Morgunblaðið - 04.05.1980, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ1980
23
Pjetur Hafstein Lárusson:
Sveinn Skorri
sem hann hefur
Nú er svo komið að deilur okkar
rithöfunda um Launasjóðinn okk-
ar blessaðan hafa borist alla leið
inn í stofur fólks. Sl. föstudag voru
þær teknar til umræðu í Kastljósi
sjónvarpsins og voru þar mættir
til leiks þeir Sveinn Skorri Hösk-
uldsson og Njörður P. Njarðvík
fyrir sína hönd og annarra vanda-
manna og þeir Ingimar Erlendur
Sigurðsson og Baldur Óskarsson
úr hópi mótmælenda innan Rithöf-
undasambandsins. Að sjálfsögðu
var sú fullyrðing okkar mótmæl-
enda, að stjórn Launasjóðs rithöf-
unda úthlutaði almannafé eftir
flokkspólitískum kokkabókum efst
á baugi.
Ekki ætla ég að fara að halda
því fram að málsvarar okkar
mótmælenda hafi staðið sig verr
en skyldi. Hitt er svo annað mál að
kannski eru þeir full hógværir
menn til að gera fullnægjandi skil
jafn ósvífnum andmælendum og
þarna var við að etja. Það er
kunnara en frá þurfi að segja að
því hæpnari málstað sem sumir
þurfa að verja, þeim mun gleiðari
verða þeir milli eyrnanna. Þetta
sannaðist átakanlega á þeim Nirði
og Sveini Skorra.
Eins og við mátti búast var
Sveini Skorra.
Eins og við mátti búast var
Sveini Skorra það mikið kappsmál
að fá þá fullyrðingu Ingimars
Erlends og Baldurs, að stjórn
Launasjóðs væri pólitískt hlut-
dræg í störfum sínum, rökstudda.
Raunar benti Baldur á það í
upphafi þáttarins, að úthlutunin
úr Launasjóði væri í sjálfu sér
nægur rökstuðningur fyrir þessari
fullyrðingu. En því miður komst
hann ekki að, eða hefur, hógværð-
arinnar vegna, ekki kunnað við að
gera það sem máli skipti, þ.e.a.s.
lesa upp listann góða yfir þá sem
njóta náðar stjórnar Launasjóðs.
Úr þessu skal nú bætt.
Ég hef mér til dundurs lagt
saman úthlutanir til rithöfunda
sem fengið hafa starfslaun úr
tveim efstu flokkum Launasjóðs,
annars vegar í tíð fyrri stjórnar
Sumarið er kom-
ið í Skagafirði
Bœ á Höfðaströnd, 2. maí 1980.
SUMARIÐ er komið hér í Skagafirði eins og víðar,
snjór sést ekki á láglendi, klakahlaup í túnum sem eru
að byrja að grænka. Sumarfuglar eru margir komnir,
og að koma þó ekki hafi ég séð kríuna ennþá, enda
kemur hún venjulega ekki fyrr en 14. maí. Er jafnvel
farið að sjást að fuglar eru farnir að búa um sig og
undirbúa varpið, og er nú allt að minnsta kosti
mánuði fyrr á ferðinni en var í fyrravor.
Mjólkurframleiðsla er þó tölu-
vert miklu minni en á sama tíma
1979, og munar mjög miklu
þennan tíma sem liðinn er frá
áramótum. En mikil fækkun
varð á mjólkurkúm í haust er
leið.
Ekki hefur enn orðið vart við
sjóbirting í sjó, og var ég þó
síðast í dag að kanna hvort hann
væri kominn, en hann fer að
gera vart við sig.
Togarar hafa aflað vel, en
minni bátar hafa fengið mjög
lítið. Er það aðallega vegna
ógæfta, en sunnanátt hefur verið
25 daga síðasta mánuð, allhvöss
á köflum. Veiði hefur hins vegar
verið sæmileg þegar á sjó hefur
gefið.
Að öðru leyti er allt gott að
frétta. Það er eins og allt
blómstri þegar hiti er á hverjum
degi og sauðgróður er að koma á
tún.
— Björn í Bæ.
