Morgunblaðið - 02.08.1980, Síða 22
2 2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1980
Háskóli islands
Sýningu á málverka-
safni HÍ að ljúka
SUNNUDAGINN 3. ágúst n.k. lýkur sýningu á málverkasafni Háskóla
Islands á verkum, sem hjónin Ingibjörg Guðmundsdóttir og Sverrir
Sigurðsson gáfu Háskólanum.
Sýningin er í Hátíðarsal skólans og er opin í dag og á morgun frá kl.
14 til 18.
Á sýningunni eru 95 málverk, þar af 70 eftir Þorvald Skúiason.
Bústaöakirkja
Sænskur
kvennakór
Dr. Edward Pálmi Pálmason.
SÍÐDEGIS í dag, kl. 17.00, heldur
sænski kvennakórinn, Swedish
Women’s Chours, frá Seattle í
Bandaríkjunum, hljómleika í
Bústaðakirkju. Kórinn er á
hijómleikaferð til Danmerkur og
Svíþjóðar. Með í ferðinni sem
gestur kórsins er Vestur-íslend-
ingurinn dr. Edward Pálmi
Pálmason, þekktur tenórsöngvari
í Seattle og nágrenni, sem syngja
mun einsöng á hljómleikunum
með kórnum og mun hann að auki
syngja nokkur einsöngslög. Dr.
Edward er læknir að mennt, en
hann hóf söngferil sinn við Há-
skólann í Washington. Samhliða
læknisstörfum hefur hann sungið
á norrænum tónlistarhátíðum
vestan hafs, svo og með Seattle
Opera, og sinfóníuhljómsveit-
unum í Spokane, Vancover og
Oregon og auk þess sungið einsöng
við fjölda annarra tækifæra.
Klúbbur eff ess
Jazz, pizzur o.fl. á boð-
stólum um helgina
KLÚBBUR eff ess í Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut verður
opinn eins og venjulega um verzlunarmannahelgina. Á sunnudagskvöld
leikur Guðmundur Steingrímsson og hljómsveit. Klúbbur eff ess er
opinn frá kl. 20 til 01 og eru þar á boðstólum pizzur og sjávarréttir.
Dagur í
I DAG 2. ágúst opnar Dagur
Sigurðsson sýningu í Gallerí
Djúpinu, Hafnarstræti 15. Á sýn-
ingunni eru 24 myndir, flestar
unnar með akrýllitum á pappír.
Þær eru frá siðustu þremur árum.
Dagur sækir myndefni sitt aðal-
lega í þjóðsögur, en einnig eru á
Djúpinu
sýningunni landslagsmyndir og
„erotískar" myndir.
Sýningin stendur dagana 2. til
13. ágúst að báðum dögunum
meðtöldum og er opið frá kl. 11 til
23 daglega. Flestar myndanna eru
til sölu. Dagur hefur sýnt nokkr-
um sinnum áður í Reykavík.
3 listamenn opna sýningu
að Kjarvalsstöðum samtímis
Sveinn Björnsson
SVEINN Björnsson opnar nú í
dag ásamt Sigfúsi Haildórssyni
og Nínu Gautadóttur málverka-
sýningu að Kjarvalsstöðum.
Sveinn hefur málað frá árinu
1964, og lærði við akademíuna í
Kaupmannahöfn.
Hann hefur verið mikið til
sjós, en er nú rannsóknarlög-
reglumaður. Sveinn á margar
sýningar að baki sér, en sú
síðasta var haldin í Kaupmanna-
höfn árið 1978. Sýningin er opin
frá 14. til 22. alla daga og
stendur frá 2. ágúst til 24. ágúst.
Nína Gautadóttir
NÍNA Gautadóttir er meðal
þeirra þriggja listamanna sem
opna sýningu á verkum sínum að
Kjarvalsstöðum í dag. Þetta er
fyrsta sýning Nínu hérlendis, en
hún sýnir veggskúlptúr. Á sýn-
ingunni eru 13 verk sem eru gerð
á árunum 1975 til 1980.
Nína lærði í listaskóla í París,
þar sem hún er einnig búsett nú.
í myndir sínar notar Nína aðal-
lega netagarn og hamp. Öll
verkin eru til sölu.
Sýningin er opin alla daga frá
14 — 22 og stendur frá 2. ágúst
til 24. ágúst.
Sigfús Halldórsson
í DAG opnar Sigfús Halldórsson
málverkasýningu að Kjarvals-
stöðum. Sigfús er landslýð kunnur,
ekki aðeins vegna málverkanna
heldur einnig vegna tónlistarinnar.
Hann mun gleðja gesti sýningar-
innar með tonlist, og mun hann fá
til sín góðkunna söngvara, s.s.
Guðmund Guðjónsson.
Sigfús byrjaði að læra að mála 16
ára gamall, og lærði þá hjá Birni
Björnssyni (Bangsa) og Marteini
Guðmundssyni. Árið 1944 fór hann
til Englands og lærði leiktjalda-
málningu, auk þess sem hann tók
húsamálun sem aukafag.
Þetta er þriðja sýning hans um
Reykjavík og eru alls 84 málverk á
sýningunni, þar af 52 til sölu.
Á næstunni mun vera væntanleg
á markaðinn bók um Sigfús, sem
heitir „Sigfús Halldórsson opnar
hug sinn“, og mun hann árita
bókina fyrir þá sem skrifa sig á
lista á sýningunni.
Einnig mun vera hægt að fá
sönglögin hans keypt.
Sýningin er opin alla daga frá
14—22 og stendur frá 2. ágúst til
24. ágúst.