Morgunblaðið - 15.08.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1980
3
SÍS hætt fram-
leiðslu á kexi
„MEÐ síauknum innflutningi á
kexi gekk þetta einfaldlega ekki
lengur <>k við ákváðum því að
hætta starfrækslu verksmiðjunn-
ar um óákveðinn tíma," sagði
Hjalti Pálsson, framkvæmda-
stjóri innflutningsdeildar Sam-
bands íslenzkra samvinnufélaga,
er Mbl. innti hann eftir ástæðum
þess, að kexverksmiðja Sam-
bandsins. Holtakex, hætti störf-
um sl. vor.
„Við höfum hins vegar ekki
gefið upp alla von og um þessar
mundir fer fram gagnger skoðun á
því, hvort einhver grundvöllur sé
fyrir áframhaldandi rekstri. Það
myndi bæta veruiega okkar stöðu
meðan við erum að ná fótfestu, ef
til framkvæmda kemur umræddur
35% verndartollur á innflutt
sælgæti.
Annars fer það ekkert á milli
mála, að hin mikla sala á erlendu
kexi, er að einhverju marki nýja-
brum, sem fer af með tímanum.
Þá get ég ekki ímyndað mér að
hinir stóru erlendu framleiðendur
séu neitt spenntir fyrir því, að
skipta þessum litla markaði á
milli sín. Hér á landi var heildar-
neyzlan á kexi aðeins um tvö
þúsund tonn á síðasta ári og af því
framleiddu íslenzku aðilarnir lið-
lega þriðjung," sagði Hjalti.
Aðspurður um hvort ekki hefði
komið til uppsagna starfsfólks
sagði Hjalti það ekki hafa komið
til, starfsfólkinu hefði verið dreift
á aðrar deildir til afleysinga yfir
sumarið. Auk þess hefði starfsfólk
verksmiðjunnar ekki verið mjög
fjölmennt fyrir, eða 11 manns, því
hún væri mjög sjálfvirk og full-
komin í alla staði.
Tívolíið komi i Laugardalinn
Færeyingunum fyrir-
skipað að halda heim
Sýningin Heimilið ’80 verður formlega opnuð í Laugardalshöll eftir nákvæmlega viku, föstudaginn
22. ágúst. Sem fyrr er það fyrirtækið Kaupstefnan, sem stendur að viðamikilli sýningu þar í húsinu
og nágrenni þess. Meðal nýmæla á sýningunni er tívolí, sem vafalaust mun njóta vinsælda. Myndin
var tekin í gær þegar verið var að flytja tívolítækin af geymslusvæði Hafskips (gamla
Tívolísvæðinu!) og inn í Laugardal. Ljósm. Mbi. Emiiía.
Könnun Kaupmannasamtakanna:
20 verslanir áttu
10 tonn af kjöti
FÆREYINGAR höíðu í gær
veitt rúmlega 100 tonnum meira
hér við land en þeim var leyfi-
legt samkvæmt samningi íslend-
inga og Færeyinga. Síðdegis í
gær var iesin tilkynning í fær-
eyska útvarpinu til færeyskra
skipa á íslandsmiðum um að
þau skyldu þá þegar hætta
veiðum og halda heim á leið.
Færeyingar höfðu heimild til
að veiða 17 þúsund tonn af
bolfiski hér við land, þar af 6
SLYS varð um borð i skuttogar-
anum Bjarna Benediktssyni RE
í fyrrinótt, en 22 ára gamall
piltur varð þá með hendi á milli
er hleri losnaði úr festingu.
Slasaðist hann alvarlega á
hendi og að höfðu samráði við
lækna á Borgarspítalanum var
Varnarliðið beðið um að senda
þúsund tonn af þorski. í gær voru
hér við land 11 færabátar og 2
línubátar, en færeyskir togarar,
sem voru hér við land, héldu
heim fyrr í vikunni. Norðmenn
fylltu sinn kvóta í síðari hluta
júlímánaðar og héldu þá heim á
leið. I gær voru 2 belgísk fiski-
skip að veiðum undan Suðurland-
inu, en þau eiga enn eftir að
veiða talsvert upp í kvóta sinn,
samkvæmt upplýsingum Land-
helgisgæzlunnar.
þyrlu til að sækja hinn slasaða um
borð í togarann.
