Morgunblaðið - 02.08.1980, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 02.08.1980, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. AGUST 1980 9 Jóhanna Kristjónsdóttir, blaðamaður: Kæri Ragnar. Eg hef veitt því eftirtekt, að alþýðubandalagsfólk hefur sér- staka unun af því að skrifast á í Þjóðviljanum. Eg hef ekkert bréf séð til þín lengi, svo að mér datt í hug að senda þér línu og vona þú forlátir að ég nota Moggann. Eg hef aldrei verið lagin að fást við tölur, var afleit í stærðfræði í menntaskóla, en ég lærði þó einhvern tíma að leggja saman og draga frá og í Kvennó tókst að kenna mér prósentureikning. Sömuleiðis fór ég úr foreldrahúsum með það veganesti, að maður ætti alltaf að borga öllum sitt og skulda sem allra minnst. Síðan sem sé verið að ströggla við Gjaldheimtuna varðandi þær krónur, það skyldi enginn gera, þá fær maður bara dráttarvexti í kaupbæti). Nú, nú. Við drögum 661 þúsund frá 790.862 = 139.862. Síðan er tekið af mér 21 þús. í lífeyrissjóð og lækkar upphæðin sem því nemur. Samt — hefði þetta gerzt, sæti ég eftir sæl og glöð með hvorki meira né minna en 110 þús. til ráðstöfunar. En nú hefur gjaldkerinn sagt mér að eftirvinnan mín í júlí hafi verið svo lítil og ég fái sem sagt útborgaðar krónur 36 þús- und krónur, þegar þú hefur fengið þitt, svo og lífeyrissjóð- urinn. bara ég og kötturinn — og náttúrlega pétur & páll. Mér er nú samt spurn, hvað við eigum að gera. Það verður semsé að gera ráð fyrir að fyrstu ágústdagarnir líði við afar takmarkaðar vell- ystingar. En veiztu hvað. Þann 10. ágúst fæ ég hvorki meira né minna en 150 þús. krónur send- ar úr Tryggingunum. Það fæ ég fyrir þann lúxus að vera ein- stætt foreldri með 2 börn. Ég rýk til, símsendi í snatri í sveitina 110 þús. borga hinum góða félaga skuldina af raf- magnsreikningnum og þá á ég vonandi eftir um 25 þúsund kr. Með höfuðið undir hendinni laumast ég inn í búðina til Sigurjóns. Gerum ráð fyrir að hann fallist á að taka þetta upp Bréf til fjármálaráðherra (Matthías má glugga í það líka): * w usaval FLÓKAGÖTU1 SÍMI24647 2ja herbergja Við Efstasund, Hverfisgötu, Krummahóla (bílskýli), Ljós- heima, Laugarnesveg, Leifs- götu og Öldugötu. Dalbraut 2ja herb. vönduö ibúö, svalir. Bflskúr. Jörö — Eignaskipti Jörö til sölu á Vatnsleiöslu- strönd. íbúöarhús 4ra herb. Hesthús og hlaða. Góöar sumarbústaöalóöir i landi jarö- arinnar. Aöstaöa fyrir útræði. Skipti á 3ja herb. íbúö æskileg. Jöró — Hestamenn Til sölu jörö í Stokkseyrar- hreppi. Öll grasi vaxin, hentar sérlega vel fyrir hestamenn. Helgi Ólafsson, löggiltur fasteignasali. Kvöldsími 21155. MÆTTI ÉG KOMA í MAT MEÐ KÖTTINN? hef ég verið þeirrar náttúru að skulda aldrei neitt að ráði né til lengdar, hleyp út um borg og bæ að borga pétri & páli skuldir mínar jafnótt og ég get. (Auð- vitað veit ég að þetta er afkára- legur hugsunarháttur í verð- bólguþjóðfélagi, en uppeldisá- hrifin láta ekki að sér hæða.) Og nú syrtir heldur betur í álinn, það er ekki nóg með að ég sjái fram á að geta ekki staðið í skilum við þá félaga, heldur og fram á hungurtíð. Það má auðvitað finna jákvætt atriði við það — ég hefði vel efni á að léttast um svona 4—5 kíló, en það er ekki víst að þeir