Lukkudagar
Vinningsnúmer í apríl og ósóttir vinningar
Vinningsnúmer í apríl í Lukku-
dögum Víkings eru:
Númer
1. Utanlandsf. á vegum Samv.ferða 5584
2. Sharp Vasatölva CL 8145 1724
3. Philips vekjarakiukka m/útvarpi 2265
4. Vðruútt. eigin vaii frá Liverpool 8418
5. Skil 1552H verkfærasett 20021
6. Kodak Pocket A1 myndavél 29950
7. Kodak Ektra 12 myndavél 12541
8. Hljúmpl. að eigin vali frá Fálk. 13546
9. Kodak Poeket A1 myndavél 1043
10. Sharp vasatölva CL 8145 7010
11. Sharp vasatölva CL 8145 6525
12. Tesai ferðaútvarp 29891
13. Hljúmpl.að eign vali frá Fálk. 43%
14. Kodak Pocket A1 myndavéi 22353
15. Sharp vasatölva CL 8145 20594
16. Sjúnvarps8pil 2264
17. Hljúmpl. að eigin vali frá Fálk. 20595
18. Henson æfingagalii 12604
19. Kodak Pocket A1 myndavél 27442
20. Kodak Pocket A1 myndavél 163%
21. Skil 1552H verkfærasett 15198
22. Sharp vasatölva CL 8145 18738
23. Braun LS 35 krullujárn 18433
24. Kodak Pocket A1 myndavél 20361
25. Sharp vasatölva CL 8145 2081
26. Braun hárliðunarsett RS67K 28972
27. Kodak Pocket A1 myndavél 23500
28. Skáldverk Gunnars Gunnarssonr
14 bindi frá A.B. 7468
29. Braun LS 35 krullujám 10648
30. Hljúmpl. að eigin vali frá Fálk. 10641
Ósótti^vinningar í janúar 1980
Númer
7. Hljúmpl. að eigin vali frá Fálk. 20440
10. Sharp vasatölva CL 8145 19912
15. Tesaiferðaútvarp 1646
18. Kodak Ektra 12 myndavél 20853
23. Hljúmpl. að eigin vali frá Fálk. 21677
29. Tesai ferðaútvarp 24899
30. Tesai ferðaútvarp 14985
31. Hljúmpl. að eigin vali frá Fálk. 1682
Ósóttir vinningar í febrúar
1980.
Númer
6. Sharp vasatölva CL 8145 7088
8. Kodak Pocket A1 myndavél 5859
12. Kodak Pocket A1 myndavél 4415
16. Kodak Pocket A1 myndavél 15376
20. Tesaiferðaútvarp 3205
24. Braun LS 35 krullujárn 16389
25. Kodak EK100 myndavél 20436
28. Reiðhjúl að eigin vali frá Fálk. 5260
Ósóttir vinningar í mars 1980.
Númer
3. Hljúmpl. að eigin vali frá Fálk. 16149
4. Kodak Ektra 12 myndavél 4751
5. Hljúmpl. að eigin vali frá Fálk. 5542
7. Skáldverk Gunnars Gunnarssonar
14 bindi frá A.B. 4842
8. Kodak EK100 mynavél 5261
10. Vöruútt. að eigin vali frá Liverpool 5500
15. Vöruútt. að eigin vali frá Liverpool 18077
17. Kodak Pocket A1 myndavél 20797
18. Kodak Pocket A1 myndavel 8130
19. Skil 1552H verkfærasett 5541
21. Hljúmpl. að eigin vali frá Fálk. 4588
25. Kodak EK100 myndavél 17834
26. Sharp vasatölva CL 8145 28%
. 28. Hljúmpl. að eigin vali frá Fálk. 23291
29. Sjúnvarpsspil 29797
30. Vðruútt. að eigin vali frá Liverpool 27958
31. Kodak Pocket A1 myndavél 5831
spyr um rök,
sjálfur lagt fram
Launasjóðs, 1976 til 1978, og hins
vegar í tíð núverandi stjórnar,
1979 og 1980.
1976 til 1978 eru þrír menn
hæstir í launum, en það eru þeir
Þorsteinn frá Hamri, Thor Vil-
hjálmsson og Ingimar Erlendur. Á
þessu tímabili fékk Þorsteinn frá
Hamri 15 mánuði en þeir Thor og
Ingimar Erlendur 13 mánuði hvor.
Allir eru þessir menn vel að
laununum komnir. Tveir þessara
rithöfunda, þeir Thor og uppá-
halds skáldið mitt, Þorsteinn frá
Hamri, hafa löngum verið orðaðir
við ákveðinn stjórnmálaflokk, þ.e.
a.s. Alþýðubandalagið. Ingimar
Erlendur mun hins vegar hafa
tekið kúrsinn út úr þeirri höfn
fyrir allmörgum árum.
Auðvitað eiga pólitískar skoðan-
ir rithöfunda ekki að ráða við
úthlutun úr Launasjóði. Það er því
gleðiefni, að hér er greinilega ekki
verið að hygla ákveðnum pólitísk-
um skoðunum. Því neitar enginn
sem til þekkir, að margir rithöf-
undar eiga að ýmsu leyti hug-
myndafræðilega samstöðu með Al-
þýðubandalaginu. í þeim hópi tel
ég sjálfan mig meðal annarra. Ég
sé því ekkert athugavert við það að
hluti þeirra rithöfunda, sem hæstu
starfslaun hljóta, sé á einn eða
annan hátt tengdur Alþýðubanda-
laginu.
