Morgunblaðið - 20.04.1980, Side 27
Leiöandi fyrirtæki
á sviöi sjónvarps
útvarps og hljómtækja
VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10.SÍMI: 27788 (4 LÍNUR).
NESCO
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRÍL 1980
Thorens
Traustbyggður og hárnákvæmur,
enda svissnesk hag/eikssm/ð
í nærfellt hundraö ár hafa THORENS THORENS spilara. sem að ytra úUiti'-hafa tekið
verksmiðjurnar framleitt plötuspilara, sífellt miklum stakkaskiptum. Verðið er enn sem fyrr
endurbætta af svissneskjj hueviti oe haeleik. hagstætt. Sé miðað við eæði eerir
S-~ s_ V- V-
Traust hönnun. tæknileg fullkomnun þú tæpast betri kaup í öðrum
Oö t.'ikmiirkiihmv: n:íkv:pnini t*rn mVikmi'rki nlötiisniliirnin
HORENS
ER TRAUSTSINS^"^^
VERÐUR
Brœðraminning:
Sœvar Jensson og
Þórir Baldvinsson
í stórum fjölskyldum getum við
alltaf átt von á að eitthvað sé að
gerast. Fréttin berst fljótt þegar
barn hefur bæst við, gifting eða
merkum áfanga hefur verið náð,
allir gleðjast og samfagna þeim
sem atburðurinn snertir mest.
Aðrar fréttir berast líka, jafnvel
enn skjótar og rista dýpra í
tilfinningatengsl fjölskyldu og
vina, það er fréttin af alvarlegu
slysi og dauðsfalli. — Við stöldr-
um við agndofa og orðvana.
Sævar Jensson fæddur 1.
febrúar 1949 féll útbyrðis af m/s
Gjafari VE 600 frá Vestmannaeyj-
um, 7. marz sl. Tveir skipverjar
brugðu skjótt við og stungu sér í
hafið og náðu Sævari en um
seinan. Þeir mega vita að þeim er
þakkað af alhug sú fórnfýsi og
drengskapur sem þeir sýndu.
Minningar æskuáranna koma
nú upp í hugann, þær vekja hjá
okkur tregablandið bros.
Það er ekki ætlunin með þessum
línum að rekja ættir né æviferil
Sævars hér, heldur minnast með
þakklæti þeirra stunda sem hann
fékk að vera með okkur.
Þórir Baldvinsson, fæddur 2.
apríl 1963 lézt af slysförum 12.
apríl sl. aðeins 17 ára gamall,
yngstur af stórum systkinahóp.
Ekki höfðu liðið nema fimm
vikur frá því að Sævar hálfbróðir
Þóris og systkinanna sex sem eftir
lifa fórst svo sviplega. Það skal því
engan undra þó frændsystkinin
litlu í Vestmannaeyjum hafi spurt
ömmu sína eftir að þeim hafði
verið sagt að Þórir frændi kæmi
ekki aftur — hann væri dáinn —
„Mamma, ætlar Guð að taka alla
fjölskylduna núna?“
Þórir hafði dvalið í vetur hjá
systur sinni og mági í Vestmanna-
eyjum og stundaði nám í Vélskóla
Islands þar. Námið gekk vel enda
pilturinn greindur vel eins og
systkinin öll. Framtíðin virtist
brosa. — En við vitum ekki daginn
né stundina, kallið kemur þegar
við eigum sízt von á. Því koma oft
í hugann eftirfarandi ljóðlínur.
„Sæst. hjarta, fullum sáttum við
hvern, scm þig grætti hér,
sjá, engill. blítt sem boðar frið,
um borg og hreysi fer.
Þeim fyrirgef. er gaf þér sár
og gjðr þig skildi ei hér.
þó ef til vill i nótt ert nár
og næstu ei dagsbrún sér.“
Minningin um góða drengi yljar
hugi okkar.
Frænku Dóru, Baldvin, systkin-
in sex og fjölskyldur þeirra biðj-
um við góðan Guð að styrkja í
þeirra miklu sorg.
Utför Þóris verður gerð frá
Fossvogskirkju á morgun, mánu-
daginn 21. apríl.
Jóna, Erling, Georg.
■g-'-'h"
Fínlux
Toppurinn í Litsjónvarpstækjum,
22“ Kr. 668.000. — (635.000 staðgr.)
26“ Kr. 739.000. — (700.000 staögr.)
SJÓNVARPSBÚÐIN
BORGARTÚNI 18 REYKJAVÍK S(MI 27099