pétur & páll láti sér það duga. En nú skal ég ekki orðlengja þetta frekar, heldur snúa mér að efninu, svona eftir krókaleið- um og hafðu reiknivélina til- búna, ef þú heldur að gamal- dagsreiknikúnst mín dugi ekki. Þú hefur sem sagt ákveðið, að ég eigi að greiða rúmlega 3,3 milljónir í skatta í ár. Vá, segja auðvitað saumaklúbbarnir. Ein- stæð móðir með tvö börn (og kött) sem borgar þvílíka upp- hæð hún hlýtur að vera æðis- legur milli. Sannleikurinn er dulítið öðruvísi. Á sl. ári voru tekjur mínar 8,6 milljónir hjá Árvakri, hvorki meira né minna en 3,500 krónur frá Ríkisút- varpinu og Rithöfundasjóður Islands sendi mér 15 þúsund fyrir jólin. Svo að mér reiknast til, þegar ég beiti prósentukunnáttunni, að þú ætlir að taka af mér 38,37%. Ekki slæmt það. Ef við förum út í að bæta við vandræðabótum frá Trygg- ingastofnuninni, sem heita mæðralaun, koma 348 þsund ti! viðbótar. Þessar bætur eru mér greiddar, vegna þess að ég er að hluta til öryrki, skv. túlkun Almannatryggingalaganna. Ef þú skilur þetta ekki, skal ég fræða þig á því, að Adda Bára sagði okkur hjá FEF, að mæðralaun hefðu verið reiknuð út á sínum tíma með hliðsjón af örorkubótum — einstæð móðir með tvö börn ætti það erfitt að stunda vinnu utan heimilis, að það jafngilti að hluta ororku. Svo að þú sérð að af öryrkja að vera er ég reglulega dugleg. En eins og þú veizt náttúrlega manna bezt — annars værirðu ábyggilega ekki fjármálaráð- herra — er hægt að leika sér með tölur. Á framtalseyðublað- inu er t.d. reitur sem heitir tekjuskattsstofn skv. 62. og 63. gr. og þá er gert ráð fyrir að vextir hafi verið dregnir frá. Eru þá í þessum dálki 7,8 milljónir, umreiknað í prósent- ur, að af mér séu tekin 42,31%. Þegar hér væri komið sögu, væri ég orðin svo hrokafull yfir því að vera viðlíka máttarstólpi, að ég mundi bjóða Pálma og Rolf í mat, ef ég uppgötvaði þá ekki fleiri sannindi, sem gera það óframkvæmanlegt að minnsta kosti í næstu framtíð, — j)rátt fyrir hátekjurnar. I fyrra fékk ég upphaflega 1300 þús. í skatta. Þá voru svokallaðar tekjur til skatts 5.676.992 milljónir, þ.e. skatt- heimtan var 22,9%. Þetta þótti mér sanngjarnt og sómi að geta lagt örlítinn skerf fram til uppbyggingar elsku verðbólgu- þjóðfélagsins. Síðan sá skatt- stofan ástæðu til að athuga mitt grunsamlega framtal síðar á árinu og bætti þá við hálfri milljón. Eftir ekkasog og bréfa- skriftir lækkaði upphæðin í 350 þús. svo að samtals greiddi ég 1650 þúsund eða 29,07% og þótti það eiginlega alveg nóg. Hækk- un á tekjum milli ára reiknast mér til að jafngildi 50,88% (dettur þér nokkuð í hug að ég hafi þurft svo sem fyrir þessu að hafa og það kynni að hafa komið fram í vanrækslu gagn- vart börnum og ketti?) en hins vegar ferð þú létt með að hækka skattana um 100%. Látum svo vera þótt ég geti ekki boðið Pálma og Rolf í mat, en ég verð samt að biðja þig að hjálpa mér að finna út úr þessari hringavitleysu. Athugum eftirfarandi: í föst laun hef ég 642.000.- kr. Svo kemur til álag sem var í sl. mánuði 9.632.- = 651.632.- í sl. mánuði vann ég litla nætur- vinnu um það bil 22 tíma (það þykir ekki mikið hér á bæ), og fékk fyrir það 139.230- = 790.862.