Morgunblaðið - 04.05.1980, Page 26

Morgunblaðið - 04.05.1980, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ1980 Minning: Kristján Friöriks son iðnrekandi Að Kristjáni Friðrikssyni í Úl- tíma er margfaldur sjónarsviptir, svo mjög sem hann lét til sín taka á hinum ýmsu sviðum. Hann kom mér stundum fyrir sjónir sem sérkennilegur blendingur hug- sjónamanns, jafnvel draumóra- manns á menningarsviði og at- hafnamanns í þjóðfélagsmálum, en slíkir persónuleikar eru næsta sjaldgæfir hér á landi. Kristján hefði sómt sér vel meðal hinna listfengu fursta End- urreisnartímabilsins og ekki sak- aði að hann hafði til að bera eðlilegan virðuleika, arfleifð þing- eyskra höfðingja. En sá virðuleiki gat ekki alveg dulið ríkulega kímnigáfu, áhuga á sérkennum mannskepnunnar sem hann sjálf- ur flokkaði undir fræðilegt stúd- íum og nefndi persónufræði. En meðan margir mér fróðari eiga eftir að fjalla um framlag Kristjáns til skólamála, stjórn- mála, iðnþróunar, hagfræði og blaðamennsku, þá langar mig að- eins að fara nokkrum orðum um listfengi hans og þau áhrif sem hann og kona hans, skörungurinn Oddný frænka mín, höfðu á mína persónu sem óharðnaðan ungling, með smekkvísi sinni og daglegu samneyti við listir og listamenn. Efa ég ekki að þau áttu stóran þátt í að beina mér inn á þær brautir sem ég hef reynt að feta síðan. Ekki gætir þeirra áhrifa síður í börnum þeirra hjóna sem öll hafa hneigðir til lista. Ég man glöggt að í barnæsku laðaðist ég strax að Kristjáni og það var ekki fyrr en síðar að mér var ljóst í hverju aðdráttarafl hans fólst, er ég fylgdist með sambandi hans við eigin börn og barnabörn. Hann lét þess reyndar getið í nýlegu viðtali, að hann hefði aldrei kunnað að ala upp börn þótt hann ætti þau mörg. Samt lét hann sér ávallt annt um börn, sín og annarra, samdi og gaf út ævintýri (Prinsessan í hörp- unni, 1940 og Smávinir fagrir, 1942) og hafði lag á því að ná athygli þeirra. Aðferð hans, ef- laust algjörlega ómeðvituð, var sú að ávarpa börn eins og fullorðið fólk, kannski eilítið hátíðlega, sýna viðbrögðum þeirra sömu at- hygli og annarra viðmælenda og svara þeim með sömu einlægni og þau spurðu. Síðan var kannski haldið í merkilegar könnunarferð- ir í límúsínu hans, þangað sem dýr var að finna eða á stað sem hafði á boðstólum alveg sérstaklega gómsætan ís og þessar ferðir höfðu á sér yfirbragð rannsókn- arleiðangra sem okkur börnunum fannst talsverð upphefð að taka þátt í. Er ég komst til vits og ára urðu heimsóknir mínar á heimili Kristjáns og Oddnýjar lær- dómsríkari. Því olli m.a. úrval myndverka sem þau hjón höfðu sett upp í kringum sig, verk eftir Snorra Arinbjarnar, Kjarval, Jó- hann Briem, Jón Engilberts o.fl., og var þeim einstaklega smekk- lega fyrir komið. Þegar veggpláss- ið þraut voru málverk hengd upp fyrir ofan jakkaföt og áklæði í verslun Kristjáns, viðskiptavinum til augnayndis, og er mér til efs að aðrir listunnendur hefðu tekið slíka áhættu með verk margra ágætustu listamanna okkar. Um þessi listaverk ræddi Kristján eins og gamla en samt síunga vini og af ríkum skilningi. Sjálfur teiknaði hann og málaði alla ævi, gaf út kennslubók í teikningu og varð, að ég held, fyrstur íslendinga til að gefa út bók um íslenska list, til kynningar útlendingum. Hún kom út árið 1943 („íslensk myndlist"), með enskum og íslenskum texta og innihélt m.a. verk eftir Nínu Tryggvadóttur sem þá var ekki farin að kveðja sér hljóðs fyrir alvöru og er þetta til marks um skarpskyggni Kristjáns. Ég man ekki þá tíð sem þau hjón voru ekki sívakandi fyrir myndlistum, þau sóttu allar sýn- ingar bæjarins og voru málkunn- ug mörgum myndlistarmönnum. Ég hlustaði hugfanginn á hann segja sögur af Kjarval og í teikni- bók sem Kristján átti, er að finna ágæta teikningu Kjarvals af hon- um í prófíl. Er mér nær að halda að hinn skarpi, klassíski prófíll fyrirmyndarinnar komi fyrir oftar