Morgunblaðið - 15.08.1980, Síða 19

Morgunblaðið - 15.08.1980, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1980 19 Engar knattspyrnulýsingar í Ríkisf jölmiðlunum í sumar Ríkisútvarpið fer fram á samnings- gerð sem KSÍ sættir sig ekki við ÞAÐ HEFUR vakiö athygli fólks aö í sumar hefur hvorki veriö sjón- varpað eða lýst nokkrum knatt- spyrnuleik og hefur þetta eðlilega vakið mikla gremju meðal manna, einkum úti á landsbyggðinni, sem eðlilega eiga erfiöara um vik með að fylgjast með knattspyrnunni, en fólk á höfuðborgarsvæðinu. Þetta mun stafa af því, að erfiðlega hefur gengið að ná samningum milli Ríkisútvarpsins og Knattspyrnu- sambands fslands. Til þess að fá nánari skýringu á þessum málum, sneri blaðið sér til þeirra Ellerts Schram formanns KSÍ, Hjartar Pálssonar dagskrárstjóra og Harðar Vilhjálmssonar fjármálastjóra Ríkisútvarpsins og innti þá um gang mála og fara svör þeirra hér á eftir. KSÍ leggur áherzlu á sérsamninga Til skamms tíma sömdu sérsam- bönd innan íþróttahreyfingarinnar hvert fyrir sig við Ríkisútvarpið. Nú hefur það beðið um að ÍSÍ semdi sameiginlega fyrir hönd allra sér- sambandanna og talað var um, að til greiðslu kæmu þrjátíu milljónir, sem siðan yrði skipt á milli þeirra og var þessi tilhögun samþykkt af flestum þeirra," sagði Ellert Schram, formaður KSÍ, í spjalli við Mbl. Stærri samböndin hafa lagst gegn þessari tillögu og við hjá KSÍ leggjum mikla áherzlu á eigin samninga. Knattspyrnusambandið er algjörlega sjálfstætt innan íþróttahreyfingarinnar og sér um allan sinn rekstur sjálft og án afskipta annarra. Við teljum það forsendu rekstrar KSÍ að við önnumst sjálfir allan okkar rekstur og samninga af hvaða tagi sem er, allt annað er hreinlega að afsala sér sjálfstæði og ef beita á okkur einhverjum sameiginlegum þving- unum, er um það algjör samstaða innan stjórnarinnar að hún mun öll segja af sér. Miklum og ströngum fundahöld- um í vor lauk með því að KSÍ lýsti yfir því, að það sæi sér engan veginn fært að taka þátt í slíkum sameigin- legum samningum og gefa þannig ÍSI umboð til að fara með mikilvæg- an hluta af stjórnsýslu okkar. Ríkis- útvarpinu var boðið að taka leiki sumarsins til útsendinga án þess að samningar yrðu gerðir strax, það hefði mátt gera þegar betur stæði á. Þetta tilboð var algerlega hunzað af þeirra hálfu. Þess ber auðvitað að gæta að þetta er mikill tekjumissir fyrir knattspyrnufélögin sjálf, því þau fá allar tekjur af eigin leikjum sjálf. Það er einnig mjög óhentugt fyrir samböndin, ef um ákveðinn fastan samningstíma er að ræða, sem dæmi um það má nefna að á haustin veit KSÍ tiltölulega lítið um hvað verður um að vera sumarið eftir og fyrir HSÍ er jafnerfitt að gera sér grein fyrir því á vorin hvað verður um að vera veturinn eftir. Heildarsamningar mikil- vægt skipulagsatriði „Við hjá dagskrárdeild Ríkisút- varpsins erum alveg jafn áhugasamir og áður um að veita íþróttum eðlilegt rúm í útsending- um og áður og veita þannig um leið hlustendum og áhorfendum sjó- nvarps og útvarps þá þjónustu, sem þeir eiga rétt á,“ sagði Hjörtur Pálsson, dagskrárstjóri Ríkisútv- arpsins, í spjalli