En þegar laun manna úr tveim
efstu flokkum Launasjóðs árin
1979 og 1980 eru lögð saman,
kemur í ljós, að hver og einn
einasti þeirra tekur í ritverkum
sínum sömu hugmyndafræðilegu
afstöðu og einn stjórnmálaflokkur,
þ.e.a.s. Alþýðubandalagið. Þá segi
ég stopp. Ékki vegna þess, að ég
viti ekki mæta vel að flest af þessu
fólki er í hópi bestu rithöfunda
landsins, heldur vegna hins, að ég
STJÓRNARFUNDUR Símvirkja-
félags fslands, haldinn 29. april
sl. samþykkti eftirfarandi álykt-
un einróma:
„Stjórn Símvirkjafélags íslands
átelur stjórn B.S.R.B. harðlega
fyrir linkind í samningamálum við
ríkisvaldið. Enn fremur lýsir
stjórnin yfir furðu sinni á því,
hversu litlum þrýstingi ríkisvaldið
er beitt af hálfu B.S.R.B., í ljósi
veit að sá hópur er miklu stærri og
að innan hans er til allrar ham-
ingju fólk með ýmsar pólitískar
skoðanir, bæði til hægri og vinstri
við hina sósíaldemókratísku línu
Alþýðubandalagsins.
Trúir Sveinn Skorri því í raun og
sannleika, að hann geti talið sæmi-
lega læsu fólki trú um það, að
eftirfarandi rithöfundar séu ekki, í
grundvallaratriðum, sammála í
stjórnmálum?: ólafur Jóhann Sig-
urðsson, Ólafur Haukur Símonar-
son, Thor Vilhjálmsson, Þorgeir
Þorgeirsson, Pétur Gunnarsson,
Nína Björk Árnadóttir.
Þetta er það fólk sem núverandi
stjórn Launasjóðs hefur hampað
hæst með því að úthluta hverjum
og einum samtals 15 mánuðum.
Ef hann ætlar sér að gera það,
verður hann að láta þessa rithöf-
unda éta oní sig sín eigin ritverk.
Það væri sannarlega illa gert,
enda færi þá margt snilldarverkið
fyrir lítið.
Pjetur Hafstein Lárusson.
þess að 10 mán. eru liðnir síðan
samningar gengu úr gildi.
Stjórn Símvirkjafélagsins telur
að opinberir starfsmenn þurfi á
öllu sínu að halda í þessari
óðaverðbólgu, sem við búum nú
við.
Þar af leiðandi verður frekari
kjaraskerðing sem dráttur samn-
ingsgerðar hefur í för með sér ekki
þolaður."
Símvirkjafélag íslands
deilir á stjórn B.S.R.B.
SÓLSKIN
á verói, sem allir geta
veitt sér!
Þú getur ekki verðlagt
sólskinið, það er ómetanlegt.
Urval býður þér nóg af
sólskini í Úrvals-
sólarlandaferðum til
MALLORKA og IBIZA.
Brottfarar-
dagar
Þú getur valið um þriggja-,
tveggja- eða vikuferðir, allt
eftir því sem þér hentar.
Næstu ferðir:
MALLORCA
23/5, 30/5, 13/6, 20/6,
4/7, 11/7, 25/7.
IBIZA
23/5, 13/6, 20/6, 4/7,
11/7, 25/7.
Með viðdvöl í
úrvalsgististöðum
Afborgunar-
skilmálar
Þrátt fyrir einhver lægstu
verð, þá gerir Úrval þér
auðveldara að komast í
sólskinið með hagkvæmum
afborgunum. Þúgreiðir
helming út og afganginn á
3 mánuðum.
FERÐASKRIFSTOFAN
URVAL
VIÐ AUSTURVÖLL SÍMI 26900
í fylgd með
fegurðardísum
Úrval stendur nú að
fegurðarsamkeppni íslands,
sem haldin er um allt land.
Fegurðardrottning
hvers staðar hlýtur í verðlaun
Úrvalssólaralandaferð.
Komdu með ^Úrvalsferð,
þar verður fjöríð.
Aðeins
ÚRVALSFERÐIR
á ÚRVALSVERÐI
Þú færð meira en sólskin í
Úrvalssólarlandaferð. Settu
fram allar óskir þínar
varðandi ferðalagið og við
gerum allt það sem hægt er
fyiir þig - og dálítið betur,
þaðj^p rir ferðina að
Úrvalsferð. Hafðu samband
við næsta umboðsmann .
okkár strax, þar færðu
litprent^án bækling um
Úrvalsferðir 1980.
ÞAÐ ER EKKISAMA
MEÐ HVERJUM ÞÚ
FERÐAST®