en einu sinni í síðari verkum málarans. Seinna fékk ég inngöngu í hið allra heilagasta, einkaskrifstofu Kristjáns í Kjörgarðsbygging- unni, en þar eyddi hann sunnu- dagsmorgnum árum saman við teiknun og málun. Ég var þá gripinn á förnum vegi og mér stýrt upp í helgidóminn til að láta í ljós álit á því sem Kristján var að gera það sinnið. Hann hafði engan áhuga á kurteisislegri hálf- velgju í svörum og vildi fá skoðun, orðaða skýrt og skorinort, hvort sem hún var jákvæð eða neikvæð. Einhvern tíma réði ég honum frá því að halda sýningu á verkum sem hann hafði við hendina, en í stað þess að býsnast fyrir fram- hleypni þessa drengstaula, var eins og honum létti. „Sjálfum fannst mér þau ekki nógu góð,“ sagði hann og benti mér síðan á helstu galla þeirra, eins og þeir komu honum fyrir sjónir. En þetta aftraði honum ekki frá því að stunda sitt málverk og sköpun- argleðina má vissulega greina í öllu því sem hann afkastaði á því sviði. í málverkum hans berjast innbyrðit vitsmunir og tilfinn- ingar og þar sem vitsmunirnir verða yfirsterkari hættir þeim til stífni, en mörg verka hans eru samt allrar athygli verð. Ekki vorum við alltaf á sama máli um hinar nýrri listir, en þó stjórnuðust viðbrögð Kristjáns aldrei af blindum fordómum, hann leiddi rök að skoðunum sínum og margt var þar sagt af þekkingu hins innvígða sem sannfært gat efagjarnan viðmælanda. Ég kem til með að sakna þessara funda í helgidómnum. Frænkum mínum öllum og öðrum ættingjum Kristjáns sendi ég samúðarkveðjur. Aðalsteinn Ingólfsson. Kristján Friðriksson iðnrekandi andaðist fyrir aldur fram, þótt hann væri orðinn 67 ára. Fram til þess síðasta má segja, að hann væri alltaf jafn óvenjulega hress, sami eldhuginn og hann hafði verið alla ævi. Ekki kom mér annað til hugar, en Kristján myndi verða allra manna elstur, enda kom manni síst til hugar kyrrð hins slynga sláttumanns, er maður hitti Kristján. Hann var alltaf með allan hugann við alls- konar dægurmál og framtíðarsýn- ir, því maðurinn var óvenju hug- myndaríkur og framkvæmdasam- ur. Segja má, að honum félli aldrei verk úr hendi. Hann var vanur því frá barnæsku, að alltaf þurfti að hafa eitthvað fyrir stafni. Lífið var eintóm barátta og stríð. Fyrst fyrir daglegu brauði í harðbýlu landi, síðan fyrir fjölskylduna, er stöðugt stækkaði, og svo ekki sízt fyrir föðurlandið, ísland, sem hann elskaði. Hann var vakinn og sofinn, hvort sem hann var hraustur eða lasinn, að hugsa um framtíðarvelferð landsins og fólksins í Iandinu. Honum sárnaði iðulega, hve fólk virtist skilnings- laust á framtíð þjóðarinnar, sem skipti höfuðmáli að hans áliti. Hann hafði lifað það, að sjá þjóðina rísa úr sárustu fátækt og allsleysi til betri kjara, en nokkur ríkismaður hafði áður búið við á íslandi, og jafnbetri lífskjara, en nokkurs staðar þekktist annars staðar í veröldinni. Fólk frá Ástralíu og Nýja-Sjálandi kom hingað til að rífa upp peninga til að skemmta sér fyrir í fjölmenn- ari löndum. En Islendingar sjálfir voru óánægðir og vansælir og efndu til stöðugs ófriðar, sem aðeins gat leitt til ófarnaðar fyrir alla. Svona ástand var ekki Krist- jáni Friðrikssyni að skapi. Hann hafði ekki vanist því, að menn fengju stóra hluti, nema vinna fyrir þeim og leggja sig allan fram. Kristján Friðriksson var fædd- ur að Efri-Hólum í Presthóla- hreppi, N-Þingeyjarsýslu, 21. júlí 1912 og voru þau systkinin öll frá Efri-Hólum mikið myndar- og dugnaðafólk. Útför Kristjáns fer fram mánu- daginn 5. maí. Ég sem þetta rita átti því láni að fagna að kynnast Kristjáni og fjölskyldu hans og vera um árabil gestur á heimili hans og þau hjónin til skiptis á mínu heimili og nokkurra vina okkar. Var þá oft glatt á hjalla og mikið skrafað, svo spilamennskan vildi jafnvel gleymast. Kristján var hvarvetna hrókur alls fagnaðar, fjölfróður og skrafhreifinn, og engin deyfð eða lognmolla í kringum hann. Við hjónin