við Mbl. „Þau vandamál, sem nú eru komin upp, stafa alls ekki af því að Ríkisútvarp- ið sé eitthvað á móti íþróttum og sé að reyna að koma þeim út úr húsi, heldur er þetta að mestu leyti skipulagsatriði af okkar hálfu. Við erum fáliðaðir á dagskrárdeildinni, svo það hefur verið mjög tímafrekt og fyrirhafnarmikið að standa í samningum við hvert sérsamband fyrir sig, auk þess, sem það hefur gert okkur mjög erfitt fyrir, hvað lítið hefur verið vitað um það, sem fram undan hefur verið á hverjum tíma og oft höfum við af þessum sökum þurft að riðla áður ákveðinni dagskrá vegna lýsinga, sem skynd- ilega hafa komið upp. Vegna þessa höfum við talið heppilegast fyrir alla aðila að samið væri sameiginlega fyrir öll sérsam- böndin undir forsæti ÍSÍ, sem þá jafnframt sæi um skiptingu efnis milli íþróttagreina og deildi greiðsl- um niður á sama hátt. Þetta skiptir okkur verulega máli, skipulagslega séð. Ég veit ekki til þess að þarna komi fjármálin nokkuð inn í af okkar hálfu, það er ekki um neins konar samdrátt að ræða, sem í för með sér hefði niðurskurð á íþrótta- efni. Við leggjum það mikla áherzlu á að sameiginlegir samningar náist, að við munum ekki að svo stöddu fara út i neina samninga við einstök sérsambönd og ef svo fer að einhver þeirra kljufi sig útúr sameiginlegri samningagerð, munum við láta það ganga fyrir að semja við þau sambönd, sem vilja semja sameigin- lega. Hvað síðan verður er ekki ljóst, en vonandi líður ekki langur tími þar til heildarlausn hefur náðst. „Leggjum megin- áherzlu á heildar- samninga við ÍSÍ“ Það er ætlunin innan viku að reyna til þrautar að fá ÍSÍ til að samræma samningagerð fyrir öll sérsamböndin sautján. Við hjá Ríkisútvarpinu gerum okkur veru- legar vonir um að skynsemisjón- armið verði þá látið ráða,“ sagði Hörður Vilhjálmsson, fjármála- stjóri Ríkisútvarpsins, í samtali við Mbl. „Meðan á þessu stendur, treystum við okkur ekki til að reyna að ganga til samninga við einstök sérsambönd, en þau hafa hingað til verið ófáanleg til að gera heildar- samninga og á það sérstaklega við Handknattleiks- og Knattspyrnu- samband íslands, en það er samn- ingur í gildi við Körfuknattieiks- sambandið til 1. október. Hvað varðar greiðslur af okkar hálfu til KSI fyrir síðasta keppnis- tímabil er það að segja, að þegar hefur verið greitt fyrir alla 1. deildarleiki, sem sýndir voru, en aðeins á eftir að gera upp fyrir það, sem sýnt var úr landsleikjum, en um þá náðust aldrei samningar í fyrra. Það er einlægur vilji hjá forráða- mönnum Ríkisútvarpsins til þess að ná samningum við íþróttahreyfingina og gera henni þau skil í fjöimiðlum, sem henni ber. Ástæðan til þess að við erum tregir til að gera samninga við einstök sérsambönd er sú, að við teljum eðlilegast að ÍSÍ hafi yfir- umsjón með samningum fyrir alla íþróttahreyfinguna. íþrótta- sambandið hlýtur að vera hæfara til þess en við, að setja saman slíkan heildarsamning og koma í veg fyrir að íþróttum verði mismunað í út- sendingum. Fari hins vegar svo, að ekki náist heildarsamningar við öll sérsam- böndin, þykir mér líklegt að við munum fyrst í stað semja við þau sambönd, sem semja vilja saman og taka siðan hin samböndin til athug- unar þar á eftir. Upphæðin, sem ætlunin hefur verið að greiða ÍSÍ fyrir íþróttaefni er sú sama og áður, en að sjálfsögðu vísitölubætt og yrði þá eitthvað á milli 30 og 40 milljónir króna. 