Þyrlan lagði af stað í fyrstu
skímu um klukkan 5 í gærmorgun
og var togarinn þá staddur 20
mílur frá Keflavíkurflugvelli.
Sjúklingurinn var síðan kominn
undir læknishendur klukkan 6.15 í
gærmorgun.
— þar a.f átti
ein 7 tonn
í KÖNNUN, sem skrifstofa Kaup-
mannasamtaka íslands gerði i
gær á birgðum af dilkakjöti f
smásöluverslunum í Reykjavik,
kom fram að i þeim 20 verslunum,
sem valdar voru af handahófi,
reyndust vera til um 10 tonn af
dilkakjöti, „eða svona i visitölu-
máltíð handa viðskiptavinunum,"
segir i frétt frá Kaupmannasam-
tökunum. Af þessum 10 tonnum
átti ein verslunin, sem könnunin
tók til alls 7 tonn.
Könnunin var framkvæmd með
þeim hætti að valdar voru af
handahófi 20 smásöluverslanir og
voru það allt kaupmannaverslanir
nema ein, sem er í eigu Sláturfé-
lags Suðurlands. Könnunin náði
ekki til verslana KRON. Verslan-
irnar voru spurðar að því hve
miklar birgðir af kjöti þær ættu og
af hvaða flokkum þær væru. Einnig
var spurt, hvort verslunin hefði
fengið það kjöt, sem hún hefði
beðið um.
Fram kom að tvær af þessum 20
verslunum áttu ekkert kjöt. Fimm-
tán verslanir áttu ekkert af
stjörnuflokki, ekkert af fyrsta
flokki, ekkert af öðrum flokki en
eitthvað af þriðja flokki. Ein versl-
un átti örlítið af öðrum flokki, og
tvær svolítið af öllum þremur
verðflokkunum. Tvær verslanir
höfðu ekkert kjöt fengið þrátt fyrir
beiðnir um kjöt og fimm höfðu
fengið treglega eitthvað af öðru
kjöti en þriðja flokki. Þrettán
verslanir höfðu fengið það sem þær
báðu um af þriðja flokki.
Bankamenn
leita til sátta-
semjara
SAMBAND íslenzkra hanka-
manna hefur óskað eftir milli-
göngu rikissáttasemjara i kjara-
deilu sambandsins við banka og
sparisjóði. Á sameiginlegum
fundi stjórnar, varastjórnar,
samninganefndar og formanna
aðildarfélaga í fyrradag, þar sem
samþykkt var að vísa málinu til
rikissáttasemjara var ennfremur
samþykkt að timahært væri að
hefja undirhúning verkfalls
bankamanna. sem yrði, ef af
verður. í fyrsta skipti, sem
bankamenn fara í verkfall.
Kjarasamningar bankamanna
hafa verið lausir frá 1. október
1979. Í fréttatilkynningu frá
bankamannasambandinu segir að
síðla vetrar og í sumar hafi
deiluaðilar setið nokkra samn-
ingafundi og samninganefnd
bankanna lagt fram 15. júlí sl.
formlega tillögu að nýjum kjara-
samningi, þar sem undan eru
skilin mánaðarlaun, verðbóta-
ákvæði og gildistími. „Tilboð þetta
er algjörlega óaðgengilegt að dómi
samninganefndar Sambands ís-
lenzkra bankamanna og gefur ekki
tilefni til frekari viðræðna við
samninganefnd banka og spari-
sjóða í óbreyttu formi,“ segir í
fréttatilkynningunni.
3 sölur ytra
ÞRJÚ fiskiskip lönduðu afla sín-
um í Bretlandi og V-Þýzkalandi í
gær. Erlingur GK seldi 86 tonn f
Bremerhaven fyrir 43,6 milljónir
króna, meðalverð 507 krónur.
Hlein ÁR seldi 20 tonn í Fleet-
wood fyrir 12,8 milljónir, meðal-
verð 636 krónur. Þorlákur ÁR
seldi 140,7 tonn í Hull fyrir 84,1
milljón, meðalverð 598 krónur.
