Morgunblaðið - 02.08.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1980
19
ísraelsmenn
haína yfMýs-
ingu Arafats
Tel Aviv. 1. ágúst. AP.
ÍSRAELAR gerðu í dag lítið úr
og drógu dár að viðtali við
Yasser Arafat. leiðtoga Frelsis-
hreyfingar Palestínumanna
(PLO), þar sem fram kemur, að
hreyfingin stefni ekki lengur að
þvi að uppræta ísraelsriki.
Háttsettur starfsmaður í utan-
ríkisráðuneytinu ísraelska sagði
fréttamönnum, að í viðtalinu, sem
birtist í blaðinu Herald Trilaune,
væri „vísvitandi reynt að leiða
Evrópumenn á villigötur". í maí
sl. hélt A1 Fatah-hreyfingin ráð-
stefnu í Damaskus þar sem fram
kom tillaga um að „uppræta ís-
raelsríki stjórnmálalega, efna-
hagslega, hernaðarlega og menn-
ingarlega". Yasser Arafat segir,
að þessi tillaga hafi ekki verið
samþykkt heldur vísað til nefndar,
en ísraelar segja aftur á móti, að
hér sé augjóslega um stefnu A1
Fatah að ræða, þar sem efni
tillögunnar hafi verið útvarpað og
talsmaður A1 Fatah hafi í tvígang
staðfest hana.
ísraelar segja, að viðtalið við
Yasser Arafat hafi farið fram
mörgum mánuðum eftir að ráð-
stefnan fór fram í Damaskus og
tilgangurinn með því sé að vinna
hylli ýmissa evrópskra vina PLO-
samtakanna eins og t.d. Bruno
Kreiskys, kanslara Austurríkis.
ísraelar létu í ljós mikla óá-
nægju í júní sl. með þá skoðun
Efnahagsbandalagsríkjanna, að
PLO-samtökin ættu að taka þátt í
friðarviðræðunum fyrir botni
Miðjarðarhafs. Þeir sögðu þá að
niðurstaða ráðstefnunnar í Dam-
askus sýndi, að PLO gæti ekki
orðið aðili að slíkum viðræðum.
Viðbrögð Israela við viðtalinu við
Arafat koma á þeim tíma þegar
Gaston Thorn, utanríkisráðherra
Luxembourgar, er á ferð í ísrael
til að kynna sér ástæðurnar fyrir
neikvæðum undirtektum ísraela
undir tillögur Efnahagsbandalag-
sins.
Ugandamenn ræna
og rupla í Kenya
Nairobi. 30. júlí. AP.
VEL vopnaðir Ugandabúar hafa
drepið 24 menn og rænt þúsund-
um nautgripa í Norðvestur-
Kenya, segir i dagblaðinu Daily
Nation, sem gefið er út i Nairobi.
P'aðið segir, að um 3000 ráns-
mt..ii frá Karamoja-héraði í
Uganda, þar sem þurrkar og
hungur herja, hafi ráðist á landa-
mæraþorp og bændabýli í Kenya
sl. mánudag þar sem þeir hafi
rænt og ruplað og drepið 11 menn
og sært fjöldamarga. 16 ráns-
mannanna voru felldir og örygg-
issveitir hafa verið sendar á vett-
vang.
Ugandamennirnir eru vopnaðir
nýtískulegum vopnum sem her-
menn Idi Amins skildu eftir á sl.
ári.
Þetta geróist 2. rígúst
1974 — John Dean, fv. starfsmaður
Hvíta hússins, dæmdur i fangelsi
fyrir Watergate.
1945 — Ráðstefnunni í Potsdam
lýkur.
1943 — Elzti Kennedy-bróðir, Jos-
eph, ferst í flugvél yfir Belgíu.
1939 — Albert Einstein segir í bréfi
til Roosevelt forseta að Bandaríkin
ættu að hefja smíði kjarnorku-
sprengju.
1935 — Lögin um stjórnskipun
Indlands samþykkt í Bretlandi;
Burma og Aden skilin frá Indlandi,
fylki fá aukna sjálfstjórn og sam-
bandsþing stofnað.
1934 — Adolf Hitler verður einvald-
ur við lát Hindenburgs.
1928 — ítalir gera vináttusamning
til 20 ára við Eþíópíu.
1918 — Japanski herinn sækir fram
í Síberíu.
4858 — Brezka Kólumbía verður
krúnunýlenda — Brezka stjórnin
fær í hendur völd Austur-Indíu-fé-
lagsins.
1830 — Karl X af Frakklandi leggur
niður völd.
1824 — Tyrkir taka eyna Ispara af
Grikkjum.
1815 — Bretum falið að gæta
Napoleons Bonaparte sem er flæmd-
ur til St. Helenu.
1718 — Fjórveldabandalagið stofnað
i London.
1665 — Frakkar gera út leiðangur
gegn sjóræningjum í Túnis og Alsír.
1637 — Hollendingar reka Portúgali
frá Gullströndinni.
