Morgunblaðið - 15.08.1980, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1980
Árvisst að sumar-
gotssíldin gengi norð-
ur fyrir 20 árum
HAFRANNSÓKNASTOFNUN
hefur ekki fylgst nákvæmleKa
með síldarRönKum íyrir Norð-
Verð á ísl.
kartöflum
lækkar eft-
ir helgi
l>/ER erlendu kartöflur. sem
Grænmetisverzlun landhúnaA
arins hcfur haft á boðstólum
sfðustu vikur eru nú að verða
húnar að sögn Jóhanns Jónas-
sonar, forstjóra Græmetisversl-
unarinnar. Vcrða síðustu er-
lendu kartöflurnar sendar í
verslanir nú fyrir helgina.
Óvíst er hins vegar hversu
lengi þær verða til sölu í versl-
unum. Sem kunnugt er hafa
þessar erlendu kartöflur verið
verulega ódýrari heldur en nýjar
íslenskar kartöflur. Nóg fram-
boð er nú orðið á íslenskum
kartöflum og er gert ráð fyrir að
verð þeirra lækki, að sögn Jó-
hanns, strax eftir helgina.
Jóhann sagði, að mikil sala
hefði verið á erlendu kartöflun-
um og á tveimur dögum í síðustu
viku hefði Grænmetisverslunin
selt jafn mikið af þessum kart-
öflum og venjulega er selt á
heilli viku. „Þær íslensku kart-
öflur, sem við höfum fengið fram
að þessu hafa verið heldur smá-
ar og er þar um að kenna
þurrkunum í sumar . Kartöflur
bæta hins vegar verulega við sig
nú vegna vætunnar," sagði Jó-
hann.
urlandi undanfarið, en talsvert
hefur verið veitt af síldinni í
Eyjafirði, Skagafirði og víðar. í
fyrra höfðu Norðlendingar á
orði að aldrei hefði sést annað
eins magn af þessari síld eins og
þá, en i ár taka þeir jafnvel enn
sterkar til orða.
Jakob Jakobsson, fiskifræðing-
ur, sagði í samtali við Mbl. að
þarna væri um Suðurlands- eða
sumargotssíld að ræða. Hún
gengi norður fyrir land í ætisleit
að lokinni hrygningu í júlímán-
uði, en síðan aftur suður fyrir
land þegar hausta tæki fyrir
norðan. Jakob sagði, að þessar
göngur væru ekki nýtt fyrir-
brigði, en hins vegar hefðu þær
legið niðri í nokkur ár meðan
stofninn var með minnsta móti.
Hann sagði, að þessar göngur
norður fyrir land hefðu verið
algengar meðan stofninn var af
eðlilegri stærð. Um og upp úr
1960 hefði mikið verið af sumar-
gotssíldinni fyrir norðan, en þá
hefðu menn ekki litið við henni
vegna þess hve horuð síldin var.
Norsk-íslenska síldin hrygnir í
febrúar — mars, en sumargots-
síldin í júlímánuði yfirleitt,
þannig að ætistímabil hennar
byrjaði seint. Veiðar á þessari
síld byrja fyrir Suðurlandi í lok
næsta mánaðar.
Sumardagur við Tjörnina.
Reynt að fá kjöt-
ið til Reykjavíkur
FULLTRÚAR kaupmanna, neyt-
endasamtakanna og Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins komu sam-
an til fundar i gærmorgun tii að
ræða kjötbirgðamálið. Af hálfu
Bjargað úr
höfninni
UM MIÐJAN dag í gær var lögregl-
an kvödd til aðstoðar að Faxagarði,
en maður hafði fallið þar í höfnina.
Lágsjávað var og gekk því erfiðlega
að bjarga manninum, en mikinn
mannfjölda dreif að og fylgdist með
björguninni. Að lokum tókst þó að
ná manninum úr sjónum og eftir að
hafa fengið aðhlynningu fékk mað-
urinn, sem var talsvert ölvaður,
gistingu í fangageymslum lögregl-
unnar.
