Morgunblaðið - 04.05.1980, Side 18

Morgunblaðið - 04.05.1980, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1980 Castró og flóttamennirnir: „Daunninn var ólýsanlegur. Flóttafólkið hefur fyllst vonleysi eftir þriggja vikna dvöl í herbergjum, stigagöngum, eldhúsi sendiráðsins og á lóð þess, þar sem farið hefur um það eins og síldar í tunnu, slík var þröngin. Ástandið var afleitt." Þannig lýsti blaöamaður heimsókn sinni í sendiráö Perú í Havana fyrir skömmu, en á föstudaginn langa tóku rúmlega tíu þúsund Kúbanir aö streyma inn á lóö sendiráösins í þeirri von aö fá að fara úr landi, „á vit frelsisins", eins og þeir hafa komizt aö orði. Þeir lögöu á sig miklar þjáningar, ákveðnir í aö láta langþráöan draum rætast. Og þaö var mikill fögnuöur þegar þeir fyrstu stigu niöur landganginn á flugvellinum í San Jose á Costa Rica, þeir krupu á kné, kysstu malbikið og veinuðu „frelsi, frelsi“. En ekki voru allir flóttamennirnir jafn hólpnir, því er um 700 haföi veriö flogið til Costa Rica lét Castró stööva flutningana. Um þaö bil 8.000 flóttamannanna hafa nú snúiö til fyrri heimila sinna í Havana. Hafa þeir í höndunum vegabréf og brottfarar- leyfi í höndunum og bíöa brottferöar. En tæplega 2.000 treystu ekki lof- oröum hefnigjarnra yfirvalda og kusu aö vera um kyrrt á sendiráðs- lóöinni. Þeir þrauka áfram, matarlitl- ir og viö slæman aðbúnaö. Sagöi embættismaöur í Perú nýveriö aö hvaö yfirvöld á Kúbu snerti, þá væri þeim sama þótt þeir sem eftir væru í sendiráöinu dæju þar drottni sínum og rotnuöu. Af 10.386 flóttamönnum í sendi- ráöinu haföi Bandaríkjastjórn fallist á aö veita 3.500 hæli, Perú ætlaöi aö taka við 4.500 og Costa Rica, Spánn, Ecuador, Argentína, Kanada og Belgía ætluöu tii samans aö taka viö 1.750. Stjórn Vestur-Þýzkalands lýsti einnig yfir því að þar í landi yröi tekiö viö landlausum Kúbumönnum. Castró sá sig tilneyddan aö leyfa fólklnu aö fara úr landi, en brott- flutningarnir voru vart hafnir þegar hann stöövaöi þá. Er um 700 flóttamannanna höföu yfirgefið Kúbu, sá Castró sér leik á boröi til aö hrella þá sem eftir voru og draga úr löngun þeirra til aö yfirgefa landiö. Hann leyföi ekki frekara framhald loftbrúarinnar, nema flóttamönnunum yröi flogið rakleitt til þeirra landa sem þeir heföu fengiö hæli í, en hingaö til haföi þeim veriö flogiö til Costa Rica. Og jafnframt skipaöi hann um einni milljón Kúbumanna út á strætin og aö sendiráöinu, til aö lýsa yfir stuöningi viö stjórn sína og gera gys aö flóttamönnunum. Meöal slagoröa sem þá voru hrópuö var: „Fariö, farið burtu maökarnir ykkar. Þiö, sem hafiö selt ykkur fyrir gallabux- ur.“ Snæddu hunda og ketti Sendiráð Perú er á lóö sem er á stærö viö knattspyrnuvöll og þótti hún snotur þar til Kúbanirnir lögöu þangaö leið sína eftir aö Castró, í refsiskyni aö því er sagt var, felldi niöur öryggisgæzlu viö sendiráöiö. En í síöustu viku var þar um aö litast eins og í „helvíti", sagði blaöamaöur sem kom þangaö í heimsókn 6 dögunum. Lóöin var sem kviksyndi. Fólkinu var nánast ókleift aö sofa, þar sem menn lágu aö nokkru leyti hver ofan á öörum. Og þar sem matur var af skornum skammti urðu margir að gera sér hýöi af ávöxtum aö góöu og aörir söddu sárasta hungrið meö því aö steikja hund og kött á teini yfir viöareldi. Flótta- mennirnir voru óttaslegnir og úr- vinda og þjáöust af alls kyns kveis- um. Aginn var engu aö síöur mjög góöur. „Fólkiö var undir þaö búiö aö deyja ef það kæmist ekki úr landi," sagöi læknir sem var í átta daga í sendiráöinu. „Konur kusu frekar að vera um kyrrt í sendiráöinu en að fara með veik börn sín til lækna utan sendiráösins." Flóttamennirnir settu í upphafi á laggirnar 21 manns ráö til aö fara meö mál sín. Ráöiö sá m.a. um matarskömmtun, en helzta viöfangs- efniö var aö halda uppl góöum anda á sendiráöslóöinni. Meöal annars aö Svipmynd af sendiréöalóöinni. Mannþröngin er mikil og þegar örtrööin var sem mest tóku sumir sér bólfestu í trjám og é húsþökum. Fré fundi í New York, þar sem þesa var krafist af Sameinuöu þjóðunum aö þær legóu flóttamönnunum í sendiréói Perú liö. Nckkrir hinna hólpnu. Þessir karlmenn voru í hópi þeirra sem fyrstir fengu aö fara frá Kúbu. Þeir steyta hnefann fegnir frelsinu og aö vera lausir úr „verkamannaparadísinni". Margir þeirra skildu eftir konur sfnar og börn í þeirri von aö fá þau til sín eftir aö þeir hafa komiö sór fyrir utan Kúbu. Greinilega mé sjé að konan sem hér er leidd frá sendiráöinu er mædd. Stuöningsmenn Castrós veítast aö henni þar sem hún er í fylgd lögreglu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.