Morgunblaðið - 04.05.1980, Side 27

Morgunblaðið - 04.05.1980, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1980 27 mjög ánægjulegir og ég er viss um að öll eiga þau þaðan ljúfar minningar. Kennaraprófi lauk Kristján 1933 og mun hafa stundað kennslu 10—11 ár. Hann kynnti sér erlend- is blaðamennsku og verzlunar- hætti. Hann stofnaði og rak um skeið útgáfu Útvarpstíðinda og hefði svo mátt vera lengur. Upp úr 1940 stofnaði hann iðnaðar- og verzlunarfyrirtækið Últíma og stjórnaði þar til ævi- loka, við vinsældir er ég bezt veit, og alþjóð er kunnugt. — En það var með hann, eins og oft er með fjölgáfaða athafnamenn, að við- fangsefnin virtust ekki nægileg, og hugur hans og starfsþrá kröfð- ust fleiri viðfangsefna. — Hann sat á Alþingi sem varamaður úr Framsóknarflokki áreiðanlega til- lögugóður og vinsæll, það var hans háttur. — Ég held að Kristján hafi metið þjóðarhag meir en margur annar og mikil alvara og manndómur verið að baki, þegar hann hóf kynningu sína á stefnu og framkvæmd „Hagkeðjunnar" í fiskveiðimálum og fiskverndar- málum okkar íslendinga. Hann var þar hollur þegn sinnar þjóðar og nægilega skilningsríkur til ábendingar um að vernda þann auð, sem fellur að fótum okkar úr öllum áttum, hvert, sem litið er frá þessum litla hólma. — Mér kæmi ekki á óvart, þó að einhver góður Islendingur kynnti sér þessa athugun Kristjáns og tæki upp þráðinn þar sem hann skildi við. — Mér kæmi ekki á óvart, þó að einhver góður íslendingur kynnti sér þessa athugun Kristjáns og tæki up'p þráðinn þar sem hann skildi við. — Gætum þess að gleyma ekki þeim, sem með sjaldgæfum gáfum og framsýni benda á þær leiðir, sem geta orðið þjóð vorri til belssunar. Enginn sannur íslendingur, sem hefur kynnt sér síðustu rit Krist- jáns í þessum efnum og hlýtt á erindi hans í útvarpi, getur látið hjá líða að hvetja áhugamenn til þess að veita athygli þessu frum- stæða kerfi, sem hinn horfni góðborgari var að kynna þjóð sinni á síðustu árum ævi sinnar. Það er þögul kveðja hans til þjóðarinnar. Ég kveð Kristján Friðriksson með virðingu og söknuði, ásamt systkinum hans, Þórnýju og Sæ- mundi, sem farin eru á undan. — Eftirlifandi Efri-Hólasystkinum sendi ég hlýjar samúðarkveðjur, ennfremur börnum hans og eftir- lifandi konu, frú Oddnýju Ólafs- dóttur. Blessist þeim öllum ókomnar stundir. Snæbjörn Einarsson. Hinn 26. apríl sl. andaðist móð- urbróðir minn og vinur Kristján Friðriksson í Últíma, frá Efri- Hólum. Fáa hefi ég um dagana hitt meiri gleðimenn en hann. Lífsgleði hans ljómaði svo, að þeir, sem voru nærri honum hrifust með, því svo var mikill hans áhrifamáttur. Ég kynntist frænda mínum mjög ungur, er henn kom í heimsóknir til föðurhúsa minna. Gaman ríkti ætíð er fréttist, að Kristján frændi væri að koma. Sem fullorðnir menn áttum við oft saman góðar og glaðar stundir bæði hérlendis og erlendis, svo sem er við frændur nutum með hinni mestu kæti „Lidt men godt“ á Restaurant „Scandia" í Kaup- mannahöfn. Engin orð á ég til að lofa það að hafa fengið notið samvista og samferðar við hann um nærri hálfrar aldar skeið. Það