Framleiðsluráðsins sat fundinn
Gunnar Guóbjartsson, fram-
kvæmdastjóri og kom fram hjá
honum að birgðatölur gæfu til
kynna að nokkuð væri til af kjöti
hjá einstökum sláturleyfishöfum
úti á landi og yrði af hálfu
Framleiðsluráðs reynt að fá það
dilkakjöt, sem væri fáanlegt.
fiutt til Reykjavíkur og þar yrði
því skipt réttlátlega milli kaup-
manna.
Fundinn sátu auk Gunnars,
Jónas Gunnarsson formaður Fé-
lags matvörukaupmanna, Jónas
Bjarnason, varaformaður Neyt-
endasamtakanna og Magnús
Finnsson, framkvæmdastjóri
Kaupmannasamtakanna. Gunnar
Guðbjartsson sagðist í gær ekki
vita hversu mikið yrði hægt að fá
af dilkakjöti til Reykjavíkur, en
ljóst væri að kjötsala síðustu daga
hefði verið mikil bæði í Reykjavík
og úti á landi. „Við sjáum að
verulega meira af kjöti hefur verið
selt það sem af er þessum mánuði
heldur en í júlí, þannig að það er
greinilegt að um hreint hamstur
er að ræða einnig í Reykjavík.
Hverjir sem það eru sem
hamstra," sagði Gunnar.
Fjármálaráðherra:
Afhenti Vigdísi
trúnaðarbréf
sitt fyrstur
sendiherra
NYSKIPAÐUR sendiherra
Bangladesh, Muhammed Faiz, af-
henti í gær nýkjörnum forseta
Islands, Vigdísi Finnbogadóttur,
trúnaðarbréf sitt að viðstöddum
utanríkisráðherra, Ólafi Jóhann-
essyni. Er Faiz fyrsti sendiherr-
ann, sem afhendir forsetanum
trúnaðarbréf sitt. Síðdegis þáði
sendiherrann boð forseta Islands
ásamt fleiri gestum.
Skipar nefnd til að
athuga skatta bænda
Kvikmyndin Leit að eldi:
Kostnaður var þegar orðinn
meiri en einn milljarður
EKKERT verður úr því að hér verði i sumar unnið að kvikmyndun
myndarinnar LEIT AÐ ELDI eins og ráðgert hafði verið, vegna
verkfalls bandariskra leikara. Að sögn Gísla Gestssonar. umboðs-
manns 20th Century Fox kvikmyndafélagsins, hefur ekki verið
ákveðið hvort myndin verður tekin næsta sumar eða siðar, en ekki
hefur verið hætt við myndatökuna, henni aðeins frestað.
Gísli sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að hugsanlegt
hefði verið að annað fyrirtæki
gengi inn í samninga, og gerði
myndina. Var þá verið að hugsa
um franskt fyrirtæki, en verkfall
leikara í Bandaríkjunum hefur
ekki áhrif annars staðar, og nær
raunar aðeins til helstu kvik-
myndafélaga vestan hafs. Undan-
þágu tókst ekki að fá fyrir hina
fjóra bandarísku leikara, þótt vel
liti út með það um tíma. Franska
fyrirtækið tók vel í hugmyndir
um að taka myndina að sér, en
bað um hálfs mánaðar umhugs-
unarfrest, sem meðal annars átti
að nota til að fara yfir fjárhags-
hliðina. 20th Century Fox treyst-
ist hins vegar ekki til að halda
framkvæmdum áfram í þann
tíma, svo sú erfiða ákvörðun var
tekin að hætta við myndatökuna í
sumar. Þegar hafði verið lagt í
gífurlegan kostnað vegna mynda-
tökunnar, og er hann þegar kom-
inn upp á annan milljarð ís-
lenskra króna. Þar af var kostn-
aður við dýrin sem hingað áttu að
koma um 100 milljónir króna. Þar
var um að ræða 15 fíla, tvö ljón
og bjarndýr með tvo húna, sem
verið hafa í sóttkví undanfarnar
vikur, og því ekki getað tekið þátt
í sirkussýningum. Stór hluti
kostnaðarins mun á hinn bóginn
nýtast síðar, er myndataka hefst
á ný, og þeir munir sem þegar
voru komnir hingað til lands
verða geymdir hér.