höfum oft saknað þessara ánægjulegu stunda, sem raunar verða okkur ógeleymanlegar. Ég vil að lokum þakka Kristjáni fyrir kynni okkar og allar ánægju- legu stundirnar með honum. Ég og fjölskylda mín vottum konu hans og fjölskyldu okkar innilegustu samúð. Egill Sigurgeirsson. Þegar okkur berast andláts- fregnir, einkum þeirra, sem við höfum þekkt frá bernsku þeirra, fylgir þeim fregnum venjulega dýpri tregi en annars. Gott uppeldi í bernsku er brúin til athafna í lfinu, og ef þeir sem minnast hinna horfnu eru þar kunnugir, eiga þeir hægara með að minnast þeirra með alúð og skilningi. — Ég, sem þessar línur rita átti því láni að fagna að kynnast Kristjáni Friðrikssyni, meðan hann var barn og ungling- ur að aldri. Hann var fæddur að Efri-Hólum í Núpasveit, N. Þing- eyjars. sonur sæmdarhjónanna Guðrúnar Halldórsdóttur og Frið- riks Sæmundssonar, sem fyrir löngu eru landskunn. Heimili þeirra var sérstakt að myndar- skap á öllum sviðum og uppeldi hins stóra barnahóps þannig að vandi er að lýsa. Þar nam hver af öðrum með alúð og hlýju og mun það vera farsæl leið og traust aðferð til starfs og manndóms. Sem barn og unglingur var Kristján óvenju glöggur á margt, sem ekki er venjulegt og almennt. Engum, sem kynntust honum, duldist að hér var fjölgreindur og listhneigður maður á ferð. Snemma voru hæfileikar hans til dráttlistar frábærir og teiknaði hann mikið og vel þegar á barns- aldri. Engum, sem ekki var þá sér- fræðingur í listinni, datt í hug að gera athugasemdir við þessi æsku-listaverk, enda stóð þá ekki á skýringum og upplýsingum frá listamanninum. Málverk þessa unga listamanns standa mér fyrir hugskotssjónum sem einhver hin fegurstu, sem ég hef augum litið, og það, sem verkar þannig á hug manns og gleymist ekki á langri lífsleið, er áreiðanlega einhvers virði. Hagleikur hans kom víðar fram, meðal annars skar hann út í tré, og var handbragð þar, sem annars staðar með ágætum. Æskudagar Kristjáns og systk- ina hans heima á Efri-Hólum voru t Litli drengurinn okkar, SIGURVIN JÓN JÓNSSON, sem fórst af slysförum þriðjudaginn 29. apríl, veröur jarösunginn frá Ingjaldshólskirkju Hellissandi, þriöjudaginn 6. maí kl. 2 e.h. Hansína Guömundsdóttir, Sigurvin Georgesson, Hrafnhildur Sigurvinsdóttir, Jón Olgeir Jónsson. t Móöir mín, NANNA SVEINSDÓTTIR, sem andaöist 24. apríl, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 6. maí kl. 13.30. Sveinn Björnsson. t Útför eiginmanns mín, KRISTJÁNS FRIÐRIKSSONAR, iönrekanda, Garöastræti 39, verður gerö frá Neskirkju mánudaginn 5. maí 1980 kl. 1.30. Oddný Ólafsdóttir. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, GUNNAR MOSTY, veröur jarösunginn þriöjudaginn 6. maí kl. 3.30 frá Bústaöakirkju. Ester Jörundsdóttir og börnin. t Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og jaröarför systur okkar, JÓHÖNNU GUOJÓNSDÓTTUR, Grettisgötu 32, Reykjavík. Guömundur Guöjónsson, Ingimundur Guöjónsson, Eggert Guöjónsson, Kristjón Guöjónsson, Guörún Guöjónsdóttir, Sigríöur Guöjónsdóttir, Siguröur Guöjónsson, Þóröur Guöjónsson, Guöni Guöjónsson. t Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, ÞÓRHILDUR B. HALLGRÍMSDÓTTIR, Snorrabraut 35, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, mánudaginn 5. maí kl. 3 e.h. Þelr, sem vildu minnast hinnar látnu, vlnsamlegast láti líknarstofn- anir njóta þess. Atli Þorbergsson, Jóhannes Atlason, Lóra Rafnsdóttir, Þorbergur Atlason, Halldóra Helgadóttir, Kristinn Atlason og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför JÓHÖNNU JAKOBSDÓTTUR, Skúlagötu 74. Starfsfólki á deild 4A á Landspítalanum þökkum viö sérstaka umhyggju í veikindum hennar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför bróöur míns, fööur, tengdafööur, afa og fósturbróður, STEINGRÍMS EGILS ÞORKELSSONAR. Fyrir hönd allra aöstandenda, Jónína Þorkelsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.