMANCE, RICH KIDS, nú og svo verður APOCALYPSE NOW frum- sýnd. í háborg kvikmyndaiðn- aðarins, New York, verður margt forvitnilegt á boð- stólum. Ekki aðeins vegna jólahátíðarinnar, heldur einnig sökum þess að nú fer hver að verða síðastur að koma þeim myndum á framfæri sem eiga að keppa um Oscarsverðlaunin eftir- sóttu í apríl. Um áramót er línan dregin. Tvær geim- öustin Hoffman og Meryl Streeo i KRAMER vs KRAMER. Sú jólavenja er altíð, að kvikmyndahúsin, eða kannski öllu frekar kvik- myndadreififyrirtækin og framleiðendur stilla upp rjoma þessa iðnaðar um hátíðarnar. Því er meining- in að kynna lítillega þær myndir sem mest eru áber- andi í þrem nágrannalönd- um okkar, um jólin, þ.e. Danmörku, Englandi og síðast en ekki síst, Banda- ríkjunum. Á aðfangadag verða svo kynntar hér á síðunni jólamyndirnar sem gleðja munu augu lands- manna í ár. í Kóngsins Kaupinhafn eru tvær myndir mest áber- andi. Annars vegar teikni- mynd Ralph Bakhsi, LORD OF THE RINGS, sem byggð er á hinu himsþekkta verki snillingsins J.R.R. Tolkien. Margir leikstjórar hafa átt sér þann draum að kvik- mynda hið margslungna ævintýr, hvað helst John Boorman. En það fór fyrir honum sem öðrum, illa tókst að hemja furðuheima Tolkiens á kvikmynda- handriti. Leikstjórinn Finn Hen- riksen býður löndum sínum uppá sannkallaða jóla- veislu, þar sem er myndin JULE-FROKOSTEN, með mörgum bestu gamanleik- urum Dana, svo sem Jörgen Ryg, Preben Kaas og Lis- beth Dahl. Og hinn gamal- kunni, danski húmor skín jafnvel í gegnum auglýs- ingaplakatið, hvar stend- ur... „oplev alle tiders julefrokost uden at fá tömmermænd"! Af öðrum ágætum mynd- um sem á boðstólum verða í borginni við sundið yfir hátíðar, má nefna Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI, HÁRIÐ, LUNA Bertoluccis og síðast en ekki síst APOCALYPSE NOW. Lundúnabúar munu skemmta sér yfir myndum á borð við STAR TREK - THE MOTION PICTURE, sem dyggilega fetar í fót- spor STAR WARS, CLOSE ENCOUNTER og ALIEN. Hún er byggð upp á sömu karakterum og prýða sam- nefndan sjónvarpsþátt sem um árabil hefur notið geysi- legra vinsælda víðast hvar á hnettinum — nema hér og í Albaníu. Þá gefst kostur að sjá nýjustu mynd John ferðamyndir setja talsverð- an svip á kvikmyndahús stórborgarinnar. Það er STAR TREK - THE MO- TION PICTURE, sem nú slær öll fyrri aðsóknarmet — og var getið hér á undan, og dýrasta Disney-myndin sem gerð hefur verið, THE BLACK HOLE, og gerist einnig úti í himinhvolfinu. En New York búar hafa úr nógu að velja. Frumsýndar verða myndirnar KRAMER VS KRÁMER, með Dustin Hoffman og Meryl Streep (THE DEER HUNTER), nýjasta kvikmyndagerð leikrits eftir Neil Simon, CHAPTER TWO, með eig- inkonu hans, Morshu Ma- son (AUDREY ROSE), og gamla, góða James Caan í aðalhlutverkum; THE JERK, með Steve Martin, gerð af Carl Reiner, sem ætti að vera lesendum að góðu kunnur eftir tvær myndir sem sýndar voru hérlendis með stuttu milli- bili, OH, GOD og SÁ EINI SANNI, sem sýnd er þessa dagana í Háskólabíó. Og að endingu mun líta þar dags- ins ljós í fyrsta sinn nýjasta mynd Bob Fosse (CÁBA- RET, LENNY), ALL THAT JAZZ. Þar fer með aðal- hlutverk Roy Scheider og Jessica Lang. Myndin er sögð að hluta til