er skarð fyrir skildi. Guðs blessun konu hans og börnum. pþ Lokað mánudaginn 5. maí frá kl. 1—3 vegna útfarar KRISTJAN FRIÐRIKSSON iðnrekanda. Tízkuverzlun Guörún s.f., Rafborg s.f., Rauðarárstíg 1. Lokað mánudaginn 5. maí 1980 frá kl. 1—3 vegna útfarar KRISTJÁNS FRIÐRIKSSONAR. Kjörgaröur, Laugavegi 59. I Ertu aö byggja — Viltu breyta — Þarftu aö markaöur Gólfdúka- markaður Litaverskjörverð fyrir alla þá sem eru að byggja, breyta eða bæta. Líttu vió í Lítaveri, því þaö hefur ávallt borgað sig. íRÍ UJ Ertu að byggja — Viltu breyta — Þarftu aö bæta -W GRUPPEN ÁRDAL OG SUNNDAL VERK a.s, Við óskum eftir að ráða starfsmenn/ afleysingamenn í leyfum helst frá því í byrjuöum maí á þessu ári. Skólafólk/ stúdentar veröa að geta unn- ið til ágústloka í ár. Við höfum einnig áhuga á að ráða aðra er leita sér að atvinnu, geta hafið störf sem fyrst og hafa áhuga á lengri ráöningartíma, hugsan- lega fastráðningu seinna. Allir umsækjendur veröa aö vera orðnir 18 ára. Vinnan er fólgin í því að gæta ofna og einnig er starfaö við rekstur í álverksmiðju okkar og steypustöð. Nýliðar fá nauð- synlega tilsögn á fullum laun- um á kennslutíma, sem er um fjórar vikur. Þeir, sem ráðnir eru, veröa að geta gert sig skiljanlega viö norska samstarfsmenn sína. Samningsbundin laun sem greidd eru mánaðarlega eru frá norskum krónum 5.894.22 upp í kr. 6.008.30 á mánuöi. Við þetta bætist vaktaáiag sem getur verið frá um það bil norskum krónum 850.- til um það bil kr. 1.000.- á mánuði. Vinnutíminn skiptist aö nokkru leyti á 40 stunda dag- vinnuviku og samfellda tvískipta vaktavinnu sem er 38 og 36 tímar aö meöaltali á viku. Hægt er að útvega húsnæði í" * eins manns herbergjum búnum húsgögnum. Húsaleigan er frá n.kr. 50 - til kr. 100.- á mánuði. Þeir sem þess óska, geta boröaö í mötuneyti. Fullt fæði kostar sem stendur n.kr. 20.- á dag. Nánari upplýsingar gefur starfsmannadeildin sími Noreg- ur, Árdalstangen 056-61011- 135. Umsóknir á norsku eöa dönsku, hugsanlega sænsku má senda: Við ÁRDAL VERK vinna um 1800 manns, en það er í Árdal innst í Sognsæ á Vesturströnd Noregs. Um 7000 manns búa í bænum. í nágrenni Árdal er mikil náttúrufegurö, Jöt- unheimar, Tyrinsvæðið og Fillefjall. Samgöngur eru góðar, vegasamband viö allt Austurland og mjög vel séð fyrir verslun- um, skólum og tóm- stundaiöju. Félagsleg og menning- arleg tilboð eru góð og margvísleg. í bænum er íþrótta/sundhöll, virk íþrótta- og verksmiðju- íþróttafélög með marg- háttaöri starfsemi. Þar eru einnig söng- og tón- listarfélög^og tóm- stundaklúbbar. Árdal og Sunndal Verk a.s. Ardal Verk Personalavdelingen 5875 ÁRDALSTANGEN NORGE ú fi I íí 5. | f Til viðskiptavina PENNABÚÐANNA Penninn s.f. biöur viöskiptavini sína velviröingar á því, aö fyrirtækiö veröur lokaö frá kl. 9-10 f.h. á eftirfarandi dögum vegna starfs- þjálfunar. Hallarmúla 2 — Laugavegi 84 — Hafnarstræti 18 1 'í í l tr rí þriöjudaginn 6. maí i 1 föstudaginn 9. maí ■i ■ $ ! þriöjudaginn 13. maí í --S - í föstudaginn 16. maí I X l þriöjudaginn 20. maí s í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.