1592 — Bretar taka spænsku galeið-
una „Madre de Dios“ með farm að
verðmæti 850,000 pund.
1589 — Jacques Clemente,
Jakbobínumunkur, myrðir Hinrik
III Frakkakonung.
1552 — Lútherstrúarmenn fá trú-
frelsi í Þýzkalandi með Pasau-
sáttmála og Jóhann Friðrik af Sax-
landi og Filippus af Hessen látnir
lausir.
1031 — Ólafur konungur helgi
kistulagður.
47 f.Kr. — Cæsar sigrar Pharnakes
konung („Veni, vidi, vici“).
Afmæli. Edward A. Freeman, brezk-
ur sagnfræðingur (1823—1892) —
Arthur Bliss, brezkt tónskáld (1891
—) — Myrna Loy, bandarísk leik-
kona (1905 -).
Andlát. 1788 Thomas Gainsborough,
listmálari — 1849 Mehemet Ali af
Egyptalandi — 1921 Erico Caruso,
óperusöngvari — 1934 Paul von
Hindenburg, hermaður & stjórn-
málaleiðtogi.
Innlent. 1874 Stjórnarskrá tekur
gildi — 1801 f. Baldvin Einarsson —
1387 d. Ólafur kgr Hákonarson —
1714 f. Gunnar próf. Pálsson — 1899
d. Benedikt Sveinsson — 1907 d.
Benedikt Gröndal — 1817 Vinnu-
maður í Dalasýslu dæmdur til dauða
fyrir peningafals — 1874 Fyrsta mót
íslendinga vestanhafs — 1874 Þjóð-
hátíð í óskjuhlíð — 1883 Iðnsýninga
í Reykjavík — 1884 Þjóðfrelsisfélag-
ið stofnað — 1897 Hvítblái fáninn
fyrst dreginn að húni af kvenfélag-
inu í Reykjavík — 1907 Konungs-
glíman á Þingvöllum — 1924 Fyrst
flogið yfir Atlantshaf til íslands —
1926 Eyja finnst í Öskju — 1938 d.
Bjarni Þorsteinsson tónskáld —
1888 f. Pétur Ottesen — 1958 d.
Helgi Tómasson — 1974 Gengisfell-
ing — 1974 Brjóstmynd af Tómasi
Guðmundssyni afhjúpuð — 1975
Minnzt aldarafmælis íslandsbyggð-
ar í Kanada — 1978 Þyrluslys.
Orð dagsins. Ríkra manna brandar-
ar eru alltaf fyndnir — Thomas
Brown, enskur rithöfundur (1830—
1897).
Tveir unglinganna sem hafa dvaiist hér í boði Hestamannafélags
Akureyrar, — Kerstin Schmidt og Þórður Kárason frá Kasel í
Þýskaiandi. Ljósm. Emilia
Þýzkir unglingar
heimsækia Island
UNDANFARNAR þrjár vikur
hafa dvalist hér á landi 9
unglingar frá Kasel í Þýzka-
iandi. llnglingar þessir eru i
þýzkum reiðklúbbi þar sem
eingöngu eru hafðir islenzkir
hestar. Unglingarnir eru hér í
boði Hestamannafélags Akur-
eyrar og dveljast hjá fjölskyld-
um á Akureyri. Þegar þeir fara
héðan munu jafn margir is-
lenzkir unglingar fylgja þeim
og dvelja þrjár vikur hjá fjöl-
skyldum þeirra í Þýzkalandi.
Blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi við Kerstin Schmidt, einn
þátttakendanna frá Þýzkalandi:
„Þessi ferð hefur verið mjög
skemmtileg," sagði Kerstin, „ís-
land er dásamlegt land og það er
mjög gaman að ríða hér út því
landið er svo víða villt og
ósnortið. Fólkið hérna er mjög
vingjarnlegt og það hefur alls-
staðar verið tekið vel á móti
okkur. — Við fórum í einn
þriggja daga langan útreiðatúr.
Höfðu allir þrjá til reiðar og var
skipt um hesta á tveggja tíma
fresti. Það var farið í Fnjóskadal
og sofið þar í tjöldum. Eins
höfum við ferðast talsvert um
landið með rútubílum og komið
víða við.
Ég vona að þetta verði ekki í
síðasta skipti sem íslenzkir og
þýzkir unglingar heimsækja
hvern annann á vegum hesta-
mannafélaganna heldur verði
þessu haldið áfram."
Vegaþjónusta
F.I.B. um verslun-
armannahelgina
VEGAÞJÓNUSTA F.Í.B. um verslunarmannahelgina verður sem hér
segir:
F.Í.B. 2 í Húnavatnssýslu
F.Í.B. 3 Frá Reykjavík um Hvalfjörð.
F.Í.B. 4 Frá Reykjavík um Þingvelli og Grímsnes.
F.Í.B. 5 í Borgarfirði.
F.Í.B. 6 í Eyjafirði vestur úr.