Karl Steinar Guðnason:
„Tilræði við íbúa Suðurnesja“
„ÞETTA ER hreint tilræði við
ibúa Suðurnesja. Mér sýnist
Gunnar Thoroddsen ætla að
falla i þá gryfju að láta stjórn-
ast af annarlegum hvötum
kommúnista" sagði Karl Stein-
ar Guðnason formaður Verka-
lýðs- og sjómannafélags Kefla-
vikur, er Mbl. spurði hann álits
á umfjöllun forsætisráðherra
og ríkisstjórnarinnar á flutn-
ingi oliugeyma af svæði varn-
arliðsins i Keflavík yfir i Helgu-
vik, og byggingu oliuhafnar
þar. Þá sagði Karl Steinar:
„Á undanförnum árum hafa
bæjarstjórnir og íbúar á Suður-
nesjum bent á þá gífurlegu
hættu sem vatnsbólum okkar
stafar af olíugeymunum, því
tankarnir eru orðnir 30-40 ára
gamlir og voru á sínum tíma
reistir til bráðabirgða. Við erum
þess einnig fullviss, að mengun
hefur nú þegar átt sér stað frá
geymunum. Á okkur var ekki
hlustað fyrr en Benedikt Grön-
dal varð utanríkisráðherra og lét
skipa nefnd til að fjalla um
málið. í nefndinni var rætt um
kostnaðarskiptingu, staðsetn-
ingu o.fl. og niðurstaða hennar
Líkast til að koma í ljós, hvers vegna at-
vinnumál á Suðurnesjum heyrðu und-
ir utanríkismál i stjórnarsáttmálanum
var sú, að bezta staðsetning
tankanna væri í Helguvík,
skammt norðan Keflavíkur, og
að þar yrði einnig olíuhöfn. Það
er brýnt, að nú þegar verði
hafist handa og mætti þegar í
stað hefja ýmsar undirbúnings-
framkvæmdir og jarðvegskann-
Karl Steinar Guðnson
anir. Bæjarráðin hafa á ný
krafist aðgerða og það má einnig
benda á, að tankarnir eru fyrir
skipulagi byggðar í Keflavík og
einnig er þetta brýnt öryggis-
mál.“
— Hver er afstaða þín til nýrrar
flugstöðvarbyggingar?
„Bygging nýrrar flugstöðvar
er einnig brýn að mínu mati. Ný
flugstöð mun aðskilja farþega-
flug og herflug. Þá eru núver-
andi byggingar engan vegin
mannsæmandi. Þeim rökstuð-
ningi, að ekki liggi á þessari
framkvæmd vísa ég til föðurhús-
anna, þó flugmálin okkar séu í
öldudal í dag, þá er ég þess
fullviss að þar á eftir að verða
breyting á. Einnig kemur að því,
að leggja verður Reykjavíkur-
flugvöll niður og þá flytzt inn-
anlandsflug til Keflavíkur, það
væri fásinna að byggja nýjan
völl. Kostnaðarskipting er fyrir-
liggjandi, og það væri vel hægt
að hefja framkvæmdir sem
varða plön, leiðslur að bygging-
unni o.fl., sem Bandaríkjamenn
eiga að kosta.“
Þá sagði Karl Steinar, að það
væri líkast til að koma í ljós,
hvers vegna atvinnumál á Suð-
urnesjum heyrðu undir utanrík-
ismál í stjórnarsáttmálanum.
„Það er oft sagt, að við Suður-
nesjamenn séum háðir varnar-
liðsvinnunni. En eitt er víst, það
breytist ekki á meðan stjórnvöld
gera allt til að kyrkja atvinnulíf-
ið hér og má þar minna á afstöðu
sjávarútvegsráðherra í sam-
bandi við hagræðingarlán Fisk-
veiðasjóðs. Hann lagði til, að þau
ættu að renna einhliða til
þriggja frystihúsa á Patreks-
firði, Djúpavogi og Siglufirði.
Fiskveiðasjóður lét hann þó ekki
segja sér fyrir verkum og deildi
upphæðinni til átta aðila. Tvö
frystihús i Grindavík fengu að-
eins 40 millj. kr. af heildarupp-
hæðinni. Það er fásinna, að
ríkisstjórnin sé að stefna að því
að gera okkur óháða, en við
bíðum enn eftir þessu sérstaka
átaki í atvinnumálum okkar, þó
þeir telji það utanríkismál,"
sagði Karl Steinar í lokin.
Slasaðist alvarlega
um borð í skuttogara