- kr. Snotur tala sem gefur fyrirheit. En svo kemur Gjaldheimtan til sögunnar. Þú hefur skikkað hana til að taka af mér 661 þús. í skatta (skal tekið fram að þar er líka verið að ljúka við að taka af mér viðbótina frá fyrra ári. Ég hef Svo einkennilega vill til að á mínu heimili þarf að greiða hita og rafmagn, og ég var að fá reikning, sem þurfti að borga fyrir mánaðamót. Hef ekki greitt hann enn. Heldurðu ekki að ég hafi nefnilega verið að bíða þar til ég fengi útborgað! Ég er að hugsa um að nota þessar 36 þús. í orkureikninginn og slá einhvern velviljaðan að- ila um það sem vantar á. Þar með þurfum við kötturinn þó ekki að sitja í kulda og trekki í ágústmánuði, ofan á þær þreng- ingar, sem við sjáum fram á aðrar. Því að sagan er ekki öll: Mér tókst að koma 8 ára dóttur minni á fyrirtaks sveitaheimili, en ég þarf að greiða með henni 110 þús. krónur á mánuði. Sömuleiðis hef ég veitt mér þann munað að festa kaup á matvörum annað kastið fyrir mig, fjórtán ára gamlan son minn og köttinn. Ég hef stund- um látið skrifa þennan mat og ég þori ekki fyrir mitt litla líf að spyrja Sigurjón, hvað reikn- ingurinn sé hár. Ég ætla hann ekki undir 100 þús. og það er ég viss um Hallveigu þætti ekki mikið. Mínusinn er nú kominn í 210 þús. Svo er það afborgun af vaxtaaukaláni hjá Útvegs- bankanum, sem ég tók í febrú- ar, m.a. til að standa straum af eftirstöðvum kostnaðar við við- gerð á húsinu mínu frá í fyrra (ég bý í 100 ára gömlu húsi í gamla skipstjórahverfinu, svona húsi eins og ykkur vinstri mönnum þykir svo sjarmerandi og viljið vernda. Ég flottaði mig á því að láta setja á það nýtt bárujárn, gera við glugga, laga loft og endurnýja tvo ofna. Þetta kostaði 3 milljónir eða þar um bil og nú er kostnaður metinn til núllsins. Það er ég viss um það mælist ekki vel fyrir hjá okkur sem eigum gömul hús að ekki er tekið ögn tillit til þessa). Mínusinn hefur nú tekið stökk í 460 þús. Síðan skal ég gera þá játningu, að ég festi kaup á litsjónvarpi fyrr á árinu og borga af því 70 þús. á mánuði. Mínusinn 530 þús. Og mér er hætt að lítast á blikuna. En í þessu er ljósglæta: 14 ára sonur minn verður í brottu ágústmánuð, mér að kostnaðarlausu, svo að það er í skuldina og skrifa hjá mér nokkra ugga og ýsubein til mánaðamóta. Þá er eiginlega ekkert eftir nema Útvegsbanki og sjónvarpið. Og mér finnst leitt að geta ekki borgað bank- anum, því að mér hefur skilizt að ástandið þar væri ekki sér- lega beysið. Én hvað um það. Ég tala við ljúflinginn Bjarna Guð- björnsson og við Heimilistæki. Svo einbeitum við kötturinn okkur að því að níðast á ætt- ingjum og vinum til mánaða- móta. Þá skyldi maður ætla að við tæki sannkallað dýrðarlíf, því að þá 4 mánuði, sem eftir lifa ársins, ætlar Gjaldheimtan ekkj að taka af mér nema 410 þús. Segjum að ég hafi unnið eftir- vinnu eins og vitlaus væri í ágúst. Þá ætti ég að fá brúttó 842.000.