Morgunblaðið - 27.04.1980, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRÍL 1980
ANNA BJARNADÓTTIR SKRIFAR FRÁ WASHINGTON:
Fólki þykir þessi ferð
niðurlægiandi fyrir þjóðina
En viðbrögð við henni hafa þó verið Carter í vil
WashinKton. 2fi. apríl. Frá önnu Bjarnadóttur íróttaritara Mhl.
BANDARÍSKUR almenningur og íréttamenn munu væntanlega reyna næstu
vikurnar að fá svör við spurningum varðandi misheppnaða tilraun Bandaríkjaforseta
til að bjarga gíslunum 50 í bandaríska sendiráðinu í Teheran á fimmtudag. Tilraunin
kom öllum að óvörum og á föstudag var ekki fjallað um annað í bandarískum
fréttum.
Harold Brown, varnarmálaráðherra, sagði á blaðamannafundi á föstudag, að
björgunarferðina hafi orðið að fara nú, áður en daginn færi að lengja verulega í Iran
og hlýna færi í veðri, eða af henni hefði ekki getað orðið í sex mánuði. Það þótti of
langur tími og því var látið til skarar skríða.
Björgunarsveitin, sem var send,
hefur verið við æfingar við svipað-
ar aðstæður og eru í íran síðan í
nóvember. Hún var vel þjálfuð og
sagt er, að mesti vandi ferðarinn-
ar hafi verið að komast al!a leið til
Teheran. Frá Persaflóa, þaðan
sem ferðin hófst, til Teheran eru
um 700 mílur. Þyrlur eru ekki
byggðar fyrir svo langt flug. Þegar
3 af 8 þyrlum leiðangursins biluðu
á miðri leið var hætt við björgun-
artilraunina.
Engin svör hafa fengizt við því,
hvernig átti að ná gíslunum úr
klóm „stúdentanna" í sendiráðinu.
Brown talaði, eins og það hefði
orðið minnsti vandinn, og aðrir
trúnaðarmenn forsetans slógu á
sömu strengi. Þetta hefur leitt til
bollalegginga um, að aðstoð hljóti
að hafa beðið í Teheran. Stjórn-
völd, og jafnvel hluti „stúdent-
anna“ sjálfra, hafa verið nefnd í
því sambandi. Blaðamaður the
Washington Star, sem áður var
starfsmaður CIA, sagði í sjón-
varpsþættinum the Mcneil Lehrer
Report í kvöld, að hann teldi afar
ólíklegt, að bandaríska leyniþjón-
ustan hafi verið með í ráðum.
Hann sagði, að hún hefði aldrei
stuðzt við utanaðkomandi þyrlur
eða mannafla.
Fréttir herma, að björgunar-
Simamynd AP.
Loftmynd af birgðageymslunum í Fort Bragg í Norður Karólína sem breytt hefur verið í þjálfunarmiðstöð fyrir „Deltaliðið," sveit sjálfboðaliða sem
ætlað er að inna af hendi björgunaraðgerðir og kljást við hryðjuverkamenn. Embættismaður í Washington sagði ígær aðDeltaliðiðhefðitekið þátt
S í björgunaraðgerðinni í Iran á föstudagsmorgun.
sveitin, sem var send til íran,
hluti herliðs frá Norður-Karólír
sem er sérþjálfað í átökum ge;
hryðjuverkamönnum. Dagblað
Norður-Karólínu sagði í frétt, st
ekki fékkst staðfest í dag, að sai
konar sveit hafi verið send
miöausturlanda skömmu eftir
gíslarnir voru handteknir í nc
ember, en þá hafi verið hætt við
reyna að bjarga þeim með valdi
Jimmy Carter hefur tekið a
ábyrgð á björgunartilrauninni
sínar hendur. Hún var fyrst ræ
í alvöru 11. apríl sl., en ákveðið \
að láta af henni verða 14. api
þegar þótti ljóst, að hún g£
tekizt. Carter bannaði fer
Bandaríkjamanna til Iran
apríl og sagt er, að það hafi ve
til að tryggja öryggi einstaklin
vegna yfirvofandi björgunarfe:
ar. í dag var sagt, að Carter h
alltaf verið hikandi við ferðina,
hann hafi hætt við hana við fyrí
tækifæri, þegar eitthvað bjátaði
Fólki þykir að vissu marki þe
misheppnaða ferð vera niðurlæ
andi fyrir þjóðina. En viðbrögð ■
henni hafa þó mestmegnis ve
Carter í vil. Bandamenn í Evró
hafa verið fremur jákvæðir
viðbrögðum sínum og flestir þii
menn styðja aðgerðir forseta
Leiðtogum þingsins þykir sárt
hafa ekki verið hafðir með í ráði
eða notið trúnaðartrausts. Ut;
ríkisnefnd þingsins mun væntí
lega krefjast fullrar skýringar )
forseta á ferðinni.
