Morgunblaðið - 02.08.1980, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 02.08.1980, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1980 Landsvirkjun: 22% hækkun Á FUNDI sínum í gær samþykkti rikisstjórnin 22% hækkun á heild- söluverði Landsvirkjunar. Það ieiðir af sér 9% hækkun á útsölu- verði Rafma«nsveitu Reykjavik- ur ok annarra þeirra rafveitna. sem kaupa orku af Landsvirkjun. Þrátt fyrir þessa hækkun til Landsvirkjunar er gert ráð fyrir að rekstrarhalli þessa árs verði 1.300 milljónir og greiðsluhalli verði 2.100 milljónir. Fyrir ríkisstjórnarfundinum lá ennfremur verðhækkunarbeiðni Hitaveitu Reykjavíkur. Samþykkt var að fresta þeirri afgreiðslu og leita samráðs við borgarstjórn Reykjavíkur um málið. V erslunarmannahelgin: Umferð minni en undanfarin ár UMFERÐIN um þessa mestu ferðahelgi ársins fór fremur róiega af stað i gær, og eftir þvi sem best er vitað gekk hún stóráfallalítið, samkvæmt upp- lýsingum sem Morgunblaðið fékk hjá Ola H. Þórðarsyni framkvæmdastjóra Umferðar- ráðs i gærkvöidi. Um kvöldmatarleytið í gær var umferðin út úr höfuðborg- inni meiri um Suðurlandsveg en um Vesturlandsveg, sagði Óli, hvernig svo sem framhaldið verður. Þá óku 60 bílar á hverj- um tíu mínútum um Vestur- landsveg, og 90 bifreiðar austur Suðurlandsveg. Miðað við fyrri ár telst þetta ekki mikil umferð, en venjan er sú að umferðin þyngist eftir því sem líður á föstudagskvöldið og kemur fram á laugardag. í gærkvöldi mátti sjá merki þessarar þróunar að sögn Óla, en þó virðist umferðin vera minni en undanfarin ár, jafnvel minni en í fyrra, en þá var óvenjulítil umferð um versl- unarmannahelgina. Ekki kvaðst Óli hafa neinar algildar skýringar á því hvers vegna umferðin virtist fara minnkandi, en sagðist þó telja að orkukreppan ætti þar hlut að máli. Þá kvaðst hann einnig telja að góða veðrið að undan- förnu hefði gert það að verkum að fólk hefði lagt fyrr af stað út á land úr þéttbýlinu en oft áður. 10% lækk- un á kjarn- fóðurskatti FRAMLEIÐSLURÁÐ land- búnaðarins ákvað á fundi sínum í gær, að lækka kjarn- fóðurskatt á fóður til svína og alifugla, um 10%, eða í 40% úr 50%, að því er Agnar Guðnason, ráðunautur hjá Búnaðarfélagi íslands, tjáði Morgunblaðinu í gærkvöldi. Ákvörðun þessi er tekin í framhaldi af lækkandi niður- greiðslum á fóðri í Efnahags- bandalagslöndunum, að sögn Agnars. Þjóðhátið stendur nú yfir í Vestmannaeyjum, og verður væntanlega mikið um dýrðir í Eyjum næstu sólarhringana. Þessa mynd tók Sigurgeir í Herjólfsdal í gær síðdegis, og þá þegar hafði mikill mannfjöldi komið sér fyrir í Dalnum í ágætu veðri. Áframhaldandi viðræð- ur um nýtt flugfélag — segir Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða „ÞESSAR viðræður okkar nú við Luxemborgara eru í beinu fram- haldi af þeim viðræðum. sem áttu sér stað 8.1. vetur um hugsanlega stofnun nýs flugfélags, sem yrði sameiginleg eign Flugleiða og Luxair,“ sagði Sigurður Helga- son, forstjóri Flugíeiða, er hann var inntur frétta af viðræðum, sem hann og örn O. Johnson, stjórnarformaður Flugleiða áttu við ráðamenn Luxair 1 vikunni. „Á þessum fundum okkar í vik- unni fengust engar endanlegar niðurstöður í málinu, en viðræðum mun verða haldið áfram síðar, enda um mjög viðamikið mál að ræða,“ sagði Sigurður ennfremur. Hugmyndirnar varðandi þetta sameiginlega flugfélag íslendinga og Luxemborgara, eru m.a. þannig að gert er ráð fyrir því, að Flugleiðir og Luxair ættu sitt hvor 50% og félagið