- krónur. Já, það er von þér blöskri. En þá er að greiða Bjarna, og í lífeyrissjóðinn, og ég borga Sigurjóni. Segja mætti mér að fyrirmyndafyrirtækið Póstur og sími teldi þá tíma til kominn að senda mér kveðju. Dóttir mín er komin úr sveit- inni, fyrir skóladagheimilið hálfan ágúst (til að halda pláss- inu) og september reiði ég fram alténd 60 þús. Þá á ég eftir 316 þús. Enn er eftir að borga af sjónvarpinu og um þessar mundir fellur á mig víxill í Iðnaðarbanka, lokagreiðsla kr. 70 þús. Síðan þarf ég að grynnka á skuld sem ég stofnaði mér í vegna enn eins afkvæmis míns, sem er komið af meðlags- aldri og ég er viss um að þú skilur það. Að þessu búnu reiknast mér til að eftir standi 74 þúsund. Og nú er fjöldi heimilismanna aftur orðinn eins og áður, skólar að hefjast og vísast ég þurfi að kaupa einhverjar flíkur og kannski skólabækur, og nokkurn veginn get ég gengið út frá því sem vísu, að krakkarnir vilji fá eitthvað að borða. Svo tekur við annar mánuður, sá þriðji, og loks jóla- mánuðurinn. Heldurðu ekki, að það sé ástæðá fyrir mig að fara bara strax að hlakka til jól- anna? Finnst þér þetta vera lúxuslif hátekjukvendis? Þú sérð kannski í þessu smugu, af því að þú ert ráðherra og ég bið þig lengstra orða að benda mér á hana. 29555 Opid um helgina og á kvöldin alla vikuna. Einstaklingaíbúö — Engjasel 35 ferm. Verö 18 millj. Kjartansgata 40 ferm. kjallari. 37 ferm. bílskúr Verö 21 millj. Útb. 15 millj. 2ja htrb. íbúöir Asparfell 60 ferm. Verö 26 millj. Skipti á einbýlishúsi eöa hæö í Grindavík eöa Keflavík koma til greina. Laufésvegur 60 ferm. Verö 26 millj. Laugavegur 75 ferm. jaröhæö. Verö tilboö. /Esufsll 60 ferm. verö 25 millj. Hverfisgata 55—60 ferm verzlunarhúsnæöi, má breyta í fbúö. Jaröhæö. 3ja herb. Kérastígur 75 ferm. jaröhæö. Sér inngangur Allt endurnýjaö Verö tilboö. Miövangur 97 ferm. Verö tilboö Sörlaskjól 90 ferm. kjallari. Verö 31 millj. Útb. tllboö. Laskjarkinn Hafnarfiröi 78 ferm. sérhæö á 2. haaö. Verö tilboö. Graanakinn Hafnarfiröi 80 ferm. sérhæö Verö tilboö. Viöimelur 75 ferm. Verö 35 millj. Vesturberg 80 ferm. Verö 32 millj. 4ra harb. Baröavogur 100 ferm. risíbúö. Verö tilboö. Dunhagi Endaíbúö á 4. hæö. Verö tilboö. Eyjabakki 115 ferm. brúttó. verö tilboö. Fellsmúli 90 ferm. sér-jaröhæö Verö tilboö. Hrafnhólar 117 ferm. Verö 40 millj. Krummahólar 100 ferm. Verö 47 millj. Kríuhólar 125 ferm Verö 38 millj. Suóurhólar 115 ferm brúttó. Verö 40 millj. Skipti koma til greina á góöri 2ja herb. íbúö. Skeljanes 100 ferm. rishæö. Lítiö undir súö. Stór eignarlóö. Verö 26 millj. 5—6 harb. Gunnarsbraut 117 ferm. hæö. 4ra herb. rish. 37 ferm. bílskúr. Verö tilboö. Sérhæö í Mosfellssveit 5—6 herb. 140 ferm. hæö og ris í tvíbýlishúsi Verö 47 millj. Mévahléö 4ra herb. 140 ferm. og 20 ferm. í kjallara. Ðílskúrsréttur. Verö 60 millj. Útb. 42 millj. HNöar 5 herb. 110 ferm. Bílskúrsréttur Verö tilboö. Stekkjarkinn 4ra—5 herb. hæö og ris. 170 ferm. BAskúrsréttur. Verö 55 millj. Útb. 35 millj. Einbýlishús Reykjabyggó Mosfellssveit 5 herb. 195 fem einbýli — tvíbýli. BAskúr. Möguleikar á tveimur fbúöum. Verö 60 millj. Hús á byggingarstigi Bugóutangi Mosfellssveit 300 ferm tæplega fokhelt einbýli á tveimur hæöum. Stekkjarsel 200 ferm. hæö í tvíbýli. tilboö. Eignir úti á landi Bolungarvík — Dalvík, Djúpavogi, Hverageröi, Höfn í Hornafiröi, Selfossi. Stokkseyri, Vogum, Þorlákshöfn. Sumarbústaöalóöir í Grtmsnesi. Uppl. á skrifstofunni. Eignanaust, Laugavegi 96, við Stjörnubíó Sölustjóri: Lárus Helgason, Svanur Þór Vilhjámsson hdl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.