400 milljóna halli á Sjónvarpinu fyrri hluta ársins: Viljum ekki gerast of háðir auglýsendum segir Höröur Vilhjálmsson fjármálastjóri VIÐ viljum ekki að sjónvarpið verði of háð auglýsendum hvað tekjur varðar. og því mun verða farið mjög varlega í að hækka auglýsingaverð mikið frá þvi sem nú er eða að gera auglýsinga- tekjur hlutfallsiega meiri i heild- artekjum sjónvarpsins,“ sagði Hörður Vilhjálmsson fjármála- stjóri Rikisútvarpsins i samtali við Morgunblaðið í gær. Ilörður var að því spurður, hvort til greina kæmi að hækka auglýs- ingaverð sjónvarps til að bæta úr erfiðri rckstrarstöðu stofnunar- innar. Fram hefur komið, að tap á rekstri sjónvarpsins fyrri hluta þessa árs nemur 400 milljónum króna. Munar þar mest um að stofnunin fær nú ekki lengur tolltekjur af sjónvarpstækjum eins og áður var. bær renna nú beint i rikissjóð. Hörður Vilhjálmsson sagði, að það væri mikill misskilningur, að auglýsingaverð Sjónvarps væri nú hlutfallslega lægra en var á fyrstu árum þess, ef miðað er við heilsíðu- auglýsingu í dagblöðum. . Hörður sagði að verð sjónvarpsauglýsinga hefði að vísu verið mun hærra fyrstu mánuðina, en því síðan breytt, „vegna þess að það stóðst ekki“. Hörður sagði erfitt að finna hliðstæður á verði sjónvarpsaug- lýsinga, þar sem þær væru ekki algengar í sjónvarpsstöðvum Evr- ópu. Þó væri þess að geta, að í Finnlandi væri ríkið með sjón- varpsstöð, með auglýsingum eins og hér tíðkaðist. Sagði Hörður að 20.1% af tekjum sjónvarpsstöðvar- innar kæmu inn í auglýsingum, og væri það mjög svipað og hjá þeirri islensku. Yfir verð á auglýsingum fyrir hverja mínútu kvaðst Hörður ekki hafa yfirlit. „En í dag fékkst samþykkt hækkun á auglýsinga- verðinu," sagði Hörður, „og fer verð hverrar mínútu í 350 þúsund krónur þann 1. okt. n.k., úr 250, og er því um 40% hækkun að ræða. Þá hafði verðið hækkað um 25% þann 1. júní, og ef farið verður að mínum ráðum verður ekki um örari verðhækkanir að ræða.“ Kvaðst Hörður telja að halla- rekstri yrði því að mæta með auknum ríkisútgjöldum. „Mér finnst það óheillastefna, ef Sjón- varpið færi að berjast fyrir aug- lýsingatekjum, á sama hátt og síðdegisblöðin gera til dæmis," sagði Hörður, „yið viljum að sjón- varpið haldi frelsi sínu gagnvart auglýsendum." Hörður kvaðst að lokum ekki telja, að þessi fjárhags- vandi myndi bitna á gæðum efnis sjónvarpsins á þessu ári, en þó yrði að leita ódýrra og kostnaðarminni lausna, það væri augljóst. í framhaldi af orðum Harðar Vilhjálmssonar fjármálastjóra Ríkisútvarpsins birtir Morgun- blaðið hér yfirlit yfir þróun aug- lýsingaverðs í sjónvarpi og dag- blöðunum. Miðað er við eina mín- útu í sjónvarpsútsendingu, og heil- síðuauglýsingu í Morgunblaðinu. Tímabil 1 mínúta 1 síða 30. sept. 1966 12.000 13.000 1. marz 1967 9.000 13.000 1. apríl 1970 12.000 20.000 1/11-31/12/70 15.000 25.000 1. jan. 1971 12.000 25.000 1/11-31/12-71 