Gísli kvað hins vegar mjög fátt
fólk hafa verið ráðið, meðal
annars vegna þess að fréttir
bárust af erfiðleikunum vegna
verkfallsins. Þó hefði verið
ákveðið hverjir yrðu ráðnir ef af
hefði orðið, og þeir fáu sem þegar
voru byrjaðir störf vinna nú að
því að pakka saman. Gísli sagði,
að búið hefði verið að panta hótel,
og semja við fjölda aðila um
margvísleg verkefni, sem nú yrði
ekki af. Sagði hann alla þá er
málið snertu hafa tekið þessum
tíðindum vel, og segðust vonast
til að njóta viðskiptanna þegar
þar að kæmi. Kvaðst Gísli telja
Islendinga þekkja það vel til
verkfalla og afleiðinga þeirra, að
þeir hefðu skilning á að hér var
um að ræða óviðráðanlegar
ástæður sem fyrirtækið gat ekki
gert við. Þá hefði það einnig
komið sér vel hve snemma var
unnt að afpanta, en kvikmyndun-
in átti ekki að hefjast fyrr en
þann 22. þessa mánaðar.
FJÁRMÁLARÁÐHERRA skip-
aði i gær þriggja manna nefnd
til að kanna sérstaklega skatta
bænda vegna álagningar nú í
sumar. Eiga sæti i nefndinni
Sigurbjörn Þorhjörnsson, ríkis-
skattstjóri, Árni Jónasson, er-
indreki hjá Stéttarsambandi
bænda og Guðmundur Þor-
steinsson, bóndi á Skálpastöðum
í Lundareykjadal i Borgarfirði.
Varamaður Guðmundar er Rík-
hard Brynjólfsson á Hvanneyri
og ritari nefndarinnar er Lárus
Ögmundsson, fulltrúi i f jármála-
ráðuneytinu.
Nefndin mun halda sinn
fyrsta fund i dag.
Fram hefur komið af hálfu
bænda meðal annars gagnrýni á
framkvæmd þess ákvæðis skatta-
Iaganna, sem heimilar að áætla
mönnum í atvinnurekstri tekjur,
sambærilegar því, sem þeir hefðu
getað haft hjá öðrum í hliðstæðri
atvinnugrein. Hafa tekjur bænda
í mörgum tilvikum verið hækkað-
ar með vísan í þetta ákvæði af
skattstjórum.
Gunnar Guðbjartsson, formað-
ur Stéttarsambands bænda, sagði
í gær að Stéttarsambandið hefði
óskað eftir því við fjármálaráð-
herra að slík nefnd yrði skipuð og
sjálfsagt hefði ráðherrann fengið
að heyra frá fleirum um þetta
mál. Gunnar sagði, að Stéttar-
sambandið hefði ekki enn fengið
nægjanleg gögn til að unnt væri
að fá heildayfirsýn yfir þetta mál
en ljóst væri að álagning á
bændur virtist ekki hafa verið
framkvæmd að öllu leyti með
sama hætti í öllum skattumdæm-
um.
Fiskifræðingar
við seiðatalningu
IIAFRANNSÓKNASKIPIN ,
Bjarni Sæmundsson og Árni
Friðriksson eru þessa dagana við
seiðatalningu, en í slíka leið-
angra er farið um þetta leyti á
hverju ári. Niðurstöður þessara
athugana liggja væntanlega fyrir
um mánaðamótin. Gert er ráð
fyrir að Hafþór, sem verið hefur í
miklum og tímafrekum viðgerð-
um, geti haldið til kolmunna-
rannsókna á næstunni.
Norðmenn eru nú með tvö
hafrannsóknaskip við kolmunna-
rannsóknir í Austurdjúpinu og
ætla þeir að reyna að gera úttekt
á göngu kolmunnans á þessum
slóðum. tslendingar eru ekki aðil-
ar að þeim rannsóknum, en
fylgjast með þeim. Þá er eitt
norskt rannsóknaskip á Jan May-
en/íslandssvæðinu við rannsókn-
ir á loðnu og loðnuleit.