myndi í framtíðinni annast Norður-Atlantshafsflugið, sem verið hefur mikill dragbítur á rekstri Flugleiða undanfarin miss- Mannsins enn leitað LEITIN að Eliasi Kristjánssyni, sem týndur hefur verið síðan á sunnudag, hefur enn engan ár- angur borið, að sögn aðalvarð- stjóra Reykjavíkurlögreglunnar í gærkvöldi. Þá hefur farþegi sem talið var að hefði sést í bifreið Elíasar á sunnudag, heldur ekki gefið sig fram. Allir þeir sem kynnu að vita um ferðir Elíasar síðan á sunnudag eru beðnir að hafa samband við lögregluna. Guðbjörg og Sindri seldu ytra TVÖ isienzk fiskiskip seldu afla sinn eriendis í gær, en það voru Guðbjörg og Sindri. Guðbjörg seldi 156,7 tonn í Bremenhaven í Þýzkalandi fyrir 69,6 milljónir króna, eða um 433 krónur að meðaltali fyrir hvert kíló. Sindri seldi síðan 133,3 tonn í Hull í Bretlandi og fékk fyrir það 67 milljónir, eða um 503 krónur fyrir hvert kíló að meðaltali. Settur skattstjóri FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur sett Jón Guðmundsson, viðskiptafræð- ing, skattstjóra Norðurlandskjör- dæmis vestra frá 1. ágúst til og með 15. september n.k. Fjöldi fóiks lagði leið sína út úr þéttbýlinu í gær, við upphaf vcrslunarmannahelgarinnar. þó umferðin virðist ætla að verða minni en oft áður. Þessa mynd tók Emilía á Artúnshöfða. i útjaðri Reykjavíkur í gærkvöldi. þar sem ferðalangar báru saman bækur sinar við hlaðin farartæki sín. „Yfirbygging- in minnkar eins og aðrir þættir“ „ÞEGAR svo mikill samdráttur á sér stað á starfsemi fyrirtækisins eins og raun ber vitni, þ.e, starfsfólki hefur verið fækkað um 4—500 manns, fer ekki hjá því, að nauðsyniegt er, að minnka yfirbygginguna í sam- ræmi, og það er einmitt með það að leiðarljósi, sem við ákváðum að fara út i þessar skipulags- breytingar,“ sagði Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða. i samtali við Mbl., er hann var inntur eftir ástæðum þess, að tveir af framkvæmdastjórum fyrirtækisins hafa hætt störfum ug sameining hefur átt sér stað á starfssviðum. Brauð og kaffi hækka um 9% ÝMSAR verðhækkunarbeiðn- ir voru afgreiddar á fundi ríksstjórnarinnar í gær s.s. brauð, kaffi, smjörlíki, að- göngumiðar Þjóðleikhúss, að- gangseyrir sundstaða og taxt- ar vörubílstjóra. Samþykkt var 9% hækkun á þessum liðum. Vegna niðurgreiðsln- anna sem gildi tóku í gær munu unnar kjötvörur lækka um 3,3—10%. „í kjölfar þess, að ákveðið var að fella niður ákveðin sérstarfssvið og fella þau undir önnur svið, þ.e. stjórnunarsvið, markaðsmálin og innanlandsflugið eru felld undir önnur svið í starfi félagsins, ákváðu framkvæmdastjórar stjórnunarsviðs og markaðsmála að segja störfum sínum lausum, þ.e. Jón Júlíusson og Martin Pet- ersen. Einar Helgason, sem verið hefur framkvæmdastjóri innan- landsflugs félagsins, mun eftir sem áður veita því forstöðu, þótt það sé ekki sérsvið lengur," sagði Sigurður ennfremur. Sigurður sagði, að eftirleiðis myndu markaðsmálin heyra beint undir hann sjálfan, en stjórnun- arsviðið myndi skiptast í þrennt, þ.e. falla undir fjármálasviðið, sem Björn Theódórsson veitir for- stöðu, flugrekstrarsviðið, sem Leifur Magnússon veitir forstöðu, og svo hótel- og bílaleigurekstur- inn, sem Erling Aspelund veitir forstöðu. Togari til Þórshafnar og Raufarhafnar RÍKISSTJÓRNIN veitti á fundi sínum í gær heimild til að keyptur verði togari til Þórshafnar og Raufarhafnar til að tryggja atvinnuástand á þcssum stöðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.