F.Í.B. 7 Frá Hornafirði um Austfirði.
F.Í.B. 8 Frá Vík í Mýrdal til austurs og vesturs.
F.Í.B. 9 Frá Akureyri austur úr.
F.Í.B. 10 Frá Reykjavík um Hveragerði, Selfoss að Hvolsvelli.
Aðstoðarbeiðnum er hægt að koma á framfæri í gegnum eftirtalin
radio:
Gufunes radio
Akureyrar radio
Brúar radio
Hornafjarðar radio
Seyðisfjarðar radio
Nes radio
ísafjarðar radio
Siglufjarðar radio
sími 91-22384
sími 96-11004
sími 95-1111
sími 97-8212
sími 97-2108
sími 97-7200
sími 94-3065/3111
sími 96-71102/71104
Að auki er hægt að koma boðum með aðstoð talstöðvabifreiða úr
hjálparsveit F.Í.B. og F.R., sem auðkenndar eru með merkinu T í fram-
og afturrúðu.
Þeir, sem æskja aðstoðar vegaþjónustubifreiða, skulu gefa upp
skrásetningarnúmer og tegund bifreiðar, svo og staðsetningu. Nauðsyn-
legt er að fá staðfest, hvort vegaþjónustubíll fæst á staðinn.
Eftirfarandi bifreiðaverkstæði eru opin um verslunarmannahelgina í
samvinnu við F.Í.B.:
Selfoss:
Höfn Hornaf.:
Húsavík:
Siglufjörður:
V-Hún.:
Blönduós:
Snæfellsnes:
Akranes:
Símsvari F.Í.B.
Verkstæði Bílaleigunnar Arnberg, sími 99-8188
Smurstöð BP allan laugard. og kl. 13—16 sunnud.
og mánud.
Bifreiðaverkstæðið Foss h.f., sími 90-41345
Neisti, vélaverkstæði, sími 96-71303
Smurstöð Esso, sími 96-71158
Bifreiðaverkst. Ragnars Guðmundssonar,
dekkjaverkstæði, sími 96-71769
Birgir Björnsson, sími 96-71539
Vélaverkstæðið Víðir í Víðigerði, sími um 02
Vélsmiðja Húnvetninga, sími 95-4128
Bifreiðaverkst. Holt v/Vegamót
Bílaver Stykkishólmi
Bílaverkst. Jóns Þorgrímssonar, sími 93-2480
45999 er í gangi um helgina.
Samnorræn
ráðstefna
um almanna-
tryggingar
DAGANA 6. til 8. ágúst verður
haldin Norðurlandaráðstefna um
almannatryggingar i Iláskóla-
bíói. Ráðstefnan verður sett kl. 9
árdegis.
Ráðstefna sem þessi var fyrst
haldin í Kaupmannahöfn árið
1935 og síðan 1948 hafa verið
haldnar reglulega á fjögurra ára
fresti á Norðurlöndunum og er
hún haldin í annað sinn hér á
landi.
Umræður á ráðstefnunni fara
fram ýmist sameiginlega fyrir alla
þátttakendur eða skipt í deildir.
Fjallar ein deildin um efni, sem
þýðingu hafa fyrir margar trygg-
ingargreinar, en fjórar deildir,
hver um sig, um málefni, sem
sérstaklega varða fjórar höfuð-
greinar trygginga, lífeyristrygg-
ingar, slysatryggingar, sjúkra-
tryggingar og atvinnuleysistrygg-
ingar.
Hafa Norðurlandaþjóðirnar
lagt á það áherzlu að hafa allnáin
kynni af löggjöf og öðrum reglum
hverrar annarrar á sviði almanna-
trygginga.
Smásaga eftir
Þorgeir Þorgeirs-
son í Le Monde
FRANSKA blaðið Le Monde
birti i sunnudagsblaði sinu 27.
júlí sl. smásöguna „Jarðarfdr“
eftir Þorgeir Þorgeirsson, úr
smásagnasafni hans „Kvunn-
dagsfóík“. sem út kom 1974.
í neðanmálsgrein um höfundinn
segir, að hann sé einn af fremstu
rithöfundum íslendinga og er
þetta í fyrsta skipti sem verk hans
er þýtt á frönsku.
Þýðinguna gerði Gérard Lemar-
guis, lektor í frönsku við Háskóla
. íslands.
Þorgeir Þorgeirsson.
rithöfundur.
Kappreið-
ar Mána
9.-10. ágúst
HESTAMANNAFÉLAGIÐ Máni
á Suðurnesjum heldur opið
iþróttamót og kappreiðar á
Mánagrund dagana 9—10. ágúst.
Keppt verður í fjórgangi, fimm-
gangi og tölti, 800 metra stökki og
brokki, 350 metra stökki, 250
metra unghrossahlaupi, 250 metra
skeiði og 150 metra nýliðaskeiði.
Keppt verður á beinum grasvelli.
Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 6.
ágúst í síma 2711 og 7154 á
Suðurnesjum.