Morgunblaðið - 15.08.1980, Síða 1
182. tbl. 68. árg.
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ólgan berst
til Gdansk
Varsjá. 14. ágúst — AI*.
ÓLGAN meðal verkamanna i Póllandi heldur áfram <>k i daK bárust
fréttir um ný verkföll i borKunum Gdansk, Wroclaw <>k útborK Lodz.
Alexandrow Lodzki. Sjálfsvarnarnefnd andófsmanna. Kor. saKÓi að
verkamenn i skipasmíðastöð i Gdansk hefðu laKt niður vinnu til að
mótmæla brottrekstri önnu Walentynowicz. sem var fulltrúi í verkfalls-
nefnd í óeirðunum 1970.
Verkfallsmenn kusu nefnd til að
ræða við stjórn skipasmíðastöðvar-
innar. Óeirðirnar 1970 hófust í
þessari skipasmíðastöð.
Verkfallsmenn í Gdansk krefjast
þess, að verkfallsnefnd þeirra njóti
fullrar verndar, að nýjar kosningar
fari fram í verkalýðsfélögum og
lífeyrir verði hækkaður. Þeir krefj-
ast einnig endurráðningar Andrej
Kolodziej, sem hefur tekið þátt í
störfum verkfallsnefnda.
Þess er einnig krafizt, að reist
verði minnismerki yfir verkfalls-
menn, sem biðu bana eða slösuðust
1970. Verkamenn munu hafa mynd-
að nefndir til að sjá um mannvirki í
skipasmíðastöðinni. Flestir starfs-
mennirnir eru þar saman komnir.
Háttsett nefnd
Rússa í Kabul
Carter fagnar sigri
Carter forseti fagnar tilnefningu sinni. þar sem hann fylgist með landsþinKÍ demókrata í sjónvarpi á
hóteli í New York. Með honum eru Robert Strauss, sem stjórnar kosninKabaráttu forsetans, og Esther
Peterson, ráðunautur Hvíta hússins í neytendamálum.
Nýju I)flhi. 14. ágúst. AP.
NEFND háttsettra Rússa er komin til Kabul <>k það Kefur til kynna að
hafin sé meiriháttar endurskoðun á umsvifum þeirra i landinu að
sögn vestrænna diplómata í dag.
Hreyfanlegri fjarskiptastöð hefur verið komið fyrir í gestahúsi, þar
sem Rússarnir gista, en það gerðist síðast þremur vikum fyrir
innrásina i desember í fyrra.
Heimildirnar herma, að Rússar
kunni að vera óánægðir með
viðureignina við skæruliða til
þessa.
Rússar og afghanskir stuðn-
ingsmenn þeirra ráða enn Kabul,
Jalalabad og þjóðvegum, en
hrjóstrug landsbyggðin er á valdi
skæruliða og barizt er um Herat.
Nefnd vestrænna lækna og sjúkra-
liða varð að fara frá Herat á
þriðjudaginn vegna ástandsins
þar.
Árásir hafa nýlega verið gerðar
á herflutninga- og birgðalestir
Rússa í þremur héruðum lengst í
norðvestri, Badakshan, Tahar og
Kunduz. Sovézkt herlið hefur ný-
lega lokað 20 km breiðum land-
skika sem teygir sig eins og fingur
austur á bóginn til Kína norður af
Pakistan. Kínverjar, Bandaríkja-
menn og aðrir eru sakaðir um að
smygla hergögnum eftir landskik-
anum til skæruliða.
Bardögum virðist lokið í héruð-
unum Wardak og Ghazni suður af
Kahul eftir uppreisn afghanskra
hermanna. Staðfest er, að allt að
3.000 menn hlupust undan merkj-
um í Ghazni fyrir þremur vikum,
tóku með sér vopn og gengu í lið
með skæruliðum. Bardagarnir við
liðhlaupana geisuðu í héraðinu
Wardak.
Miklar breytingar hafa orðið á
hernaðaraðferðum Rússa og
stjórnmálastefnu þeirra í Afghan-
istan, en breytingarnar hafa vald-
ið erfiðleikum samkvæmt heimild-
Carter beinir skeytum
sinum að repúblikönum
New York. 14. áKÚst. AP.
EDWARD Kennedy öldungadcildarmaður ákvað í daj;
að beiðni Jimmy Carters íorseta að koma fram með
honum ojí Walter Mondale varaforseta til að sýna fram
á einingu í lok landsþinKs demókrata. Uetta er
hápunktur vikulangra sátta í kjölfar níu mánaða
harðrar og stundum beiskrar baráttu Kennedys og
Carters.