Allir keppendur Carters i
forsetaembættið, nema John Ar
erson, Henry Kissinger, fv. ut£
ríkisráðherra, og Richard Nixi
fv. forseti, lögðu blessun sína y
aðgerðir Carters í dag. Á morg
kemur í ljós, hvort aðgerðir ha
hafa áhrif á kjósendur, en den
kratar halda þá prófkosningai
Michigan. Aðeins Reuss, fulltri
deildarþingmaður demókrata I
Wisconsin, hefur skorað á Cari
að draga sig nú út úr forsetakoí
ingabaráttunni og helga sig alv
forsetastörfum út kjörtímabilið
a.b.
SINDRA
STALHF
Fyrirliggjandi í birgðastöð
plötujárn
Þykktir frá 2—50 mm
ýmsar stæröir.
m.a. 1000x2000 mm
1500x3000 mm
1500x5000 mm
1500x6000 mm
1800x6000 mm
Borgartúni31 sími 27222
Póstmenn álykta um
ófremdarástand í húsnæðis-
málum póstþjónustunnar
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatiikynning frá
Póstmannafélagi íslands:
Eins og margsinnis hefur komið
fram í fréttum ríkir hið mesta
ófremdarástand í húsnæðismálum
póstþjónustunnar í landinu. Á aðal-
fundi PFÍ sem haldinn var 17. apríl
1980 var því samþykkt eftirfarandi
„Aðalfundur Póstmannafélags
íslands haldinn 17. apríl 1980,
beinir nú þeirri spurningu til sam-
gönguráðherra, með tilliti til álykt-
ana sinna á undanförnum árum,
hvort ríkisvaldið sé ekki orðið
mörgum áratugum á eftir áætlun
með framkvæmdir í húsabygginga-
málum póstþjónustunnar í land-
inu? Liggja ekki einmitt þar hinar
raunverulegu orsakir sívaxandi
seinagangs í virkri póstþjónustu
innanlands og einnig til og frá
útlöndum, eins og kvartanir fólks-
ins í landinu að undanförnu bera
með sér?
Ennfremur vill PFÍ benda á, að
síðan hluti póstgangnadeildar var
fluttur beint undir samgönguráðu-
neytið, hefur sá hluti hennar sem
enn heyrir undir Póst- og síma-
málastofnunina ekki haft örugga
forustu og starfsaðstöðu. PFÍ beinir
því nú til samgönguráðherra, að
staða deildarstjóra póstgangna-
deildar verði auglýst til umsóknar
nú þegar, enda hefur hún verið laus
frá 1. ágúst 1979.
í ljósi þessara ábendinga, skorar
PFÍ enn einu sinni á samgönguráð-
herra að stuðla að því, að raunhæf-
ar framkvæmdir og umbætur verði
gerðar í þessum málum hið allra
fyrsta."
Ný stjórn var kosin hjá félaginu á
fyrsta fundi nýkjörirs félagsráðs
sem haldinn var daginn eftir aðal-
fund, 18. apríl. Formaður var end-
urkjörinn í þriðja sinn Björn
Björnsson, útibússtjóri. í hinni
nýkjörnu stjórn félagsins eiga nú
sæti: Björn Björnsson, formaður,
Kristín Jenný Jakobsdóttir, Sigurð-
ur Samúelsson, Sævar Einarsson,
Þorgeir Ingvarson auk varamann-
anna Leu Þórarinsdóttur og Gunn-
laugs Guðmundssonar, sem sitja
alla stjórnarfundi félagsins.