Morgunblaðið - 20.04.1980, Side 15

Morgunblaðið - 20.04.1980, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRIL 1980 15 húslífið og síðan hefur þetta gengið ágætlega. Mér fannst skitt að þeir skyldu taka af mér vinnustofuna, Bret- arnir, en ferðin var flott. Þetta var sérkennilegt að koma þarna í skemmtiferð á striðstímum. Loft- árásir voru tíðar, en það var sama hvað þær voru miklar, alltaf var leikið. Ef loftvarnavælið byrjaði meðan leiksýning stóð yfir voru leikhúsgestir reknir niður í loft- varnabyrgin, en síðan var byrjað aftur í leikritinu þar sem frá var horfið eins og ekkert hefði í skorist. Það var mikið upplevelse að sjá þetta, óperur og leikrit í gangi hreint um allt.“ „Hvernig var að vera bæði leiktjaldamálari og leikari jöfnum höndum?" „Ég lék alltaf feikna mikið, vissi reyndar aldrei að hvoru ég ætti að halla mér frekar. Maður varð að gera ýmislegt til þess að geta lifað af þessu, því ég hef alltaf unnið eingöngu við leikhúsið og þá var gott að geta gert eitt og annað á þessu sviði, leika eða gera leik- tjöldin og yfirleitt það sem gera þurfti við leikhúsið. Þetta var sérstaklega mikil vinna þegar ég var í Iðnó, því þá þurfti ég að vera Meðal sérstæðra hluta Lárusar eru útskornar kínverskar myndir í tré, sem hann keypti á sínum tíma á uppboði í Reykjavík þar sem seldar voru eigur bandarisks manns. Mikill orustugnýr er i tréskurðarmyndinni eins og tiðkast mikið i Asiumyndum. Hér eru spekingarnir efst úr tréskurðarmyndinni að ræða málin. Þegar að er gáð í þessum fíngerðu skurðmyndum kemur í ljós að vinnan er nostursleg og svipurinn magnþrunginn eins og til stendur. „Eítir glæsilega boðsferð til Bretlands tóku Bretarnir af mér vinnustof- una,“ segir Lárus Ingólfsson í spjalli við Morgunblaðið Grein og myndir: Árni Johnsen í útréttingum sjálfur, kaupa tau og hvaðeina og stundum fékk maður ekki borgað, því það voru engir peningar til. Þetta lagaðist allt þegar ég fór að vinna í Þjóðleikhúsinu og ég þurfti ekki að snatta eins mikið út um bæinn. Það var margt sem maður baslaði við á þessum árum, en það var skemmtilegur tónn í þessu, áhuginn var svo mikill hjá fólkinu og allir lögðu sig fram um að gera sitt bezta þótt ekki væri víst að kaupið yrði greitt eins og til stæði. En allt gekk þetta.“ „Þú stjórnaðir leiktjaldadeild Þjóðleikhússins um árabil." „Já, frá byrjun og fram til 1970. Fyrstu árin gerði maður sjálfur nær öll leiktjöld, en fljótlega komu til aðstoðar ágætir menn, innlendir og erlendir og þetta byggðist upp hægt og .sígandi. Þarna voru margir ágætir menn og það var til dæmis frábært að vinna með Guðna Bjarnasyni yfir- smið og reyndar skildi maður ekki eftir að hans naut ekki við lengur hvernig maður komst hjá því að hafa hann. En maður kemur víst í manns stað og allt var unnið í ágætis samvinnu og samkomulagi og það er ekki yfir neinu að klaga. Stundum var það heldur mikið að vera bæði í leiktjaldagerðinni og leiklistinni, en ég tók gjarnan að mér smærri rullur til þess að þetta væri auðveldara. Ég veit satt að segja ekkert hvað ég hef leikið mörg hlutverk eða hvað ég hef gert mörg leiktjöld, en ég hef ekki reiknað það út. Þetta er víst orðin há tala ef þannig er litið á það.“ „Þú hefur aldrei horfið frá leikhúsinu?" „Mitt starf hefur alltaf verið tengt leikhúsinu og það er langt frá því að ég hafi séð eftir því. Mig hefur aldrei langað til að snúa mér að öðru og það hefur orðið mikil breyting til bóta í leikhús- starfinu allan þennan tíma.“ „Hvað hefur þér fundist skemmtilegast að fást við í þessu starfi?“ „Það skemmtilegasta við dekorasjónina fannst mér það austurlenzka, kínverskir búningar og yfirleitt það austurlenzka, það sem var svo langt frá okkur sjálfum. Það var í sjálfu sér gaman að vinna við revíurnar og þar var allt einfalt og markvisst, en það var ekkert ankeri í því.“ „Heldur þú að gamansemi fólks hafi minnkað?" „Nei, ég held ekki að húmornum hafi hrakað. Fólk skemmtir sér afskaplega vel þegar farið er með þetta gamla efni og við fluttum t.d. fyrir nokkrum árum ýmsa þætti úr gömlu revíunum og við mjög góðar undirtektir. Það hefur hins vegar vantað meira af mönnum til þess að yrkja og útbúa slíkt efni. Oft hefur verið talað um það en lítið orðið úr. Það var mjög gott samstarf á milli manna á þessum árum, grín og glens í mannskapnum." „Er ef til vill minni húmor í leikurum dagsins í dag?“ „Ég veit það ekki, það gæti víst verið." „Þú átt margt gamalla muna og safn íkona. Hefur þú lengi haft áhuga á þessum hlutum?" „Ég hef ákaflega lengi haft áhuga á gömlum munum. Strax og ég hafði möguleika á keypti ég eins og ég gat í þeim löndum sem ég ferðaðist til. Sérstaklega hef ég safnað íkonum, en ég hef einnig safnað ýmsu öðru, kínverskum hlutum og einu og öðru. Ég myndi kaupa miklu meira ef það væri mögulegt, en þetta er orðið svo ofsalega dýrt. Ég fylgist árlega með þessu og verðið hefir rokið upp á undanförnum árum. Flestar þessara helgimynda sem ég á eru nokkuð gamlar, þær elztu frá um 1600. Ég var alveg gáttaður á því hvað ég fékk mikinn áhuga á íkonum og þann áhuga hef ég ennþá, er alveg trylltur í helgi- myndir. Nú eru þeir hættir að selja þá í Rússlandi, það er bannað, en þó eru smugur. Ég fór til Rússlands í fyrravor og þar semég sat á hótelinu mínu kom til mín drengur og opnaði lófann og hvíslaði hvort að ég hefði áhuga á að kaupa gullfallegan lítinn íkon sem hann var með. Ég greiddi 200 finnsk mörk og hoppaði upp í loft af ánægju yfir þessu. Þeir eru alveg vitlausir í útlenda peninga þarna. Það er margt skrítið í þessu. Áhugi minn á þessum helgi- myndum er ekki tengdur trú, mér finnst þetta falleg kúnst og hef keypt þá flesta vegna þess hve fagrir þeir eru. Þetta er sérstök gerð helgimynda og ef til vill spilar það inn í áhuga minn á þessu að allt er hið austurlenzka eins og leiksvið fyrir okkur hér norður frá.“ Málmsieginn ikon með mynd af dýrlingi. Stundum eru ikonar máiaðar myndir án nokkurs umbúnaðar, en oftar eru þeir eins konar lágmyndir, þ.e. sambland af málverki og styttu. Mynd af einum hornveggnum í ibúð Lárusar þar sem helmingur ikona hans er á veggjum. Stóra myndin er i mörgum litum með 12 málverkum á. Myndskreytingar á stærstu helgimyndinni sem Lárus á.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.