Morgunblaðið - 27.04.1980, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRÍL 1980
Barna- og fjölskyldusíðan
Þórir S. (iuðbcrKsson
Rúna (i isIadóHir
BR3B
Lítill
leikur
Alltaf er gaman aö leika sér
hvort sem maður er ungur eöa
gamall. Þessi leikur er í því
fólginn aö þreifa á hlutum, sem
látnir eru í kassa eða öskju og
síðan á viðkomandi aðeins aö
þreifa á þeim meö fingrunum
og geta hvaða hlutir hann
þreifar á. Meðan einn er látinn
fara út úr herberginu (eða tveir
ef menn vilja ekki skipta um
hluti í hvert skipti, sem nýr
þátttakandi fer fram), eru vald-
ir hlutir í kassann og geta það
verið hvaða hlutir sem vera
skal nema beittir og
oddhvassir (hættulegir). Síðan
er handklæði eða léreft sett
yfir kassann og þá er að reyna
að „þreifa sig áfrarn" og sjá
hver hefur næmar tilfinningar!
FJÖLSKYLDAN MÍN
Sendið sögur, ljóð, gátur og myndir um fjölskylduna
eða einstaka meðlimi fjölskyldunnar. Hvað langar
ykkur að fjölskyldan geri, hvar eigið þið heima, hvað er að
gerast kringum ykkur, hvað er það skemmtilegasta
sem þið vitið, kunnið þið ekki einhverjar skrýtlur,
gátur eða skemmtilegar sögur? ? ?
Setjist nú niður og sendið okkur fáeinar línur.
Teiknið greinilega og merkið myndirnar með nafni
og heimilisfangi aftan á blaðið.
Teikning: Guðrún Jónsdóttir, 8 ára, Hraunbæ,
Reykjavík.
Texti: Við erum á leiðinni í afmæli.
Frá vöggu til grafar
Sigrún Hildur Krist-
jánsdóttir, 10 ára,
Hlíðabyggð 36, Garðabæ.
Þarna er Dísa 5 ára úti að Hér er Dísa orðin 30 ára.
leika sér.
Þetta er hún Dísa litla.
Hún er tveggja mánaða, enda
ný skírð.
Dísa 60 ára amma.
Hér er Dísa tíu ára, bráð- Dísa gamla er orðin 90
um stór stelpa. úra.
Hér er Dísa 15 ára ungl-
ingur.
Hérna er Dísa gamla
dáin.