Carter gerði harða hríð að
Ronald Reagan og repúblikönum
þegar hann vann að undirbúningi
útnefningarræðu sinnar í dag og
kvaðst hlakka til að berjast við
„óábyrga" repúblikana. Hann
kvað repúblikana klæðast sam-
festingi á fjögurra ára fresti, en
með vanmati á kjósendum mundu
þeir uppskera sorgarkranza í nóv-
ember.
Hann sagði, að hann hefði haft
„náið og vinsamlegt" samband við
Kennedy þrátt fyrir nokkurn
ágreining í vissum málum og í
forkosningunum. Hann sagði, að
nú hefði þessi ágreiningur verið
leystur og greindi frá því að hann
Var tvífari Oswalds
grafinn i hans stað?
DhIIh.s, 14, áKÚKt.AP.
CHARLES Petty, réttarlæknir í Dallasiimda mi. sagði í dag að
hann ætlaði að rannsaka lík Lee Harvey Oswald, sem var ákærður
um að myrða John F. Kennedy forseta, en brezkur rithöfundur,
sem hefur barizt fyrir þessu sagði. að nokkrir lagakrókar stæðu
ennþá í vegi fyrir því, að þetta yrði hægt.
Með rannsókninni verður
reynt að skera úr um hvort það
er raunverulega Oswald sem
hvílir í gröfinni, eða tvífari hans.
Petty sagði, að hann mundi
framkvæma rannsóknina fyrir
brezka rithöfundinn Michael
Eddowes, sem hefur barizt fyrir
því árum saman, að líkið verði
grafið upp og segir, að líkið sé af
rússneskum njósnara, sem kom
til Bandaríkjanna 1962 og þótt-
ist vera Oswald.
Lee Harvey Oswald fór til
Sovétríkjanna 1959 og sótti einu
sinni um rússneskan ríkisborg-
ararétt áður en hann sneri aftur
til Bandaríkjanna 1962 ásamt
rússneskri eiginkonu.
Blaðið Dallas Morning News
segir, að röntgenmyndir hafi
verið teknar af tönnum Oswalds
1958 og þær megi nota til að bera
kennsl á líkið. Eddowes hélt því
fram í fyrra, þegar hann krafð-
Lee Harvey Oswald
kannski tvifari hans?
ist þess fyrst að líkið yrði
rannsakað, að það væri tveimur
þumlungum styttra en mælingar
á Oswald frá herþjónustuárum
hans sýndu.
Eddowes staðfesti í viðtali við
AP, að nokkrar lagalegar hindr-
anir stæðu ennþá í vegi, en vildi
ckki gera grein fyrir þeim.
Hann vildi ekki svara því,
hvort hann hefði dómsúrskurð,
sem getur reynzt nauðsynlegur
til að grafa upp líkið. Hann sagði
aðeins, að ef hindrununum yrði
ekki rutt úr vegi innan eins
sólarhrings yrði að hætta við að
grafa upp líkið að sinni.
hefði talað við Kennedy nokkrum
sinnum í síma í dag, þótt tilraunir
til að koma í kring fundi með
honum hefðu ekki tekizt.
Forsetinn spáði því, að demó-
kratar mundu sigra í nóvember
með einhverri „sameinuðustu og
markvissustu kosningabaráttu" í
sögu Bandaríkjanna. Hann sagði,
að breitt bil væri milli repúblik-
ana og demókrata og þjóðin mundi
taka óafturkræfa grundvallar-
ákvörðun um þróunina út öldina í
kosningunum.
Carter sagði, að árangur sinn á
þingi væri meiri en annarra for-
seta demókrata, þar á meðal F.D.
Roosevelts og L.B. Johnsons. For-
setinn sagði þetta i ræðu með
stuðningsmönnum í Plaza-hóteli á
fundi til undirbúnings formlegri
útnefningu á flokksþinginu.
Ronald Reagan sagði í yfirlýs-
ingu í dag að Kennedy hefði mælzt
vel i ræðu sinni á þingi demó-
krata, en málið snerist fyrst og
fremst um Carter. Þetta voru
fyrstu opinberu viðbrögð hans við
atburðum á flokksþinginu.
Ferja rauf
hafnbann
Le Havre, 14. ágúst. AP.
ENSKA ferjan Jaguar ruddist i dag
grgnuni röð fiskiháta. sem hafa
lokað höfninni i Le Havre. olli
skemmdum á togara og addi inn í
höfnina með fiskihátana á hælun-
um.
Hættulegur eltingaleikur tók við á
10 hnúta hraða á klst. Ferjan gat
ekki lagzt að bryggju og hörfaði að
lokum út á rúmsjó.
Franski flotinn hafði áður skorið á
legufæri tíu til tuttugu báta til að
reyna að rjúfa hafnbannið.