sjálfsævi- söguleg. Vanessa Redgrave og William Devane í nýjustu mynd Sclesingers, YANKS. BEROMTE EVENTYR „Fonsi" fer á kostum HÁSKÓLABÍÓ SÁ EINI SANNI („The One And Only) Hin bráðskemmtilega gamanmynd, SÁ EINI SANNI, gerist á síðari hluti fjórða áratugsins, og segir frá hinum forkostulega náunga Andy Scmidt, (Henry Winkler), er hefur bjargfasta trú á sjálfum sér sem afburðaleikara — þrátt fyrir að flestir séu á ann- arri skoðun. í rauninni eyðileggur þessi hamslausa sjálfumgleði alla möguleika Ándys á leiklistarbrautinni. Sjálfsgagnrýnin er engin og allt þarf hann að laga og betrumbæta að eigin dómi. Myndin hefst er Andy kynnist skólasystur sinni, Mary (Kim Darby), dann- aðri og huggulegri stúlku frá góðu heimili, hálfgerðri andstæðu Anry. Þau fella hugi saman og að námi loknu giftist hún hetjunni sinni og eltir hann til höf- uðborgar leiklistarinnar — New York. Sambúðin gengur upp og ofan, einkum þó eftir að bláköld tilveran hefur hrakið stjórstjörnuefnið niður á botn skemmtana- bransans — fjölbragða- glímuna (wrestling). En þar fá einmitt sérstakir trúðs- hæfileikar Andys og fárán- leg skapgerðin notið sín, og frægðin blasir við, eftir allt. SA EINI SANNI er önn- ur mynd hins gamalkunna gamanmyndaleikstjóra og háðfugls, Carl Reiner, sem hér er sýnd á skömmum tíma. Hin var OH, GOD, sem gekk alltof illa í Aust- urbæjarbíói á dögunum. Hér hefur Reiner fengið til liðs við sig tvo úrvalskrafta, leikarann Henry Winkler og handritshöfundinn Steve Gordon. Sá fyrrnefndi er stórefnilegur gamanleikari, er hefur reyndar skemmt löndum sinum um talsverða hríð sem einn vinsælasta sjónvarpskarakterinn þar vestra — „The Fonz". Hér bregst hann hvergi þeim vonum sem við hann eru bundnar sem framtíðar skemmtikraft, og það er sem handritið sé samið að margbrotnum skophæfi- leikum hans. Hann fer á kostum, hvort sem hinn heitt elskaði ég sjálfur, eða í hringnum í gervi „Adolfs Mittler — frá Dusseldorf", „elskhugans", eða dáleiðar- ans „dr. Wiesel". En það er handritshöf- undurinn, Steve Gordon, sem öðrum fremur er stjarna myndarinnar. Hann hefur frumsamið hér eitt fyndnasta handrit um langa hríð — og haft vit og tök á því að fylgja því eftir sem framleiðandi myndar- innar —. Það er bæði skemmtilega framsett og uppbyggt, auk þess sem mörg samtölin eru hrein- ustu brandarar. Megin styrkur þess eru meinfynd- in tilsvör, þar sem ensku- mæiandi kalla „oneliners". Aukaleikarar standa sig vel flestir með prýði, ein- kum þó hinn kunni Broad- way- og kvikmyndaleik- stjóri Gene Saks (THE ODD COUPLE, THE LAST OF THE RED HOT LOV- ERS, o.s.frv.), sem hinn geðstirði umboðsmaður Andys, Sidney Seltzer, og William Daniels og Polly Hollyday sem hinir vamm- lausu tengdaforeldrar glímukappans. Og ekki má gleyma dvergnum kven- holla, Herve Villiechaize. Þeir félagar þrír, Reiner, Winkler og Gordon, hafa gert myndina SÁ EINI SANNI að hinu ágætasta geðvítamíni, sem landanum veitir svo sannarlega ekki af að gleypa í sig við skapfýlu skammdegisins. Henry Winkler i einu hinna fjölmörgu gerva sem hann bregður sér i i fjölbragðaglimuhringnum. Úr myndinni SÁ EINI SANNI. Jólamyndir í ná- grannalöndunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.