15.000 25.000 1. jan.1972 12.000 27.000 1. ágúst1972 15.000 36.000 1/11-31/12/72 20.000 36.000 1. jan.1973 15.000 36.000 1. maí 1973 16.000 40.000 1/11-31/12/73 22.000 48.000 1. jan. 1974 19.000 48.000 1/11-31/12/74 26.000 80.000 , 1. jan.1975 26.000 80.000 1/11-31/12/75 38.000 100.000 1. jan. 1976 52.000 100.000 1. marz 1976 66.000 120.000 1. okt. 1976 84.000 132.000 8/9-1/10/77 102.000 180.000 1. okt. 1978 140.000 288.000 1. marz 1979 360.000 1. júlí 1979 420.000 20. sept 1979 480.000 1. jan.1980 200.000 540.000 1. júní1980 250.000 580.000 Formaður Félags kartöflubænda við Eyjaf jörð: Bjartsýnn á uppskeruna, en svartsýnn á afkomuna - INNFLUTNINGUR á erlendum kartöflum kemur verulega til með að draga úr sölu á fslenzkum kart- öflum og gcra okkur erfitt fyrir, en svo sannarlega var ekki á það bætandi, — sagði Sveinberg Laxdal á Túnsbergi á Svalbarðsströnd f samtali við Mbl. i gær, en hann er formaður Félags kartöflubænda við Eyjafjörð. Hann sagði að mjög vel liti út með uppskeru i ár, en var hins vegar langt frá þvi að vera bjart- sýnn á möguleika bænda á að losna við framleiðsluna. — Á sama tíma og nægar íslenzkar kartöflur gætu verið á markaðnum er mokað inn hundruðum tonna af útlenzkum kartöflum, sagði Svein- berg. — Það þýðir lítið fyrir okkur að vera að taka upp kartöflur þegar við getum ekki losnað við þær og því er skárra að láta þær liggja í jörðinni og stækka aðeins. Mín skoðun er sú að vísitalan sé fölsuð með því að skella niðurgreiðslum á þessar innfluttu kartöflur og um leið erum við útilok- aðir frá markaðnum. Það var ein- kennandi, að nóg var af þessum innfluttu kartöflum í verzlunum nokkrum dögum fyrir útreikning vísi- tölunnar, en með þessu er einungis verið að falsa vísitöluna og plata launafólk í þrjá mánuði. — Síðasta ár var mjög erfitt hjá kartöfluframleiðendum og flestir berjast við langa skuldahala, en t fyrra varð víða nær algjör uppskeru- brestur. Ég seldi t.d. ekki einn einasta kartöflupoka í fyrrahaust og uppsker- an þá var tæpur helmingur af því útsæði, sem ég notaði í vor. Við fórum fram á aðstoð úr Bjargráðasjóði, en fengum ekki. Hins vegar fengum við loforð fyrir einhverjum lánum, en höfum ekki séð þau ennþá. Á sama tíma og þetta gerist eru ráðamenn að hvetja bændur til aukinnar kartöflu- ræktunar, en um leið virðist allt gert til að drepa búgreinina. — Aðstæður nú minna á sumarið 1978. Þá var mjög góð uppskera, en hins vegar mikið flutt inn og erlendar kartöflur voru i verzlunum langt fram á vetur. Bændum gekk illa að losna við sína uppskeru og það segir sig sjálft hversu erfitt það er að liggja lengi með afurðirnar í þeirri vaxtavitleysu, sem ríkir t þessu þjóð- félagi, — sagði Sveinberg Laxdal. Útsala Dömuullarpokabuxur Dömupils Dömublússur Herraskyrtur Herraæfingagallar Herraflannelbuxur Röndóttir barnabolir Barna deminpokabuxur Ljósakróna Kryddhilla m/klukku Aður Nú t&öeer- 5.995.- t&œcr- 4.995.- 12r900T- 4.995.- &r9957- 2.995.- 15900:- 7.995.- IBrSeOr- 3.995.- 899.- 1*900-.- 7.995.- 19900:- 11.900.- 299007- 9.995,- HAGKAUP Akureyri og Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.